Morgunblaðið - 28.09.1983, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 28.09.1983, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1983 57 fi lk í fréttum Afmælisfagnaður hjá Hussein HUSSEIN Jórdaníukonungur hélt nýlega upp á það með pompi og prakt, að honum hefur tekist að halda völdum í landinu í 31 ár. I'egar opinberu hátíðahöldin voru afstaðin kom fjölskyldan saman, nánustu vinir og vandamenn og allur barnahópurinn hans Husseins en þau eru tíu talsins. Núverandi kona Husseins heitir Nuur upp á arabísku en er raunar af ensku bergi brotin og ljóshærð og bláeyg. Þau eiga þrjú börn, sem bregð- ur meira í móðurættina hvað litaraftið varðar og því allólík afkomendum bedúínanna, hirðingj- anna, sem staðið hafa með Hussein í gegnum þykkt og þunnt. Mesta fagnaðarefnið á þessum tímamótum var þó það, að á undanförnum árum hefur enginn reynt að sækjast eftir lífi Husseins en það þykir nokkrum tíðindum sæta með þjóð- höfðingja á þessum slóðum. Christina á leið til fundar við Rod + Eins og komið hefur fram í fréttum stendur hjónaband þeirra Rod Stewart og Alönii, konu hans, á hinum mestu brauðfótum og segja sumir, að öih> sé lokið á milli þeirra. Rod situr ekki heima í sorg- um en er farinn að slá sér upp með annarri, danskri sýn- ingarstúlku, sem Christina heitir. Raunar reyna þau að láta sem minnst á samdrætt- inum bera og sverja fyrir að nokkur kunningsskapur sé með þeim en þau voru þó sam- an í London á dögunum og urðu samferða vestur um haf til New York þar sem þau dvöldu eina nótt á einu fínasta hóteli í borginni þar sem það kostar 12.000 kr. ísl. að halla sér eina nótt. Kunningjar Rods i London segja, að þau Christina hafi hist fyrst fyrir tveimur árum og þegar Rod var kominn til London eftir að hann fór að heiman hafi hann sent boð eftir henni til Banda- ríkjanna. 7* ARA GAMALT YFIR I VARARSKEGG + Bandaríkjamaðurinn Paul Miller státar sig af því að eiga lengsta yfir- skegg í heimi. Það er nokkuð á annan metra samtals og tók það Miller sjö löng ár að safna því. Hann var staddur í Frakklandi á dögunum og stefndi þar til sín þarlendum mönnum, sem þættust vera skeggprúð- ari en hann. Þeir reynd- ust hins vegar ekki vera til og þess vegna varð Miller bara að skála fyrir sjálfum sér, eða öllu heldur að sötra úr glas- inu í gegnum rör til að bleyta ekki skeggið. Bladburðarfólk óskast! G. ÞORSTEINSSON S JOHNSON H. Ármúla 1 Sími 85533 Húsbyggjendur - íbúðakaupendur Umsóknarfrestur um skuldbreytingarlán vegna skulda, sem stofnað hefur verið til vegna byggingar eða kaupa á eigin húsnæði í fyrsta sinn undanfarin 2 - 3 ár, rennur út föstudaginn3Q. september næstkomandi. Samband íslenskra viðskiptabanka Samband íslenskra sparisjóða Veljið það besta — Veljið IFORMICA BRAMD „Formica", fyrsta efni sinnar tegundar og alltaf síöan fremst um gæöi, útlit og endingu. Hvort sem um er aö ræöa eldhúsinnréttinguna, baöherbergiö, sól- bekkina eöa annarsstaðar þar sem reynir á hina níösterku húö „Formica". Og svo þarf ekki annaö en rakan klút til aö halda öllu hreinu. Fjölbreytt úrval af litum og mynstrum. Lítiö inn eöa hringiö. Vesturbær Austurbær Bárugata Flókagata 1—51

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.