Morgunblaðið - 07.01.1984, Side 15

Morgunblaðið - 07.01.1984, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1984 15 Forsíða bókarinnar Filsni og hampafólk Fyrir margt löngu barst mér í hendur bókin með und- arlega nafninu „Filsni og hampafólk“ og hefur mér ein- hverra hluta vegna láðst að kvitta fyrir höfðingjaskapinn. Bókin inniheldur teikn- ingar, litklippur og málverk eftir William Heinesen, eða réttara myndir af listaverkun- um. Þá er formáli eftir útgef- andann Emil Thomsen í Þórs- höfn en textar í bókinni um allt mögulegt fágætt og skrítið í henni veröld eru eftir Willi- am Heinesen sjálfan. Bókin er öll prentuð í prent- ve^kinu Odda, og um útlit hennar hefur séð Sigurþór Jak- obsson. Bókin er gefin út í tilefni af áttatíu ára afmæli William Heinesen, sem er jafngamall öldinni og mun jafnframt vera nafntogaðastur sonur þjóðar sinnar á þessari öld er senn brennur út. Bókin er kynnt þannig á færeysku, sem auðvelt mun að skilja: „Hetta er fyrsta bókin í eini röð, ið fer at koma út so við og við, um föryskar myndlistamenn og verk teirra. Vit hava latið William eiga hesa fyrstu bókina, ikki einans tí, at hann nú fyllur áttatí, men mest fyri at virða hann, sum tann íðnasta aftan fyri tey tiltök, ið gjörð eru til at menna mynd- listina í Föroyum. Næsta bókin í röðini verður um föroysku myndlistina frá byrjanini til dagin í dag. Triðja bókin verður vígd mæta listamanni okkar S.J. Mikinesi, sála. Hesar báðr seinast nevndu bökurnar koma væntuliga út í 1980. Framhald av bókaröðini verður lýst seinni. Þetta er skýrt og skilmerki- lega framsett og ljóst er að Emil Thomsen mun vera hliðstæða Ragnars í Smára þeirra í Færeyjum. Sjálf er bókin öll bráðskemmtileg mettuð ísmeygilegri kímni, myndum af skrítnum köllum, tröllum, prinsípissum, furðu- fólki af landi, sjó, okkar heims og annarra heima o.s.frv. Frásagnargleðina hefur William Heinesen í ríkum mæli og ekki einasta í rituðu máli, er gert hefur hann stór- William Heinesen frægan, heldur og einnig í mynd- og táknmáli svo sem skýrlega má sjá í þeirri fá- gætu bók „Filsni og hampa- fólk“. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir SIGURÐ SVERRISSON Mikill oiíuauður, en taumlítil spilling Á miðnctti á gamlaársdag las Sir Muda Hassanal Bolkiah, soldán, upp stuttorða yfirlýsingu, þar sem hann lýsti Brunei sjálfstctt ríki. Þar með lauk 95 ára breskri vernd á svcðinu. Frá og með nýársadag befur því öryggi hinna 200.000 íbúa ríkisins verið {höndum Bolkiah soldáns, en ctt hans hefur verið völd í ríkinu síðustu fjórar aldir. Þótt Bretar láti nú formlega af vernd sinni verður ekki um neinar verulegar breytingar að ræða á stjórn landsins. Allt frá því samkomulag tókst við Breta árið 1978 um að heimamenn önn- uðust sjálfir alfarið stjórn ríkis- ins, hefur undirbúningur fyrir al- gert sjálfstæði staðið yfir. • Innan skamms er þess þó vænst, að Brunei taki sæti i sambandi ríkja í SA-Asíu - verði þar sjötta aðildarríkið. Jafnframt er talið að ríkið sæki um inngöngu i Samein- uðu þjóðirnar áður en langt um líður. Sir Hassanal Bolkiah, soldán. stjórnvöld fyrri skipun sína, og það hafði strax áhrif. Sjálfur hefur soldáninn ekki þótt sýna gott fordæmi, þó á öðru sviði sé. Hann tók sér aðra konu fyrir tveimur árum og gat með henni son. Átti hann fimm börn fyrir með hinni konunni sinni. Það, að æðsti maður ríkisins skuli eiga tvær konur, þykir ekki beint í anda þeirrar stefnu að gera Brun- ei að þróuðu nútímariki. Hvíldi enda mikil leynd yfir síðari gift- ingu soldánsins. Það kom þó ekki í veg fyrir miklar óánægjuraddir almúgans er út spurðist. Þótt nokkur af helstu embætt- um ríkisins verði vafalitið í hönd- um utanaðkomandi manna, þ.e. ekki innfæddra Brunei-búa, enn Lítið land Brunei er lítið ríki, aðeins um 3.400 ferkílómetrar eyjarinnar Borneo. 