Morgunblaðið - 07.01.1984, Síða 20

Morgunblaðið - 07.01.1984, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1984 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1984 21 Otgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 20 kr. eintakið. Þjóðarátak gegn ávana- og ffkniefnum ví er stundum haldið fram, og ekki að ástæðulausu, að fjölmiðlar fjalli frekar um og geri meira úr neikvæðum frétt- um en jákvæðum. Það er rétt að hið jákvæða og heilbrigða í fari og samskiptum fólks, sem víða segir til sín sem betur fer, fær of litla umfjöllun í blöðum, útvarpi og sjónvarpi, nýtur í of litlum mæli þeirra áhrifa sem fjölmiðl- um fylgja. Á hinn bóginn er óhjákvæmilegt, og beinlínis skylda fjölmiðla, að þjóna fréttahlutverki, og gera almenn- ingi grein fyrir ýmsum vágest- um, sem knýja á dyr samfélags- ins. Sá vágestur í hlaðvarpa ís- lendinga, sem er hvað varhuga- verðastur, er stóraukin fíkni- efnaneyzla. Hrikalegar afleið- ingar fíkniefnaneyzlu eru þegar farnar að segja til sín hér. Reynsla nágrannaþjóða okkar í V-Evrópu talar og til okkar skýru máli. Þar er vegur fikni- efnaflóðöldunnar varðaður við- vörunum: margföldun hverskon- ar afbrota, svo sem rána og manndrápa, og ekki síður í fjölda þeirra sem vistaðir eru á sjúkrahúsum og meðferðar- stofnunum, að ógleymdum ör- lögum þeirra, sem týndu eigin lífi á vegum vímuefnanna. Erfitt er að gera sér grein fyrir stærð þessa vandamáls hér á landi. Nefna má eftirfarandi: • Hjá fíkniefnadómstólnun vóru tekin fyrir um 170 mál að meðaltali á ári 1974—1978 en um 260 mál á ári 1979-1982. Aukningin er veruleg. • Milli 20—30% þeirra, sem leita sér lækninga hjá meðferð- arstöðvum SÁÁ gera það vegna langvarandi ofnotkunar á kann- abisefnum og öðrum sterkari eiturlyfjum. • í riti, sem heilbrigðisráðu- neytið gaf út á miðju sl. ári, kemur fram, að í eitt þúsund einstaklinga úrtaki skólanema á aldrinum 16—26 ára, sem spurð- ir vóru — í sérstakri könnun á kannabisneyzlu Islendinga — neyttu rúmlega 22% kannabis. Ef þetta úrtak gefur rétta mynd neyta um 10.600 manns á þess- um aldri kannabisefna hér á landi. Ólafur Ólafsson, landlæknir, segir í grein í Morgunblaðinu í gær, sem fjallar að meginefni um heilsuvernd sem sparnað í þjóðarbúskapnum, að ýmsar „furðufregnir" séu á kreiki um dreifingu eiturefna hér á landi. „Til dæmis er því haldið fram,“ segir landlæknir, „að allt að fjögurra tonna af kannabis sé neytt árlega hér á landi. Vitað er að venjulegur dagskammtur er um eitt gramm. Fjögurra tonna ársneyzla svarar til þess að á milli 30—40 þúsund manns, það er allir í árgöngunum 16 — 25 ára, neyti þessara efna reglu- lega tvisvar í viku. Söluverð þess magns er er 1,5—1,6 milljarðar á ári. Á sama tíma er selt áfengi fyrir tæplega milljarð árlega hjá ÁTVR!! Furðufregnir sem þessar draga sennilega ekki úr sókn unglinga í fíkniefni...“ segir landlæknir. Alþingi samþykkti síðla í des- ember sl. þingsályktun sem Jó- hanna Sigurðardóttir alþingis- maður flutti ásamt meðflutn- ingsmönnum úr öllum þing- flokkum. Samkvæmt tillögunni skal dómsmálaráðherra koma nú þegar á samstarfshópi lög- gæzlu- og tollgæzlumanna er samræmi og skipuleggi auknar aðgerðir gegn ólöglegum inn- flutningi og dreifingu ávana- og fíkniefna og athugi nýjar rann- sóknaraðferðir í fíkniefna- málum. Samstarfshópurinn vinni í nánu samstarfi við lög- gæzlu- og tollgæzlumenn í öllum lögsagnarumdæmum og toll- höfnum landsins, og ekki sízt þá deild hjá lögreglustjóraembætt- inu, sem unnið hefur mjög vel á