Morgunblaðið - 12.04.1984, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 12.04.1984, Blaðsíða 48
Optó ötl fímmtudags-, föstu- dags-, laugardags- og sunnu- dagskvöld AUSTURSTRÆTI 22. (INNSTRÆTI). SIMI 11340. Opió alla daga frá kl. 11.45-23.30. AUSTURSTRÆTI22, INNSTRÆTI, SÍMI 11633. FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Kókómjólk, Jógi og Mangó-Sopi: Framsókn undirbýr frumvarp til laga — til framlagningar, ef ekki tekst að snúa fjármálaráðherra ÞINGMENN úr Framsóknarflokki hafa í undirbúningi, samkvæml heimildum Mbl., að leggja fram á Alþingi frumvarp til laga þess efnis, að drykkirnir kakómjólk, Jógi og Mangó-Sopi verði undanþegnir 17% vönigjaldi og 23,5% söluskatti. Þingflokkur Sjálfstæðisflokks- ins tók ekki afstöðu til beiðnar landbúnaðarráðherra, Jóns Helga- sonar, um yfirlýsingu sjálfstæð- ismanna um gjaldtökuna í gær. Formaður þingflokksins, Ólafur G. Einarsson, sagði í viðtali við blm. Mbl. eftir fundinn, að hann hefði tilkynnt þingflokknum er- indi landbúnaðarráðherra, en ekki hefði verið tími til að fjalla um málið. Mikil ólga er í stjórnarherbúð- 'Junum vegna þessa máls. Fjár- málaráðherra lýsti því yfir á Al- þingi í gær, að hann myndi ekki Landhelgisnefnd: Fegurðardrottningar 1984 Fegurðardrottning íslands og fegurðardrottning Keykjavíkur verða krýndar í veitingahúsinu Broadway í næsta mánuði. Dómnefnd hefur valið tíu stúlkur til að taka þátt í úrslitakeppninni og tók Friðþjófur þessa mynd af þeim fyrir utan Hótel Loftleiðir í gær. Þær eru í efri röð frá vinstri: Heiðdís Jónsdóttir, Akureyri, Magðalena Ósk Einarsdóttir, Reykjavík, Jóhanna Sveinjónsdóttir, Keykjavík, Berglind Johansen, Reykiavík, Guðrún Reynisdóttir, Keflavík, Sólvcig Þórisdóttir, Reykja- vík. I neðri röð eru frá vinstri talið: Herdís Óskarsdóttir, Reykjavík, Guðlaug Stella Brynjólfsdóttir, Reykjavík, Elva Ösk Ólafsdóttir, Vest- mannaeyjum og Guðný Benediktsdóttir, Reykjavík. Landhelgisnefndin mælir með því að þegar verði gengið til þyrlu- kaupa fyrir Landhelgisgæzluna, og að þyrla verði leigð nú þegar ef ný þyrla er ekki tilbúin til af- greiðslu, en ekki er tekin afstaða til þyrlutegundar. Hins vegar hef- ur starfshópur Landhelgisgæzl- unnar í málinu, þar sem m.a. eru þyrluflugmenn og flugvélaverk- fræðingur, lagt til að veitt verði heimild til samninga um þyrlur af franskri gerð, Dolphin. „Landhelgisnefnd telur eitt meginatriðið í nauðsyn þess að þyrla komi strax, sé öryggisatriði sem varði sífellda þjálfun flug- manna og öryggisatriði fyrir sjó- menn og aðra,“ sagði Valdimar Indriðason, alþingismaður í sam- tali við blm. Mbl., en hann á sæti í Landhelgisnefnd. „Þá leggur nefndin til,“ sagði Valdimar, „að aðstaða til þyrlurekstrar verði stórbætt hjá Landhelgisgæzl- unni.“ Sjúklíngur styttur um sex og hálfan sentimetra SJÚKLINGUR var styttur um sex og hálfan sentimetra á bæklunar- deild Landspítalans á síðasta ári og er þetta fyrsta slíka aðgerðin sem gerð er hér á landi. Tekið var af lærleggjum viðkom- andi og þeir styttir um sex og hálf- an sentimetra. Þetta var gert eftir að nákvæmir útreikningar höfðu farið fram til þess að ekki yrði ósamræmi milli búks, handleggja og fótleggja. Til þess að slík aðgerð sem þessi sé gerð þarf fólk að vera mjög hávaxið, karlar yfir tvo metra en konur í það minnsta 180 sentimetrar. Önnur forsenda fyrir slíkri aðgerð er að sá sem eftir henni leitar sé ungur að ár- um en þó fullvaxinn. Aðgerð sem þessi er ekki gerð nema læknir þykist þess fullviss að viðkom- andi þurfi nauðsynlega á henni að halda vegna sálrænna erfið- I fyrsta skipti sem slík aðgerð er gerð á íslandi leika sem hæðin baki viðkom- andi. > í því tilviki sem hér