Morgunblaðið - 01.02.1984, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 01.02.1984, Qupperneq 4
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1984 Svipmyndir úr borginni: „Framtíðin er í brauðinu“ — eftir ólaf Ormsson Meira eða minna stöðug snjó- koma, skafrenningur og kuldi und- anfarna daga í Reykjavík og á landsbyggðinni er af fróðum mönnun talin hafa þau áhrif á geðheilsu að jafnvel bjartsýnustu menn koma ekki auga á skoplegar hliðar mannlífsins. Þessa skoðun vil ég draga í efa. Húmorista er sem betur fer að finna enn á með- al vor í táradal samtímans. { glórulausri stórhríð og suð- vestangarra skömmu eftir ára- mótin var mikið um að vera í verslun í miðborginni sem verslar með myndbandatæki. Þar var sannkölluð hátíðarstemmning og engin bölsýni ríkjandi á þeim bæ miklu fremur smitandi bjartsýni. Verslunarstjórinn, ungur maður, á að giska um þrítugt, hefur greinilega mikla trú á frjálsri verslun þrátt fyrir allt krepputal og volæði þessa síðustu tíma. Hann fór sem hvirfilvindur um verslunina og útlistaði fyrir hópi viðskiptavina frábæra kosti þeirr- ar vöru sem hann hefur á boðstól- um. Hann gerði stutt hlé á erindi sínu, skaust í símann, talaði í nokkrar mínútur til útlanda, kom svo að vörmu spori til baka og tók upp þráðinn að nýju þar sem frá var horfið: — Já, jæja elskurnar. Þið fáið ekki betri myndbandatæki en þessi frábæru tæki okkar. Það er sama hvar þið komið, tækin okkar bera af öðrum tækjum að gæðum, fegurð, stíl og frumleika. Spyrjið bara þá sem hafa verslað við okkur, þeir skipta þúsundum og þá er að finna í afskekktum sveitum og einnig í sýslum, hreppum og bæjarfélögum allt í kring um landið. Hér komu t.d. í byrjun des- embermánaðar fullorðin hjón og keyptu myndbandatæki, eitt stykki takk sagði konan. Hún var einmitt að hringja í okkur í gær, blessunin og hún er yfir sig hrifin. Hún er bálskotin í tækinu og er fyrst núna að kynnast heiminum, komin á sjötugsaldurinn. Karlinn hennar var einmitt rétt fyrir jólin að fá lánað heilt bílhlass af myndböndum frá stríðsárunum þegar amma var ung og sæt. í skartgripaverslun við Lauga- veginn var næstum sama bjart- sýnin ríkjandi í suðvestangarra og stórhríð. Meistarinn á staðnum sagði að mætti hafa eftir sér að desembermánuður hefði verið meira en allt í lagi og engin ástæða til að kvarta. Þegar tíu dagar voru liðnir af nýja árinu sagði hann aftur á móti að ekki hræða hefði litið inn í verslunina frá áramótum og líklega best að segja starfsfólkinu upp, og hann bætti við: — Atvinnuleysisbæt- urnar eru ekki svo litlar og það eru næstum forréttindi að njóta þeirra. Hann hafði ekki fyrr sleppt orð- inu en hávaxin miðaldra frú í voldugum minkapelsi opnaði úti- dyrahurðina í versluninni og bauð góðan daginn. Hún var alsett eyrnalokkum og perlufestum þannig að skrölti í öllu saman þeg- ar hún lagði frá sér budduna á búðarborðið og brosti til meistar- ans. Hann stóð líka brosandi við búðarborðið enda ekki ólíklegt að hann hafi komist í feitt eins og Ólafur Ormsson það er orðað þegar mikil viðskipti eru í vændum. Matsölustaðir hafa sprottið upp í borginni síðustu árin og þykir surautn nóg um, aðrir fagna ákaft, sérstaklega framsækinn félags- skapur sælkera sem er tilbúinn að smakka á góðum réttum hvort sem er árla morguns eða seint að kvöldi. Matsölustaðirnir eiga það sameiginlegt að bjóða upp á mjög góðan mat og ágæta