Morgunblaðið - 15.11.1983, Page 15

Morgunblaðið - 15.11.1983, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983 Mót æskumanna f Zug: Jón náði Ziiger á endasprettinum JÓN L. Árnason, alþjódlegur skákmeístari, hefur ekki slegið slöku við í taflmennskunni undan- farið. Eftir heimsmeistaramót unglingalandsliða í Chicago í ágúst hafði hann aðeins þriggja daga viðdvöl hér heima en hélt síðan beint til svissneska smábsjarins Zug þar sem hann tók þátt í alþjóð- legu móti ungra meistara, fyrir skákmenn 26 ára og yngri. Þar náði Jón að deila efsta sstinu á undan mörgum þekktum meistur- um. Er Zug-mótinu var lokið hélt hann síðan til Júgóslavíu þar sem árlega eru haldin á milli 20 og 30 alþjóðleg skákmót. Þar reyndist Jón aufúsugestur og var stax boðið í öflugt alþjóðlegt mót í Stara Pazova. Þar stóð hann sig einnig með miklum ágstum og skák- þreyta virðist ekki enn vera farin að há honum því nú tekur hann þátt í öðru öflugu móti í smábsn- um Bor, sem er einnig í Júgóslav- íu. Mót ungra meist- ara í Zug Níu af fjórtán þátttakendum á þessu móti komu beint frá heimsmeistaramótinu í Chicago, þ.á m. mestallt svissneska liðið. Beat Zuger, máttarstólpi Sviss- lendinga í Chicago tók forystuna strax í upphafi og fékk fimm vinninga úr fyrstu sjö skákun- um. Þá fór hann að sjá hilla und- ir áfanga að alþjóðlegum meist- aratitli og slakaði nokkuð á. Jón vann tvær fyrstu skákir sínar, en gerði síðan fimm jafntefli i röð. Þá tapaði hann klaufalega fyrir Englendingnum Daniel King og virtust þá möguleikar hans á efsta sæti úr sögunni. En Jón tvíefldist við tapið og með því að ná fjórum og hálfum vinn- ingi úr síðustu fimm skákunum tókst honum að ná Ziiger að vinningum og deila með honum efsta sætinu. Þessi frábæri árangur Jóns náðist ekki baráttulaust, það var ekki fyrr en eftir 107 leikja maraþonviðureign við franska alþjóðameistarann Roos að hon- um tókst að knýja fram sigur og þar með var efsta sætið í höfn. Úrslit á mótinu urðu þessi: 1—2. Jón L Árnason og Ziiger (Sviss) 9 v. af 13 mögu- legum. 3—4. Bischoff (V-Þýzkalandi) og King (Englandi) 8 v. 5. Flear (Englandi) 7% v. 6—8. Kindermann (V-Þýzka- landi), Dan Cramling (Svíþjóð) og Trepp (Sviss) 7 v. 9. Gobet (Sviss 6Vi v. 10. Roos (Frakklandi) 5V4 v. 11. Hofmann (Sviss) 5 v. 12—13. Rúfenacht og Kráhen- búhl (Sviss) 4 v. 14. Iten (Sviss) 3V4 v. Stara Pazova Mótið var haldið í smábæ, u.þ.b. 20 km frá Belgrad. Þar tefldu margir þekktir stórmeist- arar, öflugir alþjóðameistarar sem keppa að stórmeistara- áfanga og nokkrir heimamenn. Það var því við ramman reip að draga fyrir Jón, en hann endaði samt vel yfir 50% mörkunum og hefði átt möguleika á mjög háu sæti ef ekki hefði komið til óvænt tap fyrir júgóslavneska meistaranum Doljanin, sem varð næstneðstur. Úrslit mótsins urðu sem hér segir: 1—2. Agzamov (Sovétríkjun- um) og Simic (Júgóslav- íu) 10'Á v. af 14 mögu- legum. 