Morgunblaðið - 04.03.1984, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 04.03.1984, Qupperneq 20
68 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MARS 1984 3E A DROmNWGI UMSJÓN: Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir Félag guðfræðinema Æskulýðsfregnir Utan Úr lieÍmÍ Nýjar leiéir - ný gleöi t*etta er merki heimsþings Lútherska heimssambandsins, sem verður haldið í Búdapest í Ungverjalandi í sumar, frá 22. júlí til 4. ágúst. Fyrir heimsþingið heldur Lútherska heimssambandið æskulýðsþing, líka í Búdapest. Þangað mun streyma ungt fólk hvaðanæva að úr veröld- inni til að halda guðsþjónust- ur, syngja, hlusta, biðja, leika og vitna hvert fyrir öðru og eflast nýjum krafti, sem þau verða send með út í veröidina. Þau munu játa að framtíðin er í Kristi. Yfirskrift mótsins er nefnilega: In Christ the Fut- ure is now. Það er stundum ögn snúið að þýða svona kjör- orð, en okkur finnst þetta mætti þýða: Fyrir Krist eigum við framtíð. Það er orðaleikur milli yfirskriftar æskulýðs- þingsins og alheimsþingsins því yfir yfirskrift þess er: In Christ — Hope for the World: I Kristi er von heimsins. Það er þess vegna, vegna þess að Kristur er von heimsins, sem ungu fólki leyfist að treysta því að það eigi framtíð. Nokkur þeirra sem undir- búa æskulýðsþingið segja: „Kirkjan er skapandi og starf- andi félag, þar sem við getum fundið frið, réttlæti og frelsi og gildi alls þessa í daglegu lífi þjóðfélagsins. Þegar dagleg reynzla okkar verður önnur en friður, réttlæti og frelsi, er það vegna þess að kærleikur Guðs, sem vill umfaðma allt, hefur verið sniðgenginn og þjóðfélagið og kirkjan þarf þá að sættast við Guð og endur- nýjast með því að Guð fái að komast að okkur." fólk og ungt fólk heldur ekkert fyrir kirkjuna. Þessar fullyrð- ingar eru vissulega algjörlega rangar. Fjöldi ungs fólks leit- ar til kirkjunnar, leitast við að eflast þar í trú á Krist og leit- ar nýrra leiða til að útbreiða þá trú. Samt fara líka margir á burt, yfirgefa kirkjuna og leita annarra leiða. Það er líka augljóst að Lútherska heims- sambandið er nú að hyggja að því hvernig kirkjan geti brugðizt við þessum vanda hins unga fólks. Hópur ungs lúthersks fólks ætlar að halda guðsþjónustu- hátíð fyrir páskana í París. Það staðhæfir að tilbeiðslan Þetta eru góð orð. Það verð- ur heldur niðurdragandi þegar alltaf er verið að hamra á því að kirkjan sé ekkert fyrir ungt Bréfaskipti æsku- lýðsfélaganna ÆskulýAsskrifstofa kirkjunnar á Klapparstíg er mikil menning- armiðstöé undir forystu þeirra séra Agnesar og Bjarna. Þar eru m.a. haldnir fundir forráðafólks í æsku- lýósstarfi og þaðan eru send bréf til æskulýðsfélaganna. Þangað berast svo aftur svarbréf frá þeim, sem æsku- lýðsskrifstofan sendir til allra hinna æskulýðsfélaganna. Það er dæmalaust gott, höfum við fregnað, að fylgjast svona með jví, sem hin eru að bjástra við og fá frá þeim hugmyndir og upp- örvun. Og hér með sendum við baráttu- og friðarkveðjur til allra æskulýðsfélaganna í tilefni æskulýðsdagsins. sé brennandi spurning í æsku- lýðsstarfi kirkjunnar í Evrópu og Norður-Ameríku. Það vitn- ar í niðurstöður æskulýðsmóts Lútherska heimssambandsins í Urach í Þýzkalandi árið 1981: „Víða í heiminum flykkist ungt fólk frá kirkjunni. Það virðist vera af þremur orsök- um. Mörgu ungu fólki finnst það utangátta í guðsþjónust- unni, ekki einungis vegna formsins, heldur vegna þess hvað þar skortir andann, sam- félagið, ferskleikann og von- ina. Því skorum við á Lútherska heimssambandið að koma á fót starfshópum, sem reyni að komast að því hvers vegna ungt fólk yfirgefur kirkjuna. Hver starfshópur skyldi beina athygli sinni sérstaklega að tilbeiðslunni." Markmið þessara hátíða- halda í París er að endurlífga tilbeiðsluna í lúthersku kirkjulífi með því að safna saman ungu fólki