Morgunblaðið - 06.04.1984, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1984
Nokkrir frystigámanna í eigu Kimskips á hafnarbakkanum í Sundahöfn.
Heildarflutningar aldrei meiri
Skip Eimskips fluttu 669.000 tonn á síðasta ári
Heildarflutningar Kimskips á
síðasta ári námu 669.000 tonnum
en voru 566.000 tonn árið áður.
Aukningin nemur 18% á milli ára
og hafa flutningarnir aldrei verið
meiri í tonnum taliö. Kinkum varð
um aukningu í útflutningi að ræða,
alls 37%, og má að verulegu leyti
rekja hann til vaxandi útflutnings
afurða stóriðja. I»á jukust flutn-
ingar á milli erlendra hafna um
100%, úr 4.000 í 8.000 tonn.
í árslok 1983 voru 19 skip í
siglingum á vegum Eimskipafé-
lagsins, 14 í eigu félagsins og 5
leiguskip. Var það tveimur skip-
um færra en í upphafi árs og má
rekja það til þess að félagið seldi
þrjú skipa sinna á síðasta ári, en
keypti tvö. Laxfoss, Bæjarfoss og
Fjallfoss voru allir seldir, en
Lagarfoss og nýr Fjallfoss
keyptir. Fjallfoss kom þó ekki til
landsins fyrr en á þessu ári.
Veruleg aukning varð á frysti-
flutningum á vegum félagsins á
síðasta ári. Fór hann að nokkru
leyti fram í gámum og nam hlut-
deild þeirra 15% í þessum flutn-
ingum en var 9% 1982. Til þess
að mæta breytingum á þessu
sviði hefur félagið ráðist í kaup á
200 frystigámum og kosta þeir
um 120 milljónir króna.
í ræðu Halldórs H. Jónssonar,
stjórnarformanns félagsins, kom
fram, að áhersla hefði verið lögð
á það á erlendum vettvangi að
tengjast erlendum flutninga-
markaði. T.d. ætti félagið 26% í
umboðsfyrirtæki sínu í Bret-
landi og ræki umboðsskrifstolu
fyrir meginland Evrópu í Rott-
erdam í samvinnu við umboðs-
mann sinn þar. Einn viðkomu-
staður erlendis bættist við á síð-
asta ári, Immingham, sem er við
ána Humber, um 11 km frá
Grimsby. Sú höfn er aðallega út-
flutningshöfn.
Sömu menn
— en hlut-
verkaskipti
KNGAR breytingar urðu á mönnum
í stjóm Kimskipafélagsins á aðal-
fundinum í gær. I»eir Thor R. Thors,
ritari stjórnar, Axel Kinarsson, gjald-
keri, Indriði Pálsson, meðstjóm-
andi, og Hjalti Geir Kristjánsson,
mcðstjórnandi, áttu að ganga úr
stjórn en voru allir endurkjörnir.
Fyrir í stjórninni voru Halldór
H. Jónsson, formaður, Ingvar
Vilhjálmsson, varaformaður, Pét-
ur Sigurðsson, meðstjórnandi,
Halldór E. Sigurðsson, meðstjórn-
andi, og Jón H. Bergs, meðstjórn-
andi. Halldór E. Sigurðsson er
skipaður af hálfu ríkisins í stjórn-
ina.
Eftir aðalfundinn kom stjórnin
saman til fyrsta fundar síns á
starfsárinu og skipti þá með sér
verkum. Eina breytingin varð sú,
að þeir Indriði Pálsson og Ingvar
Vilhjálmsson skiptu með sér verk-
um. Indriði verður varaformaður
stjórnarinnar, en Ingvar einn
meðstjórnenda.
Endurskoðendur félagsins voru
kjörnir Ólafur Nilsson, löggiltur
endurskoðandi, og Víglundur
Möller. Sigurbjörn Þorbjörnsson
var skipaður endurskoðandi af
hálfu ríkissjóðs. Þorbjörn Jó-
hannsson var kjörinn varaend-
urskoðandi.
Hörður Sigurgestsson er for-
stjóri Eimskipafélagsins.
70. aðalfundur Eimskipafélags Islands
„Áttatíu ára gömul
verndarlög eiga ekki
að ráða stefnunni“
— sagði stjórnarformaður vegna fyrirhug-
aðra Islandssiglinga bandarísks fyrirtækis
Morgunblaðið/KEE.
Halldór H. Jónsson, stjórnarformaður, flytur ræðu sína á aðalfundinum í gær. Aðrir á myndinni eru talið frá vinstri:
Hjalti Geir Kristjánsson, Jón H. Bergs, Halldór K. Sigurðsson, Indriði Pálsson, Thor R. Thors, Pétur Sigurðsson og
Ingvar Vilhjálmsson, allir úr stjórn Kimskips, þá Þórður Sverrisson, fundarritari og framkvæmdastjóri fjármálasviðs
og Axel Kinarsson úr stjórn.