þjónustu. Einn slíkur staður er í miðborg Reykjavíkur og er vinsæll. Þar var þétt setið í hádegi dag einn í upp- hafi ársins. Fólk var afslappað og naut góðrar máltíðar. Við borð voru ræddar horfur á nýju ári og veðurfar sem er algengt umræðu- efni manna á meðal hér á landi. Við eitt borðið ekki langt frá vín- bar sátu þrír karlmenn og ein kona, fólk á besta aldri, líklega um þrítugt. Það var stöðugt verið að bera mat og drykk að borðinu, létt vín og kokteila og svo var komið með blóm í stórum vasa sem sett- ur var á mitt borðið. Lítið fór fyrir fólkinu lengi vel, en skyndilega gerðist konan nokkuð ölvuð og hóf að tjá sig um hin ólíklegustu mál- efni, baráttu verkalýðshreyfingar- innar, sjónvarpsauglýsingar, megrun, jazzballet, hjónaskilnaði og hundrað ára afmæli Góðtempl- arareglunnar. Konan óskaði öllum viðstöddum gleðilegs árs, svo fór hún að bera á sig varalit, dökkrauðan, og hellti síðan yfir sig ilmvatni úr litlu glasi. Fáir veittu henni nokkra at- hygli fyrr en hún stóð upp frá borði og beindi orðum sínum til þriggja þjóna á staðnum. Hún var í svörtum flegnum samkvæmis- kjól sem opinberaði þrýstinn barminn. Skyndilega barði hún með gaffli í borðbrúnina og kall- aði yfir salinn til þjónanna sem voru í nokkurra metra fjarlægð: — Ætlið'þið ekki að kyssa mig strákar? Kysstu mig Nonni og þú Donni. Gerið það, kyssið mig strákar. Þjónarnir hurfu þegar inn í hliðarsali, létu sem þeir heyrðu ekki í konunni en sá karlmann- anna sem sat næst henni við borð- ið kyssti hana rembingskossi og sýndist hún alsæl lengi á eftir og teygði sig í kampavínsflösku á borðinu og hellti í þrjú glös. Rétt áður en ég renndi þessum pistli í gegnum ritvélina hitti ég á förnum vegi kunnan Reykvíking á miðjum aldri. Hann er rúmlega þrítugur og eitt sinn vann hann sér til frægðar að sjá sömu bíó- myndina að minnsta kosti fjörtíu sinnum. Þetta er ljúfur piltur og hinn besti drengur sem hefur lagt hönd á margt á ekki langri lífsleið. Sem unglingur rétt innan við tví- tugt tók hann grafir í kirkjugörð- um í Kaupmannahöfn og deildi kjörum með hippaliðinu í borg- inni. Lengi var hann rótari með helstu popphljómsveitum sjöunda áratugarins, síðan umboðsmaður nokkurra hljómsveita og um tíma umfangsmikill kaupsýslumaður í Reykjavík og verslaði með tísku- fatnað. Hann barst svo mikið á um tíma að ekki hefði komið mér á óvart að finna nafn hans meðal hæstu skattgreiðenda og mig minnir að hann hafi búið í glæsi- höll á Arnarnesi og ekið einhverj- um dýrasta bíl sem til var á ís- landi. Við ræddumst við inni í sjoppu um stund. Ég spurði hvað hann væri að fást við þessa stund- ina. — Ég er bakaranemi á þriðja ári og sérhæfi mig í brauðgerð, svaraði pilturinn og brosti. — Þú ert þá ekki fær um að kaupa af mér eitt lítið smásagna- safn. Auðvitað blankur þar sem þú ert í námi, sagði ég þá. — Já, ég er blankur. En fram- tíðin er í brauðinu og ég stefni á framhaldsnám í útlöndum og hef engan áhuga á smákökugerð. Fólkið hættir aldrei að borða brauð. Smákökurnar eru aftur lúxusvara. Heyrðu, ég skal kaupa af þér smásagnasafnið þegar ég er aftur orðinn sæmilega efnaður að loknu námi, svaraði pilturinn áður en við kvöddumst fyrir utan sjoppuna. Kunningi minn er einn þeirra sem þora. Slíkir ofurhugar eru fátíðir nú á dögum. Hann hóf nám í bakaraiðn um þrítugt og hafði þó fyrir konu og börnum að sjá. Ólaíur Ormsson er rithöíundur. Hann starfar