þessum starfsvettvangi undan- farið. Hann skal gera tillögur um úrbætur á sviði toll- og lög- gæzlu sem nauðsynlegar kunna að reynast til að fyrirbyggja dreifingu og innflutning fíkni- efna. Niðurstöðum skal skila til dómsmálaráðuneytis eigi síðar en 1. marz nk. Gegn vaxandi eiturefnaneyzlu þarf að bregðast með margvís- legum hætti: • Stóraukinni fyrirbyggjandi fræðslu í skólum landsins. • Samræmdri upplýsingaher- ferð í fjölmiðlum, ekki sízt út- varpi og sjónvarpi. • Virkja þarf á fljótvirkan og ábyrgan hátt varnarstarf lög- gæzlu- og tollgæzlu í öllum lög- sagnartillögum og er það megin- tilgangur nefndrar þingsálykt- unar. • Efla þarf svo sem kostur er allt starf er miðar að björgun og endurhæfingu einstaklinga, sem orðið hafa vímuefnum að bráð. • Herða þarf öll viðurlög gegn fíkniefnamisferli. Hér er um svo alvarleg og vítaverð brot að ræða að vettlingatök eru ekki réttlætanleg. Fyrirbyggjandi aðgerðir í heilsuvernd, eins og varnir gegn fíkniefnaneyzlu, kosta að vísu fjármuni, sem vaxa ekki á krepputrjám líðandi stundar. Þær skila hinsvegar miklum arði í betri heilsu, lengra lífi, fleiri vinnustundum og verulega minni sjúkrakostnaði en ella. Það þykir og er sjálfsagt að verja fé og fyrirhöfn til leitar og bjargar þegar rjúpnaskytta teppist eða týnist, svo dæmi sé tekið. En leitar- og björgunar- skyldan er sízt minni þegar veg- villur af völdum vímuefna eiga í hlut. Þjóðfélagið hefur ekki efni á því að tapa fjölda einstaklinga á þeim voðavegum. Guðmundur H. Garðarsson: Kringumstæður og stór lang- tímasamningur hafa valdið því að verðlækkun var samþykkt „ÞRÁTT fyrir ákveðinn vilja til að halda 5 punda þorskflakaverði til Long John Silver’s óbreyttu, hafa kringumstæður valdið því, að jafn- framt því, sem gerður var stór langtímasamningur við Long John Silver’s, varð að semja um 10 senta lækkun á pundið. Ég vek at- hygli á því að verið er að semja um auknar sölur frá því sem var á síð- asta ári. Þessi samningur mun vera með hinum stærri sem gerðir hafa verið við einn aðila í fisksöl- um íslendinga. Um er að ræða samninga upp á um 40 milljónir dollara, eða 1.166 milljarða. Sam- kvæmt þessu áætlum við að vera með tæplega % af notkun Long John Silver’s af þorskflökum,” sagði Guðmundur H. Garðarsson hjá SH, er hann var inntur eftir því, hvers vegna verðið til Long John Silver’s hefði verið lækkað. Má segja að með þessari verð- lækkun séu SH og Coldwater að viðurkenna að Sambandið hafi haft rétt fyrir sér þegar dóttur- fyrirtæki þess, Iceland Seafood, lækkaði verð á 5 punda þorsk- flakapakkningum í ágúst síðast- liðnum um 10 sent? „Það þarf alls ekki að vera og án þess að fara út í einhvern sér- stakan samanburð í þessum efn- um, hlýt ég að vekja athygli á því, að þær verðbreytingar, sem hér um ræðir, eiga sér ekki stað á sama tíma og svo hinu, að af okkar hálfu var nú verið að ganga frá geysilega stórum samningi, sem felur í sér þýðingarmikið öryggi í nánustu framtíð. Frá mínu sjónarmiði eru aðstæður ekki alveg sambæ- rilegar nú og á síðastliðnu sumri varðandi þessi mál hvað okkur áhrærir." Leysir þessi samningur það birgðavandamál á þorskflökum sem SH og Coldwater hafa á síð- asta ári átt við að stríða? „Að sjálfsögðu hefur svona stór samningur ásamt sölum til annarra, sem hafa verið allveru- legar, það í för með sér að létta mjög á birgðastöðunni, bæði hér heima og í Bandaríkjunum, en ég vil taka það fram, að birgðir af 5 punda pakkningum af þorskflökum í frystihúsum hér heima eru tiltölulega