Morgunblaðið - 28.09.1983, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1983
61
Skemmtikraftar hylltir á Bítlahátíðinni í Broadway.
Bítlamenning í Broadway
Guðlaugur Bergmann (í Karna-
bæ) skrifar:
„Hverjum á að þakka? Hverjum
á að hrósa? Hvílík hátíð. Allir,
sem að þessari hátíð stóðu, eiga
þakkir og hrós skilið.
Rokkhátíðin var frábær og mað-
ur sagði: Þetta er ekki hægt að
endurtaka.
En það var gert, jafnvel enn
betur. Bítlahátíðin er að öllu leyti
stórkostleg skemmtun, hvergi
„feilpúst", eins og sagt er.
Einn maður verður þó nefndur
með nafni; maðurinn, sem gerir
slíka skemmtun mögulega; maður-
inn, sem tekur á sig alla áhættu af
tapi og gróða. Það er ekki einn af
sextíumenningunum, sem eiga
listir og menningu á Islandi. Hann
heitir Ólafur Laufdal, eigandi
Broadway, sem með súrum svita
hefur komið upp þessari frábæru
menningarmiðstöð, án styrkja og
snobbs á kostnað almennings.
Þökk sé honum."
Þessir hringdu . . .
Þá er ekki unnið
af einlægum huga
Launamaður hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: — Eg styð
sparnaðartilraunir ríkisstjórn-
arinnar, eða hef gert það þar til
nú, að ég fer að hugsa mig tvisv-
ar um, þegar jafngrandvörum
manni og Baldri Möller, ráðu-
neytisstjóra, er ofboðið, hvernig
bruðlað er með opinbert fé vegna
utanferða. Þá fer það langt fram
úr öllu velsæmi að ætla að senda
tvisvar sinnum sjö menn á Alls-
herjarþing Sameinuðu þjóðanna,
í stað þess sem væri kappnóg, að
senda einn frá stjórnarflokkun-
um og einn frá stjórnarand-
stöðu, þar sem fyrir eru hjá
stofnuninni embættisménn ís-
lenskra stjórnvalda á fullum
launum. Ef ríkisstjórnin sýnir
ekki sama aðhald og sparnað
varðandi stjórnmálamenn og
gæðinga þeirra eins og þegar
sendisveinar og þvottakonur
eiga í hlut, þá er ekki unnið af
einlægum huga að lækningu
vandamálanna.
„Tunglskins-
söngur vinnu-
konunnar“
Ellen Stefánsdóttir hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: —
Ég tel mig vita, að kvæðið sem
birt var um helgina í þessum
dálkum, muni heita „Tunglskins-
söngur vinnukonunnar". Þetta
kvæði leiðir hugann að því, hvers
konar starf það hefur verið að
vera vinnukona. Þetta er eitt af
þeim störfum, sem eru að hverfa
með öllu. Ég held að þetta hafi
veri uppbyggilegra starf en ligg-
ur í augum uppi í fljótu bragði.
Ætli vinnukonurnar hafi ekki
verið betur undir það búnar að
stofna eigin heimili en mörg
stúlkan nú eftir langa skóla-
göngu, að skólagöngu ólastaðri?
Það eru bæjar-
búar sem gefa
Norðlendingur hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: — Oft sér
maður fréttafrásagnir af því, að
Lionsmenn eða aðrir slíkir eru
að „gefa gjafir". Nýlegt dæmi
um það í höfuðborg Norður-
lands. Þetta er allrar virðingar
vert, nema hvað ég hef lengi ver-
ið svolítið óánægður með orða-
lagið í blaðafrásögnunum:
Lionsklúbburinn gaf tæki til
sjúkrahússins og Borgarabíós.
Mér finnst það þurfi að leiðrétta
þessa hugsanavillu. Félögin, í
þessu tilviki Lionsklúbbur, eru
ekki að gefa neitt. Það gera að
sjálfsögðu bæjarbúar sem
styrkja starfsemina, með fram-
lagi sínu, það eru þeir sem leggja
fram féð. Lionsmennirnir eru
aðallega að koma þessum fjár-
málum áleiðis, þeir skipuleggja
og stjórna og inna af hendi mik-
ilvægt starf í þágu góðs málstað-
ar, um það er ekki að efast, en
hitt er óviðeigandi, að birta af
þeim myndir og uppviðhafnar-
myndir og segja, að þeir hafi
gefið hitt og þetta. Þetta er
ógreiði við málstaðinn og lítur út
eins og Lionsmenn séu að slá sig
til riddara á annarra kostnað og
bendir til að ekki sé nú beint
kristilegt hugarfar að baki. En
slíkt er þó ekki raunin á. Ég hef
starfað í félagi eins og þarna á í
hlut og þar kom þetta til um-
ræðu. Við komumst að þeirri
niðurstöðu að fyrrgreint orðalag
og umstang bæri að forðast og
gerðum það.
