Morgunblaðið - 07.01.1984, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1984
4
Peninga-
markadurinn
GENGISSKRÁNING
NR. 4 — 6. JANÚAR
1984
Kr. Kr. Toll-
Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala gengi
1 Dollar 29,150 29,230 28,810
1 SLpund 41,036 41,149 41,328
1 Kan. dollar 23,292 23,356 23,155
1 Donsk kr. 2,8794 2,8873 2,8926
1 Norsk kr. 3,7125 3,7227 3,7133
1 Sensk kr. 3,5716 3,5814 3,5749
1 FL mark 4,9132 4,9267 4,9197
1 Fr. franki 3,4098 3,4191 3,4236
1 Beljj. tranki 0,5109 0,5123 0,5138
1 Sv. franki 13,0536 13,0894 13,1673
1 Holl. gyllini 9,2805 9,3060 9,3191
1 V-þ. mark 10,3792 10,4077 10,4754
1 It. líra 0,01718 0,01723 0,01725
1 Austurr. sch. 1,4763 1,4804 1,4862
1 Port esrudo 0,2147 0,2153 0,2172
1 Sp. peseti 0,1817 0,1822 0,1829
1 Jap. yen 0,12516 0,12550 0,12330
1 frsktpund 32^69 32,358 32,454
SDR. (SérsL
dráttarr.) 05/1 30,1455 30,2285
Beljr. franki 0,5019 0,5033
V
Vextir: (ársvextir)
Frá og með 21. desember 1983
INNLÁNSVEXTIR:
1. Sparisjóösbækur................21,5%
2. Sparisjóösreikningar, 3 mán.1).23,0%
3. Sparisjóösreikningar, 12. mán. 1)... 25,0%
4. Verðtryggöir 3 mán. reikningar...0,0%
5. Verðtryggöir 6 mán. reikningar. 1,5%
6. Ávisana- og hlaupareikningar... 10,0%
7. Innlendir gjaldeyrisreikningar:
a. innstæöur í dollurum.......... 7,0%
b. innstæöur í sterlingspundum. 7,0%
c. innstæöur í v-þýzkum mörkum... 4,0%
d. innstæöur í dönskum krónum.... 7,0%
1) Vextir færðir tvisvar á ári.
ÚTLÁNSVEXTIR:
HÁMARKSVEXTIR
(Veröbótaþáttur i sviga)
1. Víxlar, torvextir..... (18,5%) 24,0%
2. Hlaupareikningar ..... (18,5%) 23,5%
3. Afuröalán, endurseljanleg (20,0%) 23,5%
4. Skuldabréf ........... (20,5%) 27,0%
5. Visitölubundin skuldabréf:
a. Lánstími minnst 6 mán. 2,0%
b. Lánstími minnst 2% ár 3,5%
c. Lánstími minnst 5 ár 4,0%
6. Vanskilavextir á mán..........3,25%
Lífeyrissjóðslán:
Lífeyrisajóöur starfamanna rfkisins:
Lánsupphæö er nú 260 þúsund ný-
krónur og er lániö vísitölubundiö meö
lánskjaravísitölu, en ársvextir eru 2%.
Lánstími er allt aö 25 ár, en getur veriö
skemmri, óski lántakandi þess, og eins
ef eign sú, sem veö er í er lítilfjörleg, þá
getur sjóöurinn stytt lánstímann.
Lifeyrissjóöur verzlunarmanna:
Lánsupphæö er nú eftir 3ja ára aöild aö
lífeyrissjóönum 120.000 nýkrónur, en
fyrir hvern ársfjóröung umfram 3 ár
bætast viö lániö 10.000 nýkrónur, unz
sjóösfélagi hefur náö 5 ára aöild aö
sjóönum. Á tímabilinu frá 5 til 10 ára
sjóösaöild bætast viö höfuöstól leyfi-
legrar lánsupphæöar 5.000 nýkrónur á
hverjum ársfjóróungi, en eftir 10 ára
sjóösaöild er lánsupphæöin oröin
300.000 nýkrónur. Eftir 10 ára aöild
bætast viö 2.500 nýkrónur fyrir hvern
ársfjóróung sem líöur. Því er í raun ekk-
ert hámarkslán í sjóönum.
Höfuöstóll lánsins er tryggöur meö
byggingavísitölu, en lánsupphæöin ber
2% ársvexti. Lánstíminn er 10 til 32 ár
aö vali lántakanda.
Lánmkjaravísitala fyrir desember
1983 er 836 stig og fyrir janúar 1984
846 stig, er þá miöaó viö vísitöluna 100
1. júní 1979. Hækkunin milli mánaóa er
1,2%.
