Morgunblaðið - 25.11.1983, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1983
„Eysteinn — í eld-
línu stjórnmálanna“
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 20 kr. eintakiö.
Kristmann
Guðmundsson kvaddur
Með Kristmanni Guð-
mundssyni er genginn
sá íslenskur rithöfundur sem
einna víðlesnastur hefur orðið
heima og heiman. Dr. Gylfi Þ.
Gíslason, prófessor, rifjar það
upp í minningargrein um
Kristmann hér í blaðinu í
dag, hvernig hann fékk stað-
festingu fyrir því hve þekktur
Kristmann Guðmundsson var
í þýskumælandi löndum á ár-
unum fyrir stríð. En Krist-
mann hvarf héðan af landi
ungur að árum til að skrifa í
útlöndum: „Sár, en óbugaður
ákveður hann að fara til Nor-
egs vorið 1924, nema, vinna,
og verða rithöfundur á norska
tungu. Og fer — vitanlega
allslaus — hann á einungis
fötin sem hann stendur í, og
svo sem fyrir einni máltíð
þegar hann stígur á strönd
þess lands, sem á að verða
orrustuvöllur hans og önnur
fóstra," sagði séra Sigurður
Einarsson í Holti í grein sem
endurprentuð er fremst í rit-
safni Kristmanns Guðmunds-
sonar, sem Almenna bókafé-
lagið gefur út.
Sjálfur lýsti Kristmann
Guðmundsson tilgangi sínum
með skáldskap með þessum
orðum í viðtali er birtist hér í
Morgunblaðinu 30. október
síðastliðinn: „Það er nú erfitt
að svara slíkri spurningu því
skáldskapur hefur afar marg-
þættan tilgang. Undirniðri
hefur vakað fyrir mér að
vekja fólk til vitundar um
fegurð lífsins og efla með því
kjark og þor. En svo kemur
margt fleira til. Ég hef nefni-
lega alltaf gert mér ljóst að
það fylgir því ábyrgð hverju
rithöfundur sáir í huga les-
enda sinna og hjörtu. Það
mun ekki fjarri að lesendur
mínir séu um 5 milljónir
manns — og einhver áhrif
hefur lestur bóka minna haft
á þetta fólk. Einhvern tíma
setti ég mér það að skrifa ekki
neitt sem ég vildi síður að
dætur mínar læsu, og við
þann mælikvarða hef ég
ávallt haldið mig í mínum
skrifum."
Kristmann Guðmundsson
skoraðist ekki undan ábyrgð
sem rithöfundur. Hann sneri
heim til íslands 1937 eftir að
hafa ritað 12 bækur á norsku.
„Ég fékk einfaldlega ekki
rönd við reist," sagði Krist-
mann í Morgunblaðsviðtalinu
um þrá sína eftir að snúa aft-
ur til íslands. „Það var líka
móðurmálið sem lét mig ekki
í friði — íslenskan er töfrandi
tungumál og ég vildi umfram
allt skrifa á íslensku." Honum
var þó ekki alls staðar vel tek-
ið. Séra Sigurður í Holti segir
að Kristmann hafi „lent á
lista hinna bannfærðu, sem
ekki höfðu lund í sér til þess
að strita blindir og tjóðraðir
fyrir áróðursvagni heims-
kommúnismans".
Hér verður ekki rifjað upp
hvernig að Kristmanni Guð-
mundssyni var sótt en hann
sýndi þá eins og jafnan
endranær að hann hafði kjark
og þor. Þegar hann lést sat
hann á friðarstóli. Hann
stundaði ritstörf fram til
hinstu stundar og hefur sjálf-
ur fært bækurnar sem hann
ritaði á norsku yfir á íslenska
tungu. Vinsældir Kristmanns
Guðmundssonar meðal ís-
lenskra lesenda sýna að
„bannfæringin" spillti ekki
því áliti sem hann naut meðal
þeirra. Hans mun verða
minnst sem eins af merkustu
rithöfundum þjóðarinnar á
þessari öld.
