Morgunblaðið - 06.04.1984, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1984
15
Húsin hrundu
Símamynd AP.
Þessi tvö hús hrundu til grunna á Manhattaneyju í dag og er verið að rannsaka meö hvaða hætti það atvikaðist. Grunur leikur á að sprengju
kunni að hafa verið komið fyrir í húsinu. Einn maður lét lífið og 19 særðust.
Mondale
Frambjóðendaslagur-
inn til Pennsylyaníu
l’hiladelphia, 5. apríl. AP.
ÞEIR WALTER Mondale, Gary Hart og Jes.se Jarkson, sem allir keppa að
útnefningu sem forsetaefni Demókrataflokksins, eru nú komnir til Pennsylv-
aníu þar sem næstu forkosningar fara fram á þriðjudaginn. í húfi eru 172
kjörmenn.
Hagur Mondales vænkaðist
óumdeilanlega við sigurinn í New
York og nú, þegar um helmingur
kjörmanna hefur verið kosinn,
hefur Mondale stuðning 861,25,
Gary Hart 512 og Jesse Jackson
140,5. Til að hljóta útnefningu
þarf frambjóðandi 1976 kjörmenn.
Mondale segist vera bjartsýnn á
úrslitin í Pennsylvaníu en staðan
þar mun þó enn vera fremur óljós.
Hart gerir sér miklar vonir í rík-
inu. Jackson sagði í dag að hann
myndi eftir sem áður halda áfram
„að vera sam'/iska forkosn-
inganna". Hann var spurður hvort
til greina kæmi að hann yrði út-
nefndur varaforsetaefni flokksins.
Hann sagði: „Ég yrði góður for-
seti, ekki síðri varaforseti, ég hef
allt sem þarf til að inna þessi störf
af hendi."
Frakkiand:
Stáliðnaðarmenn
gramir stjórninni
Longwy, Krakklandi. 5. apríl. Al*.
FIMMTÁN manns slösuðust í dag,
er lögreglusveitir tókust á við grímu-
klædda menn sem flykktust út á göt-
ur til að mótmæla þeirri ákvörðun
stjórnvalda í Frakkíandi, að draga
úr umsvifum stáliðnaðarins og
fækka störfum. Átökin voru fram-
hald á sams konar slagsmálum í
gær.
Umrædd stefna stjórnvalda
miðar að því að fækka í röðum
stáliðnaðarmanna um 25 prósent
næstu 3 árin vegna samdráttar í
iðnaðinum. 100 manns tóku þátt í
mótmælunum í dag og allir hinir
slösuðu voru úr þeirra röðum.
Einn missti fingur, er eldsprengja
sem hann ætlaði lögreglumönnum
sprakk í hendi hans. óeirðirnar
voru einkum í tveimur borgum,
Longwy og Fos, skammt frá Mar-
seilles. Hinir grímuklæddu unnu
talsvert tjón á eignum stálverk-
smiðjanna, brenndu hús í Longwy
og brutu rúður í stórum stíl í báð-
um bæjunum.
Þetta er einnig pólitískt mál í
Frakklandi. Kommúnistaflokkur-
inn er andvígur þessari áætlun
stjórnarinnar, en Pierre Mauroy
forsætisráðherra, hefur varað
kommúnista við því að ekki verði
vikið frá því þó svo að hótað verði
stjórnarkreppu.
68 farast
í sjóslysi
Jakarta, 5. apríl. AP.
SEXTÍU og átta manna er saknað
eftir að seglskip sökk sl. mánudag
undan Baturoro-höfða í Suður-Sul-
awesi. Greindi eitt indónesísku
dagblaðanna frá þessu í dag.
Seglskipið, Musafir III, sem
einnig var búið hjálparvél, var að
sigla milli tveggja hafna í S-Sul-
awesi þegar eldur kom upp í því.
Skipverjum tókst ekki að ráða við
eldinn og auk þess versnaði veðrið
mjög. 87 farþegum tókst að kom-
ast í bátana en hinir eru taldir af.
Nýjar hugmyndir um
lækningu krabbameins
navtnn* Rparh Flnrirt* A anríl AI*
Davtona Beach, Florida, 4. apríl. AP.
BANDARÍSKIR vísindamenn hafa
gert þá uppgötvun, að óeðlilegur
æxlisvöxtur, krabbamein, geti átt
sér stað við erfðafræðilcga keðju-
verkun og að þess vegna kunni það
að verða auðveldara en áður var
talið að lækna sjúkdóminn.
