Morgunblaðið - 04.03.1984, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MARS 1984
65
Bjarni Eiríkur Sigurðsson skólastjóri í háalvarlegri skipulagningu ásamt
nemanda sínum.
„Kvótinn" var ekkert vandamál í veggskreytingalist nemenda grunnskólans
sem nutu aðstoðar nemenda frá Myndlista- og handíðaskólanum.
Yngstu skólanemarnir mótuðu af kappi í leir með aðstoð vsntanlegra lista-
manna frá MHÍ.
„Þetta drífur
fólkið áfram“
Sigríður Erna úr MHÍ kenndi 6
ára börnum grímugerð. Hún kvað
starfið í skólanum stórkostlega
skemmtilegt framtak, því þetta
drifi fólk áfram.
Kristín Gísladóttir úr MHÍ var
að kenna 9 ára börnum. Hún kvað
starfið í skólanum mjög spenn-
andi og kvaðst telja að sams konar
ætti að gera í öllum skólum lands-
ins, en þó ef til vill sérstaklega úti
á landi þar sem myndlistarkenn-
ara vantaði. Sóley Ragnarsdóttir
úr MHÍ kvað nemendur svolítið
hikandi að koma með hugmyndir,
en þó rættist furðufljótt úr.
Jóhann Grétarsson, 9 ára, var
að vinna í grímugerð. Hvað hafði
hann að segja um þemavikuna í
skólanum? „Maður andar mikið
léttar ef skólataskan er heima."
„Þetta er alveg frábært og auð-
vitað eigum við að hafa þemaviku
oftar," sögðu Harpa og Svava Rán,
9 ára gamlar.
„Þetta er ofsalega gaman og
hinn skólastjórinn (Torfi Jónsson,
skólastjóri MHÍ) tók myndir af
okkur með grímurnar," sagði
Fríða Björg, 6 ára gömul og jafn-
aldri hennar, Karl Ægir, kvaðst
mjög ánægður með þetta allt sam-
an, enda miklu skemmtilegra en
að vera í stærðfræði á þessum
tíma eins og stundaskráin segði til
um.
Stjórn Foreldra- og kennarafé-
lagsins kom í heimsókn og fannst
henni það sem fram fór í einu orði
sagt stórkostlegt. „Börnin ljóma
af ánægju og áhuga," sagði einn úr
foreldrafélaginu. „Þau hafa málað
veggi, gert sviðstjöld, smíðað
skógrindur og unnið fjölmörg önn-
ur gllð störf sem skilja margt gott
eftir sig, fyrir utan það sem þeim
var kynnt og leiðbeint með. Fyrir
hönd félagsins viljum við færa
skólastjóra, kennurum og öllum
þeim sem lagt hafa hönd á plóginn
og að þessu staðið, bestu þakkir og
við vonumst til að þemavikan geti
orðið fastur liður í starfi skólans."
Grein: Árni Johnsen
Myndir: Ragnar Axelsson og
nemendur Grunnskóla Þor-
lákshafnar.
LALOGGIA
Sérverslun meö listræna húsmuni
Borgartún 29 Sími 20640 ■
Þettaogmargb
fleiiafrá
Cassina G
WINK