97,2 milljóna króna hagnaður af rekstri Eimskips í fyrra:
Afkoma ársins 1983
hvati nýrra átaka
— sagði Halldór H. Jónsson, stjórnarformaður fyrirtækisins
„Það er séreinkenni á íslenskum
áætlunarsiglingum, að þær eru að öllu
leyti í höndum íslendinga sjálfra,"
sagði Halldór H. Jónsson, stjórnarfor-
maður, undir lok ræðu sinnar í gær
þegar hann vék að frcgnum að undan-
förnu um að bandarískt skipafélag
hygðist yfirtaka flutninga fyrir Varnar-
liðið á Keflavíkurflugvelli.
„Islendingar hafa að öllu leyti
annast sjóflutninga til Varnarliðsins
ailt frá árinu 1967 er bandarískt
skipafélag hætti þeim flutningum.
Hefur Eimskipafélagið allt síðan ár-
ið 1967 miðað siglingar sínar og
skipakost á þessari leið meðal ann-
ars við það, að þessari þjónustu yrði
sinnt með fullnægjandi hætti.
Nú bregður svo við, að bandarískt
skipafélag, sem er byrjandi í sigling-
um, hyggst taka upp siglingar til ís-
lands og taka að sér flutning á að-
föngum til landsins í krafti 80 ára
gamalla laga, sem munu eiga að
tryggja það, að slíkur varningur sé
einungis fluttur af bandarískum
skipum, ef slíkir aðilar bjóði þá
þjónustu.
Um þetta vil ég segja þetta. ís-
lendingar hafa annast þessa þjón-
ustu fyrir Varnarliðið með ágætum.
Þeir eiga að fá að annast þessa
flutninga með sama hætti og verið
hefur. 80 ára gömul verndarlög eiga
ekki að ráða stefnunni 1 þessu efni.
Það væri áfall fyrir samskipti þjóð-
anna, að hér yrði breyting á. Við
verðum að treysta á að hér finni
stjórnmálamenn þá lausn, sem dugir
til frambúðar," sagði Halldór.
3.3
HAGNAÐUR af rekstri Kimskipafé-
lags íslands nam 97,2 milljónum
króna á síðasta ári. Kr um verulega
aukningu hagnaðar að ræða frá ár-
inu 1982. Hagnaöurinn þá nam 7,9
milljónum króna. IJmreiknað til árs-
ins 1983 með hliösjón af vísitölu
byggingarkostnaðar var hagnaður-
inn 1982 13 milljónir króna þannig
að í raun er um 7,5-földun hagnaðar
að ræða á milli ára. Þess skal getið
að 1982 varð hagnaður af rekstri
Kimskips i fyrsta sinn í fimm ár.
Tekjur á síðasta ári námu 1.750
Stjórn Eim-
skipafélagsins:
milljónum króna. Heildartekjur
árið 1982 námu 955 milljónum
króna. Nemur aukningin 83%.
Umreiknað til ársins 1983 með
sama hætti og hagnaðurinn voru
heildartekjurnar 1982 1.623 millj-
ónir. Kom þetta fram í ársreikn-
ingum félagsins, sem Hörður Sig-
urgestsson, forstjóri Eimskips,
skýrði á aðalfundinum í gær.
Veltufjárhlutfallið, hlutfall á
milli veltufjármuna og skamm-
tímaskulda, á síðasta ári var 1,30
og nánast það sama og árið á und-
an er það var 1,31. Þá var eigið fé í
heildarfjármagni 42% og var
hærra en mörg næstu ár á undan.
í ræðu Halldórs H. Jónssonar,
stjórnarformanns, kom m.a. fram,
að rekja mætti betri afkomu á síð-
asta ári til samvinnu nokkurra
þátta, jafnt innan félagsins sem
utan. Betri nýting skipastólsins
hefði haft sitt að segja svo og auk-
in hagræðing. Þá hefðu auknar
fjármunatekjur skipt verulega
miklu um bætta rekstrarafkomu
félagsins. Gengismunur hefði t.d.
verið lægri en árið á undan. „Af-
koma ársins 1983 hvetur til nýrra
átaka," sagði Halldór.
Halldór gat þess einnig í ræðu
sinni, að sökum bættrar rekstrar-
afkomu á síðasta ári hefði félagið
lækkað gjaldskrá flutningsgjalda
á stykkjavöru um 7% í desember.
4,5
“SÉlffi
Veruleg fækkun vinnuslysa
VKRULEG fækkun vinnuslysa hefur
átt sér stað við vöruafgreiðslu á veg-
um Kimskipafélags íslands á undan-
förnum árum. Er um að ræða meira
en helmings fækkun á fímm ára
tímabili.
Eins og sjá má af meðfylgjandi
línuriti voru að meðaltali 5,2
vinnuslys á hverjar 100.000 vinnu-
stundir við vöruafgreiðslu á árinu
1979. Árið eftir fækkaði þeim í 4,5.
Árið 1980 fór þeim eilítið fjölgandi
en eftir það hefur þeim fækkað
mjög. Á síðasta ári urðu aðeins 2,4
slys að meðaltali á hverjar 100.000
vinnustundir.