Morgunblaðið - 12.04.1984, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 12.04.1984, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIð; ‘FIMMTÍÍDAGÚkí2.]ÍPRiLl984 og gildi. En heiðurslaun til frú Stefaníu voru opinber yfirlýsing um, að leiklistin, þar sem hún náði best og hæst, væri jafnoki annarra listgreina. Þetta var árið 1907 og það sama ár fæddist Þóra Borg. Eins og oft er um leikarabörn, komst hún fljótt á svið, gott ef það var ekki sem Tóta í Fjalla-Ey- vindi, 3ja—4ra ára. Allt hennar líf var svo tengt leiksviði, og þegar upp er staðið, hefur Þóra senni- lega verið lengur starfaði leikkona en nokkur önnur íslensk; hún hef- ur verið á sviðinu í rúmlega sjötíu ár. Sjálf taldi hún sinn eiginlega leikferil hefjast 1927, þannig að stutt var orðið í 60 ára leikafmæl- ið. Mér hefur orðið tíðrætt um það leiksögulega, þegar minnst er Þóru Borg. Það skal engan undra, sjálf var hún ein lifandi leiklist- arsaga, sem nánast var hægt að fletta upp í, minnug með afbrigð- um og hafði fjörugan og skarpan frásagnarmáta. Oft var ég að suða í henni að pára niður endurminn- ingar sínar. Þóra færðist undan. Lífið hafði ekki verið henni áfalla- laust fremur en öðrum, og þær sorgir þótti henni ekki við hæfi að bera á borð. En sitthvað bar á góma hjá okkur, og kannski hefur Þóra sagt sem svo: Þú getur borið vitni síðar, ef þér þykir þetta vera uppistaða í eitthvað slíkt. A fyrstu tuttugu árum ferils síns lék Þóra fleiri hlutverk en nokkur önnur leikkona Leikfélags Reykjavíkur. Við opnun Þjóðleik- hússins var hún ráðin þangað og lék þar í nærfellt áratug. Það er ekkert launungarmál, að viðskiln- aður Þóru við Þjóðleikhúsið þá var sársaukamál. En nú eru örlögin oft skrítin. Rúmlega 20 árum síðar lék Þóra sitt síðasta hlutverk á sviði og það í Þjóðleikhúsinu, og þótti mér gott um að hafa getað stuðlað að því, enda fann ég Þóru þótti vænt, og sem leikkona fór hún þar á kostum. Árin í milli hafði hún starfað í Iðnó á sínu V f • 37 gamla sviði og lifað þar nýtt vor listar sinnar. Ég ætla að forðast hér að þylja upp hlutverk, það verður að gerast veglega og betur á öðrum vettvangi, en ekki get ég stillt mig um að nefna hérna þrjú hlutverk frá þeim árum, sem við Þóra unnum saman í Iðnó: Maríu Jósefu, geggjuðu móðurina með lambið í Húsi Bernörðu Alba, frú Grubach, holdtekju hinnar óræðu tortryggni í Málsókninni og frú Lovísu, fáránleikamynd tilgangs- lausrar elli. Allt sterkt meitlaðar mannlýsingar og allar mjög sér- stæðar. Rómantísk hetjuhlutverk lágu ekki sérstaklega fyrir Þóru og í raun var natúralistísk veru- leikalíking aldrei ríkjandi þáttur í list hennar. Hins vegar á listin svo mörg önnur stílbrögð og fylgsni, upphafinn póetískan kraft, and- rúm súrrealismans, tilfyndni fáránleikastefnunnar; þarna átti Þóra tóna, sem fáar eða engar aðr- ar íslenskar leikkonur hafa náð i skottið á. Auðvitað gat Þóra verið „náttúruleg", ef þess gerðist þörf, en ef skírskotað er til málaralist- arinnar, býst ég við Þóra hafi átt meira skylt í list sinni við express- ionismann en ljósmyndavélina. Þetta kom auðvitað ekki í veg fyrir, að hún gæti ekki einnig lýst innileika með smáum og fínlegum blæbrigðum. Gott dæmi þess er móðir Garðars Hólm í Brekku- kotsannál, stórt og krefjandi hlut- verk, sem Þóra skilaði með þeim sóma að alþjóðaathygli vakti. Andlit hennar naut sín mjög vel í kvikmyndleik og persónuleiki hennar magnaðist. Ég man, þegar unnið var að gerð Brekkukotsann- áls, að þýskt samstarfsfólk okkar ræddi aldrei um Þóru öðruvísi en sem „Die