3. Ivkov (Júgóslavíu) 9V4 v. 4. Adorjan (Ungverja- landi) 9 v. 5—6. Jón L. Árnason og Vel- imirovic (Júgóslavíu) 8V4 v. 7. Ivanovic (Júgóslavíu) 7*4 v. 9—10. DeFirmian (Bandaríkj- unum) og Horvath (Ungverjalandi) 6% v. 11—12. Gosanovic (Júgóslavíu) Jón L. Árnason og Tringov (Búlgaríu) 6 v. 13. Indic (Júgóslavíu) 4 v. 14. Doljanin (Júgóslavíu) 3 v. 15. Skoko (Júgóslavíu) 2 v. Báðir sigurvegararnir hlutu áfanga að stórmeistaratitli að launum. Simic náði sínum síð- asta áfanga og er því nýjasti stórmeistari Júgóslava. Defirmi- an hlýtur að hafa orðið fyrir vonbrigðum með árangur sinn, því hann er einn stigahæsti al- þjóðameistari heims um þessar mundir og oft verið hársbreidd frá stórmeistaraárangri. Jón vann Markus Trepp aftur í viðureign íslendinga og Svisslendinga í Chicago tefldi Jón L. Árnason við Markus Trepp og vann fremur örugglega í 40 leikjum með hvítu. Á mótinu í Zug áttust þessir skákmenn aftur við og enn hafði Jón hvítt og varð sama byrjunin uppi á teningnum: Hvítt: Jón L. Árnason Svart: Trepp (Sviss) Sikileyjarvörn I. e4 — c5, 2. Rf3 — Rc6, 3. d4 — cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — d6, 6. Bg5 Richter-Rauzer-árásin svonefnda. Annar möguleiki er Sozin-árásin, 6. Bc4. 6. — e6, 7. Dd2 — a6, 8. 0—0—0 — h6, 9. Be3 — Bd7, 10. f3 — b5, II. Rxc6 í Chicago lék Jón hér 11. g4 gegn Trepp og náði betri stöðu eftir 11. — Dc7, 12. Hgl — Re5, 13. h4 - b4, 14. Rbl - Rc4, 15. Bxc4 — Dcx4, 16. g5. Nú velur hann samt aðra leið. 11. — Bxc6, 12. hd — Dc7,13. Hgl — Db7 Það er ekki ljóst hvaða til- gangi þessi drottningarleikur hefur átt að þjóna. Eðlilegra virðist 13. — Be7. 14. g4 — Rd7, 15. g5 — hxg5, 16. hxg5 — Rc5, 17. Bg2 — Be7 18. Rd5! — exd5? Riddarinn var baneitraður eins og framhaldið leiðir í ljós. Skárra var því 18. — 0—0—0 þó hvítur hafi undirtökin eftir 19. Rxe7+ — Dxe7, 20. Db4 með hót- uninni 21. e5. 19. exd5 — Bd7, 20. Bxc5 — dxc5, 21. d6 — Bd8, 22. f4 — Da7, 23. Hhl! — Hg8, 24. Dd5 — Hc8, 25. g6! - Bc6, 26. d7+! — Dxd7, 27. Hhel+ og svartur gafst upp, því eftir 27. - Kf8, 28. Dxd7 - Bxd7, 29. Hxd7 - fxg6, 30. Bd5 blasir mátið við. Ný „Láru-bók“ komin út „HÚSIÐ við Silfurvatn" er fimmta bokin í flokknum „Láru-bækurnar“, en höfundur þeirra er Laura Ingalls Wilder. Fyrri bækurnar fjórar heita: „Húsið á sléttunni**, „Húsið í Stóru- Skógum", „Sveitadrengur" og „Húsið við ána“. „Karl Ingalls fær vel launaða vinnu hjá fyrirtæki sem er að leggja járnbraut vestur yfir Dak- óta, segir í frétt frá útgefanda. „Hann hefur líka hug á að eignast jörð á þeim slóðum til að tryggja framtíð fjölskyldunnar. Henni hefur liðið vel í húsinu við ána, en nú eru aðstæður breyttar. Og í námunda við Silfurvatn í Dakóta er mikið um að vera, fólk flykkist þangað til að nema land, og Karl ætlar ekki að verða síðastur í kapphlaupinu." „Húsið við Silfurvatn" er 240 blaðsíður prýdd mörgum teikning- um. Óskar Ingimarsson íslenskaði, en útgefandi er Setberg. heimili landsins! MVERDÆi áhveijumdegi. I-ELENE GJRTIS MVER DAG shampoo er sérlega milt og því erdaglegur hárþvottur ekkert vandamál. Eftir þvott með HVER DAG shampoo glansarhárið og það er auðvelt að greiða úr því. Ein afhinum mörgu tegundum HVER DAG shampoo hæfir Þínuhárí. DALFELL Heilch/erslunsf slmi 23099 Fyrir normal hár Fyrir þunnt og viðkvæmt hár Gegn flösu Fyrir þurrt hár Fyrir feitt hár flárnæring (

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.