Morgunblaðið - 07.01.1984, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1984
Bréf til Svölu
frá Þorgeiri Þorgeirssyni
Hr. riLstjóri.
Þar sem blaðið hefur flutt villandi
frétt um bréf S.Th. til saksóknara
vegna skrifa minna fer ég þess á leit
að hjálögð plögg verði birt í blaðinu
sem fyrst.
a) Bréf Svölu til Þórðar.
b) Bréf mitt til Svöhi.
Nauðsynlegt er að birta bæði
þessi plögg í sama blaði og helst sem
næst hvort öðru (sömu opnu) ef fólk
á að átta sig.
NB! Morgunblaðið fær gögnin 24
stundum á undan hinum blöðunum
vegna tengsla þess við málið.
Þorgeir
Reykjavík, 27. desember 1983.
Til mín hefur leitað stjórn Lög-
reglufélags Reykjavíkur og falið
mér að óska eftir þvi við yður að
fram fari opinber rannsókn vegna
eftirfarandi máls:
Miðvikudaginn 7. desember sl.
birtist í Morgunblaðinu 281. tbl.
70. árg. grein eftir Þorgeir Þor-
geirsson rithöfund undir fyrir-
sögninni: „Hugum nú að. Opið bréf
til Jóns Helgasonar dómsmála-
ráðherra".
Þriðjudaginn 20. desember sl.
birtist í 292. tbl. Morgunblaðsins
önnur grein eftir sama höfund
undir yfirsögninni „Neyttu á með-
an á nefinu stendur ..."
í greinum þessum báðum, eink-
um þó þeirri fyrri, kemur fram
grófur áburður, dylgjur og æru-
meiðandi aðdróttanir, í garð Iög-
reglumanna.
Alvarlegasti áburður greinar-
höfundar er sá að ungur maður
hafi slasast svo af völdum lög-
reglu að hann hann hafi hlotið af
mikla og varanlega örorku.
Stjórn Lögreglufélags Reykja-
víkur telur að hér sé um svo al-
varlegar ásakanir að ræða í einu
víðlesnasta blaði landsins að
brýna nauðsyn beri til að mál
þetta verði rannsakað til hlítar
svo að stétt lögreglumanna verði
hreinsuð af áburði þessum.
Stjórn Lögreglufélags Reykja-
víkur leggur einnig þunga áherslu
á það, að leiði rannsókn í ljós að
ásakanir þessar séu réttmætar,
verði þeim seka eða þeim seku
stefnt til fullrar ábyrgðar á verk-
um sínum.
ítreka ég því hér með fyrir hönd
stjórnar Lögreglufélags Reykja-
víkur þá kröfu að fram fari opin-
ber rannsókn vegna framan-
nefndra blaðagreina þannig að all-
ir aðilar, sem hlut gætu átt að
verði látnir standa fyrir máli sínu.
Meðfylgjandi eru umræddar
greinar úr Morgunblaðinu.
Virðingarfyllst,
F.h. stjórnar Lögreglu-
félags Reykjavíkur,
Svala Thorlacius hdl.
Reykjavík, 4. janúar 1984.
Frú Svala Thorlacius hdl.
Húsi verslunarinnar
Kringlumýri, Reykjavík.
Kæra frú Thorlacius!
Þann 27. desember sl. hafið þér
skrifað ríkissaksóknara Þórði
Björnssyni bréf sem mig varðar að
nokkru og degi síðar hafið þér
sent út fréttatilkynningu til fjöl-
miðla um innihald þessa bréfs.
Bréfið innhélt kæru (í formi
beiðnar um „opinbera ransókn")
sem greint var frá mjög afbakað í
fréttatilkynningu yðar. Alt þetta
gerið þér vitaskuld fyrir hönd
Lögreglufélagsins í Reykjavík.
Sem þér nú hafið valið þá leið að
syngja þennan einsöng yðar með
Lögreglukórnum í dagblöðunum
sé ég mér naumast annað fært en
gera mínar athugasemdir þar líka,
enda þótt ég telji mig löngu vera
búinn að gera skyldu mína við
lögreglu þessa bæiar á þeim vet-
vangi. Úrþví stefnið mér í
dagblöðin mæti ég þar einsog hver
annar löghlýðinn borgari og
reikna með því að þau ljái pláss
undir svar mitt einsog mórölsk
skylda vitaskuld býður.