Meirihlutinn
gegn verðbólgu
*
Isjálfu sér ætti það ekki að
koma neinum á óvart að
meirihluti íslendinga sé and-
vígur verðbólgu og vilji tais-
vert á sig leggja til að sigrast
á henni. Engu að síður er
niðurstaðan í skoðanakönnun
Hagvangs hf. athyglisverð, að
65,4% aðspurðra séu tilbúnir
til að sætta sig við minni
kaupmátt en áður til að sigr-
ast á verðbólgunni. Þeim hef-
ur brugðist bogalistin sem
undir pólitískri försjá Al-
þýðubandalagsins leggja
stund á þann áróður að
áreynslulaust sé unnt að snúa
við blaðinu.
Ábyrgð stjórnmálamanna á
að vaxa í réttu hlutfalli við
traustið sem kjósendur sýna
þeim. í svari þeirra sem Hag-
vangur hf. spurði um verð-
bólguna er lýst yfir stuðningi
við stefnu ríkisstjórnarinnar.
Eins og Morgunblaðið hefur
oft bent á er sá árangur í
verðbólgustríðinu sem nú hef-
ur náðst ekki einhlítur. Til að
sigurinn vinnist þarf meira
en tímabundinn árangur, það
þarf varanlega baráttu sem
fylgt er fram af festu og ör-
yggi. Stjórnmálamennirnir
mega ekki bregðast því
trausti sem fólkið í landinu
ber til þess að nú verði barist
til sigurs.
„í BÓKINNI dregur Vilhjálmur upp
heilsteypta mynd og fellir mig inn í
hana, í staö þess að setja mig einan í
ramma upp á vegg. Sjónarmið annarra
í ýmsum málum koma fram og það tel
ég mjög jákvætt," sagði Eysteinn
Jónsson, fyrrum ráðherra, aíþingis-
maöur og formaður Framsóknar-
flokksins, á blaðamannafundi sem
bókaútgáfan Vaka hélt nýlega. Var
fundurinn haldinn í tilefni útkomu
ævisögu Eysteins, en fyrri hluti henn-
ar er nýlega kominn út. Nefnist bókin
„Eysteinn — í eldlínu stjórnmál-
anna“, en Eysteinn Jónsson var ráð-
herra í 19 ár og eru nú liðin 50 ár frá
því hann settist á þing.
Bókina hefur annar fyrrum ráð-
herra, Vilhjálmur Hjálmarsson,
skrifað og hefur hún verið í smíðum
sl. tvö ár. Segir Vilhjálmur m.a. í
formála sínum: „Það hlýtur að telj-
ast eðlilegt að skrifuð sé saga Ey-
steins Jónssonar, því hann er einn
Fyrri hluti ævisögu
Eysteins Jónssonar
kominn út
þeirra manna sem markað hafa
greinileg spor í þjóðarsöguna.
Margt ber til þess að svo hafi orðið.
Eysteinn var ráðherra í hartnær tvo
áratugi og aðeins einn maður hefur
setið lengur á Alþingi íslendinga.
Enginn hefur mér vitanlega verið
lengur í forystusveit islensks
stjórnmálaflokks, öldungis óslitið í
hálfa öld.“
Um efnismeðferð segir höfundur
ennfremur í inngangi: „Samtíma-
sagan verður sjaldan hlutlaus,
kannski hlutlæg þegar best lætur.
Sögur stjórnmálamanna og flokks-
leiðtoga fá sjálfkrafa blæ af við-
horfum flokks og manns og í þeim
eru stjórnmálin fyrirferðarmikil."
