Morgunblaðið - 12.04.1984, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 12.04.1984, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1984 In Memoriam: Þóra Borg leikkona Sumt fólk er svo hlýtt að það yljar öðrum, já meira en yljar, það gefur líka frá sér birtu til ann- arra, þannig að lífið verði þeim bjartara. Þannig var Þóra Borg og þannig ert þú líka, Milla mín. Ég nefni Millu hér með Þóru, því þær voru svo samrýndar syst- urnar, að ég get ekki hugsað svo um aðra, að mér detti ekki hin í hug. Eg þekkti Þóru frá því fyrst ég man eftir mér og í stað þess að svo færi að leiðir okkar skildi, þegar árin færðust yfir, eins og svo oft gerist, því miður, varð sambandið æ nánara eftir því sem á leið, einkum eftir að við Steffí gift- umst. Þóra var mikil drengskapar- kona og mátti aldrei vamm sitt vita, minnug og fróð svo af bar. Hún átti líka þá reisn í ríkum mæli, sem hún átti kyn til, og mér er ríkt í minni hve sópaði að henni í glæstum veitingasal í London í fyrra, þegar við snæddum þar saman kvöldverð ásamt Gunnari, syni hennar. Á bak við Laufásveg 5 er mat- jurtagarður, sem frú Stefanía, móðir Þóru, kom á laggirnar. Þær Þóra og Milla hafa hugsað um þennan garð í alla þá áratugi, sem liðnir eru síðan móðir þeirra dó, ekki fyrir sig, heldur fyrir hönd ættarinnar, því á hverju hausti hafa þær dreift allri uppskerunni úr garðinum, snyrtilega búntað, eða sultað, eftir atvikum, til allra afkomenda frú Stefaníu og Borg- þórs Jóseíssonar. Ég held að slík ræktar- og sam- viskusemi, sem þessi litla dæmi- saga lýsir, sé einstök hér á landi og þótt víðar væri leitað, en þetta lýsir því hjarta, sem að baki sló, betur en mörg orð. Á skilnaðarstundu sem þessari streyma fram í hugann fjölmarg- ar minningar margra áratuga góðra kynna, en ég hef því miður ekki hæfileika til að koma þeim frá mér á þann hátt, sem mig langar til. Það eina, sem ég get því gert í vanmætti mínum, er að þakka fyrir að hafa fengið að kynnast slíkri konu sem Þóra Borg var. Davíð Sch. Thorsteinsson Kveðja frá Þjóðleikhúsinu Þóra Borg fæddist í Reykjavík þann 6. júlí 1907. Foreldrar henn- ar voru þau hjónin Stefanía Guð- mundsdóttir leikkona og Borgþór Jósefsson bæjargjaldkeri. Æsku- heimili Þóru var mikið menning- ar- og listaheimili og umræðan um leiklist þar ofarlega á baugi enda verður frú Stefaníu ævinlega minnst sem einnar merkustu leikkonu þessa lands. Það undraði því engan að Þóra og tvær systur hennar skyldu leggja leiklistina fyrir sig, enda var hún ekki nema 6 ára gömul þegar hún stóð fyrst á leiksviði. Hinn eiginlega leiklistarferil sinn hóf Þóra hins vegar hjá Leik- félagi Reykjavíkur með leik sínum í hlutverki Wöndu í „Gleiðgosan- um“ sem var frumsýnt 16. október 1927. Árin fram að opnun Þjóð- leikhússins lék Þóra fjölmörg hlutverk hjá Leikfélaginu en réðst 1949 til Þjóðleikhússins og starf- aði þar til ársins 1958. Þá snéri hún aftur til starfa hjá LR og lék þar allt fram á síðustu ár. Síðasta hlutverk hennar í