Morgunblaðið - 12.04.1984, Síða 1

Morgunblaðið - 12.04.1984, Síða 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI STOFNAÐ 1913 86. tbl. 71. árg. _____________________ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1984 ______________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Vestrænar ríkis- stjórnir gagnrýna Bandaríkjamenn CIA virðist hafa hætt að leggja tundurdufl fyr- ir utan strönd Nicaragua fyrir hálfum mánuði BrUwtel, Kaupmannahörn, Madrid. Washinj;- ton, 11. aprfl. AP. HAFT er cftir tveimur háttsettum emb- ættismönnum Bandaríkjastjórnar að bandaríska lcyniþjónustan hafi hætt lagningu tundurdufla fyrir utan strönd Nicaragua fyrir tveimur vikum. I*essar athafnir CIA hafa sætt mikilli gagnrýni undanfarna daga og öldungadeild Bandaríkjaþings hefur hvatt til þess að þeim verði hætt. AP hefur eftir öðrum bandarísk- um embættismanni að George P. Shultz, utanríkisráðherra, hafi haft efasemdir um tundurduflalagnirnar, en hafi hins vegar ekki lagst gegn þeim í þeirri von að þær hindruðu vopnasendingar frá Nicaragua til skæruliða í E1 Salvador. Meðal þeirra sem gagnrýnt hafa aðgerðir bandarísku leyniþjónust- unnar eru ríkisstjórnir Belgíu, Dan- merkur og Spánar, en i yfirlýsingu dönsku stjórnarinnar voru Banda- ríkin þó ekki nefnd á nafn. Sovétmenn hafa fagnað samþykkt bandarísku öldungadeildarinnar og sagði TASS-fréttastofan I kvöld að hún væri meiriháttar áfall fyrir Ronald Reagan forseta. Fréttaskýrendur telja að deilurn- ar um tundurduflin muni leiða til þess að fulltrúadeild Bandaríkja- þings muni synja beiðni stjórnar Reagans forseta um aukafjárstyrk að upphæð 21 miiljón dollara til upp- reisnarmanna í Nicaragua. Chernenko var kjör- inn forseti Moskvu, II. aprfl. AP. Konstantin U. ('hernenko, leiðtogi sovézka kommúnistaflokk.sins, var kjörinn forseti Sovétríkjanna, hinn 10. í röðinni, á fundi /Kðstaráðsins. Kjör hans var einróma, eins og jafnan er í atkvæðagreiðslum ráðsins. Mikhail S. Gorbachev, sem geng- ur næstur Chernenko að völdum í Kreml, bar upp tillögu um Chern- enko er lýst var eftir framboðum, og fagnaði síðan kjöri. Gorbachev sagði Chernenko mikinn baráttu- mann kommúnisma og friðar er hefði ótvíræða pólitíska hæfileika, einnig væri hann mikill stjórnandi. Gorbachev treysti stöðu sina sem AP/Símamynd. Konstantin U. Chernenko kýs sjálfan sig er /Eðstaráðið kaus nýjan forseta Sovétríkjanna i kjölfar fráfalls Yuri Andropovs. næstvaldamesti maður Sovétríkj- anna er hann var kjörinn formaður utanríkisnefndar Æðstaráðsins, en því starfi gegndi Chernenko 1 tfð Andropovs og Mikhail A. Suslov I tíð Brezhnevs. Mauno Koivisto, forseti Finnlands, og Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, veifa til mannfjölda af svölum forsetahallarinnar í Helsinki í gær. Síl»»»ynd ap Vigdís Finnbogadóttir í Finnlandi: „Gagnkvæmar heimsóknir færa þjóðir nær hvor annarri“ HELSINKI skartaði sínu fegursta þegar forseti fslands, Vigdís Finn- bogadóttir, kom í gær í opinbera heimsókn til Finnlands. íslenskir og finnskir fánar blöktu við hún í borg- inni og á flugvellinum beið heiðurs- vörður hermanna, finnsku forseta- hjónin, Mauno Koivisto og kona hans Tellervo, og margt annarra fyrirmanna. Að lokinni móttökuathöfninni skiptust þjóðhöfðingjarnir á gjöf- um og afhenti Vigdís forseta- frúnni finnsku að gjöf víravirkis- armband en forsetanum Skarðs- bók. Að því búnu var lagður blómsveigur á leiði Mannerheims, marskálks og forseta, en síðar um daginn tók Vigdís á móti full- trúum erlendra ríkja. Mikið hefur verið skrifað um heimsókn forseta fslands í finnsk- um blöðum og ítarlega sagt frá ís- landi og fslenskum málefnum. í gærkvöldi sat forseti fslands veislu Finnlandsforseta og sagði hann m.a. í ræðu sinni, að menn- ingarlegt samstarf og samvinna þjóðanna tengdi þær mest og best. í ávarpi forseta fslands vitnaði hún f Hávamál þar sem segir, að oft skuli vinar síns vitja og sagði, að gagnkvæmar heimsóknir færðu þjóðirnar nær hvor annarri. Sjá frekari fréttir af forseta- heimsókninni á bls. 25. Geimfarinn James van Hoften að viðgerðarstörfum á palli á enda krana þess, sem notaður var til að ná hinum bilaða bandaríska gervihnetti, „Solar Max“, um borð í geimferjuna Challenger. Neðst til vinstri sést annar geimfari, George Nelson, en geimfarnir um borð í ferjunni eru fimm. Tækniafrek f geimnum: Viðgerð á „Sol- ar Max“ lokið Kanaveralhöfða, II. apríl. AP. GEIMFARARNIR bandarísku í geimferjunni Challenger, George Nelson og James van Hoften, luku viðgerð á gervi- hnettinum Solar Max í dag og virðist viðgerðin hafa heppnast vel. Geimfarar hafa aldrei áður dvalið jafn lengi utan geim- fars, eða í sjö stundir og sjö mínútur. Er þaö sex mínútum lengri tími en í geimgöngu Jerry Carr og Bill Pogue, sem dvöldu í Skylab 1973. Geimgangan var einnig notuð til frekari tilrauna með geim- göngubúnaðinn, sem fyrst var notaður í síðustu ferð Challeng- er. Spann van Hoften hringi og tók alls konar lykkjur í flutn- ingarými ferjunnar, og lofaði tækið eftir á. Fyrirhugað er að geimferjan lendi í geimstöðinni á Kennedy- höfða um hádegi á föstudag. Verðurhorfur þar eru hins vegar slæmar og í kvöld bentj veð- urspá til þess að líkur fyrir við- unandi aðstæðum væru aðeins 60%. Hugsanlegt er að þetta leiði til þess að Challenger verði í staðinn að lenda á Edwards- herflugvellinum í Kaliforníu eða dvölin í geimnum verði enn framlengd um einn dag. Sjá nánar frétt á bls 23.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.