auk þess hjá Reykja- víkurborg. Sala hlutabréfa ríkissjóðs og stofn- un opinbers verðbréfamarkaðar — eftir Björn Friófinnsson Fréttaklausa í Morgunblaðinu 6. janúar sl. um væntanlega sölu hlutabréfa ríkissjóðs í Iðnaðar- bankanum hefur vakið mig til um- hugsunar um fyrirkomulag á sölu hlutabréfanna. I fréttinni er haft eftir iðnaðarráðherra, að hluta- bréfin, sem nema 27% hlutafjár í Iðnaðarbankanum, verði fljótlega boðin til kaups, en síðan er haft eftir ráðherra: „Það hefur því mið- ur ekki tekist enn að fá mat hlut- lauss aðila á verðgildi bréfanna, en væntanlega verður hægt að ganga frá þessu í mánuðinum." Einnig er sagt frá því í fréttinni að ríkisskattstjóri hafi vísað frá sér að leggja mat á verðgildi bréf- anna í þessu tilviki. Verðbréfamarkaður Velferðarríki Vesturlanda hafa um langan aldur þróað með sér sölukerfi fyrir hlutabréf og skrán- ingu á verði þeirra, enda gegnir það lykilhlutverki í hagkerfi ríkj- anna. ísland hefur hér verið und- antekning, en þrátt fyrir ákvæði í lögum um stofnun opinbers verð- bréfamarkaðar, hefur lítt miðað í þá átt. Hér hefur á síðustu árum þó myndast vísir að kerfi verðskrán- ingar fyrir skuldabréf ríkissjóðs og fasteignatryggð skuldabréf, þótt ófullkominn sé. Markaður fyrir hlutabréf er hins vegar lítill sem enginn. Fyrirtæki afla sér því sjaldnast fjár til uppbyggingar með sölu hlutabréfa á almennum markaði, og almenningur hefur ekki ástæðu til þess að varðveita sparifé sitt í slíkum eignarhlutum eins og aðstæður hafa verið. Hér er ýmsu um að kenna. Má þar nefna ákvæði skattalaga og einnig ákvæði félagssamþykkta í hlutafélögum, sem setja hömlur á sölu hlutabréfanna. Nú eru boðaðar breytingar á skattalögum, sem gera eiga eign á hlutabréfum eftirsóknarverðari, og er full ástæða til þess að nota um leið tækifærið og hrinda áformum um stofnun opinbers verðbréfamarkaðar í framkvæmd. Ríkissjóður getur samtímis selt þá hlutafjáreign sína, sem ákveðið er að bjóða almenningi til kaups. Af hverju kaupa menn hlutabréf? í stuttu máli held ég að menn kaupi hlutabréf hér á landi af þremur ástæðum.H. í fyrsta lagi í því skyni að ná aðstöðu í stjórn og framkvæmda- stjórn hlutafélags og þar með að skapa sér og sínum viðurværi. Hvatinn til fjárfestingarinnar er vænting um laun, starfsaðstöðu og hugsanlega einhver hlunnindi hjá hlutafélaginu. Verð það, sem menn vilja greiða fyrir hlutabréf- in, fer eftir því, hvað þeir meta hugsanlegan ávinning af fram- angreindum atriðum. I öðru lagi má nefna að almenn- ingur kaupir oft hlutabréf til þess að styrkja „gott“ málefni í sínu byggðarlagi. Má þar nefna kaup á, hlutabréfum í útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtækjum í því skyni að hleypa lífi í atvinnulíf staðarins. Hvatinn til fjárfestingarinnar er vænting um aukin umsvif og veltu í byggðinni og bætt mannlíf þar með batnandi efnahag. Verð það, sem menn vilja greiða fyrir hlutabréfin, en nafnverð þeirra, enda er yfirleitt um stofnun hluta- félaga að ræða eða að verðmæti viðkomandi hlutafjárstofns hefur Björn Friðfinnsson „Ég vil meö þessum lín- um hvetja til þess, að ríkissjóður beiti sér fyrir því að afnumdar verði hömlur á sölu hlutabréfa í þeim hluta- félögum, sem ætlunin er að selja hlutafjáreign ríkissjóðs í.