Morgunblaðið - 20.01.1984, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1984
37
stofuhita. Spírurnar veröa tilbún-
ar til neyslu eftir 3—6 daga, en
þá hafa fræin aukiö þyngd sína
átta til tífalt. Æskilegt er aö
rækta þau ekki lengur en 6—7
daga, því þá fara fræin aö tapa
bragði. Spírurnar geymast í
u.þ.b. þrjár vikur í kæliskáp,
skolið þær vel, látiö í plastpoka
og lokiö.
Þeir sem vilja koma sér upp
spiruræktun í einhverjum mæli er
bent á sérstaka bakka sem fást
m.a. í Náttúrulækningafélags-
búöinni við Laugaveg, en í þeim
er hægt aö láta þrjár tegundir af
baunum eða fræjum spíra í einu.
Austurlenska ævintýriö heitir
fyrirtæki sem nýlega hefur litiö
dagsins Ijós, en þaö eru þeir
Baldvin Björnsson og Ning de
Jesus sem reka þaö, en fyrirtæk-
ið ræktar spírur í tugatali og sel-
ur i verslanir. Baunaspírur eru
m.a. mikið notaöar í austur-
lenskri matargerö, viö litum inn á
nokkra veitingastaöi í Reykjavík
og fengum uppskriftir hjá mat-
reiöslumeisturum um hvernig
nota má spírurnar á margvísleg-
an hátt.
SJÁ NÆSTU SÍDU
Eðlisfræðiprófessor
einn í Kaliforníu segir,
að aðgerðin hafi bjarg-
aðsér frá að svipta sig
lífi; ríkisstarfsmaður
nokkur á eftirlaunum
er þeirrar skoóunar, að
uppskurðurinn sá hafi
bjargað hjónabandi
sínu. Rithöfundur einn
fullyrðir, að þetta hafi
endurvakið sjálfs-
traust hans í þeim
mæli, að hann gat lokið
við skáldsöguna, sem
hann var með í smíð-
um. En eins og þúsund-
ir annarra Bandaríkja-
manna, sem að undan-
förnu hafa fært sér í
nyt þessa nýjung í '
skapnaðaraðgerðum,
vilja þeir ekki, að nöfn
þeirra birtist á prenti.
Hér segir William
Scobie frá þessari__
nýstárlegu bandarísku
skurðaðgerð.
NÝSTÁRLEG SKURÐAÐGERÐ VIÐ
Sú aögerö, sem hér er til
umræöu, felst í því, aö
komið er fyrir vökvastýrö-
um blöðruháls-hvekki, sem virkar
á reöurinn, þannig aö hann nær aö
þrútna og stífna, þegar þess er
óskaö, og mönnum því bjargaö frá
getuleysi á örlagastundu. Dr. Paul
Weisberg, þekktur, bandarískur
geólæknir, hefur látiö þau orö falla
um þennan nýja kviöbúnaö karla,
aö hann sé eitt gleggsta dæmiö
um amerískt hugvit á þessari öld.
Aögeröin og tækiö kosta þar
vestra um 12.000 Bandaríkjadali
— en þaö er jafnviröi um þaö bil
336.000 ísl. kr. — og er þessi ný-
lega skurðaögerð þegar á góöri
leiö meö aö veröa eins konar
læknisfræöileg heimilisiöja í Kali-
forníu.
ÁVALLT TIL REIÐU
Þessi aögerö er óvíöa þekkt
utan Bandaríkjanna, en í þessum
mánuöi er tala þeirra bandarísku
karlmanna, sem gengist hafa undir
slíkan uppskurö og látiö setja
tækjabúnaöinn í sig, kominn upp í
15.000. En þetta er annars bara
örlítið brot af þeim mikla fjölda
karlmanna, sem hugsanlega vildu
gangast undir slíka aögerö.