Ég sendi þeim líka texta bréfs
yðar til Þórðar og vænti þess að
hann verði birtur óstyttur svo al-
menningur geti lesið það svart á
hvítu um hvað er að ræða. Jafn-
framt vil ég mega gera fáeinar at-
hugasemdir við skrifið.
Um greinarnar tvær sem stefnt
er útaf segir í bréfi yðar til Þórð-
ar. „Stjórn Lögreglufélags
Reykjavíkur telur að hér sé um
svo alvarlegar ásakanir að ræða í
einu víðlesnasta blaði-landsins að
brýna nauðsyn beri til að mál
þetta verði rannsakað til hlítar
Þorgeir Þorgeirsaon
svo að stétt lögreglumanna verói
hreinsuð af áburði þessum.“
Það sem lögreglan hefur fengið
yður til að kalla ásakanir birtist
raunar í alvíðlesnasta blaði lands-
ins og var eindregin ósk mín til
dómsmálaráðherra um það að
barsmíðamál lögreglunnar sem al-
ment ganga núorðið undir nafninu
Lögregluvandamálið yrði ransak-
að til hlítar af hlutlausum aðila.
Hversvegna getið þér ekki bara
tekið undir þá frómu ósk mína?
Ég ræddi þann 28. desember við
fulltrúa á lögfræðistofu yðar (þér
tókuð ekki síma) og hann tjáði
mér að meiningin væri að mál
þetta gengi frá saksóknaraemb-
ættinu til Ransóknarlögreglu
ríkisins. Nokkuð góð hugmynd
það, kanski jafnvel lögleg — en
fyrirgefið mér líkinguna, kæra frú
— væri það ekki glannaskapur að
hafa lög um hundahreinsun í
landinu þannig að hundarnir ættu
sjálfir að sjá um þá framkvæmd.
Mundi ekki sullaveikin þá breiðast
útum landið á ný? Ég er hræddur
um það.
1 þessum orðum mínum felst
ekki nokkur aðdróttun, hvorki að
lögreglunni né hundum alment, en
hitt afturámóti að það er mín ein-
dregin skoðun að Lögreglufélagið
sé ekki réttur kæruaðili í þessu
máli, síst af öllu væri þó rétt að
kæra það til lögreglunnar sjálfrar.
Gæti hún með nokkru móti stilt
sig um það að snúa uppá hendurn-
ar (í yfirfærðri merkingu náttúr-
lega) á vitnum og vottorðagjöfum
í þeirri stöðu? Kanski gæti hún
það og húrra fyrir því! En hver
mundi trúa slíku? Enginn nema sá
einn sem lenti i þvílíku kraftastill-
ingarverki. Og hver tryði honum
svosem?
Og það er náttúrlega fyrst og
fremst lögreglunnar vegna sem
ótækt verður að lögreglan kæri
Lögregluvandamálið til umfjöll-
unar hjá lögreglunni?
Má ég líka bæta því við að sak-
sóknari er líkastil vanhæfur, eins-
og það mun heita á lögmannamáli,
í þessu sambandi vegna fyrri
skrifa minna um hann og embætt-
ið. Þeirri ábendingu vísa ég áfram
til ráðherra sbr. grein Dr. Ey-
steins Sigurðssonar í Þjv. 21.12.
1983. En það er nú bara smáræði
sem rætt verður ef þar að kemur.
Þér leggið meginþungan í bréfi
yðar til Þórðar á meiðyrðaþátt
þessa máls og væri því eðlilegra að
beina málinu þær brautir sem
meiðyrðamál alment fara.
Hversvegna gerið þér það ekki?
Ég held að lögfræðileg ráðgjöf yð-
ar sé kanski að veita lagavörðun-
um þyngri högg en þeir áður hafa
fengið í almenningsálitinu. Fólk
er að spurja: Hversvegna vill lögg-
an stefna málinu einmitt þangað?
Hvaða tengsl eru þarna á bakvið
tjöldin? Eru þessir feðgar? Eru
hinir gamlir starfsfélagar? Frí-
múrarar kanski? Oddfellowar?
