Morgunblaðið - 07.01.1984, Side 40

Morgunblaðið - 07.01.1984, Side 40
Tölvupappír llll FORMPRENT Hverfisgolu 78. simar 25960 25566 HLEKKUR í HEIMSKEÐJU LAUGARDAGUR 7. JANUAR 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Þorsteinn Gfslason í samtali við Morgunblaðið: Ég hef sagt starfí mínu lausu stjóri sem Coldwater for- Fékk ekki þann stuðning, sem ég taldi mig þurfa „NEFNDIN var skipuð sem svar við mjög harðorðu kvörtunarbréfi frá Long John Silver’s um að ég ræki of harða verðstefnu. Mún tók að sér að reyna að ná samkomulagi um auknar sölur og tókst það,“ sagði l’orsteinn tiíslason, forstjóri ( 'oldwater Seafood Corporation, sclufyrirtækis SH í Bandaríkjunum, er hann var inntur eftir því, hvort hann vildi eitthvað segja um það, að skipuð hefði verið sérstök nefnd SH og Coldwater til að semja við LJS um sölu á þorskflök- um. Lítur þú á þetta sem vantraust á þig sem forstjóra Coldwater? „Það kann að vera, að minnsta kosti fékk ég ekki þann stuðning gagnvart viðskiptavini okkar, sem ég taldi mig þurfa." Er verðlækkunin í þessum samn- ingi staðfesting á því, að þú hafir haft rangt fyrir þér, en SÍS rétt, er Iceland Seafood lækkaði verðið á fimm punda þorskflakapakkning- um í haust um 10 sent, en Coldwat- er ekki? „Nei alls ekki. Nefndin fékk samning við Long John Silver’s, sem fullnægði mjög vel óskum framleiðendanna. Fyrir 10 senta lækkun SÍS síðastliðið haust fékkst ekkert. Fyrir þessa verðlækkun okkar núna fékkst mjög verðmæt aukning á sölumagni og ég tel, að SH sé mjög ánægt með þessa niðurstöðu." Verður þú áfram forstjóri Coldwater? „Nei, ég hef sagt upp starfi mínu í dag, en ekki er enn ákveðið hve- nær ég hætti. Það veltur á því hversu fljótt tekst að setja nýjan mann inn í starfið og það mun verða ágæt samvinna milli mín og stjórnar Coldwater um það,“ sagði Þorsteinn Gíslason. í fótspor föður síns Mbl./Kriðþjófur Einar Vilhjálmsson fetaði í fótspor föður síns í gærdag en þá var hann kjörinn íþróttamaður ársins 1983 af samtök- um íþróttafréttaritara. Faðir Einars, Vilhjálmur Einars- son, hlaut fyrstur þessa útnefningu árið 1956. En hann hlaut þessa útnefningu fimm sinnum alls og hefur enginn hlotið hana oftar. Einar hlaut 60 atkvæði af 60 möguleg- um. Sjá nánar á íþróttasíðu. Hundaeiganda sleppt úr haldi: Mistök að konan var sett í tugthúsið MorgunhlaðiðHAX. Halldóra Árnadóttir ásamt hundin- um sínum, Perlu í gær eftir að hún losnaði úr prísundinní. „ÉG VAKÐ ákaflega hissa þegar mér var tjáð að ég væri laus úr prísundinni og auðvitað létti mér mjög — að kerfið er að gefa eftir í baráttunni við hundaeigendur og því fagna ég,“ sagði Halldóra Árna- dóttir í samtali við blm. Mbl. í gær. Á miðvikudag var henni stungið í svartholið til þess að afplána 8 daga fangelsisdóm fyrir að halda hund í Reykjavík. En aðeins tveimur sól- arhringum síöar var henni sleppt. „Það urðu þarna mistök," sagði Baldur Möller, ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins í samtali við blm. Mbl. í gær, aðspurður um ástæður þess að Halldóra var leyst úr haldi. „Það hefur legið fyrir um alllangt skeið af hálfu ráðuneytisins, að ekki skuli ganga svo langt, að stinga hunda- eigendum í svartholið fyrir að halda hund. Embætti lögreglu- stjóra var kunnugt um þetta, en einhver mistök hafa átt sér stað hjá duglegu starfsfólki þess emb- ættis," sagði Baldur Möller. Um vistina í tugthúsinu við Skólavörðustíg sagði Halldóra: „Það var heldur leiðinlegt og bragðdauft á Skólavörðustígnum. Ég var eina konan í vistinni og auðvitað var bagalegt að geta ekki farið ferða sinna," og enn- fremur sagði hún. „Ég spurðist fyrir um hvort ég þyrfti að af- plána prísundina síðar, eða greiða sektina, en Bjarki Elías- son, sem staddur var á skrifstof- unni og gaf mér frelsi, kvaðst ekkert geta sagt til um það.