„Þaö eru eitthvað á bilinu 5 til 10
milljónir bandarískra karla, sem
þjást af kynferöislegu getuleysi,"
segir dr. Gary Alter, en hann er
sérfræðingur í þvagfærasjúkdóm-
um í Los Angeles og framkvæmir
um þaö bil 60 aögeröir af þessu
tagi á ári hverju. „Þetta táknar, aö
allt aö því einn af hverjum tíu
bandarískum körlum eigi viö þenn-
an vanda aö stríöa. Þeir eru oft á
tíöum haldnir þunglyndi af þessum
sökum eöa jafnvel slíkri örvænt-
ingu, aö þeir kunna aö íhuga
sjálfsmorö. Þess háttar þrúgandi
tilfinningar eru líklegar til aö hverfa
meö öllu hjá karlmanni, sem veit
aö hann getur gagnast konu kyn-
ferðislega.“
Þessi aögerö er þó ekki viö hæfi
þeirra karlmanna, sem eiga viö
getuleysi aö stríöa sökum langvar-
andi þreytu og þungra áhyggja eöa
af sálrænum orsökum. „Aögeröin
er hentug fyrir þá karla, sem eru
getulausir af ýmsum líffræöilegum
ástæöum og líkamlegum ágöllum,“
sagöi Alter. „Þar mætti til dæmis
nefna uppskuröi vegna krabba-
meins í blöðruhálskirtli, alvarlegar
truflanir á taugakerfinu og þrengsli
í slagæöum á efri árum. Um þaö
bil fimmtíu prósent af sykursjúkum
karlmönnum verða getulausir."
Þaö var dr. Brantley Scott við
Baylor-læknaskólann í Houston í
Bandaríkjunum, sem átti hug-
myndina aö þessari aögerö og
haföi þegar áriö 1973 náö aö þróa
hana og fullkomna til hlítar. Þaö er
hins vegar einungis á tveimur
síöastliönum árum að þessi tiltölu-
lega einfalda skuröaögerö, sem
aðeins stendur um þaö bil 60 mín-
útur, er tekin aö ná þvílíkri út-
breiðslu í Bandaríkjunum, sem
raun ber vitni. „Áöur en svo gat
orðið, þurfti fyrst aö ráöa bót á
nokkrum tæknilegum vandkvæö-
um í sambandi viö búnaðinn,“
sagöi dr. Alter.
En hvernig virkar svo þessi
búnaöur? Undir getnaöarlimnum
er geröur skuröur og komiö fyrir
tveimur mjóum bullustrokkum úr
plasti, og þeir svo festir viö og
tengdir sekk, fylltum vökva úr líf-
fræöilegri saltupplausn, sem kom-
iö er fyrir neöst í kviöarholinu. Ör-
smá dæla er sett inn í punginn, og
þrýstir hún vökvanum upp í getn-
aðarliminn, sem veldur stinningu
(erection) er haldist getur eins
lengi og menn kunna aö óska.
Rofahnappur á dælunni er svo
notaöur til aö láta vökvann renna
úr limnum aftur inn í kviðarsekk-
inn.
Sé karlmaöurinn kvongaöur,
veröa bæöi hjónin aö veita sam-
þykki sitt varöandi aðgerðina, áöur
en dr. Scott getur og vill hefjast
handa viö aö framkvæma upp-
skuröinn.
GAGN OG GAMAN
Fyrsta skrefiö viö undirbúning
slíkrar aögeröar er þó sérstök
prófun, sem karlmaðurinn veröur
aö gangast undir, en hún felst i
mælingum á stinningu limsins,
meðan á nætursvefni stendur.
„Hjá þeim karlmönnum, sem eru
líkamlega heilbrigöir, kemur til
stinningar limsins í svefni í nokkur
skipti á hverri nóttu, og eru þaö
eðlileg viöbrögö líffæranna,“ segir
dr. Scott. „Ef mælitækið sýnir, að
til stinningar í nætursvefni kemur,
þá mælum viö eindregið meö því
við viökomandi, aö þeir leiti fremur
til geölækna sér til hjálpar, alveg
sama hvaö þeim finnst aö ami aö
sér.“
Dr. Brantley Scott hefur fram-
kvæmt um 1.300 aögerðir af þessu
tagi viö Saint Luke’s sjúkrahúsiö í
Houston, og fullyröir hann, aö þær
hafi boriö góöan árangur í 95% til-
vika. „Þaö sem viö óttumst fyrst og
fremst er hugsanleg ígerö af völd-
um sjúkrahúsveira, en slík áhætta
er ætíö til staöar viö hvaöa ísetn-
ingu gervibúnaöar í líkamann sem
er.
