Morgunblaðið - 07.01.1984, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1984
36
Ast er
... að staga í endann á
honum.
TM Reg. U.S. Pat. Off -all rights reserved
«1983 Los Angeles Tlmes Syndtcate
Hæpið þykir mér að ekki skuli fást
í öllu Frakklandi axlabönd.
Með
morgunkaffinu
þennan mat svo slafrar hún hann í
sig á 60 sekúndum.
HÖGNI HREKKVÍSI
„ RaMNSOK'M/\P5TOF/1N P4NN
PÁuírip ICx/UCAStUFOR í TÚNFtSKlNUM.
Þessir hringdu . .
Eins Og í
happdrætti
E.Kj. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Mig langar til
að gera fyrirspurn til Rafmagns-
veitunnar vegna nýjustu reikn-
inganna, sem þeir hafa sent
okkur heim. Uppgjör á hitaveitu
og rafmagni er með öðrum hætti
en verið hefur sýnist mér og mér
virðist þetta vera orðið meira
eins og í happdrætti. í húsinu
þar sem ég bý hefur notkunin
breyst ákaflega mikið undanfar-
ið, en undarlega mikill hluti af
eyðslunni er á síðasta og hæsta
verði. Hvernig er þessum út-
reikningum háttað? Hvernig
áætlar Rafveitan, hvað eyðslan
er mikil á hverju verðtímabili,
þegar aðeins er lesið af einu
sinni á ári?
Þakklát öllu
þessu góða fólki
R.Sv. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Mig langar til
að koma á framfæri þakklæti til
Landakotsspítala. Þannig er mál
með vexti, að ég þurfti að leggj-
ast þar inn á svokallaðri „akút-
vakt“ og lenti á 2. hæð B. Og mér
fannst ég verða að segja frá því,
svo að eftir yrði tekið, hvað
hjúkrunarfólkið þar og annað
starsfólk er til mikillar fyrir-
myndar og aðhlynning öll góð og
hvaðeina. Læknisþjónustan á
Landakoti er áreiðanlega með
því besta sem fáanlegt er, en
þeir sérfræðingar sem önnuðust
mig voru Tómas Á. Jónasson,
Halldór Steinsen og Ásgeir Jóns-
son, hver öðrum betri. Sama var
að segja um þjónustudeildir þar
sem ég þurfti að koma á, t.d.
röntgendeild og rannsóknastofu,
alls staðar sömu elskulegheitin
og umhyggjusemin. Nú er ég
komin heim, heil heilsu, og ég er
þakklát öllu þessu góða fólki.
„Það gæti verið góð byrjun hjá okkur íslendingum að taka við björgunarstörfum Kandaríkjamannanna, en við gætum
einnig auðveldlega, að mínu viti, tekið að okkur a.m.k. 90% af starfsemi NATO á Keflavíkurflugvelli, og mundi það
skapa atvinnu fyrir fjölda manns, auk þess sem það gæfi gjaldeyri í aðra hönd.“
Sú þjónusta sem vid létum
í té gæti heyrt undir land-
helgisgæslu eða lögreglu
HaUdór Asgrímsson sjávarútvegsráðherra:
Eigum að yfirtaka björg-
unarflug Varnarliðsins
.■É,:_KK NTj eUi biartjgqn i glitp._l.gB. 0« brlu.JjLJivrlu^Mj^. ^
Kristján Þ. Benediktsson flug-
maður skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Mig langar til að vekja máls á
efni sem mér er hugleikið, í von
um að geta um leið vakið áhuga
annarra á því. Hér ætti að vera
um þjóðþrifamál að ræða, ekki
síst hagsmunamál gjaldeyrissjóða
okkar, sem mér skilst, að séu ekk-
ert allt of gildir nú um stundir.
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra hreyfir gamalli hug-
mynd í fréttaviðtali sem birtist í
Morgunblaðinu 29. des. sl. og segit
þeirrar skoðunar, að íslendingar
geti yfirtekið ýmsa starfsþætti
varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli, þ.m.t. starfsemi björgunar-
deildarinnar þar.
Ég er algerlega sammála ráð-
herranum. Hann sýnir óumdeilan-
lega, að nýtt blóð getur dugað vel
á okkar virðulega Alþingi. Það
gæti verið góð byrjun hjá okkur
Islendingum að taka við björgun-
arstörfum Bandaríkjamannanna,
en við gætum einnig auðveldlega,
að mínu viti, tekið að okkur a.m.k.
90% af starfsemi NATO á Kefla-
víkurflugvelli, og mundi það skapa
atvinnu fyrir fjölda manns, auk
þess sem það gæfi gjaldeyri í aðra
hönd.
Við íslendingar eigum margt
sérþjálfaðra manna á ýmsum
sviðum, sem leita sér atvinnu út
um allan heim. Nefni ég flugmenn
og flugumferðarstjóra, sem ég
þekki best til sjálfur. Þetta getur
verið gott út af fyrir sig, en er það
ekki sérkennileg staða, að við
skulum þurfa að leita út fyrir
landsteinana í þessu skyni á sama
tíma og útlendingar eru að vinna
sömu störf hér á landi? Við ís-
lendingar erum í NATO, hvað sem
hver segir, og því fæ ég ekki séð,
hvers vegna við ættum ekki að
geta sinnt þessum störfum, enda
þótt hér á landi sé ekki herskylda
(sem betur fer).
Sú þjónusta sem við létum í té í
þessu sambandi gæti t.d. heyrt
undir landhelgisgæslu eða lög-
reglu. Og ég þykist þess viss, að
margur vildi fórna verkfallsrétti
og hljóta í staðinn örugga atvinnu
á sínu sérsviði hér á landi.
Ég er sjálfur ópólitískur, en get
þó varla ímyndað mér annað en að
allir flokkar ættu að geta samein-
ast um þetta mál, sérstaklega þeg-
ar það er haft í huga, hvað þjóðar-
búið gæti haft í tekjur af þessari
starfsemi. Eins og á stendur fyrir
okkur held ég að við höfum ekki
efni á öðru en líta í hvert horn
eftir gjaldeyristekjum.
Við þykjumst fyrir löngu vera
orðnir menn með mönnum, en því
miður er minnimáttarkenndin enn
við lýði á meðal okkar, og ekki síst
á hinu virðulega Alþingi. Vegna
þeirra sem vantrúaðir eru á getu
okkar til þess að takast á við fyrr-
nefnd verkefni, skal bent á tvö
dæmi: a) Slökkviliðið á Keflavík-
urflugvelli. Það gefur góðar tekjur
og stendur sig með sóma. b) Flug-
umferðarstjórn yfir N-Atlantshaf.
Þykir hún einhver hin besta í
heimi, ef ekki hin besta og gefur
góðar gj aldeyristekj ur í aðra
hönd.
Þar að auki höfum við sýnt og
sannað, bæði hér heima og erlend-
is, að við eigum í mörgum greinum
á að skipa mjög góðu sérþjálfuðu
fólki og reynsluríku.
Ég vona, að Halldór Ásgrímsson
og stuðningsmenn hans, hverra
flokka sem þeir kunna að vera,
haldi þessu máli vakandi. Ég
stend með þeim og er óhræddur að
segja að sama sinnis séu flestir
starfsbræður mínir og margir
fleiri. Og vonandi verður árangur
af þessum umræðum, en málið
ekki látið daga uppi í masi eða
nefndaþófi á okkar virðulega Al-
þingi."
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Ég var aö lesa æviminningar Guðnýju.
Rétt væri:... æviminningar Guðnýjar.