Morgunblaðið - 07.01.1984, Síða 1

Morgunblaðið - 07.01.1984, Síða 1
40 SÍÐUR OG LESBÓK STOFNAÐ 1913 5. tbl. 71. árg. LAUGARDAGUR 7. JANUAR 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sýrlendingar styrkja stöðu sína f Líbanon: Tíu eldflaugapallar á mikilvægu svæði Beirút og Kuwait, 6. janúar. AP. ^L. W Hvort þessi raynd gefur væntanlegt samstarf til kynna skal ósagt látið, en Anker Jörgensen, leiðtogi danskra jafnaðarmanna, hellir hér kaffi í bollann hjá Poul Schliiter, forsætisráðherra, sem talinn er munu tvöfalda fylgi sitt í þingkosningunum í Danmörku á þriðjudag. sfmamynd-AP. Beirul og Kuwait, 6. janúar. AP. Sýrlendingar hafa að sögn dagblaðs í Kuwait komið fyrir sovéskum loftvarnarflaugum á hæðunum í Akkar-héraði í Líb- anon, þaöan sem sjá má vel yfir Trípólí og strandlengjuna, auk nær alls norðurhluta landsins. Vitnaði blaðið í al- menna borgara á nærliggjandi svæðum og ónafngreinda hernaðarsérfræðinga. Talið er að a.m.k. 10 eldflauga- pöllum hafi verið komið fyrir. Hafi Sýrlendingar notað þennan tíma árs til aðgerða, þar sem þá er gjarnan lágskýjað og erfitt fyrir njósnavélar óvinanna að koma auga á flaugarnar. Þrátt fyrir þessar fregnir lýsti yfirmaður alls ísraelska heraflans, Moshe Levy, því yfir í dag, að Isra- el stafaði ekki nein hætta af her Sýrlendinga í Líbanon. Líbanski herinn og skyttur drúsa skiptust í dag á skotum skammt sunnan bækistöðvar bandarísku gæsluliðanna á sama tíma og milli- göngumenn lögðust á eitt um að sjóða saman áætlun, sem ætlað er að binda endi á erjur stríðandi fylkinga í Líbanon. Til götubardaga kom í Trípólí í morgun annan daginn í röð. Áttust þar við herflokkar studdir af Sýr- lendingum og hópar úr hreyfingu sem nefnir sig „sameiningarhreyf- ingu múhammeðs". Beitt var sprengjuvörpum og öflugum vél- byssum og komu átökin í kjölfar hálfs sólarhrings hlés, sem varð á bardögum frá í gær. Hvorki útvarp né lögregla gátu um mannfall í þessum siðustu skærum í Trípólí. Haft var eftir nánum aðstoðar- manni Yasser Arafat, leiðtoga PLO, í dagblaði í Kuwait í dag, að Vorið á næsta leiti í dönskum efitahagsmálum Kaupmannahbfn, 6. janúar. Frá Sveini Sigurdssyni, hlabamanni Morgunblabsins. ^ J Kaupmannahofn, 6. januar. „ÞEGAR kosningunum er lokið og fjárlögin hafa verið samþykkt er vor- ið á næsta leiti í dönskum efna- hagsmálum.“ Um þetta ber öllum saman, jafnt stjórnarsinnum sem andstæðingum stjórnarinnar, jafnað- armönnum, sem eiga nú meira í vök að verjast en þeir hafa áður reynt um áratugaskeið. Mikill uppgangur er nú í dönsku efnahagslífi. Framleiðni og fram- leiðsla hefur aukist og hagur at- vinnuveganna fer batnandi. Út- flutningur hefur aukist og Danir virðast aftur samkeppnisfærir á erlendum mörkuðum. Hallinn á ríkisfjárlögunum er nú talinn Dollarinn óstöðvandi London, 6. janúar. AP. „ÞAÐ ER ekkert sem stöðvar þessa þróun,“ sagði einn þeirra, sem versla með gjaldeyri í Lund- únum, í dag eftir að staða Banda- ríkjadollars hafði styrkst gegn sterlingspundinu, frankanum og ítölsku lírunni þriðja daginn í röð. Staða dollars er nú víðast hvar sterkari en hún hefur ver- ið um langt skeið. 1 janúarmán- uði 1974 sveiflaðist gengi doll- ars mjög upp á við og náði þá hámarki gagnvart v-þýska markinu. í ljósi sömu þróunar er þess skammt að bíða að það met falli einnig. Verð á gulli lækkaði aðeins í dag, eða um 2 dollara hver únsa. Skipti þá engu hvar í heiminum var, þróunin alls staðar hin sama. i Morgunblaðsins. verða um 56 milljarðar danskra króna, en var áætlaður um 60 milljarðar fyrir aðeins tveimur mánuðum. Henning Christopher- sen, fjármálaráðherra, sagði á blaðamannafundi i dag, að það væri um 13 milljörðum minna en gert hefði verið ráð fyrir í fjárlög- unum