1 raun er Brunei ekki ann- að en lítil tvískipt sneið af NV-hluta Borneo. Fyrr á öldum voru soldánar Brunei mun valda- meiri en nú og réðu ríkjum á mun stærra landsvæði. Þegar Bretar tóku ríkið undir sinn verndarvæng árið 1888 eftirlét þáverandi soldán stóran hluta landsvæðis rikisins. Lengi vel eftir þennan atburð var Brunei ríki, sem enginn veitti athygli. Framfæri fbúanna var einkum af framleiðslu hrágúmm- ís, en árið 1929 varð breyting þar á þegar olíuboranir hófust. Við oliu- fundinn varð alger kúvending i efnahagsmálum ríkisins. Allt var með kyrrum kjörum á stjórnmálasviðinu fram til ársins 1962. Tilraun var þá gerð til að steypa valdhöfum af stóli þegar til tals kom að Brunei tæki höndum saman við bandalag Malaya, Sabah, Sarawak og Singapore um stofnun Malaysíu. Með aðstoð breskra hermanna tókst að berja mótspyrnu uppreisnarseggja á bak aftur á skömmum tíma. Þegar komið var fram til ársins 1972 var ríkið orðið svo stöndugt, að Brunei var auðugasta þjóð Asíu ef mið var tekið af höfðatölu. íburðurinn, sem er Vesturlanda- búum löngu kunnur, er nokkuð sem íbúar Brunei hafa vanist, andstætt íbúum flestra ríkja á þessu svæði heimsins. Hin hrjóstruga veröld utan landamær- anna virðist ekki ætla að gera vart við sig innan þeirra, a.m.k. ekki á meðan olíuauðurinn endist. Spilling En þótt fjárhagur ríkisins sé góður eru ýmis vandamál, sem þarf að glíma við nú þegar. Upp- ræting spillingar í embætt- ismannakerfinu er eitt það fyrsta, sem stjórnvöld þurfa að takast á við. Jafnframt er nauðsynlegt að auka afköst opinberra starfs- manna að mun frá því sem verið hefur. Átak þetta gegn spillingu á ræt- ur sínar að rekja til lagasetningar í rikinu, þar sem kveðið er á um upprætingu spillingar. Lög þessi taka mið af öðrum sambærilegum frá Singapore, Malaysíu og Hong Kong, þar sem svipað vandamál hefur verið þarlendum stjórnvöld- um þyrnir í augum. Sérstök stofnun, And-spill- ingarstofnunin, var sett á laggirn- ar til þess að framfylgja þessum lögum. Stofnunin er óháð lögreglu og undir stjórn eins yfirmanns, sem heyrir beint undir soldáninn. Þessi stofnun hefur leyfi til hand- Brunei er aðeins lítil tvískipt sneið í NV-hhita Borneó. Á litlu teikningunni má sjá afstöðu Borneó til nærliggjandi eyja og landa. töku án sérstakrar heimildar og þá má hún leggja hendur á skjöl, sem talin eru geta veitt upplýs- ingar við rannsókn mála. Þá geta þeir, sem taldir eru lifa um efni fram, átt von á því að þurfa fyrir- varalaust að gera grein fyrir fjár- hagi sínum. Spilling hefur lengi verið mikil í Brunei og þeir eru margir, sem halda því fram, að spjótunum verði sem fyrr aðeins beint gegn þeim, sem minna mega sin. Hinir valdameiri sleppi eftir sem áður í gegnum síuna. Þessu til stuðnings er bent á, að þegar rannsóknir ör- yggismálaráðuneytisins þóttu vera farnar að nálgast valdamenn ríkisins um of, var því lokað árið 1980. Til þess að auðvelda að koma upp um grunaða hefur hinn nýi yfirmaður And-spillingarstofnun- arinnar lýst því yfir, að fólk, sem reiðubúið er að veita upplýsingar, njóti nafnleyndar. Snemma á árinu 1982 var vinnu- tíma opinberra starfsmanna breytt í því augnamiði að reyna að auka afköst þeirra. Jafnframt varð hver sá opinber starfsmaður, sem sást til á götum úti á vinnu- tíma, að gera fulla grein fyrir ferðum sínum. Það vakti enda at- hygii að um svipað leyti ráku kaffihúsaeigendur í nágrenni við stjórnarbyggingarnar upp rama- kvein sökum lélegra viðskipta. Áhrifin af breyttum vinnutíma virtust smám saman vera að fjara út, en í haust sem leið endurtóku um nokkurt árabil, er aukin til- hneiging í þá átt, að innfæddir, sem hlotið hafa góða menntun er- lendis, taki við áhrifamiklum stöð- um i embættismannakerfinun um leið og þær losna. Spillingin er ekki einasta vanda- mál stjórnvalda á Brunei. lbúarn- ir eru sem fyrr segir aðeins um 200.000 talsins, þar af 70.000 Kín- verjar, sem ekki hafa fullan ríkis- borgararétt og eru með tvöfalt vegabréf, breskt/brunei-ískt. Breska stjórnin hefur ítrekað skoraö á valdhafa á Brunei að veita Kínverjunum fullan rikis- borgararétt, ella yrðu þeir ríkis- fangslausir frá og með sjálfstæð- isyfirlýsingunni. Um framgang þessa máls er ekki vitað þegar þessi pistill er settur saman. Enn annað vandamál, sem blas- ir við stjórvöldum, eru úrbætur í málum rúmlega 27.000 manna hóps, sem býr í staurakofum í afar þéttri byggð við og á ánni Brunei. Um er að ræða kynblendinga af stofni Brunei-manna og Malaya, sem lifað hafa í voninni um stór- felldar úrbætur í sínum málum allt frá þvi samkomulagið við Breta var gert, í ljósi þess að Kínverjunum 70.000 yrði ekki veittur ríkisborgararéttur. Þar með fækkaði íbúum ríkisins stór- lega og meira væri hægt að gera fyrir þá. (fyggt á Árbók Far Eastern Economic Review 1983 og The Times.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.