Morgunblaðið - 06.01.1984, Blaðsíða 10
HVAD ER AD GERAST UM HELGINA?
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1984
Alþýðuleikhúsið:
Kaffitár og frelsi
á Kjarvalsstöðum
Sýningar Alþýðuleikhússins á
leikritinu Kattitár og frelsi eftir
þýska kvikmyndageröarmanninn
Fassbinder, sem frumsýnt var í
nóvember sl. hefjast á ný, laugar-
daginn 7. janúar kl. 16.00. í þetta
sinn veröa sýningar leikritsins á
Kjarvalsstöðum og veröa þær á
laugardagseftirmiödögum og
þriöjudagskvöldum.
Leikendur í Kaffitári og frelsi eru
þau: Jórunn Siguröardóttir, Pálmi
Á. Gestsson, Borgar Garðarsson,
Sigurveig Jónsdóttir og Ólíur Örn
Thoroddsen, sem nú tekur viö
hlutverki Bjarna Ingvarssonar.
Leikmynd og búningar eru verk
Guörúnar Erlu Geirsdóttur, en leik-
stjóri sýningarinnar er Sigrún
Valbergsdóttir.
Akureyri:
Leikklúbburinn Saga
sýnir ímyndunarveikina
Leikklúbburinn Saga á Akureyri sýnir nú um þessar mundir gleöileikinn ímyndunarveikina eftir franska
leikritaskáldiö Moliére.
Fimmtán hlutverk eru í sýninguni sem þrettán leikarar fara meö. í helstu hlutverkum eru: Magnús
Sigurólason, Erna Hrönn Magnúsdóttir, Anna Jóna Vigfúsdóttir, Inga Vala Jónsdóttir, Ólafur Hilmarsson
og Jóhann Pálsson. Leikstjóri er Þröstur Guöbjartsson.
Leikritið gerist í París 1673 og er skopleg ádeila á læknastéttina. Það fjallar í stuttu máli um aldraöan
auökýfing, Argan aö nafni, og samskipti hans við lækna og lyfsala. Einnig fléttast inn í leikinn ástamál eldri
dóttur hans, en Argan er staöráöinn í aö gifta hana ríkum lækni þvert ofan i vilja hennar. ímyndunarveikin
var fyrst sýnd hér á landi 1886 i Reykjavík.
Næstu sýningar hjá Leikklúbbnum Sögu veröa í Dynheimum: Föstudaginn 6. jan. kl. 23.30, laugardaginn
7. jan. kl. 20.30 og þriðjudaginn 10. jan. kl. 21.00.
Ásmundarsalur:
Málverkasýning
Hallgríms
Helgasonar
Hallgrímur Helgason opnar í kvöld, 6. janúar, sína fyrstu mál-
verkasýningu í Ásmundarsal viö Freyjugötu. Hallgrímur hefur stund-
að nám bæöi heima og erlendis og sýnt á sýningum í JL-húsi,
Kjarvalsstööum, Mávahlíö 24 og Stýrimannastig 8, en eins og áöur
sagöi er þetta hans fyrsta einkasýning. Á henni eru 20 olíumálverk
og málaður rekaviöur, 40 litlir sjóreknir skúlptúrar, og eru öll verkin
gerð á síðastliönu ári. Sýningin veröur opin frá 2—10 alla daga til
15. janúar. Samtímis sýnir Hallgrímur teikningar á Mokka-kaffi.
Nýlistasafnið:
Grafík og málverk
Guðmundar
Thoroddsen
Guömundur Thoroddsen opnar í dag, föstudag, sýningu í Nýlista-
safninu við Vatnsstíg og er það önnur einkasýning hans.
Á sýningunni eru grafíkmyndir og málverk sem Guðmundur hefur
unnið á síðastliönu ári og eru þau öll til sölu.
Guömundur stundaði nám í Myndlistarskóla Reykjavíkur hjá
Hringi Jóhannessyni, var síöan í myndlistarnámi í Frakklandi og við
Ríkisakademíuna í Amsterdam.
Sýningin í Nýlistasafninu er opin daglega frá kl. 16.00—20.00 og
um helgar frá kl. 16.00—22.00. Sýningin stendur til 15. janúar.
Þjóðleikhúsið:
Tyrkja-Gudda,
Skvaldur og Lína
Þjóöleikhúsið sýnir nú um helg-
ina þrjú leikrit. i kvöld, föstu-
dagskvöld, er sjötta sýning á leik-
riti Jakobs Jónssonar frá Hrauni,
Tyrkja-Guddu, og veröur leikritiö
einnig sýnt á sunnudagskvöld.
Helstu leikendur í Tyrkja-Guddu
eru Steinunn Jóhannesdóttir, Sig-
uröur Karlsson og Hákon Waage.
Gamanleikurinn Skvaldur verð-
ur siöan sýndur tvisvar sinnum á
laugardagskvöldiö, er fyrri sýning
kl. 20.00 og sú síöari kl. 23.30.
Fjölskylduleikritiö Lína Lang-
sokkur veröur síöan sýnt kl. 15.00
á sunnudag, en sýningum á leikrit-
inu fer nú fækkandi.
Miðnætursýning á
Spanskflugunni
í Garði
Litla leikfélagiö í Garöi sýnir á
laugardagskvöld síðustu sýningu á
gamanleiknum Spanskflugunni
eftir Arnold og Bach. Veröur þaö
miðnætursýning og hefst hún kl.
23.30 í Samkomuhúsinu í Garöi.
Leikstjóri er Guörún Ásmunds-
dóttir.
Leikfélag Reykjavíkur:
Guð gaf mér eyra
og Hart í bak
Tvö leikrit veröa sýnd hjá Leik-
félagi Reykjavíkur um helgina. i
kvöld (föstudagskvöld) veröur 15.
sýning á bandaríska leikritinu Guö
gaf mér eyra eftir Mark Medoff.
Með stærstu hlutverk fara Sigurö-
ur Skúlason og Berglind Stefáns-
dóttir. Auk þess fara Karl Ágúst
Úlfsson, Lilja Þórisdóttir, Valgerö-
ur Dan, Sigríöur Hagalín og Harald
G. Haralds meö stór hlutverk.
Leikstjóri er Þorsteinn Gunnars-
son. Guö gaf mér eyra er einnig
sýnt á sunnudagskvöldiö.
Á laugardagskvöld er verk Jök-
uls Jakobssonar Hart í bak á fjöl-
unum í lönó, en sýningar eru nú
orönar 30 talsins. Leikstjóri er
Hallmar Sigurðsson en meö aöal-
hlutverk fara Soffía Jakobsdóttir,
Jón Sigurbjörnsson, Kristján
Franklin Magnús og Edda Heiörún
Backman.