Andakíll:
Fjárhúsþak
fauk af í
heilu lagi
IIvannatúni í Andakíl, 5. janúar.
í ILLVIÐRINU í gær hefur þakið af
fjárhúshlöðunni sennilega farið af í
heilu lagi að sögn ábúenda á
Syðstu-Fossum hér í sveit. Veðurofs-
inn var svo mikill, að heimilisfólkið
hélt sig í kjallara hússins á meðan
það gekk yfír.
Einn sviptivindurinn tók þakið
og vesturgafl hlöðunnar. Hey hékk
í girðingum, þegar eitthvað tók að
sjást út úr augum og hefur tjón
orðið talsvert á heyi og hlaðan
nánast ónýt. Hún hafði staðið af
sér suðaustan ofviðrin í 60 ár, en
þessi vindátt er víða viðsjárverð
hér norðan undir Skarðsheiði.
Fyrr í haust hafði eldur orðið
laus í sömu hlöðu, þannig að
heyskaði bóndans er orðinn til-
finnanlegur. Steyptur veggur milli
hlöðu og fjárhúss hlífði fénu og
slapp það óskaddað. Hálka og
ófærð er á vegum Borgarfjarðar
og fauk bíll út af veginum á Grjót-
eyrarhæðum og valt tvær veltur í
rokinu, bílstjórinn var einn í bíln-
um og slapp ómeiddur.
— DJ
Unglinga- og
barnaskemmtun
í Seljahverfi
í DAG, laugardaginn 7. janúar,
munu núverandi og fyrrverandi
nemendur Ölduselsskóla gangast
fyrir skemmtun fyrir alla aldurs-
hópa í ölduselsskóla, sem hefst kl.
16.00. Þar verða fjölbreytt
skemmtiatriði og sérstök
skemmtiatriði fyrir yngri börnin.
Ágóðin af þessari skemmtun
rennur beint i kirkjubyggingar-
sjóð Seljasóknar.
Guöspjall dagsins:
Mt. 13:
Illgresi meðal hveitisins.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.00.
Sr. Hjalti Guömundsson.
Laugardagur: Barnasamkoma aö
Hallveigarstöðum kl. 10.30. Sr.
Agnes Siguröardóttir.
ÁRBÆ J ARPREST AK ALL:
Barna- og fjölskylduguösþjón-
usta í Safnaöarheimili Árbæjar-
sóknar kl. 11. árd. Sr. Guömund-
ur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Barnaguösþjónusta
kl. 11.00. Guösþjónusta kl.
14.00. Sr. Árni Bergur Sigur-
björnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL:
Barnaguösþjónusta kl. 11.00 í
Breiöholtsskóla. Sr. Lárus Hall-
dórsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11.00. Sr. Sólveig Lára
Guömundsdóttir. Guösþjónusta
kl. 14.00. Organleikari Guöni Þ.
Guömundsson. Kvenfélagsfund-
ur mánudagskvöld kl. 20.30. Fé-
lagsstarf aldraðra miövikudags-
eftirmiödag kl. 2—5. Æskulýös-
fundur miövikudagskvöld kl.
20.00. Æskulýösfélag, yngri
deild, fimmtudag kl. 15.30. Sr.
Ólafur Skúlason, vígslubiskup.
DIGRANESPRESTAKALL: Laug-
ardagur: Barnasamkoma í safn-
aöarheimilinu viö Bjarnhólastíg
kl. 11.00.
Sunnudagur: Guösþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 11.00. Sr.
Þorbergur Kristjánsson.
FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK:
Guósþjónustan fellur niöur 8.
janúar. Sr. Gunnar Björnsson.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11.00. Guðsþjónusta kl.
14.00. Organleikari Árni Arin-
bjarnarson. Almenn samkoma
nk. fimtudagskvöld kl. 20.30. Sr.
Halldór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Barna-
samkoma og messa meö altaris-
göngu kl. 11.00. Börnin taka þátt
í upphafi messunnar en fara síö-
an í safnaóarsal. Guösþjónusta
kl. 14.00. Minnst 100 ára afmælis
Góöteplarareglunnar á islandi.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Engin messa veröur kl. 17.00.
Þriöjudagur 10. jan. kl. 10.30,
fyrirbænaguðsþjónusta, beöið
fyrir sjúkum.