“ verið leiðrétt með útgáfu jöfnun- arhlutabréfa fyrir útgáfu þeirra bréfa, sem til sölu eru boðin. í þriðja lagi er svo um það að ræða, að menn kaupi hlutabréf tij þess að ávaxta sparifé sitt, þótt slíkt sé ekki algengt hér á landi. Reglan erlendis er sú, að verð hlutabréfa í almenningshlutafé- lögum fer eftir því, hvað fyrir þau fæst á markaðinum. markaðsverð- ið ræðst af fjölmörgum atriðum, s. s. arðsemi viðkomandi hlutafé- lags eða von um skyndilega aukna eftirspurn eftir hlutabréfum þess, t. d. í sambandi við samruna hluta- félaga. Það ræðst einnig af al- mennu efnahagsástandi á hverj- um tíma og ákvæðum skattalaga. Á hlutabréfamarkaði taka menn verulega áhættu, en menn geta líka átt von á því að hagnast talsvert og vinningsvonin verður því hvati til að menn fjárfesti í hlutabréfum. Almennt er ætlast til þess, að hlutabréfamarkaður- inn gefi betri arð en ávöxtun á sparisjóðsreikningum. Upplýsingar um hag hlutafélaga Venja er, að við útboð nýrra hlutabréfa á verðbréfamarkaði sé gefið út boðsbréf (prospect), þar sem lýst er viðkomandi hlutafé- lagi, markmiðum þess, efnahag og þeirri arðsvon, sem við það er bundin. Vegna daglegra viðskipta með hlutabréf almenningshlutafé- laga á verðbréfamarkaði er svo gerð krafa til þess að þau birti reglulega upplýsingar um hag sinn til þess að auðvelda hluthöf- um og öðrum að meta arðsvon hlutabréfanna. Skrifuð hafa verið mörg rit um aðferðir við slíkt mat, en engin kenning virðist þó óbrigðul í því efni. Að lokum er það ávallt ástand markaðarins og „hugboð“ þeirra, sem þar versla, er verðinu ræður. Ég vil með þessum línum hvetja til þess, að ríkissjóður beiti sér fyrir því að afnumdar verði höml- ur á sölu hlutabréfa í þeim hluta- félögum, sem ætlunin er að selja hlutafjáreign ríkissjóðs í. Jafn- framt verði teknar saman upplýs- ingar fyrir almenning um hluta- félögin og þau atriði, sem auðveld- að gætu væntanlegum kaupendum mat á verðmæti hlutabréfanna. Þá verði nú á þessu ári hafinn rekstur opinbers verðbréfamark- aðar eins og lagaákvæði standa til. Ríkissjóður verður að selja hlutabréf sín á réttu verði Með framangreindu móti getur ríkissjóður selt hlutabréf sín eftir því sem verð þykir fýsilegt. Hægt er að setja fá bréf til sölu í byrjun meðan verið er að finna, hvert rétt markaðsverð er, og síðan er hægt að haga sölunni eins og hagstæð- ast er fyrir ríkissjóð hverju sinni. Verðbréfamarkaðurinn auðveld- ar um leið stofnun nýrra fyrir- tækja og útboð aukins hlutafjár í starfandi fyrirtækjum. Hann myndi skapa vettvang fyrir al- menn viðskipti með hlutabréf og hann yrði til aðhalds fyrir stjórn- endur almenningshlutafélaga. Ekki er mér kunnugt um, hvað hlutafjáreign í Iðnaðarbankanum gefur af sér, og ég hygg að svo sé um flesta landsmenn. Eftirspurn eftir kaupum á hlutafjáreign rík- issjóðs hlýtur að vera afar tak- mörkuð, nema hlutabréfin séu boðin með einhverjum þeim vild- arkjörum, að aðrir núverandi hluthafar í bankanum sjái sér augljósan hag af því að kaupa þessi 27% hlutafjár, sem ríkið á. Ég held að mikil trygging væri í því fólgin fyrir skattgreiðendur, að svo verði um hnútana búið áður en sala nefndra hlutabréfa fer fram, að hægt verði að selja þau á opinberum verðbréfamarkaði, þar sem verðskráning fer daglega fram. Nauðsyn ber einnig til að auðvelda næstu skref í uppbygg- ingu atvinnulífs hér á landi með stofnun slíks markaðar. Björn Fridfinnsson er fram- kvæmdastjóri Lögfrædi- og stjórn- sýsludeildar Reykjavíkurhorgar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.