Þjóðleikhúsinu var Adelaida í Kisuleik sem frum- sýnt var 7. janúar 1982. Þá hefur Þóra komið mikið við sögu í flutningi útvarpsleikrita, sjónvarpsleikrita og nú síðast við gerð íslenskra kvikmynda. Hún hefur skapað margar eftirminni- legar persónur á sviði, en ekki síst eru okkur mikilvæg þau hlutverk hennar sem hún hefur leikið í sjónvarpi og kvikmyndum á síðari árum, en þap eru orðin nokkuð mörg og eftirminnileg og munu varðveitast um ókomin ár. Síðasta hlutverk Þóru var í kvikmyndinni „Atómstöðin" sem frumsýnd var fyrir fáeinum vikum. Þá var Þóra ævinlega mjög virk í félagsmálum leikara, enda var hún einn af stofnendum Félags ís- lenskra leikara þegar það var stofnað í september 1941. Hún var ætíð mjög iðin við að sækja aðal- fundi og aðra fundi félagsins og varla minnast leikarar fundar í fé- lagi sínu nema þær systurnar Þóra og Émilía hefðu verið þar viðstaddar. Margir eru þeir leikarar bæði ungir og gamlir sem hafa átt ánægjulega „kjaftatörn" hjá þeim systrum á Laufásvegi 5, og sóttu ekki ófáir áhugamenn um leiklist ráð og ýmsa fyrirgreiðslu um bún- inga og annað, er þeir voru að vinna að uppfærslu á leiksýning- um. Undirritaður minnist þess sérstaklega hversu boðin og búin Þóra var okkur nokkrum ungum mönnum til hjálpar og aðstoðar fyrir liðlega tuttugu árum þegar við vorum að fást við útgáfu á tímaritinu „Leikhúsmál". Þóra var afar vinmörg og traustur og góður vinur vina sinna, r.i 'a kom það berlega í ljós þetr.r hún hélt vinum sínum og ættingjum veglega veislu í tilefni af 75 ára afmæli sínu fyrir um það bil hálfu öðru ári. Núna þegar Þóra er kvödd er efst í huganum þakklæti til henn- ar fyrir trausta vináttu og fórn- fýsi, fyrir hennar mikla skerf til leiklistarinnar og óbilandi trú á íslensku leikhúsi. Fyrir hönd Þjóðleikhússins færi ég fjölskyldu hennar allri innileg- ar samúðarkveðjur. Gísli Alfreðsson í dag, fimmtudaginn 12. apríl, verður Þóra Borg leikkona jarð- sungin frá Dómkirkjunni. Þóra átti heimili í Reykjavík alla sína ævi og þar vann hún sitt ævistarf. — Fædd var hún í Breiðfjörðshúsi við Aðalstræti þann 6. júlí árið 1907, en fluttist á Laufásveg 5 árið 1913 aðeins 6 ára ð aldri og þar átti hún heimili að mestu óslitið til hinstu stundar. Þar ólst Þóra upp í glöðum og fjölmennum systkinahópi á merku leikhús- og myndarheimili. Móðir hennar, frú Stefanía Guðmundsdóttir, er jafn- an talin ein af mikilhæfustu og glæsilegustu leikkonum þessa lands og faðir hennar, Borgþór Jósepsson bæjargjaldkeri, var mjög virkur þátttakandi í allri starfsemi Leikfélags Reykjavíkur um árabil. Um fátt mun hafa verið meira rætt á heimili þeirra Borg- þórshjóna en leikhús og leikbók- menntir. Það var því engin tilvilj- un að þrjár af dætrum þeirra hjóna gerðust leikkonur, því mælt er að sjaldan falli eplið fjarri eik- inni. Frumraun sína á leiksviðinu þreytti Þóra hjá Leikfélagi Reykjavíkur árið 1927 og lék hún þá hlutverk Wöndu í Gleiðgosan- um eftir Curt Kraatz og A. Hoffmann. Tekið skal fram, að Þóra