Hrökklaðist út
úr garðinum
4192-7828 hringdi og hafði eft-
irfarandi að segja: — Mig langar
til að þakka fyrir og taka undir
grein Sveinbjarnar I. Baldvins-
sonar, „Einskis manns land“,
sem birtist í Mbl. á sunnudaginn
var og fjallaði um Laugardals-
garðinn. Hann hafði orð á því, að
þar væri allt bannað, og auðvit-
að að vera í boltaleik. Ég hef
verið erlendis og kynnst reitum
eins og fyrrnefndum garði en
þar er andrúmsloftið allt annað.
Einn af góðviðrisdögunum nú
undanfarið fór ég inn í garðinn í
Laugardal og þrjú börn með
mér. Við vorum með bolta með-
ferðis og litla flugvél sem skotið
er af teygju. Fyrr en varði kom
til okkar einkennisklæddur mað-
ur. Og það var engu líkara en við
værum að gera af okkur ein-
hvern óskunda. Ég sagðist eiga
bágt með að skilja, hvernig hægt
væri að setja reglur, sem bönn-
uðu börnum að hreyfa sig í leik.
Hann hafði mörg orð á móti því
og var vondur. Og ég hrökklaðist
út úr garðinum með börnin.
GÆTUM TUNGUNNAR
Ýmist er sagt: láta í Ijós eða; láta í Ijósi.
Hvorttveggja er rétt.
Byrjenda- og
framhaldsflokkar.
Síðustu innritunardagar í síma
15359 kl. 13—19.
Afhending skírteina fer fram í
kennslusalnum þriðjudaginn
4. okt. kl. 17—19.
Ballettskóli
Guðbjargar Björgvins.
íþróttahúsinu Seltjarnarnesi, Litla sal.
Kennsla
hefst
í byrjun
október
TOLVUVÆÐING
á nútíma skrifstof u
MARKMIÐ:
Tilgangur námskeiðsins er að gera grein fyrir öllum þeim þáttum sem
hafa verður f huga við tölvuvæðingu á nútíma skrifstofum. Eftir nám-
skeiðið eiga þátttakendur að geta undirbúið og skipulagt tölvuvæðingur,
ákveðið hvað ber að tölvuvæða, valið réttan hugbúnað og tækjabúnað
sem hentar fyrir verkefnin og skipulagt nayðsynlegar breytingar sam-
fara tölvuvæðingunni.
EFNI:
— Introduction to Computers/Kynning á tölvum.
— Planning the New System/Skipulagning tölvuvæðingar.
— Personal Computers/Smátölvur.
— Communications and Networks/Samtenging tölva.
— Word Processing in Offices/Ritvinnsla á skrifstofum.
— Perpheral and optional Equipment/Jaðartæki og annar búnaður.
— Related Technologies in the Automated Office/Skrifstofusjálfvirkni.
— System Considerations/Samanburður valkosta.
— Conversion and Implementation/Breytingar og gangsetning.
— The Future of Computers and Office Automation/
Framtíð tölvunnar og skrifstofusjálfvirkni.
ÞÁTTTAKENDUR:
Námskeið hentar mjög vel fyrir starfandi ráðgjafa á tölvusviðinu, kerfis-
fræðinga og starfsmenn tölvudeilda. Námskeið þetta er kjörinn vett-
vangur fyrir þá stjórnendur sem vilja fylgjast með þeirri öru tækniþróun
sem er að eiga sér stað á sviði skrifstofutækni.
LEIÐBEINANDI:
Don J. Wessels, forstjóri fyrir-
tækisins Wessels Internation-
al, en hann hefur einu sinni
komið til fslands með tölvu-
námskeið. Don Wessels hefur
umfangsmikla reynslu í tölvu-
fræðum, bæði sem stjórnandi
tölvudeildar, ráðgjafi og kenn-
ari. Fyrirtæki hans býður upp
á mjög umfangsmikla tölvu-
fræðslu bæði í Bandaríkjunum
og á Norðurlöndunum.
STAÐUR OG TÍMI:
Kristalssalur Hótels Loftleiða, 5.-7. október kl. 09 til 17 alla dagana.
TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU
í SÍMA 82930
ATH: Starfsmenntunarsjóður Starfsmannafélags ríkisstofnana greiðir
þátttökugjald fyrir félaga sína á þessu námskeiði og skal sækja um það til
skrifstofu SFR.
m
STJÓRNUNARFÉLAG
ISLANDS i!á23