Byggingavíaitala fyrir október-des-
ember er 149 stig og er þá miöaö viö
100 í desember 1982.
Handhafaskuldabréf í fasteigna-
viöskiptum. Algengustu ársvextir eru nú
18-20%.
Sterkurog
hagkvæmur
auglýsingamióill!
Peter Tilbury í hlutverki hins seinheppna Philips.
í lífsins ólgusjó
— breskur gamanmyndaflokkur
Nýr breskur gamanmyndaflokk-
ur, „í lífsins ólgusjó" hefur göngu
sína í sjónvarpinu í kvöld kl. 20.30.
Aðalleikari og jafnframt höf-
undur handrits er gamanleikar-
inn breski, Peter Tilbury, en
hann hefur skrifað handrit að
nokkrum gamanmyndum fyrir
Thames-sjónvarpsstöðina i
Englandi.
Peter leikur 35 ára gamlan
tryggingasala að nafni Philip.
Hann er fráskilinn, óánægður
Sjónvarp kl. 14.50:
með vinnu sína og útlit. Fyrsti
þátturinn hefst á því að Philip
tekur eftir því að hárin í vöngun-
um eru farin að grána og hann
er að verða ellilegur í útliti.
Flest sem hann tekur sér fyrir
hendur finnst honum fara fyrir
ofan garð og neðan og því tekur
hann það til bragðs að leita á
náðir sálgreinanda nokkurs.
Ekki verða þær heimsóknir til að
leysa úr sálarflækjum Philips,
því sálgreinandinn á f enn meiri
vandræðum sjálfur ...
Enska bikarkeppnin
Fulham — Tottenham
Bein útsending frá leik ensku Tottenham veröur í sjónvarpi í dag
knattspyrnuliðanna Fulham og klukkan 14.45.
í leit að sumri
tltvarp kl. 20.40:
„Þessi síóasti þáttur var nú sam-
inn í suövestan stórhríð og þaó var
satt aó segja svolítið erfitt aö
skrifa um sumarið undir þeim
kringumstæðum ... “ , sagði Jón-
as Guðmundsson, rithöfundur, list-
málari og umsjónarmaður þáttar-
ins „í leit að sumri“, sem verður á
dagskrá útvarpsins klukkan 20.40
í kvöld.
„í þetta sinn snýst þátturinn
um sæluviku á sumri, sem haldin
var á Sauðárkróki í sumar.
Sæluvikan hefur verið haldin í
sambandi við sýslunefndarfundi,
svo lengi sem menn muna, en var
nú í fyrsta sinn haldin að sumar-
lagi.
Eg rabba dálítið um þessa erf-
iðu tíð sem var í sumar. Þegar ég
fór norður hafði rignt í Reykja-
vík í hundrað daga og hundrað
nætur. Við ætluðum að fá gott
veður þegar við kæmum norður
og fengum það nú reyndar; það
snjóaði ekki nema einn dag ...
Þetta er ferðasaga fólks, sem
lætur sér verða kalt fyrir borg-
un.“
Fjarri heimsins glaumi
Julie Christie f hlutverki ungu, fallegu og rfku stúlkunnar og Terence
Stamp í hlutverki kærasta hennar.
Bíómynd kvöldsins í sjónvarpi
nefnist „Fjarri heimsins glaumi"
og er bresk, frá árinu 1967.
Julie Cristie leikur unga og
geysilega fallega stúlku, sem erf-
ir stórbýli. Eins og gefur að
skilja á unga fallega stúlkan
kærasta og þegar hún fær stór-
býlið, ræður hún hann sem
vinnumann til sín.
Eins og gefur að skilja, verða
þeir fleiri mennirnir sem hafa
áhuga á stúlkunni eftir að hún
fær arfinn. Þeirra á meðal er
riddaraforingi, sem margt hefur
brallað um ævina og einnig ríkur
óðalsbóndi.
Myndin gengur út á samskipti
stúlkunnar við vonbiðla sína og í
lok myndarinnar er ekki ósenni-
legt að hún giftist einhverjum,
en hverjum ? Það er leyndarmál!
utvarp Reykiavík
L4UG4RD4GUR
7. janúar
MORGUNNINN______________________
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Tónleikar. Þulur velur og kynn-
ir. 7.25 Leiknmi. Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veð-
urfregnir.
Morgunorð: Gunnar Matthías-
son talar.
8.30 Forystugr. dagbl. (útdr.).
Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ.
Stephensen kynnir. (10.00
Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.)
Óskalög sjúklinga, frh.
11.20 Hrímgrund. Útvarp barn-
anna.
Stjórnandi: Sólveig Halldórs-
dóttir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkvnningar. Tónleikar.