litlar, enda áttu sér stað miklar afskipanir undir lok ársins. Þess má geta, að heildarafskipunarhlutfall af framleiðslu á síðasta ári var 70% 31. desember, en árið 1982 var það 68% á sama tíma,“ sagði Guðmundur. Um 1.200 manns atvinnu- lausir að meðaltali 1983 Heildarfjöldi atvinnuleysisdaga 370.607, eða 54% fleiri en 1982 ALLS voru skráðir 37Q.607 atvinnu- leysisdagar á landinu öllu á síðasta ári, sem jafngildir því að um 1.200 manns hafi verið atvinnulausir allt árið, eða um 1,0% af mannafla sam- kvæmt áætlun Þjóðhagsstofnunar. Til samanburðar voru skráðir um 200.000 atvinnuleysisdagar á árinu 1982, sem jafngildir um 770 manns að meðaltali, eða um 0,7% af mann- afla. Aukning skráðra atvinnuleys- isdaga milli ára er því rétt um 54%, sem er nokkru minni aukn- ing en spár höfðu gert ráð fyrir, segir í fréttatilkynningu frá Vinnumáladeild félagsmálaráðu- nevtisins. I desembermánuði sl. voru skráðir atvinnuleysisdagar á land- inu öllu 47.436, 24.403 hjá konum og 23.033 hjá körlum. Þetta jafn- gildir því að 2.190 manns hafi ver- ið skráðir atvinnulausir allan mánuðinn. Síðasta virka dag mán- aðarins voru hins vegar á skrá 3.358 manns, 1.868 konur og 1.490 karlar. Fjöldi skráðra atvinnu- leysisdaga í desember svarar til þess að 2,0% af áætluðum mann- afla á vinnumarkaði í mánuðinum samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar hafi verið á atvinnuleysisskrá. í nóvembermánuði voru skráðir 27.194 atvinnuleysisdagar og því aukningin milli mánaða rösklega 20 þúsund dagar og hlutfall mann- afla úr 1,1% í 2,0%. í desembermánuði 1982 voru skráðir 30.607 atvinnuleysisdagar á landinu öllu eða 16.829 dögum færra en nú. Aukningin er um 55% og er það minni aukning en í flestum öðrum mánuðum ársins, þar sem yfirleitt hefur verið um tvöföldun að ræða, miðað við árið á undan. Dollaraverð hefur hækkað um 1,81% — Evrópugjaldmiðlar hafa hins vegar lækkað DOLLARAVERÐ hefur hækkað um 1,81% á þessu ári, en sölugengi Bandaríkjadollars hefur hækkað úr 28,710 krónum í 29,230 krónur. Á sama tíma hafa Evrópugjaldmiðlar lækkað í verði hér á landi. Brezka pundið hefur lækkað um 1,15% í verði frá áramótum, en sölugengi þess hefur lækkað úr 41,630 krónum í 41,149 krónur. Þá hefur danska krónan lækkað um 1,0% í verði frá áramótum, en sölugengi hennar hefur lækkað úr 2,9162 krónum í 2,8873 krónur. Þá má geta þess, að vestur-þýzka markið hefur lækkað um 1,3% frá áramótum, en sölugengi þess hef- ur lækkað úr 10,5435 krónum í 10,4077 krónur. í liðnu ári hækkaði dollaraverð liér á landi um 72,43%, en sölu- gengi Bandaríkjadollars hækkaði úr 16,650 krónum í 28,710 krónur. Brezka pundið hækkaði um 55,17% á liðnu ári, en sölugengi pundsins hækkaði úr 26,831 krónu í 41,630 krónur. Þá hækkaði danska króna um 46,90% i verði á liðnu ári, en sölugengi hennar hækkaði úr 1,9851 krónu í 2,9162 krónur. Loks má geta þess, að vestur-þýzka markið hækkaði um 50,52% í verði á síðasta ári, en sölugengi þess hækkaði úr 7,0046 krónum í 10,5435 krónur. Fjárhagsáætlun borgarsjóðs afgreidd: Lækkun skattheimtunnar FJÁRHAGSÁÆTLUN Reykjavfkurborgar fyrir þetta ár var afgreidd á fundi borgarstjórnar í gærmorgun. Samkvæmt henni lækkar álagning útsvars úr 11,88% í 11% og eru tekjur af útsvöri/h) áætlaðar um 1.090 milljónir króna. Áætlað er að rekstrargjöld borgarsjóðs hækki um rúmiega 22% frá áætlaðri útkomu ársins 1983. í ræðu Davíðs Oddssonar, borgarstjóra, kom fram að vegna góðrar innheimtu síðustu daga ársins hefði yfirdráttur á hlaupa- reikningi