Skýrslur um sjúklinga, sem
koma síöar tii reglulegs eftirlits,"
segir dr. Scott, „hafa reynzt fram-
úrskarandi jákvæöar og sannfær-
andi.“
Samt sem áöur viröast ýmis
óþægindi geta fylgt í kjölfar þess-
arar aögeröar í fyrstu, og nokkrir
minni háttar vankantar hafa stund-
um komið i Ijós eftir á. Hins vegar
hefur jafnvel hinum málsókna-
glööu Kaliforníumönnum ekki þótt
ástæöa til þess hingaö til aö höföa,
aö því er bezt er vitaö, eitt einasta
skaöabótamál gegn skurölæknum
vegna meintra læknisfræöilegra
mistaka í sambandi viö slíkar karl-
mennsku-aögeröir.
„Þetta var sá sársaukafyllsti
uppskuröur, sem ég hef nokkurn
tíma gengist undir á ævinni,“ segir
einn sjúklinganna. „í tvo mánuöi
gat ég hvorki setiö né staöiö upp,
án þess aö finna til óþæginda."
„Hæfni karlmanns, sem gengist
hefur undir þessa aögerð, til aö fá
fullnægingu og sáölát viö sam-
ræði,“ segir dr. Alter, „er mjög
undir því komiö, hvers eðlis sá
kvilli var, sem hann þjáöist af áöur
en hann gekkst undir aögeröina.
Þannig getur til dæmis sykursýki
haft þau áhrif, aö karlmaðurinn
kann aö öölast fullnægingu viö
samræöi, en fær hins vegar ekki
sáðfall," sagöi dr. Emil Tanagho,
en hann er sérfræðingur í þvag-
færasjúkdómum viö Kaliforníu-
háskóla. Þá er vitað, aö áverkar á
mænunni útiloka hvort tveggja í
flestum tilvikum. „Samt sem áöur
getur karlmaöurinn haft ánægju og
unað af því einu aö vera fær um aö
serða konu og veita henni ánægju
í samræöinu.
Stafi getuleysi karlmannsins af
þrengslum í æöakerfinu, þaö er aö
segja, aö þaö sé tengt truflunum í
blóörás, opnar aögeröin oft á tíð-
um möguleika karlmannsins á aö
fá sáölát viö samræöi.
Þaö kann aö vera, að stinning
limsins veröi ekki alveg af náttúru-
legum ástæöum," sagöi dr. Tan-
agho, „en reðurinn lyppast þá aö
minnsta kosti ekki niöur á örlaga-
stundu, þegar á hólminn er kom-
iö.“
Þaö er lögö rík áherzla á læknis-
fræöilega og sálfræöilega ráögjöf
til handa þeim karlmönnum, sem
gengist hafa undir þessa aögerö,
og þaö er skilyröislaust mælt meö
þvi, aö þeir komi reglulega til
skoöunar og eftirlits fyrstu mánuö-
ina eftir útskrift af sjúkrahúsi.
Dr. Harvey Resnick varar þá
karlmenn, sem fengiö hafa hjálp-
arbúnað settan í sig, viö of mikilli
fljótfærni. „Þegar þessir karlmenn
hafa öðlast möguleikann á aö fá
reöur sinn stinnan á svipstundu,
reyna sumir þeirra aö hefja serö-
ingu þegar i stað.“ Hann mælir ein-
dregiö meö því, aö sem hluta af
forleik samræöisins, ætti konunni
að vera leyft aö þrýsta á hinn alls-
ráöandi hnapp, og leggur til aö
hún geti þá gert þaö eins oft „og
henni þóknast".
Hver eru svo viðbrögöin al-
mennt viö þessum hluta af starfi
dr. Brantleys Scotts? „í fyrstu
flissa menn aö þess háttar aögerö
og afleiöingum hennar. En þegar
sezt er niöur og tekiö aö ræöa í
fullri alvöru um þá kosti, sem slík
aðgerö veitir, kemur í ijós hjá
mönnum ósvikinn áhugi og hrifn-
ing.“