13.40 Iþróttaþáttur
Umsjón: Hermann Gunnarsson.
14.00 Listalíf
Umsjón: Sigmar B. Hauksson.
SÍODEGIO________________________
15.10 Listapopp
— Gunnar Salvarsson. (Þáttur-
inn endurtekinn kl. 24.00).
16.00 F’réttir. Dagskrá. 16.15 Veð-
urfregnir.
16.20 íslenskt mál
Jón Aðalstein Jónsson sér um
þáttinn.
16.30 Nyjustu fréttir af Njálu
Umsjón: Einar Karl Haralds-
son.
17.00 Síðdegistónleikar:
Alvaro Pierri leikur á gítar
„Svítu nr. 2 í a-moll“ eftir Jo-
hann Sebastian Bach og „Fimm
pólska dansa“ eftir Jakob Pol-
ak/ Giiher og Stiher Pekinel
leika á píanó „Sónötu í D-dúr“
K.488 eftir Wolfgang Amadeus
Mozart og „Svítu nr. 1“ op. 5
eftir Sergei Rachmaninoff.
(Hljóðritun frá tónlistarhátíð-
inni í Schwetzingen sl. sumar).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIP
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Lifað og skrifað: „Nítján
hundruð áttatíu og fjögur"
Fyrsti þáttur: „Hver var George
Orwell?"
Samantekt og þýðingar: Sverrir
Hólmarsson. Stjórnandi: Árni
Ibsen. Lesarar: Kristján Frank-
lín Magnús, Vilborg Halldórs-
dóttir og Erlingur Gislason.
20.00 Ungir pennar
Stjórnandi: Dómhildur Sigurð-
ardóttir (RÚVAK).
20.10 Útvarpssaga barnanna:
„Nikulás Nickleby" eftir Charl-
es Dickens
Þýðendur: Hannes Jónsson og
Haraldur Jóhannsson. Guðlaug
María Bjarnadóttir les (2).
20.40 í leit að sumri
Jónas Guðmundsson rithöfund-
ur rabbar við hlustendur.
21.15 Á sveitalínunni
Þáttur Hildu Torfadóttur, Laug-
um í Keykjadal (RÚVAK).
21.55 Krækiber á stangli
Fyrsti rabbþáttur Guðmundar
L. Friðfinnssonar. Hjörtur
Pálsson flytur örfá formálsorð.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.35 Harmonikuþáttur. Umsjón:
Bjarni Marteinsson.
23.05 Danslög
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp á rás 2.
SKJANUM
LAUGARDAGUR
7. janúar
14.45 Enska knattspyrnan.
Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
14.50 Enska bikarkeppnin.
Fulham — Tottenham — Bein
útsending frá leik liðanna sem
hefst kl. 15.00.
16.45 Enska knattspyrnan — frh.
Oxford — Manchester United.
17.30 Fólk á fornum vegi.
8. Tölvan. Enskunámskeið í 26
þáttum.
16.30 Iþróttir
Umsjónarmaður Ingólfur Hann-
esson. ■
18.30 Engin hetja
Annar þáttur.
Breskur framhaldsmyndaflokk-
ur í sex þáttum fyrir börn og
unglinga.
Þýðandi Guðrún Jörundsdóttir.
18.55 Enska knattspyrnan
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 f lífsins ólgusjó
(It Takes a Worried Man)
Nýr flokkur — 1. þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur í
sex þáttum um hreliingar sölu-
. manns sem nálgast miðjan ald-
ur og hefur þungar áhyggjur af
útiiti sínu og velferð.
Aðalhlutverk Peter Tilbury.
Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
21.00 Glæður
Um dægurtónlist síðustu ára-
tuga.
5. þáttur: Gömlu dansarnir
Hrafn Pálsson ræðir við Árna
ísleifsson, Ásgeir Sverrisson og
Jónatan Ólafsson og hljóm-
sveitir undir þeirra stjórn leika
gömlu dansana og dixfland.
Stjórn upptöku: Andrés Indriða-
son.
21.45 Fjarri heimsins glaumi
(Far from the Madding Crowd)
Bresk bíómynd frá 1967.
Leikstjóri John Schlesinger.
Aðalhlutverk: Julie Christie,
Peter Finch, Alan Bates, Ter-
ence Stamp og Prunella Ran-
some.
Ung og fögur kona fær stórbýli í
arf. Hún ræður vonbiðil sinn til
starfa en einnig keppa um ástir
hennar ríkur óðalsbóndi og
riddaraliðsforingi með vafa-
sama fortíð. Má ekki á milli sjá
hver verður hlutskarpastur.
Þýðandi Kristrún Þórðardóttir.
00.05 Dagskrárlok