hafði þá leikið nokkur lítil barnahlutverk, en þetta mun hún hafa talið sitt fyrsta alvarlega hlutverk, ef svo má að orði kom- ast. Það er því liðin hálf öld og sjö árum betur frá því Þóra steig sín fyrstu spor á fjölunum í gömlu Iðnó. Ég ætla ekki í þessari stuttu minningargrein að telja upp nöfn þeirra mörgu hlutverka, sem Þóra túlkaði á löngum leikferli og spannar yfir nær sex áratugi eins og fyrr segir. í fjölda ára lék hún veigamikil hlutverk hjá Leikfélagi Reykjavíkur og einnig kom hún fram í nokkrum revíum, sem nutu á þeim tíma mikilla vinsælda. Á þeim árum voru henni einkum fal- in hlutverk ungra hefðarmeyja, því hún var mjög glæsileg kona og bar með sér sviðsreisn og persónu- töfra. Þegar Þjóðleikhúsið tók til starfa árið 1950 var hún í hópi þeirra leikara, sem voru fastráðn- ir við þá stofnun, og þar starfaði hún í allmörg ár. Eftir það fór hún aftur að leika hjá Leikfélagi Reykjavíkur og hefur leikið þar mörg hlutverk hin síðari ár, bæði stór og smá. Síðast mun Þóra hafa komið fram á leiksviði hjá Þjóð- leikhúsinu fyrir tæpum tveimur árum og lék hún þar hina öldnu móður í Kisuleik eftir Istvan Örk- eny á mjög trúverðugan og sann- færandi hátt. Þá hefur hún leikið í útvarpsleikritum, sjónvarpsmynd- um og komið fram í kvikmyndum. í því sambandi minnist ég nær- færinnar túlkunar hennar á tveimur öldruðum konum í verk- um Halldórs Laxness, en það var í Paradísarheimt, sjónvarpskvik- mynd, gerðri fyrir nokkrum árum, og nú fyrir skömmu í kvikmynd- inni Atómstöðinni, þar sem hún lék móður organistans. Að mínu mati hefur Þóra alltaf verið að þroskast sem leikkona allt til síð- ustu stundar. Þóra Borg var alltaf mjög já- kvæð f öllu sínu starfi og góður vinnufélagi. Hún kunni ætfð vel að gleðjast með glöðum og tók jainan þátt í erfiðleikum og vandamálum starfsfélaga sinna af miklum skilningi og samúð og fyrir það erum við gamlir vinir hennar og samstarfsmenn mjög þakklátir og kunnum vel að meta. Nú eru liðin rösklega 40 ár frá því að fundum okkar Þóru bar fyrst saman í gömlu Iðnó. Með okkur myndaðist brátt góður kunningsskapur sem hefur haldist upp frá því. Ég minnist margra ánægjustunda úr samstarfi okkar, sem ég er þakklátur fyrir. Ég og kona mín sendum ætt- ingjum og öllum nánum aðstand- endum Þóru Borg innilegar sam- úðarkveðjur. Klemenz Jónsson Ég hefi þekkt föðursystur mína, Þóru Borg, svo lengi sem ég man eftir mér. Fyrst í stað úr fjarlægð, en ég átti þá heima á ísafirði. Síð- an kom ég til Reykjavíkur haustið 1942. Hafði Þóra þá nýlega eignast son sinn, Gunnar, en eiginmaður hennar, Gunnar Einarsson, var þá dáinn. Höfðu þau einungis verið gift í þrjá mánuði, er hann lézt voveiflega. Stríðsárin voru ár mik- illa breytinga um margt hér á landi, í atvinnulífi sem menningu. Allt í einu streymdu peningar inn í landið, í þeim mæli sem áður þekktist ekki. Jafnframt voru vina- og frændbönd rofin. Fyrir ungan dreng var þetta spennandi, en hinir eldri voru kvíðnir. Fyrir unga ekkju með nýfæddan