Charles Stiles, lífefnafræðing-
ur við Dana-Farber-krabba-
meinsstofnunina í Boston í
Massachusetts, sagði á ráð-
stefnu, sem bandaríska krabba-
meinsfélagið stóð fyrir, að þegar
fundist hefðu fleiri og fleiri
„kraþbameinskon", erfðavísar
krabbameins, sem augljóslega
geta hrundið því af stað, hefði
mönnum verið hætt að lítast á
blikuna. Ef allir þessir erfðavís-
ar, a.m.k. 24 talsins, gætu valdið
krabbameini, þá virtust ekki
miklar horfur á að mönnum
tækist að ná undirtökunum í
baráttunni. Menn hefðu verið
farnir að líta krabbameinið
sömu augum og kvefið að því
leyti, að ástæðurnar væru svo
margbreytilegar, að ógjörningur
væri að finna ráð við þeim.
Stiles sagði, að nú væri annað
upp á teningnum og taldi hann,
að unnt væri að stöðva æxlisvöxt
með því að hafa áhrif á aðeins
fáa mikilvægustu erfðavísana.
Erfðavísarnir fyrrnefndu
koma allir við sögu í eðlilegum
vexti frumunnar en grunur leik-
ur á, að þá fyrst valdi þeir
krabbameini þegar ákveðin að-
skotaefni (krabbameinsvaldandi
efni) trufla vöxtinn. Þeir eru í
öllum frumum líkamans og
koma að ýmsu gagni óvirkir en
þegar þeir verða of virkir eða
haga sér ekki rétt hefst æxlis-
vöxturinn. Þegar sár grær er
ferlið þessu líkt: Hvatinn PDGF,
vaxtarþátturinn svokallaði,
myndast í beinmerg og berst
þaðan með blóðflögunum, sem
hafa hlutverki að gegna við
græðslu. Hvatinn tengist þar til
sniðnum viðtökum á frumunum
og þeir hafa aftur á móti þau
áhrif á frumukjarnann, að hann
fer að skipta sér og nýr vefur
myndast.
Hér er um að ræða þrjá
áfanga: Myndun hvatans, vaxt-
arþáttarins; hvatinn tengist
frumunni; frumukjarninn verð-
ur fyrir örvun.
Það, sem þykir markverðast
við uppgötvun Stiles og sam-
starfsmanna hans, er, að einn
eða fleiri erfðavísar krabba-
meins komi við sögu í hverjum
áfanga og hugsanlegar lækn-
ingaaðferðir yrðu þá í því fólgn-
ar að snúa sér beint að þessum
erfðavísum og stöðva með því
óeðlilegan æxlisvöxt.
AMERÍKA
PORTSMOUTH/NORFOLK
Bakkafoss 27. apríl
City of Perth 8. mai
Bakkafoss 18. maí
City of Perthl 29. maí
NEWYORK
Bakkafoss 26 april
City of Perth 7. maí
Ðakkafoss 17. maí
City of Perth 28. maí
HALIFAX
Bakkafoss 30. apríl
Bakkafoss 21. maí
BRETLAND/MEGINLAND
IMMINGHAM
Eyrarfoss 8. apríl
Áiafoss 15. apríl
Eyrarfoss 22. apríl
Álafoss 29. apríl
FELIXSTOWE
Eyrarfoss 9. apríl
Álafoss 16. april
Eyrarfoss 23. april
Álafoss 30. apríl
ANTWERPEN
Eyrarfoss 10. april
Álafoss 17. april
Eyrarfoss 24. april
Álafoss 1. mai
ROTTERDAM
Eyrarfoss 11. apríl
Álafoss 18. apríl
Eyrarfoss 25. apríl
Álafoss 2. mai
HAMBORG
Eyrarfoss 12. apríl
Álafoss 19. april
Eyrarfoss 26. april
Álafoss 3. maí
WESTON POINT
Helgey 6. apríl
Helgey 16. apríl
LISSABON
Vessel 21. april
LEIXOES
Vessel 22. april
BILBAO
Vessel 24. apríl
NORDURLOND/-
EYSTRASALT
BERGEN
Mánafoss 6. apríl
Dettifoss 13. apríl
Mánafoss 20. apríl
Skip 27. apríl
KRISTIANSANO
Mánafoss 9. apríl
Detlifoss 16. april
Mánafoss 28. apríl
Skip 30. apríl
MOSS
Mánafoss 10. apríl
Detlifoss 13. april
Mánafoss 24. april
Skip 27. april
HORSENS
Dettifoss 18. apríl
Skip 2. maí
GAUTABORG
Mánafoss 11. april
Dettifoss 18. apríl
Mánafoss 25. apríl
Skip 2. maí
KAUPMANNAHÓFN
Mánafoss 12. april
Dettifoss 19. apríl
Mánafoss 26. apríl
Skip 3. mai
HELSINGJABORG
Mánafoss 13. april
Dettifoss 21. april
Mánafoss 27. april.
Skip 4. maí
HELSINKI
Elbeström 30. april
GDYNIA
írafoss 11. apríl
Elbeström 7. maí
PÓRSHÖFN
Dettifoss 28. april
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
-fram ogtil baka
frá REYKJAVÍK
alla mánudaga
frá ÍSAFIRÐI
alla þriðjudaga
frá AKUREYRI
alla fimmtudaga
EIMSKIP
*