borgarsjóðs í Lands- bankanum verið 190 milljónir króna, en þegar fjárhagsáætlun- arfrumvarpið var lagt fram í des- ember var búist við að hann myndi nema 220 til 240 milljón- um króna. Af þessu leiddi að unnt væri að lækka afborganir lána á þessu ári um 30 milljónir króna. f árslok væri gert ráð fyrir að yfir- drátturinn verði um 100 milljónir króna. Milli umræðna um fjárhags- áætlun borgarinnar var framlag til Bæjarútgerðar Reykjavíkur hækkað um 10 milljónir króna og sagði Davíð fyrirsjáanlegt að greiðsluvandi útgerðarinnar yrði mikill á næstunni og fátt sem benti til þess að úr rættist í bráð, þegar fyrirhugað kvótakerfi væri haft í huga. 1. janúar 1983 hefðu helstu skuldbindingar BÚR án vanskila langtímalána numið 14,6 milljónum króna. I lok nóvember hefði þessi upphæð numið 56,8 milljónum króna og í árslok 73 milljónum króna eða hefði versn- að um 58,4 milljónir króna á ár- inu. Að öðru leyti urðu ekki miklar breytingar á áætluninni milli umræðna. Styrkveitingar, sem dreifast á gjaldaliði lista, íþrótta og úti- veru, fræðslumála og félagsmála nema rúmlega 12 milljónum Matthías Bjarnason, heilbrigöismálaráðherra vígði endurhæfingarstöðina. Við hlið hans stendur Vilhjálmur B. Vilhjálmsson, sem sér um daglegan rekstur stöðvarinnar, og túlkar mál ráðherra á táknmáli. Slíkt hið sama gerði Vilhjálmur þegar aðrir fluttu mál sitt og er Vilhjálmur G. Vilhjálmsson, formaður Félags heyrnarskertra, flutti sína ræðu á táknmáli, túlkaði nafni hans yfir á talmál. Endurhæfingarstöð heyrnarskertra vígð Matthías Bjarnason, heilbrigðis- málaráðherra vígði formlega í gær endurhæfingarstöð heyrnarskertra á Klapparstíg 28. Stöðin er sjálfs- eignarstofnun og eru eignaraðilar Félag heyrnarlausra og félagið Heyrnarhjálp með jafnan eignar- hluta hvort. Er stöðinni ætlað að vinna aö læknisfræðilegri endur- hæfingu fyrir heyrnarskerta og munu ofangreind félög annast rekstur hennar með yfirumsjón Heyrn-og talmeinastöðvar íslands. Ilaglegur rekstur verður síðan í höndum Vilhjálms B. Vilhjálmsson- ar, en sautján manna fulltrúaráð markar stefnu stofnunarinnar. Skipa stjórn þess þau Andrés Kristjánsson, ritstjóri, Berglind Stefánsdóttir, kennari, Einar Sindrason, yfirlæknir, Guðjón Yngvi Stefánsson, framkvæmda- stjóri, og Vilhjálmur G. Vilhjálms- son, auglýsingateiknari. Við vígslu endurhæfingar- stöðvarinnar tóku til máls þeir Guðjón Ingi Stefánsson, fyrir hönd stjórnar stöðvarinnar, Matthías Bjarnason, heilbrigð- ismálaráðherra, Einar Sindrason, yfirlæknir, Vilhjálmur G. Vil- hjálmsson, formaður félags heymarskertra, Ingimar Sigurðs- son, stjórnarformaður Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar og Dan- inn Bent Sköv. Kom það fram í máli heilbrigðismálaráðherra að ekki hefði samkvæmt lögum verið gert ráð fyrir endurhæfingar- þjónustu í Heyrn-og talmeina- stöðinni. Sagði hann stofnun end- urhæfingarstöðvarinnar vera skýrt dæmi um samstarf stjórnar og hagsmunahópa sem hann kvaðst vona að yrði eins gott í framtíðinni og til þessa. Lýsti hann síðan stöðina vígða. Sam- tímis því sem ræðumenn fluttu mál sitt túlkaði Vilhjálmur B. Vilhjálmsson það á táknmáli. Fyrst um sinn beinist starf- semi stöðvarinnar að námskeið- um til að þjálfa þá sem eru í vandræðum með að nota heyrn- artæki sín, en það kom fram í máli margra við vígsluna að fólk er oft á tíðum tregt til að nota tækin þrátt fyrir slæma heyrn. Þá mun stöðin annast sölu og kynningu á öðrum hjálpartækj- um fyrir heyrnarskerta, en sam- kvæmt reglum tekur ríkissjóður