í bókinni er stuðst við ýmsar
heimildir og frásagnir aðrar en frá
Eysteini sjálfum, m.a. gerðarbækur
Framsóknarflokksins, minnisblöð
Eysteins frá fyrri tímum og trúnað-
arbréf flokksforystumanna. Ekki er
frásögnin einungis af stjórnmála-
manninum Eysteini Jónssyni og
störfum hans á Alþingi, heldur er
drepið á ýmsa aðra þætti í lífi hans,
uppvaxtarárin á Djúpavogi, skóla-
vist, áhugamál og sagt frá minnis-
stæðum mönnum sem urðu á vegi
hans í gegnum tíðina.
Þessi fyrri hluti ævisögunnar nær
til ársins 1942, en síðara bindið er
ráðgert að gefa út að ári liðnu. Bók-
in er 358 blaðsíður og prýða hana
um 70 ljósmyndir.
w\
Forseti
Islands
frá
Portúgal
til
Þýzkalands
OPINBERRI heimsókn for-
seta íslands, Vigdísar Finn-
bogadóttur, til Portúgals lauk í
gærmorgun og var efri myndin
tekin, þegar forseti Portúgals,
Antonio Ramalho Eanes,
kvaddi Vigdísi á Lissabon-flug-
velli. Hin myndin var tekin í
Bonn í gærkvöldi af forseta ís-
lands og Franz-Josef Strauss,
forseta efri deildar Sambands-
þingsins í Bonn, þar sem þau
ræðast við fyrir kvöldverðar-
boð, þar sem Franz-Josef
Strauss var gestgjafi.
Forseti íslands fer í dag frá
Bonn til Vestur-Berlínar þar
sem hún verður viðstödd opnun
íslandskynningar.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1983
21
Litið yfir bókina fullgerða. F.v. Ólafur Ragnarsson, framkvæmdastjóri bókaútgáf-
unnar Vöku, Vilhjálmur Hjálmarsson, höfundur, og sögupersónan, Eysteinn Jóns-
son.
Smyslov sást yfir
þrumuleik og
Ribli jafnaði metin
UNGVERJINN Zoltan Ribli jafnaði metin í einvígi sínu við Vassily Smyslov í
London í gærkvöldi með því að vinna aðra einvígisskákina, en í fyrradag vann
Smyslov þá fyrstu. Skákin fór mjög rólega af stað og báðir eyddu miklum tíma,
þó sérstaklega Smyslov. í miðtaflinu varð heimsmeistaranum fyrrverandi síðan
á gróf yfirsjón. Ribli tókst aö opna stöðuna með öflugum peðsleik og eftir það
varð ekki við neitt ráðið hjá svörtum. Síðustu leikjunum lék Smyslov síðan með
örfáar mínútur eftir á klukkunni á meðan Ribli átti stundarfjórðung eftir.
Ungverjinn hagnýtti sér tímaþröng andstæðingsins með því að leika mjög hratt
og fyrir þrjá síðustu leikina átti Smyslov aðeins 45 sekúndur.
Skák
Margeir Pétursson
Á þessum stutta tíma náði hann
ekki að finna vörn gegn framrás
hvíts frípeðs og ákvað að gefast upp
í 42. leik, þegar skákin hefði að öðr-
um kosti farið í bið.
Hvítt: Zoltan Ribli
Svart: Vassily Smyslov
Bogoljubov-indversk vörn
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 —
Bb4+
Bogo-indverska vörnin þykir
traust vörn fyrir svart og hefur ver-
ið vinsæl upp á síðkastið. Hún þykir
þó vart gefa möguleika á meira en
jöfnu tafli ef hvftur teflir sæmilega
vel.
4. Bd2 - a5, 5. g3 - d5, 6. Dc2 -
Rc6.
Smyslov teflir uppáhaldsafbrigði
sitt. Á síðasta ári sigraði hann m.a.
stórmeistarann Walter Browne og
Robert Hubner með því. Þetta val
hans hefur því áreiðanlega ekki
komið Ribli á óvart.
7. a3 — Be7, 8. Bg2 — dxc4, 9. Dxc4
— Dd5.
Smyslov er sjálfum sér líkur.
Hann vill strax beina skákinni út í
endatafl, þar sem hann er sterkari
fyrir en í flækjum miðtaflsins.