son var þetta sjálfsagt martröð. Það þurfti stóra sál til að kljást við ólíklegustu vandamál. Einn dag- inn voru til dæmis engar tyrkn- eskar sígarettur til — þær komu ekki aftur, amerískar komnar í staðinn. Það varð allt annað bragð af öllu. Jafnvel maturinn smakk- aðist öðruvísi. En — og það var þekkt úr leikhúsinu — sýningunni verður að halda áfram — á hverju sem gengur. Þóra Borg Einarsson, eins og hún kallaði sig þá, til að minnast hins stutta, en hamingjuríka hjónabands með manni sínum, fór aftur í Iðnó. í þetta sinn ekki til að leika sjálf, heldur stjórnaði hún nú ásamt Emilíu Borg, systur sinni, uppfærslu á barnaleikritinu fræga Oli smaladrengur. Ég fékk að vera með og kynntist þá fjölun- um í Iðnó af eigin raun, en ekki var síður hitt, að fá að kynnast þeirri göfugu og reyndu leikkonu sem Þóra var. Næstu árin fékk ég oft að fara í Iðnó, fannst ég vera þarna orðinn eins og heimamaður, og mikið fannst mér hún Þóra frænka mín leika vel. Eftir leikhús var farið upp á kvistinn til hennar og leikhúsmálin rædd í þaula, þ.e.a.s. þeir fullorðnu ræddu sam- an, en við hin yngri hlýddum á. Það var alltaf gestkvæmt hjá þeim systrum Þóru og Emilíu og maður kynntist smám saman leik- urunum og vinafólki sem komu þangað iðulega. Laufásvegur 5 hafði verið einn af miðpólum leikhússlífsins í Reykjavík, frá því afi minn, Borgþór Jósefsson, keypti húsið 1913, og svo hefir ver- ið fram á þennan dag. Þóra Borg mundi alla sögu Leikfélags Reykjavíkur i smáatriðum frá byrjun og til þessa árs. Hún hafði stálminni og skemmtilega frá- sagnargáfu. Hún var sjór af fróð- leik um ótrúlegustu hluti. Hún hafði komið víða við utan leik- hússins. Hún lærði fótsnyrtingu í Danmörku 1929 og rak fótsnyrti- stofu í mörg ár, Pirola hét hún. Hún vann mörg ár í Reykjavíkur- t Faöir minn og stjúpfaöir okkar, GESTURGUNNLAUGSSON, bóndi í Meltungu, lést 10. apríl. Jóhann Gestsson og stjúpdætur. t Faöir okkar og tengdafaöir, ÞÓRDUR ÓLAFSSON, Innri-Múla, Barðaströnd, andaöist í Sjúkrahúsi Patreksfjaröar aö morgni þriðjudagsins 10. apríl. Jarðarförin auglýst síöar. Börn og tengdabörn. t Móöir mín, ÞÓRUNN ÓLAFSDÓTTIR, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 13. apríl. Tryggvi Guömannsson. apóteki. Þóra lærði eitt sinn út- skurð og í mörg ár var hún við nám í bókbandi. En fyrst og fremst er hennar minnst sem leikkonu. En hvað er það að vera leikkona? Það er göfugt starf, sem felst í því að gefa alltaf eitthvað af sjálfum sér. Og Þóra Borg gaf mörgum mikið og lengi. Við minn- umst hennar í huganum hvernig hún var á sviðinu. Hún sagði við mig er ég þakkaði henni fyrir sýn- inguna á litla sviði Þjóðleikhúss- ins í hitteðfyrra: „Já, þetta var nú Svanasöngurinn minn.