Borg“, líkt og tíðkaðist um „Die Bergner" og „Die Diet- rich“. Af henni stóð virðing. Þóra Borg var fædd í Reykjavík 6. júlí 1907, eins og áður segir, og dóttir Stefaníu Guðmundsdóttur og Borgþórs Jósefssonar bæjar- gjaldkera. Hún nam í Kvennaskól- anum og stundaði fótsnyrtingu um skeið, búningaleigu o.fl. en að- alstarf hennar var auðvitað að leiklist. Hún giftist 1941 Gunnari Einarssyni vélfræðingi, en missti hann eftir stutta sambúð; þau áttu einn son, Gunnar, sem hefur verið móður sinni stoð og stytta. Systkin Þóru fengust mörg við leiklist. Anna Borg varð fyrsta lærða leikkonan okkar og starfaði í Danmörku, sem kunnugt er, Em- ilía lék hér á fjölunum um margra áratuga skeið og Óskar, elsti bróð- irinn, var mikið viðloðandi leik- listina á sínum yngri árum. Og yngri kynslóðin heldur uppi merkinu, Sunna, bróðurdóttir Þóru, er nú aðalleikkonan í ieik- húsinu á Akureyri. Mikilhæf listakona er gengin. Og ég kveð góða vinkonu. Henni fylgir heiður þökk og blessun. Sveinn Einarsson Kveðja frá Zonta- klúbbi Reykjavíkur Ekki datt okkur í hug að það yrði í síðasta sinn, sem Þóra Borg væri með okkur á fundi í mars- mánuði sl. Hún hafði að vísu ekki komið í nokkur skipti sökum veik- inda, en nú var hún óðum að hressast og var kát að vanda og hafði veikindi sín að gamanmáli. Þóra og systir hennar, Emilía Borg, voru stofnfélagar í Zonta- klúbbi Reykjavíkur, sem var fyrsti Zontaklúbburinn á íslandi. Á stofnfundinum, sem haldinn var 16. nóvember 1941, voru 11 konur. Þær systur voru einu stofnfélag- arnir sem eftir voru í klúbbnum og settu þær ætíð mikinn svip á fundina. Þóra tók alla tíð virkan þátt í félagsstarfinu. Hennar mun verða sárt saknað. Um leið og við þökkum henni trygga vináttu, vottum við Emilíu Borg og öðrum aðstandendum hennar innilega samúð. F.h. Zontaklúbbs Reykjavíkur, Sigríður Haraldsdóttir. Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi, ÖRN Ó. JOHNSON, Melhaga 10, verður jarösunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 13. þessa mán- aöar kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaöir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Flugbjörgunarsveitina í Reykjavík. Örn Johnson, Helga Petersen, Sofía Johnson, Ólafur H. Johnson, Margrét P. Johnson, Margrét Johnson, Ásthildur Johnson, Othar Örn Petersen, Jón Ólafsson, Borghildur Pétursdóttir, Ásg eir Óskarsson og barnabörn. t Móöir okkar, tengdamóöir og amma, HULDA Þ. GUÐMUNDSDÓTTIR, Laugarnesvegi 13, Reykjavík, sem lést þann 5. apríl, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju föstu- daginn 13. apríl kl. 13.30. Guómundur H. Jóhannsson, Magnea Jónsdóttir, Hulda Hanna Jóhannsdóttir, Tómas Kristinsson, Hannes E. Jóhannsson, Björg Jónmundsdóttir og barnabörn. + HARALDURJAKOBSSON, Kornsá, Vatnsdal, veröur jarösunginn laugardaginn 14. apríl frá Undirfellskirkju kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Héraöshæliö, Blönduósi. Fyrir hönd vandamanna, Kristín Hjélmsdóttir, Gestur Guðmundsson. festing fyrir létta og þunga hluti. hefur grip og hald. ’uDlEHS^EGB fæst í flestum byggingavöruverslunum. Ólafur Kr. Guðmundsson c/o Trévirki hf. „Allir fagmenn hljóta aft þekkja Thorsmans boltana og vita um þeirra festigetu, enda er Thorsmans nafniö gæöamerki sem allir geta treyst." Ef óskaó er eftir sýnishornum af ofanskráöu efni frá Thorsmans þá gódfúslega fyllið út þennan miða. Sýnishornin eru send án endurgjalds. X Nafn: Heimilisfang: JOHAN RÖNNING HF sSStSSSb Staður:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.