þátt í kostnaði við hjálpartækja- búnað gegn framvísun vottorðs frá yfirlækni Heyrnar-og tal- meinastöðvarinnar. Einnig er stefna stjórnenda stöðvarinnar að veita ráðleggingar og leiðbeina um notkun og uppsetningu á heyrnarhjálparútbúnaði á sam- komustöðum, s.s. í kirkjum og leikhúsum, þjálfa táknmálstúlka og vera hvetjandi aðili um leið- beiningar og fræðslu í þessum efnum. Eins og fyrr segir er endurhæf- ingarstöðin til húsa á Klappar- stíg 28, á 1. hæð. Þar verður opið daglega frá kl. 10.00 til 16.00. Húsið á Klapparstíg 28, en þar á fyrstu hæðinni er endurhæfingarstöðin til húsa. Ijósm. Mbl./ ÓI.K.M. varanleg ráðstöfun krona samkvæmt fjárhagsáætlun þessa árs. t bókun borgarfulltrúa Sj álf-• stæðisflokksins við afgreiðslu fjárhagsáætlunarinnar sagði m.a. að áætlun borgarsjóðs mót- aðist mjög af þeim miklu efna- hagslegu sviptingum, sem nú eiga sér stað í íslenzku þjóðlífi. Óða- verðbólga síðustu ára hefði þrengt mjög hag sveitarfélag- anna og sæi þess stað í fjárhags- áætlun 1984. Við gerð fjárhags- áætlunar fyrir síðasta ár hefði fasteignaskattur verið lækkaður um 15,8% af föstu verðlagi. Þótt hin snöggu umskipti úr efna- hagslegu öngþveiti í átt til efna- hagslegs jafnvægis hefðu þann fylgikvilla, að verðbólgan ynni ekki eins og áður með skattgreið- endum, þá væri sú lækkun, sem nú er orðin á skattheimtu borgar- innar, varanleg og mundi skila sér með eðlilegum hætti þegar fram í sækir. Um leið og næsta fjárhagsár yrði nýtt til þess að treysta greiðslustöðu borgarinnar eftir áföll undanfarinna ára, verði uppbyggingu boragarstofnana haldið áfram með markvissum hætti. Markvissari uppbyggingu dvalarheimila fyrir aldraða verði haldið áfram, auk þess sem þar er bryddað upp á samvinnu við sam- tök um byggingu eignaríbúða fyrir aldraða. Tvær nýjar dag- vistarstofnanir fyrir börn verði teknar í notkun á þessu ári. Áfram verði unnið að fram- kvæmdum við B-álmu Borgar- spítalans, þótt hægar verði farið en hugur borgarinnar stæði til, vegna þess að hlutur ríkisins lægi hér eftir, svo sem einnig væri um heilsugæzlustöðvar. Skipulags- og lóðamál væru komin úr þeim ólestri, sem þau voru í og viðhald gatna væri aftur komið í gott horf. Auk þess skip- uðu umhverfis- og menningarmál veglegan sess í áætluninni auk íþróttamála. Samningafundum með Alusuisse lauk í gær: Ekki ráðrúm til að taka á neinu sem skiptir máli — segir Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra „ÞETTA var fyrsti reglulegi fundur- inn með aðalsamningamönnum eftir að bráðabirgðasamkomulagið var af- greitt 23. september sl. Þetta var ágætisfundur, en menn höfðu ekki ráðrúm til að taka á neinu sem skipti máli. Mönnum seinkaði vegna sam- gönguerfíðleika svo ráðrúmið var lít- ið,“ sagði Sverrir Hermannsson iðn- aðarráðherra, er Mbl. spurði hann hverjar lyktir hefðu orðið á samn- ingafundi stóriðjunefndar og samn- inganefndar Alusuisse sem hófst í fyrradag og lauk í gær. Næsti fundur aðila hefur verið ákveðinn í febrú- armánuði. Svohljóðandi fréttatilkynning barst Mbl. í gær: „Á fundunum, sem voru gagnlegir, var rætt um gagnasöfnun aðila vegna endur- skoðunar á núgildandi samningum og nýjum samningi vegna stækk- unar. Skipst var á skoðunum og ákveðið um framhaldsathuganir vegna næsta fundar, m.a. að því er tekur til eftirfarandi atriða: a. Breytinga á rafmagnssamn- ingi, þ.m.t. verðtryggingarákvæði. b. Hugsanlegra breytinga á skattkerfi. c. Stækkunar álbræðslunnar í Straumsvík. d. Samkeppnisstöðu álfram- leiðslu á Islandi. Auk