og senda það með nýjan eldmóð heim í kirkjur sínar. Ætlunin er að gefa hópum og einstaklingum, sem starfa að hljómlist, leik- list og guðsþjónustugerð í kirkjunum, tækifæri til að hittast og tilbiðja saman og leggja eitthvað af mörkum til að auðga æskulýðsstarfið í kirkjunni. Æskulýðsfélagið sat á fundi, 9 snaggaralegar stelpur beggja vegna fermingaraldurs drukku súkkulaði og borðuðu apríkósu- tertu, sársvangar eftir langan skóladag. IJmræðuefni fundarins var þetta: Á kirkjan erindi til ungs fólks? Stelpurnar voru ekki seinar til svars: Kirkjan á mikið erindi til ungs fólks. Það yrði bara allt ómögulegt, allt myndi hrynja, ef kirkjan væri ekki til. En nær hún til ungs fólks? Nei, ekki nærri nóg. Messurnar eru stundum svo dap- urlegar og tilbreytingarlausar að við erum alveg að farast. Samt komum við alltaf aftur. En það þarf að breyta messunni. Einmitt, segir presturinn. Furðulegt hvað prestar, sem alltaf eru að gagnrýna aðra í ræðum sínum, verða varkárir þegar þeim finnst þeir vera gagnrýndir. Einmitt, segir prest- urinn aftur. Ef þið viljið að ein- hverju sé breytt verðið þið að breyta því sjálfar. Við höfum enga til að gera þetta fyrir okkur, og það getur enginn breytt messunni eins og þið vilj- ið nema þið sjálfar. En þið getið það og þið megið það líka. Hvað viljið þið gera? Við viljum syngja skemmti- legri sálma, sögðu stelpurnar, sálmana úr æskulýðssöngbókun- um og ýmsa aðra fallega sálma. Við viljum auðvitað líka halda áfram að syngja gömlu sálmana. Kannski gætum við sungið nýju sálmana með konunum úr kirkjukórnum og kennt þá svo- leiðis. Og þar með var það ákveðið. í hverri viku hittast stelpurnar í æskulýðsfélaginu og konurnar í kirkjukórnum og æfa saman sálma úr æskulýðsbókunum. Þær syngja flesta sálmana tví- raddað og án undirleiks. En hvernig tekið söfnuðurinn þess- um nýja söng? Safnaðarfólkið hrósar þeim á hvert reipi — og bráðum verður það sjálft farið að taka undir. Biblíulestur vikuna 4. til 10. marz Ég er Drottinn Guð þinn Sunnudagur 4. mars: Mánudagur 5. mars: Þriðjudagur 6. mars: Miðvikudagur 7. mars: Fimmtudagur 8. mars: ' 9. mars: Laugardagur 10. mars: 1. Mós. 1,26 — Guð er skaparinn. 2. Mós. 15,26 — Ég er Drottinn, græðari þinn. Dóm. 6,23—24 — Drottinn er friður. Davíðss. 23 — Drottinn er minn hirðir. 2. Mós. 23,6 — Drottinn er vort réttlæti. 2. Krónikubók 6,18—21 — Mun Guð búa með mönnum á jörðu? 5. Mós. 6,1—5 — Drottinn er vor Guð, hann einn er Drottinn. Ég er Drottinn Guð þinn 2. Mós. 20.2. Sunnduagur í föstuinngangi Nú breytum við ofurlítið til, kæru lesendur, og íhugum boðorðin næstu 10 sunnudaga. Biblíulestrarnir verða líka um það boðorð, sem við hugleiðum hvern sunnudag. f dag lesum við fyrste boðorð- ið: „Ég er Drottinn Guð þinn, sem leiddi þig út af Kgyptalandi, út úr þrælahúsinu. Þú skalt ekki hafa aðra guði en mig.“ Við látum hugann dveljast við þetta mikla hjálpræðisverk Guðs. Hann fann til með fólki sínu í angist þess og ánauð. Og hann leiddi það út úr þrælahúsinu. Hugleiðum hvernig þetta frelsisverk Guðs varpar Ijóma yfir okkar eigið líf. Guð vill líka leiða okkur út úr þeirri ánauð, sem við búum við, sem stundum birtist í ótta og kvíða, stundum í eigingirni og öfund og hræðslu um eigin hag og frama, ellegar ýmsu öðru, sem við hvert og eitt getum talið upp fyrir sjálfum okkur. Guð vill frelsa okkur undan oki þessa þrældóms. Eins og Guð leiddi ísraelsþjóðina út úr Egyptalandi leiddi hann allt mannkynið út úr þrældómi syndarinnar með því að senda son sinn Jesúm Krist til að líða og deyja á krossinum á Golgata og rísa upp til eilífs lífs. Hugleiðum það í dag að við eigum aðgang að þessu frelsi, þessu stórkostlega frelsi, sem bæði er eilíft og dag- iegL Hvernig getur okkur þá langað til að hafa aðra guði?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.