fyrir síðasta ár. Atvinnuleysi er mikið í Dan- mörku og samkvæmt skráningu eru nú 280.000 manns atvinnulaus- ir. Stéttarfélögin og aðalstjórnar- andstöðuflokkurinn, jafnaðar- menn, reka þann áróður, að atvinnuleysi fari vaxandi, en það hefur í raun ekki aukist neitt frá því í apríl í fyrra. Um hitt eru allir sammála, að það muni draga mjög hægt úr því þrátt fyrir batnandi hag og stafar það einkum af hinum gífurlega sparnaði í opinberum rekstri og þeirri miklu endurskipu- lagningu, sem átt hefur sér stað í atvinnulífinu. Fækkun starfsfólks á sama tíma og framleiðnin hefur aukist. í öllum skoðanakönnunum kem- ur fram, að Paul Schluter og hægri flokkurinn muni tvöfalda fylgi sitt í kosningunum frá því sem nú er. Fá 51 eða 52 þingmenn í stað 26 nú. Mun það ekki síst verða á kostnað samstarfsflokkanna þriggja, Venstre, miðdemókrata og kristi- lega þjóðarflokksins svo og fram- faraflokksins. Hins vegar er þvi spáð, að jafnaðarmenn, helsti stjórnarandstöðuflokkurinn, muni nokkurn veginn halda fylgi sínu. Tapa einum eða tveimur þing- mönnum. Jafnaðarmenn eru og verða kannski eftir kosningar stærsti flokkurinn á þingi, en svo er að sjá sem þeir standi á örlagaríkum krossgötum. Sömu vegamótum og aðrir flokkar jafnaðarmanna í Evrópu eru nú staddir á. Velferðarríkið og hinn endalausi fjáraustur í allt milli himins og jarðar tilheyrir nú liðinni tíð, efn- in eru ekki næg, og það varð að stöðva hann. Ef rætt er við „mann- inn á götunni" eins og sagt er, and- stæðinga eða stuðningsmenn stjórnarinnar, eru næstum allir sammála um, að Paul Schlúter, íhaldsmaðurinn sem lætur sér all- ar kennisetningar í léttu rúmi liggja, hafi gert það sem gera þurfti. Sjá nánar: „Þingkosningarnar ráða úrslitum ..." á bls. 18—19. hann óttaðist orðið mjög um líf sit.t. Hani Al-Hassan, stjórnmála- legur ráðgjafi Arafats, sagði blað- inu að í nokkrum ónefndum borg- um Arabalanda biðu menn færis á leiðtoganum. Hætt við verðhækkanir: Taumlítill fögnuður í Túnisborg Túnisborg, 6. janúar. Al'. ÓHÆTT er að segja, að skipst hafi á skin og skúrir í miðborg Túnisborgar í dag. Mikill fjöldi fólks, sem fyllti göt- ur og torg í miðborginni í morgun, laust upp fagnaðarópi er Habib Bourguiba, forseti landsins, til- kynnti, að hætt hefði verið við fyrirhugaðar hækkanir á matvöru. Fögnuðurinn var taumlítill og viða sást almenningur faðma her- menn stjórnarinnar á götum úti, aðeins rúmum sólarhring eftir að þeir höfðu skotið fólk til bana í þeirri viðleitni sinni að stilla til friðar í borginni. Fagnaðarópin snerust síðdegis upp í óánægjuhróp, þar sem þess var krafist, að forsætisráðherra landsins, Mohamed Mzali, segði taf- arlaust af sér. Óánægjan í garð Mzali á rætur sínar að rekja til þeirrar ákvörðun- ar ríkisstjórnar landsins rétt fyrir áramótin að hækka verð á brauði um 110% og verð á annarri mat- vöru verulega. LESBÓK MOROUNDLAOSIN8. Llfe anö Work. A»cðbóK HltrQnnbUðsmá LJÓS Í MYRKRI ÍA*1M wmm&tum í vw. LESBOK MORQUNBLADS I NS I' Lesbók í nýjum búningi I DAG fylgir Morgunblaðinu fyrsta tölublað Lesbókar 1984. Eins og lesendur sjá, er Lesbókin nú með nýjum svip og í sama broti og Morgunblaðið. Hér er um stækkun að ræða, sem nemur tveimur Lesbókar- síðum eins og þær voru og verð- ur væntanlega til að auka fjöl- breytni biaðsins, sem mun nú eins og áður birta innlent og er- lent efni um menningarmál og listir, þjóðfræði, umhverfismál, en þar að auki skáldskap í bundnu og óbundu máli, einnig vísindagreinar og viðtöl. Lesbók hóf göngu sína sem fylgirit Morgunblaðsins haustið 1925 og var óbreytt til 1962 að blaðið var stækkað í broti og því gerbreytt. Með því sniði hefur Lesbók komið út í 22 ár.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.