“ Því má bæta við að Baldur Möller sagði í samtali við Mbl. að dregið yrði frá sektarupphæðinni, sem var 6.500 krónur, i réttu hlutfalli við frelsissviptinguna en sem fyrr sagði sat Halldóra inni í tvo daga af átta. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og Coldwater: Þorskflök seld til Long John Silver’s fyrir 1,1 milljarð kr. Gildandi verð lækkað um 6% eða 10 sent SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihúsanna og Coldwater Seafood Corporation hafa samið við Bandaríska fyrirtækið Long John Silver’s um sölu á 25 milljónum punda, 11.320 lestum, af þorskflökum á næstu 15 mánuöum. Söluverð þessa magns nemur um 40 milljónum dollara eða rúmlega 1,1 milljarði króna. Jafnframt var samið um kO senta lækkun á hvert enskt pund, sem samsvarar tæplega 6% lækkun frá gildandi verði. Ekki hefur enn verið samið um verðlækkun til annarra kaupenda. Með þessum samningi er talið að Coldwater sjái Long John Silver’s fyrir tæplega % af þorskflakaþörf fyrirtækisins. I frétt frá SH segir meðal annars, að undanfarna daga hafi farið fram samningaviðræður milli fulltrúa SH og Coldwater annars vegar og fulltrúa Long John Silver’s annars vegar. í íslenzku nefndinni áttu sæti Jón Ingvarsson, varaformaður stjórnar SH, Guðfinnur Einarsson, stjórnarformaður Coldwater, Eyj- ólfur ísfeld Eyjólfsson, forstjóri SH, Þorsteinn Gíslason, forstjóri Coldwater, Árni Finnbjörnsson, framkvæmdastjóri SH og Óiafur Gunnarsson, stjórnarmaður í SH og framkvæmdastjóri SVN í Neskaup- stað. 1 frétt SH segir ennfremur, að þessum samningi fylgi þriðjungs aukning á sölu 5 punda þorskflaka- pakkninga til Long John Silver's næstu 15 mánuði. Gert sé ráð fyrir því að verðlækkunin leiði til auk- innar sölu til þessa fyrirtækis, einnig á næsta ári. 20 milljónir punda verða afgreiddar á þessu ári og 5 milljónir fyrstu þrjá mánuði næsta árs. Sala Coldwater á 5 punda pakkningum til Long John Silver’s á síðasta ári nam 15,5 millj- ónum punda. Þess má geta, til sam- anburðar, að verðmæti þessa samn- ings er 40 milljónir dollara til 15 mánaða, en verðmæti nýgerðs við- skiptasamnings við Sovétmenn er 32,4 til 12 mánaða. Guðmundur H. Garðarsson hjá SH segir í samtali við Morgunblað- ið, að kringumstæður og það að ger- ður hafi verið stór langtímasamn- ingur hafi gert það að verkum að verð var lækkað, þrátt fyrir ákveð- inn vilja til að halda verðinu óbreyttu. Hér væri um aukningu á sölu frá síðasta ári að ræða og væri þessi samningur með þeim stærri, sem gerðir hefðu verið við einn að- ila í fisksölum fslendinga. Þá sagði Guðmundur aðspurður, að það þyrfti ekki að vera, að með þessarr verðlækkun væri verið að viður- kenna að rétt hefði verið að lækka verð í haust eins og Iceland Seafood gerði, en Coldwater ekki. Stærð samningsins og aðstæður breyttu Sjá ennfremur viðtal við Guðmund H. Garð- arsson á miðopnu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.