samninganefndar um stór- iðju og samninganefndar Alu- suisse/ÍSAL tóku samningartefnd Landsvirkjunar og sérfræðingar aðila í skatta- og orkumálum þátt í fundunum eftir því sem við átti. Næsti fundur aðila verður haldinn í febrúar." Iðnaðarráðherra um vanda skipasmíðastöðvanna: Bjartsýnn á að við höldum uppi atvinnu áfangaskýrslu til iðnaðarráðherra nokkru fyrir jólin þar sem hún fjallar um bráðavanda skipa- smíðastöðvanna, en verkefnaleysi blasir við mörgum þeirra á næst- unni. Nefndin lagði til að útvegað- ar verði 150 millj. kr. til útgerðar- innar í þeim tilgangi að viðhald og viðgerðir skipa gætu farið fram í skipasmíðastöðvum innanlands, en vegna skorts á lánsfé hafa út- gerðirnar sent skip sín til slíkra viðgerða erlendis, þar sem þær hafa fengið lánafyrirgreiðslur. Sverrir var spurður, hvort stjórnvöld hyggðust fara að til- lögu skipasmíðanefndar um út- vegun 150 millj. kr. og hvernig þeirra yrði þá aflað. Hann sagðist engu vilja svara um það á þessu stigi, málið væri allt á athugun- arstigi. tillögur skipasmfða- nefndarí athugun hjá ríkisstjórn „ÞETTA er allt í athugun í ríkis- stjórninni og ég vona að eitthvað nái fram að ganga fljótlega. Þetta er einn af þeim þáttum sem menn taka til athugunar vegna versnandi at- vinnuástands; sem margir hafa áhyggjur af. Ég er bjartsýnn á að við höldum uppi atvinnu í skipasmíða- stöðvum okkar", sagði Sverrir Her- mannsson iðnaðarráðherra, er Mbl. spurði hann hvort ríkisstjórnin hefði tekið afstöðu til tillagna svonefndrar skipasmíðanefndar, sem fjallað hef- ur um vanda skipasmíðastöðvanna. Eins og Mbl. skýrði frá sl. þriðjudag skilaði skipasmíðanefnd Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra: Óeðlilegt að hafa af- skipti af því hvaða veiðarfæri eru notuð „VIÐ ERUM að undirbúa nýjar stjórnunaraðgerðir og hagsmunaað- ilar telja að það sé ekki rétt að hafa mikil afskipti af notkun veiðarfæra og telja óeðlilegt í Ijósi væntanlegrar kvótaskiptingar að höfð séu afskipti af því hvaða veiðarfæri menn noti,“ sagði Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra meðal annars er hann var, síðastliðinn miðvikudag, spurð- ur hvers vegna hefði verið fallið frá því að banna veiðar í þorskanet til 15. febrúar. „Menn verða fyrst og fremst að gera sér grein fyrir því, að þeir eru þá að byrja að veiða upp í vænt- anlega kvóta og í ljósi þessa var þessi afstaða endurskoðuð. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar, að það sé óæskilegt að hefja þorsk- veiðar í net jafnvel fyrr en í byrj- un marz. Ég býst við því, að lítið verði um að menn byrji fyrr. Þess vegna má segja að það hefði litlu máli skipt, hvort við hefðum við- haldið þessu banni eða ekki.“ Þjóðviljinn hefur það eftir út- gerðarmönnum að þeim finnist hér um hringlandahátt að ræða. Hverju vilt þú svara því? „Það má segja að það kveði við nokkuð annan tón í Þjóðviljanum í dag en fyrir nokkrum dögum, þeg- ar þar sagði, að það myndi hvergi byrja vertíð fyrr en í byrjun marz. Mér finnst því vera heldur meiri hringlandaháttur í skrifum hans en í okkar afstöðu hér. Við erum ekki svo forstokkaðir að við séum ekki tilbúnir til að taka mið af breyttum aðstæðum. Menn geta kallað það hringlandahátt, það skiptir mig engu máli. Mér sýnist að stefna Þjóðviljans sé að vera á móti því sem gert er og mér hefur sýnzt að ieiðarahöfundar Morgun- blaðsins séu því sammála og virð- ist því, að þar hafi tekizt „sögu- legar sættir“,“ sagði Halldór Ás- grímsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.