Morgunblaðið - 15.06.1984, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNl 1984
7
Kappreiðar Harðar
Hestamannafélagiö Höröur heldur sína
árlegu innanfélagskappreiöar og
góöhestakeppni aö Arnarhamri, laug-
ardaginn 23. júní 1984. Félagsmenn
skrái hesta sína fyrir kl. 20.00 mánu-
dagskvöld 18. júní í síma 666041 eöa
666460.
Stjórnin
Compi Camp
tjaldvagnar. 3 stæröir
Getum nú boöiö allar 3 stæröirnar aftur.
Hagstætt verö.
Úrval fylgihluta.
Góöir greiösluskilmálar.
Til afgreiöslu strax.
Benco
Bolholti 4, Reykjavík
sími 91-21945/84077.
LISTAHÁTÍÐ í REYKJAVÍK
40H-17JÚNÍ1984
MIÐASALA:
Gimli v/Lækjargötu: Opið frá kl. 14.00—19.30.
Sími 621155. Vörumarkaöurinn Seltjarnarnesi og
Mikligaröur v/Sund:
Fimmtud. kl. 14:00—10:00
Föstud. kl. 14:00—21:00
Laugard. kl. 10:00—16:00
ÞOLA EKKI GAGNRYNI
í Staksteinum í dag eru ummæli Vals Arnþórssonar stjórnar-
formanns Sambands íslenskra samvinnufélaga er hann viðhafði á
aðalfundi þess, sem nú stendur yfir, gerö aö umtalsefni. Þar ræöst
Valur aö þeim sem haldiö hafa uppi gagnrýni er hann kýs að kalla
„áróður“ gegn samvinnumönnum. NT, sem er sérstakur málsvari
Sambandsins, birti ummælin í leiöara.
„Aróðursstríð-
ið gegn SÍS“
Aðalfundur Sambands
íslenskra samvinnufélaga
stendur yfir þessa dagana í
Bifröst í Borgarfirði. Mikl-
ar deilur hafa átt sér stað
vegna þeirra skipulags-
breytinga sem fyrirhugaðar
eru. En á hinn bóginn hafa
forustumenn SÍS glaðst yf-
ir þeim mikla hagnaði, 69,3
milljónum króna, sem
Sambandið skilaði á sein-
asta ári.
Málgagn Framsóknar-
flokksins og Samvinnu-
hreyfingarinnar, NT, gerir
af þessu tilefni að umtals-
efni „það áróðursstríð sem
sterk öfl f þjóðfélaginu
hafa að undanförnu haft
uppi gegn íslenskum sam-
vinnumönnum", í leiðara í
gær. Vitnað er í ræðu Vals
Arnþórssonar; stjórnar-
formanns SIS, er hann
fluttí á aðalfundinum. I»ar
segir meðal annars: „Til-
gangurinn er vafalaust
margslunginn, en augljóst
má telja að áróðrinum sé
m.a. ætlað að eyðileggja
samhjálp bændanna innan
vébanda samvinnufélag-
anna þar sem innistæður
sumra gera kleift að lána
öðrum. I>að er því Ijóst að
þótt áróður þessi sé settur f
skrautumbúðir þess að
hann eigi að hjálpa bænd-
um til að fá fjármuni sína
fyrr, þá beinist hann þó
þegar að grannt er skoðað
fyrst og fremst að bændum
sjálfum og að því að draga
úr landbúnaðinum. Jafn-
framt beinist áróðurinn að
því að tvístra bændum og
að koma þar með viðskipt-
um þeirra sem mest f
hendur einkageirans.
Sama tilgangi á að þjóna
sá áróður að skilja beri
milli bændanna og afurða-
sölufyrirtækja þeirra þann-
ig að þeir skipti við þau
sem við óskylda aðila. Þá
mundi skapast svigrúm
fyrir einkageirann að setja
upp vinnslustöðvar og ná
þannig til sín sölumeðferð
á landbúnaðarafurðum. I»á
yrði væntanlega ekki talað
um offjárfestingu í vinnslu-
stöðvum heldur yrði slík
fjárfesting í nýjum vinnslu-
stöðvum útskýrð með
nauðsyn samkeppninnar.
Við öllum þessum áróðri
hljótum við samvinnumenn
að vara.“
A5 búa í
fflabeinsturni
I>að er greinilegt af um-
mælum stjórnarformanns-
ins að sú mikla umræða er
hann kýs að kalla „áróð-
ur" hefur farið mjög fyrir
brjóstið á forustumönnum
Samhandsins. Slíkum
mönnum líður best í fíla-
beinsturni og telja sig
hafna yfir gagnrýni og um-
tal.
Valur Arnþórsson hræð-
ist þann möguleika að
samvinnuhreyfingin verði
látin sitja við sama borð og
einkaaðilar. Hann veit sem
er að veldi SÍS er ógnað,
almenningur og þá ekki
síst bændur hafa gert sér
grein fyrir að hagsmunir
þeirra verða ekki tryggðir
nema jafnrétti ríki á mark-
aðnum.
Samhjálp
t>að er hlálegt að heyra
forustumann þess fyrirtæk-
is sem reynt hefur með
margvíslegum hætti að
drepa niður og eyðileggja
frjáls samtök bænda, Ld. í
Skagafirði, tala um að
reynt sé með „áróðri" að
eyðileggja samhjálp
bænda.
Á hverjum degi eru tugir
milljóna króna sem bænd-
ur eiga, bundnir inni hjá
kaupfélögum víðsvegar um
land. í stað þess að fá
þessa peninga greidda eru
bændur neyddir til að
stunda vöruskiptaverslun.
Þeir leggja kjötið inn en
mega í staðinn taka út vör-
ur í kaupfélaginu. Slíkir
viðskiptahættir tíðkuðust
fyrr á öldum en voru af-
lagðir þegar einokunar-
versluninni var aflétt.
Frelsi í við-
skiptaháttum
Það er hins vegar að öll-
um líkindum rétt hjá Val
Arnþórssyni að verði
einkaaðilum veitt tækifæri
að keppa við samvinnu-
hreyfinguna á jafnréttis-
grundvelli verður ekki
lengur talað um offjárfest-
ingu í vinnslustöðvum.
Frjáls samkeppni knýr
fram betri rekstur og
skynsamlegri fjárfestingar,
neytendum og þjóðarbúinu
öllu til hagsbóta.
Forustumenn samvinnu-
hreyftngarinnar hafa ætíð
verið talsmenn frjálslyndis
í orði en málssvarar einok-
unar á borði. Þrátt fyrir
vaxandi samkeppni sem
gætir nú í flestöllum grein-
um atvinnulífs sem nær
undantekningarlaust kem-
ur nevtendum til góða
munu forkólfar einokunar
spyrna við fótum. En á
meðan bíða bændur og
vona að í framtíðinni verði
þeirra hagur tryggður og að
þeir og fjölskyldur þeirra
fái ein að njóta þess dugn-
aðar og elju er í hverjum
og einum býr.
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Terelynebuxur nýkomnar
2 teg. 11 litir. Kr. 625,- og 785.-.
Karlmannaföt kr. 1.995.- og 2.975.-.
Gallabuxur kr. 475.- og 580.-.
Regngallar allar stæröir. Blússur. Anorakkar.
Skyrtur. Bolir og margt fleira ódýrt.
Andrés
Skólavörðustíg 22, sími 18250.
Hæ - hó - ibbý - jey ...
bráðum kemur 17. júní
Skór og
safari-barnaföt
06 ÓDp
©
Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1a
S. 686113