10. Dd3 — 0-0, 11. Rc3 — Dh5, 12. 0-0
— Hd8, 13. Dc4.
Svartur hótaði 13. — e5.
13. - Bd7, 14. Hfel.
Það er greinilegt að hvítur mun
koma e2-e4 í framkvæmd og staða
hans er því töluvert rýmri. Nú hugs-
aði Smyslov sig lengi um áður en
hann valdi áætlun. Á endanum
ákvað hann að freista þess að ná
mótspili á drottningarvæng.
14. — Rd5, 15. e4 — Rb6, 16. Dd3 —
a4, 17. h3 — f6!
Nauðsynlegur varnarleikur sem
veitir svörtu drottningunni að auki
athvarf á f7.
18. d5 — Ra5, 19. Hadl — Rbc4, 20.
Bcl — e5, 21. Rh4 — b5?!
Það er ekki líkt Smyslov að veikja
stöðu sína að óþörfu, en hann hlýtur
að hafa ofmetið mótspilsmöguleika
sína á drottningarvængnum. Með
hinum eðlilega leik 21. — Rd6, hefði
hann getað haldið stöðuyfirburðum
hvíts í lágmarki.
22. Rf5 — Bf8, 23. Dc2 — Rd6, 24. g4
— Df7, 25. f4!
Ribli teflir grimmt til vinnings.
Nú átti hann 35 mínútur eftir fram
að 40. leik en Smyslov 19. Á svarleik
sinn eyddi Sovétmaðurinn átta mín-
útum af dýrmætum tima sínum, en
varð samt á yfirsjón:
25. - Rxf5?
Nauðsynlegt var 25. — exf4, 26.
Bxf4 — Rac4, eða strax 25. — Rac4!
sem heldur nokkurn veginn í horf-
inu.
26. exf5 — exf4, 27. d6!
Nú opnast allar flóðgáttir vegna
hótananna 28. Bd5 og 28. Bxa8.
27. — c6, 28. Rxb5! — Dc4,
Þannig heldur Smyslov sér á floti,
en það er ekki til frambúðar, því
staðan er skyndilega komin í mola.
29. Rc3 — Bxd6, 30. Dxa4
Auðvitað ekki 30. Hxd6? — Dc5+
30. — Be5, 31. He4!
Hvítur verður nú peði yfir, því
svarta peðið á f4 verður ekki valdað
frekar en nú er gert.
31. — Dxa4, 32. Hxa4 — Be8, 33.
Hxd8 — Hxd8, 34. Bxf4.
Svartur á góðar jafnteflislíkur
eftir 34. Hxa5? — Bxc3, 35. bxc3 —
Hdl+.
34. — Bxf4, 35. Hxf4 — Rb3, 36. Hb4
— Rd4, 37. a4.
Með sælu peði yfir og vel staðsett
lið er úrvinnslan leikur einn fyrir
meistara sem býr yfir jafn miklu
tæknilegu öryggi og Ribli.
37. — Rc2, 38. Hb6 - Re3, 39. a5 —
Rc4, 40. Ha6 — Hb8, 41. Bfl — Re5.
Eftir 41. - Rxb2, 42. Hb6! -
Hxb6, 43. axb6 verður peðið óum-
flýjanlega að drottningu.
42. Hb6
Smyslov gafst upp, því hann ræð-
ur ekki við frípeðið miklu lengur.
Framhaldið gæti t.d. orðið 42. —
Hxb6, 43. axb6 - Rd7, 44. b7 - Kf7,
45. Ra4 - Ke7, 46. Rc5 - Rb8, 47.
Ra6 o.s.frv.