“ Tæknin kemur okkur þó til hjálpar því Þóra Borg lék í mörgum kvik- myndum, sem örugglega verða oft sýndr Má þar nefna Brekkukots- annál, Húsið, Atómstöðina og ótal fleiri. Þóra Borg lék einnig í Þjóð- leikhúsinu í mörg ár. Með fráfalli Þóru Borg er rofinn dýrmætur hlekkur, sem tengdi okkur við fortíðina, sögu leiklistar á íslandi. Sögu um vonir og sigra, baráttu og erfiðleika, fórnir og laun að verðleikum. Þóra Borg var þó svo vinsæl og vinmörg, að margt af því, sem hún mundi og sagði öðrum, kemst til skila til komandi kynslóða leikara. Og ég er líka viss um, að sá sem þá segir frá, segir: „Þetta er alveg áreið- anlegt, því hún Þóra Borg sagði mér það sjálf." Þóra Borg hlaut heiðurspening Leikfélags Reykjavíkur á 50 ára afmæli félagsins 1947. Hún var kjörin heiðursfélagi Félags ísl. leikara og Fálkaorðuna hlaut hún árið 1978 fyrir störf sín að leiklist- armálum. Líf Þóru Borg var alla tíð nátengt leiklistinni. Hún ólst upp á leikaraheimili, þar sem móðir hennar, frú Stefanía Guð- mundsdóttir, hin fræga leikkona, smitaði börn sín með náðargáfu sinni, leiklistarbakteríunni. Sá sem einu sinni hefir smitast af þessari bakteríu, getur ekki losnað við hana. En þessi baktería er að því leytinu öðruvísi en aðrar, að hún gefur, og það svo mikið, að leikarar gefa öðrum, okkur áhorf- endum, og það ríkulega. Þóra Borg var oft þreytt eftir langan vinnu- dag og svo tóku við æfingar eða sýningar og vökur fram á nótt. Lengst af var þetta fyrir lítið kaup, eða ekkert nema fyrirhöfn- ina. En Þóra seiglaðist þetta. Hún eignaðist góðan son og tengda- dóttur og tvo sonarsyni, sem henni þótti mjög vænt um. Hún hugsaði um Emilíu systur sína af þeirri þolinmæði og natni, sem enginn gat eða getur leikið eftir. Við ætt- ingjarnir kveðjum hana með sökn- uði og biðjum alla góða vætti að styðja hana upp að Gullna hliðinu. Minningin um leikkonuna Þóru Borg, sem var alltaf af gefa af sér svo ríkulega, hin stóra sál hennar og hjartahlýja rödd hljómar í hug- um okkar um ókomin ár. Ragnar Borg Þóra Borg er öll, og einhvern veginn finnst manni við slík tíma- mót að maður fylgi til grafar löng- um og mikilsverðum kapítula ís- lenskrar leiklistarsögu. Auðvitað eru fullyrðingar sem þessar hug- lægar og ekki í fyllsta máta sann- ar fremur en aðrar fullyrðingar af slíku tagi, og góðu heilli eru enn starfandi á meðal okkar sumir aðrir ágætustu fulltrúar þessarar kynslóðar, sem lifði það, að leik- listin var hafin hér úr aðstæðum áhugamennsku í atvinnumennsku, og sjálf bar þessi kynslóð fram þessa þróun í krafti listræns starfs síns, metnaðar og þroska. Ég er að tala um það fámenna úrvalslið, sem við höfum gjarnan kallað aðra kynslóðina í íslenskri leiklistarsögu. En á vissan hátt var Þóra Borg tengdari fyrstu kynslóðinni, frumherjunum, en nokkur hinna. Hún var auðvitað dóttir Stefaníu Guðmundsdóttur, sjálfrar frú Stefaníu, sem var svo óvenjulega vel náttúruð fyrir leiksviðið, að Alþingi skipaði henni á bekk með höfuð-skáldum og lista-málurum og veitti henni sérstök heiðurslaun. Borgarstjórn og alþingi höfðu þá í nokkur ár veitt Leikfélagi Reykjavíkur styrk til starfsemi sinnar og þannig opinberlega viðurkennt nauðsyn leiklistarstarfsemi, gagn hennar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.