Morgunblaðið - 12.04.1984, Side 23

Morgunblaðið - 12.04.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1984 23 Símamynd AP Solar Max, hinn biladi bandaríski gervihnöttur, um borö í geimferjunni Challenger á þriðjudag eftir aö krani ferjunnar hafði náð tökum á honum. Velheppnuð viðgerð á gervihnetti í geimnum Kanaveralhöfða, 11 aprfl. AP. ÁHÖFNIN á geimferjunni Challeng- er skipti í dag um tvo bilaða hluti í gervihnettinum „Solar Max“ og fór viðgerðin fram á verkst***' þar sem útsýnið var bæði „undarlegt og óraunverulegt" eins og einn geimfar- anna komst að orði. Þegar stjórnstöð á jörðu hefur gengið úr skugga um, að „Solar Max“ sé heill hcil.su, verð- ur honum komið fyrir á braut að nýju Þetta er í fyrsta sinn í sögunni, sem gert er við gervihnött á braut ef svo má segja, en þegar fundum hans og ferjunnar bar saman hafði ferjan lagt að baki 3,2 milljónir km. Að viðgerð lokinni hóf stjórn- stöð á jörðu strax að athuga hvort allt væri í lagi og bentu fyrstu at- huganir til, að svo væri. Stefnt er að því að koma „Solar Max“ aftur á nokkrum vanda bundin enda að- stæður óvenjulegar eða algert þyngdarleysi. George Nelson og James van Hoften unnu verkið og þurftu m.a. að skera í sundur ein- angrunardúk, losa 36 örsmáar skrúfur, rjúfa rafþræði — og koma öllu aftur í samt lag. „Ég týndi nokkrum skrúfum," Forsetakosningar í E1 Salvador: Síðari umferðin verður 6. maí nk. San Salvador, II. apríl. AP. Yfirkjörstjórnin í El Salvador til- kynnti í gærkvöldi, að seinni umferð forsetakosninganna skyldi fara fram 6. maí nk. Þá munu takast á þeir Jose Napoleon Duarte, frambjóðandi kristi- legra demókrata, og Roberto d’Aubu- isson, frambjóðandi hægrimanna. D’Aubuisson lýsti því yfir í gær, að nú væri „ekki seinna vænna að bjarga föðurlandinu" og skoraði á aðra hægriflokka að fylkja sér um hann í seinni umferðinni. Þá mun Það geta ráðið úrslitum hvorn fram- bjóðandann Þjóðarsáttarflokkurinn styður en hann er þriðji stærsti flokka á þingi. Að sögn fara nú fram heitar umræður innan flokksins um^ þessi mál og menn ekki á eitt sáttir. Þvertaka sumir fyrir að styðja d’Aubuisson, sem Bandaríkjamenn m.a. bendla við dauðasveitirnar. Bandaríkjamenn fara ekki í neina launkofa með stuðning sinn við Duarte, sem er maður hófsamur og beitti sér fyrir umfangsmiklum um- bótum í landinu þegar hann var í forsvari um tíma. í fyrri umferðinni fékk hann 43,4% atkvæða en d’Aubuisson 29,8%. Forkosningar í Pennsylvaníu: Gatan virðist greið fyrir Walter Mondale Kíladrinu, II. aprfl. AP. WALTER F. Mondale vann öruggan sigur í forkosningunum í Pennsylvaníu, sem fram fóru í gær, þriðjudag, og er nú kominn með helming þess fulltrúafylgis, sem hann þarf til að verða útnefndur forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins. Fyrir Gary Hart er hins vegar farið að syrta heldur betur í álinn. Mondale sagði um sigur sinn, að hann væri „merkur áfangi", en Hart, sem reyndi að bera sig karlmann- lega, sagði við stuðningsmenn sína, að hér eftir „munum við berjast á heimavelli“. Átti hann þá við það, að nú fer að koma að forkosningum í vesturríkjunum þar sem Hart telur sig standa vel að vígi. Þegar 90% atkvæða í forkosningunum í gær höfðu verið talin, hafði Mondale 46% en Gary Hart 35%. Jesse Jackson fÁlrlr 11°L c\ct \r orA koirro þannig til orða, að vetrarsóknin hans Harts hafi lotið I lægra haldi fyrir vorinu, bráðnað eins og mjöll á apríldegi. Að vísu bindur Hart vonir sínar við vesturríkin en ósigrarnir að undanförnu veikja mjög stöðu hans og stemmningin, sem var í kringum hann um tíma, virðist nú rokin út f veður og vind. Staðan er nú sú, að Mondale styðja 1036,8 full- trúar, Hart 575 og Jackson 151,2. Næstu forkosningar hjá demókrðt- um verða ekki fyrr en í maí en lokað- Úrvalsferðirnar til Noregs í sumar eru sérstaklega ódýrar. Flogið verður með beinu leiguflugi til Oslóar 27. júní og 18. júlí. I tengslum við leiguflugið bendum við einkum á 4 frábæra möguleika: 1. Rútuferð milli höfuðborga Skandinavíu 27/6—11/7. 15 daga ferð, þar sem innifalin er gisting á fyrsta flokks hótelum, allur akstur og ferjuferðir, morgunverður, skoðunarferðir um borgirnar og íslensk fararstjórn. Meðal við- komustaða eru Osló, Álaborg, Óðinsvé, Kaupmannahöfn, Helsingör, Smálönd, Stokkhólmur, Helsinki, Turku, Álandseyjar og örebro. Verð aðeins kr. 26.300.- í'tvíbýli. 2. Dvöl fyrir eldri borgara í Hovden. 15 daga dvöl í rólegheitum á ævintýrahótelinu Hovden Hoyfjells- hótell í Setesdal, þar sem hálft fæði er innifalið. Pað- an eru farnar margar skoðunarferðir um nágrennið og lifinu tekið með stóiskri ró þess á milli. Brottför er 27/6 og 18/7. Verð f tvíbýli er aðeins kr. 21.300,- 3. 15 daga ferð til Kristiansand 18/7. Tvær fyrstu næturnar er gist í Osló, en síðan er íbúðargisting í Kristiansand. Innifalið flug, gisting og akstur milli flugvallar og hótels og milli Oslóar og Kristiansand. Kristiansand er einn sólríkasti staður Noregs. Verð miðað við 4 í íbúð er kr. 12.960.- 4. Flug og bíll. Flug og bíll með leigufluginu kostar aðeins frá kr. 8.600.- miðað við 4 í bíl. Ódýr íbúða- og hótelgisting. HRM90W5IDfl1N Ert þú ekki samferða í sumar? Síminn er 26900. QOTT POLK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.