Morgunblaðið - 07.01.1984, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1984 yj
Ein af trillunum fimm, þar sem sjórinn skildi við hana.
Svona lék sjórinn bryggjuplanid í Sandgerði, en það var malbikað síðastliðið sumar.
Ljósmyndir Morgunbladins Friðþjófur Helgason.
Bræðurnir Guðfinnur, Vilhjálmur og Birgir Birgissynir við rústir skreið-
arskemmunnar: Mikið átak þarf til að feykja burtu svona húsi.
Morgunblaðið/RAX.
Líkast loftárás á skreiðarskemmuna:
í saltfiskverkunarhúsi Birgis Jónssonar, þar sem sjór náði upp í mið læri fullvaxinna karlmanna meðan flóðið stóð
sem hæst, sjór braut vegg vinstra megin á bak við Ijósmyndarann. Morpinbi*»i»/KAX.
Leifarnar af
hjöllunum hafa
borist hundrað metra
- segja Birgisbræðurnir Guðfinnur, Vilhjálmur og Birgir
ENGU VAR líkara en að loftárás
hefði verið gerð á skreiðargeymslu
Fiskverkunar Birgis Jónssonar við
Ægisbraut. Þakið á skemmunni,
sem var um 300 fermetra hús, lá
að mestu niðri og veggirnir brotnir
eins og eggjaskurn, skreiðarhjallar
á bak við skemmuna voru gjör-
samlega horfnir og sléttur malar-
flötur þar á bak við — þar sem
áður var hægt að aka vörubflum og
lyfturum — var eins og stórgrýt-
isfjara. Um alla götuna þar fyrir
framan voru skreiðarpakkar og
ýmislegt dót eins og hráviði.
„Flóðið hér í morgun var svo
mikið, að við komumst ekki á
klofstígvélum að húsinu," sögðu
synir Birgis, Vilhjálmur, Birgir
og Guðfinnur, þegar blm. Morg-
unblaðsins ræddi við þá á meðan
skurðgrafa rótaði burtu leifun-
um af skemmunni. „Sjórinn gekk
hér yfir allt og leifarnar af hjöll-
unum hafa borist eina hundrað
metra.
Hér inni voru tíu tonn af
skreið, sem átti að fara á Ítalíu-
markað, tvær snurvoðir, baujur
og dót. Megnið af skreiðinni er
hér undir brakinu en sumt af
þessu dóti hefur henst til um
300—400 metra. Það sá einn
maður þetta gerast,“ sögðu þeir
bræður, „og samkvæmt því hefur
þetta verið alveg ótrúlegur
kraftur — enda hlýtur að þurfa
mikið átak til að feykja svona
húsi. Þetta er tuttugu ára gam-
alt hús og það hefur svo sem
gengið sjór yfir það fyrr — en
ekkert í líkingu við þetta."