um ræðir var þetta allt fyrir hendi. Að sögn Jóhanns Guðmundssonar, læknis við Bæklunardeildina, tekur það árið að jafna sig eftir slíka aðgerð. Það tekur lærbein í það minnsta þrjá til fjóra mán- uði að gróa. Síðan tekur það langan tíma að þjálfa fólk upp til þess að það nái á ný fullum vöðvastyrk. Sjúklingurinn, sem hér hefur verið minnst á, hefur allt undanfarið ár verið í sjúkra- þjálfun en hefur nú náð sér full- komlega og er að sögn læknisins ánægður með lífið. Þeir sálrænu erfiðleikar sem hæðin bakaði honum eru nú að baki. Læknir- inn gat þess að talsverð áhætta fylgdi beinaaðgerðum, þar sem hætta gæti verið á sýkingu. Hann gat þess einnig að það væri daglegt brauð að útlimir væru lengdir eða styttir á bækl- unardeild Landspítalans en þá eru ástæðurnar aðrar. Venjulega sjúkdómar, slys, meðfædd bækl- un, sýking o.fl. Væri um vaxandi einstakling að ræða væri ofiast gripið til þess ráðs að stöðva vöxt lengri útlimsins um tíma, þá er vaxt- arlínum beinsins lokað, venju- lega um hné. Ýmislegt þarf að taka með í reikninginn þegar slík aðgerð er gerð, svo sem kyn, aldur og fleira. Sé um fullvaxinn einstakling að ræða er venjulega gerð beina- aðgerð til að jafna lengd útlima. Það er miklu stærri aðgerð. Þá er útlimur lengdur eða styttur eftir atvikum. Sú aðgerð er svip- uð þeirri sem gerð var til að stytta sjúklinginn sem getið var um fyrr. Þá eru beinin söguð sundur, venjulega á sköflungi eða lærlegg, stytt eða lengd og spengd saman að því loknu. Læknirinn tók það fram að að- gerðir til að stytta fólk væru sjaldgæfar, ekki bara hér heldur alls staðar í heiminum. Þó tæknilega væri þetta ekki mikið mál þá settu læknar fyrir sig áhættu sem þessu fylgdi, svo ástæðurnar þyrftu að vera ærn- ar, eins og fyrr greindi. Ný þyrla verði keypt nú þegar LANDHELGISNEFND, sem skipuð er fjórum alþingismönnum og einum skipherra hjá Landhelgisgæzlunni, hefur komist að niðurstöðu í sambandi við fyrirhuguð þyrlukaup til Landhelgisgæzlunnar. hvika frá þeirri ákvörðun sinni að greidd yrðu gjöld af þessum vör- um Mjólkurbús Flóamanna á með- an lög segðu svo til um. Fram- sóknarmenn knýja á um að fjár- málaráðherra nýti heimildir til undanþága og eins og að framan greinir undirbúa þeir framlagn- ingu lagafrumvarps, ef ekki tekst að snúa fjármálaráðherra með eða án aðstoðar þingflokks Sjálfstæð- isflokksins. Guðlaugur lengdist um 2Vz sm á sundinu „ÞAÐ ER rétt Ég virðist hafa lengst á þessu langa sundi til Heimaeyjar, því ég er nú 2Vi sm lengri en ég var, þegar ég var síðast mældur, í haust sem leið,“ sagði Guðlaugur Friðþórsson, stýrimaður frá Vestmannaeyjum, í samtali við Mbl., en hér er um að ræða eitt enn óskýranlega at- riðið, er Guðlaugur vann það af- rek aö synda um sex km í sex gráðu heitum sjó og frosti í lofti, eftir Helliseyjarslysið 11. marz sl. Guðlaugur sagðist ekki hafa áttað sig á þessu fyrst, þótt ýmsir hefðu haft á orði að hann virtist hafa stækkað. Það kom svo í ljós við hæðarmæl- ingu á sjúkrahúsinu i Eyjum, en tveir íslenzkir vísindamenn, sem rætt hafa við Guðlaug, hafa enga skýringu á þessu fyrirbæri. Þess má geta að Guðlaugur er yfir 190 sm á hæð. Hann léttist fyrstu vik- una eftir slysið, en kveðst hafa náð fyrri þyngd sinni á ný. Stefnir í verk- fall flugfreyja FIINDI ríkissáttasemjara mcð flug- freyjum lauk án árangurs kl. 23 í gærkvöldi. Að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar ríkissáttasemjara er nýr fundur boðaður kl. 16 í dag, en eins og mál- in stóðu í lok fundar í gærkvöldi stefnir í verkfall flugfreyja á DC- 8-63 á Norður-Atlantshafsflugleið- inni, sem boðað hefur verið á mið- nætti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.