Morgunblaðið - 07.01.1984, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 07.01.1984, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JANUAR 1984 3 Margeir Pétursson Margeir sigraði í Noregi MARGEIR Pétursson sigraði á alþjóðlegu skákmóti í Noregi sem lauk í gær. Hann hlaut 7 vinninga af 9 mögulegum en Jóhann Hjartarson og Rajko- vic, skákmeistari Júgóslavíu, urðu í 2.—3. sæti með 6'A vinn- ing. í 4.—5. sæti urðu júgó- slavneski stórmeistarinn Knez- evic og Valkesalmi frá Finn- landi með 5‘A vinning. Hinn kunni bandaríski stórmeistari Benkö hafnaði í 6. sæti með 5 vinninga. Margeir tryggði sér sigur í mótinu með því að gera jafn- tefli við Knezevic í síðustu umferð mótsins og Jóhann skaust upp í annað sætið með því að sigra De Lange frá Nor- egi. í 8. umferð vann Margeir Valkesalmi og var það eini ósigur Finnans á mótinu og Jóhann vann Peter Stigar frá Noregi. Stefán Þórisson hlaut 2xk vinning á mótinu, tapaði þremur síðustu skákunum. Jó- hann Hjartarson náði ekki að tryggja sér áfanga að alþjóð- legum meistaratitli. Hlaut þó betri árangur en tefldi aðeins við þrjá skákmenn með yfir 2300 Elostig en þurfti að tefla við fjóra. * Oveðrið í Sandgerði: Óttast að þrjár trillur séu ónýtar SJAVARBORG GK 60 náðist á flot á flóðinu í gærmorgun í Sandgerðishöfn, þar sem hana sieit upp og rak upp í grjótgarð í óveðrinu sem gerði á fimmtudagsmorgunn. Það voru tvær jarðýtur sem náðu henni á flot á flóð- inu eftir tilraunir til þess í tæpan Wi tíma. Ekki er fullljóst með skemmdir á skipinu, en seinnipartinn í gær átti að draga það inn til Njarðvíkur, þar sem setja átti það í slipp til að full- kanna skemmdir. Við tilraunir til að ná skipinu á flot í fyrrakvöld kom í ljós leki að skipinu. Lekinn var þétt- ur þá um nóttina og reyndist hafa skapast vegna sprungu sem hafði opnast við þverband. Óttast er að þrjár af þeim fimm trillum sem rak upp í grjótgarðinn í Sandgerðishöfn, séu svo mikið skemmdar, að þær verði dæmdar ónýtar. Ein virðist lítið sem ekkert skemmd, en óljóst er með ástand þeirrar fimmtu. Auk vörubílsins sem fór í höfnina, hreif sjórinn einnig með sér mannlausa Austin Mini-þifreið sem var á hafnarbakk- anum. Þá komst sjór í skreiðargeymslu- hús Rafns hf. í Sandgerði, þar sem geymdar voru 50 lestir af skreið sem þiðu útskipunar. Rífa verður þann fisk allan upp og ekki ljóst fyrr en það hefur verið gert hve miklar skemmdir hafa orðið á honum, en það er nokkuð víst að þær eru all- nokkrar. Þá fuku einnig skreiðar- hjallar, með 20—30 tonnum af skreiö frá fyrirtækinu. Sjávarborgin utan í grjótgarðinum í Sandgerðishöfn. Morjfunhl*óid Kridþjófur Áhrif kuldakastsins í Flórída: Appelsínusafi hækkar í verði BÚAST má við hækkunum á app- elsínusafa og skyldum vörum strax um næstu mánaðamót, að því er Marinó Þorsteinsson, skrifstofu- stjóri hjá Sól hf., sagði í samtali við blm. Morgunblaðsins í gær. Ástæð- an er kuldakastið, sem gekk yfir Florida og fleiri suðurfylki Banda- ríkjanna á dögunum. „Ég segi þetta án þess að vita nákvæmlega hve hækkunin verður mikil og þyggi raunar aðeins á fyrri reynslu. Það hefur ekki mátt verða mjög kalt þarna vestra án þess að appelsínur og afurðir úr þeim, eða jafnvel skyldar vörur, hækkuðu í verði," sagði Marinó. „Við höfum engar ákveðnar upp- lýsingar um þessar yfirvofandi hækkanir fengið frá Bandaríkjun- um en ég tel víst, að af þeim verði." Marinó sagði að hjá Sól hf., sem framleiðir m.a. Tropicana- appelsínusafa, væru til birgðir er ættu að duga fram eftir þessum mánuði. „Þegar við pöntum aftur á næstu dögum ættum við að fá upplýsingar um verðhækkanir og þá hlýtur næsta sending að kosta eitthvað meira en sú síðasta," sagði hann. Lýst eftir sjö- tugum manni LÝST er eftir 70 ára gömlum manni, Kristjáni Jenssyni, Álftamýri 10, Rvk. Kristján er 175 sm hár, þrekvax- inn, gráhærður og notar gleraugu. Hann var klæddur í brúnan mokka- jakka, gráar buxur og í svörtum skóm. Hann var með brúna mokka- húfu og með brúnar mokkalúffur. Kristján sást síðast við heimili sitt um kl. 02.00 sl. miðvikudag. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferð- ir Kristjáns eftir þann tíma vin- samlegast láti lögregluna vita. 50 þús. kr. stolið úr bíl á Akranesi í GÆR var 50 þúsund krónum stolið úr bifreið við Merkurteig á Akra- nesi. Atburðurinn átti sér stað um klukkan 14. Eigandi bifreiðarinn- ar brá sér frá í augnablik, en þeg- ar hann kom til bifreiðarinnar á nýjan leik var taska með pening- unum í horfin. Lögreglan á Akra- nesi biður alla þá, sem upplýs- ingar geta gefið, vinsamlega að gera sér viðvart og jafnframt vill hún koma því á framfæri til for- eldra að athuga hvort börn eða unglingar hafa óeðlilega mikið fé undir höndum. „Hneyksli að Morgunblaðið skuli birta nokkuð af slíku“ — segir Þorsteinn Sæmundsson um spádóma sem birtust í blaðinu „ÞAÐ ER hneyksli að Morgun- blaðið skuli birta nokkuð af slíku. Morgunblaðið birtir alltof mikið af efni, stjörnuspeki og öðru, sem ýtir undir hjátrú hjá fólki. Þetta er allt saman hrein fjarstæða og ekkert af þessu ætti að birtast. Hreint út sagt, þetta er ekki umræðuvert einu sinni,“ sagði Þorsteinn Sæ- mundsson, stjarnfræðingur, er Morgunblaðið þar undir hann spá- dóm þýsks stjörnuspekings fyrir ísland árið 1984, sem birtist í Morgunblaðinu á gamlársdag. Tilefni fyrirspurnarinnar eru flóðin á Akranesi, en stjörnu- spekingurinn segir að búast megi við flóðbylgjum á Islandi á árinu eða „gera má ráð fyrir miklum flóðbylgjum á íslandi" eins og það er orðað. Árið 1980, milli jóla og nýárs, gerði mikið óveður á Akranesi af vestan og þá eyðilagðist 60—80 metra kafli af grjótvarnargarð- inum þar. Hið sama endurtók sig 14. feþrúar 1982 og hvarf þá 60 metra kafli af enda sjóvarnar- garðsins. Samkvæmt heimildum Morgunbiaðsins hefur oft flætt upp Ægisgötuna þar sem húsin stóðu sem hrundu, en aldrei eins og nú, en ekki eru nema um 20 ár síðan þau elstu þeirra voru reist. „Þetta mynduð þið sjá svart á hvítu, ef þið tækjuð spár þessara svokölluðu frægu stjörnuspek- inga, eins og til dæmis Jeanne Dixon, sem Morgunblaðið birti oft eftir spádóma hér áður fyrr og bæruð þá saman við það sem gerðist. Ef tekið væri yfirlit yfir það hverju hún hefur spáð og hvað hefur ræst kæmi í ljós, hve mikil endaleysa þetta er. Ég hef séð slík yfirlit og þau eru fróð- leg. Ef svo vill til að einhver spá- dómur reynist réttur, þá er um hreina tilviljun að ræða og ekk- ert annað,“ sagði Þorsteinn Sæmundsson ennfremur. Heimsborgin — miðstöð viðskipta og listalífs Evrópu Nú er rétti tíminn til aö gera beztu inn- kaup ársins á janúar- útsölunum í öllum helztu stórverzlunum Lundúnaborgar. London er háborg tónlistar- og leikhúslífs. Þar má heyra og sjá frægustu og beztu listamenn heimsins koma fram. Cumberland Hotel Næturlifiö í London er fjölbreytt- ara en víöast annarsstaöar, meö úrval matsölu- og skemmtistaða. ÚTSÝN Lykillinn aö vel- heppnaöri ferö! í KAUPBÆTI: Tekiö á móti þér um leiö og þú kemur úr flugvélinni á Lundún- arflugvelli. Flutningur frá og til flugvallar, innritun á hótel, dag- leg aöstoö þaulkunnugs fararstjóra meöan á dvölinni stendur. Allt svo auövelt og öruggt meö Eyrúnu fararstjóra. LUNDÚNAFERÐIN SEM BORGAR SIG SKEMMTILEGT — ÓDÝRT — ÖRUGGT Farþegar ÚTSÝNAR feröast á lægstu fargjöldum og búa á völdum hótelum fyrir stór- lækkað verö. Feröaskrifstofan ÚTSÝN Reykjavík Austurstræti 17, sími 26611. Akureyri Hafnarstræti 98, sími 22911. Umboösmenn um allt land.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.