Mióvikudagur 11. jan. kl. 22.00,
Náttsöngur.
Fimmtudagur 12. jan. opiö hús
fyrir aldraöa.
Laugardagur 14. jan. kl. 10—14,
samvera fermingarbarna.
L ANDSPÍT ALINN: Messa kl.
10.00. Sr. Ragnar Fjalar Lárus-
son.
HÁTEIGSKIRKJA: Laugardagur:
Barnaguösþjónusta kl. 11.00.
Sunnudagur: Messa kl. 14.00. Sr.
Arngrímur Jónsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa
kl. 10.00. Sr. Lárus Halldórsson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Laug-
ardagur: Barnasamkoma í safn-
aöarheimilinu Borgum kl. 11.00.
Sunnudagur: Guösþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 14.00. Séra
Þorbjörn Hlynur Árnason á Borg
predikar.
Séra Árni Pálsson.
LAUGARNESKIRKJA: Barna-
guösþjónusta kl. 11. Messa kl.
14.00. Altarisganga.
Þriðjudagur kl. 18.00. Bæna-
guösþjónusta.
Föstudagur kl. 14.30. Síödeqis-
kaffi.
Séra Ingólfur Guömundsson.
NESKIRKJA: Laugardagur: Ferð
aldraöra í kvikmyndahús. Fariö
kl. 15 frá Neskirkju. Séra Guö-
mundur Óskar Ólafsson.
Sunnudagur: Barnasamkoma kl.
11.00. Guösþjónusta kl. 14.00.
Séra Frank M. Halldórsson.
Mánudagur: Æskulýösstarfiö kl.
20.00.
Miðvikudagur: Fyrirbænamessa
kl. 18.20. Séra Guðmundur
Óskar Ólafsson.
SELJASÓKN: Barnaguðsþjón-
usta í Ölduselsskóla kl. 10.30.
Barnaguösþjónusta í íþróttahúsi
Seljaskólans kl. 10.30. Guös-
þjónusta kl. 14.00 í Ölduselssóla.
Fyrirbænasamvera föstudags-
kvöld 13. janúar kl. 20.30 í
Tindaseli 3. Sóknarprestur.
SELTJARNARNESSÓKN:
Barnasamkoma í sal Tónlistar-
skólans kl. 11.00. Sr. Frank M.
Halldórsson.
PRESTAR í Reykjavíkurpró-
fastsdœmi og nágrenni halda
hóf í Safnaöarheimili Kársnes-
sóknar sunnudagskvöld kl. 18.00
á vegum Prestafélags Suöur-
lands.
DÓMKIRKJA KRISTS Konungs
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30.
Hámessa kl. 10.30. Lágmessa kl.
14. Alla rúmhelga daga er lág-
messa kl. 18 nema á laugardög-
um þá kl. 14.
FELLAHELLIR: Kaþólsk messa
kl. 11.
HVÍT ASUNNUKIRK J AN Fíla-
delfía: Sunnudagaskóli kl. 10.30.
Safnaóarguösþjónusta kl. 14.
Ræöumaöur Einar J. Gíslason.
Almenn guösþjónusta kl. 16.30.
Ræöumaöur Jóhann Pálsson.
KFUM & KFUK, Amtmannsatíg
2b: Almenn samkoma kl. 20.30.
Sr. Jónas Gíslason talar. Ræöu-
efni: Nýtt fagnaöarerindi? Laufey
og Rósa syngja.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli í Mjóstræti 6 kl. 14.
Bæn kl. 20 og hjálpræöissam-
koma kl. 20.30.
KAPELLA St. Jósefssystra í
Garóabæ: Hámessa kl. 14.
HAFNAFJARÐARKIRKJA:
Messa kl. 14. Sóknarprestur.
VÍÐIST AÐASÓKN: Barnaguös-
þjónusta kl. 11. Almenn guös-
þjónusta kl. 14. Sr. Siguröur
Helgi Guömundsson.
KAPELLAN St. Jósefsspítala:
Messa kl. 10.
KARMELKLAUSTUR: Messa kl.
8.30. Rúmhelga daga er messa
kl. 8.
AKRANESKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 10.30. Sýndar verða
litskuggamyndir. Sr. Björn
Jónsson.