BSRB á fundi með fjármálaráðherra:
Bráðabirgðasamkomulag
gert til skamms tíma
Samningamenn Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja lögðu til
á fundi með fjármálaráðherra og
samninganefnd ríkisins í gær-
morgun, að gert yrði bráðabirgða-
samkomulag til skamms tíma á
meðan unnið væri að gerð nýrra
kjarasamninga, að sögn Kristjáns
Thorlacius, formanns BSRB. „Við
fengum engin efnisleg svör við
þessu en ráðherrann kvaðst ætla
aö taka hugmyndir okkar til athug-
unar og svara þeim fljótlega,"
sagði Kristján í samtali við blm.
Mbl. í gærkvöldi.
Samningamenn BSRB lögðu
til að samningaviðræður hæfust
nú þegar enda væri búið að fella
úr gildi bann við gerð nýrra
kjarasamninga. „Þessi krafa
okkar er grundvölluð á ályktun
bandalagsráðstefnu okkar 3.
nóvember sl., en þar var áhersla
lögð á þrjú meginatriði," sagði
Kristján.
„í fyrsta lagi yrði bætt staða
þeirra, sem við lökust kjör búa.
Dagvinnulaun yrðu ekki íægri en
15 þúsund krónur á núgildandi
verðlagi og staða lífeyrisþega
yrði ekki lakari en þessu nemur.
í öðru lagi yrði kaupmáttar-
skerðingin stöðvuð, kjararýrn-
unin bætt í áföngum og stuðlað
að aukinni tekjujöfnun í þjóðfé-
laginu. Og í þriðja lagi yrðu á ný
teknar upp verðbætur á laun, að
öðrum kosti aðeins samið til
skemmri tíma.
Þetta var efni fundarins en
hvað gerist á næstunni er engin
leið að segja nokkuð um á þess-
ari stundu," sagði Kristján
Thorlacius.
Samninganefnd BSRB á fundinum með fjármálaráðherra í gærmorgun. Ljósm. Mbl. Kristján Einarsson.
Fjármálaráðherra um niðurstöðu fundar með samninganefnd BSRB:
Viðræðufundur um
miðja næstu viku
„NIÐURSTAÐA fundarins var sú
að við munum athuga hvort við
getum ekki hist á ný til viðræðna
fijótlega. Ég reikna með að það
geti orðið um miðja næstu viku,“
sagði Albert Guðmundsson fjár-
málaráðherra eftir fund sem hann
átti með fulltrúum BSRB i gær-
morgun.
Albert sagði að fundurinn
hefði eingöngu verið til kynn-
ingar og til ákvörðunar um
framhald viðræðna, en aðalósk
BSRB-manna hefði verið sú að
viðræður gætu hafist hið fyrsta.
Aðspurður sagði fjármálaráð-
herra rétt vera að ein af óskum
BSRB-manna væri sú að lág-
markslaun yrðu 15 þús. kr.
Listasafni íslands fært
Kjarvalsmálverk að gjöf
Frú Mabel Sigurjónsson hefur fært Lista-
safni íslands að gjöf olíumálverkið Fantasía
eftir Jóhannes S. Kjarval, málað 1949. Þessi
höfðinglega gjöf er Listasafninu afar kær-
komin vegna þess hve fá Kjarvalsverk safnið
á frá þessum tíma. Mabel Sigurjónsson er 96
ára gömul og er fædd í Bandaríkjunum, dótt-
ir Howard Ayers, prófessors í líffræði við
Harvard-háskóla. Hún er fjölmenntuð kona,
lagði stund á háskólanám og lauk m.a.
söngnámi. Mabel giftist Lárusi Sigurjóns-
syni, cand. theol. og skáldi, árið 1920. Þau
bjuggu fyrst í Bandaríkjunum en fluttust til
íslands árið 1949 og voru búsett hér síðan.
Kjarval gaf Lárusi myndina við komu hans
til íslands, þeir voru kunningjar, báðir ætt-
aðir frá Borgarfirði Eystra. Lárus lést árið
1967 og gefur Mabel myndina til minningar
um mann sinn.
Mabel Sigurjónsson afhendir Selmu
Jónsdóttur, forstöðumanni Listasafns íslands,
málverk Kjarvals, Fantasía.