Morgunblaðið - 15.06.1984, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 15.06.1984, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1984 13 Akureyri: Miklar símatruflanir Akureyri, 12. júní. „Undanfarnar vikur hefur gœtt mikils álags á símakerfið á mánu- dögum og eins og ástandi kerfisins og viðhaldi þess er háttað, hefur þetta því miður leitt til þess að tals- verðar truflanir hafa orðið á síma- kerfi Akureyringa undanfarna mánudaga,“ sagði Ársæll Magnús- son, símstöðvarstjóri, þegar Mbl. innti hann eftir hvað valdið hefði óvenju slsmu símasambandi í dag, en um tíma var vart hsgt að ná sóni á símana og þar af leiðandi ekki hsgt að hringja. „Snemma í morgun gerðist það svo að háspennustrengur bilaði í innbænum og við það fór öryggi á geymasetti hjá okkur. Kerfið var ekki komið í fullkomið lag fyrr en um klukkan 3 í dag. Ég vil taka það sérstaklega fram, að allt eru þetta eðlilegar bilanir, sem orðið hafa og hafa símvirkjar unnið rösklega að því að lagfæra það sem úrskeiðis hefur farið, en við erum alltof fáliðaðir hér á stöð- inni yfir vetrarmánuðina. Það stendur eitthvað til bóta nú í sumar og munum við þá gera verulegt átak í fyrirbyggjandi að- gerðum á símakerfinu, þannig að við vonum, að ekki þurfi að koma til slíkra bilana eins og vart var í dag í framtíðinni, sagði Ársæll Magnússon að lokum. GBerg Mývatnssveit: Nýtt flugfélag sett á stofn STTOFNAÐ hefur verið flugfélag í Mývatnssveit, sem nefnist Mýflug. Hyggst félagið bjóða upp á útsýnis- flug í Mývatnssveit og nágrenni, en það hefur einnig leyfi fyrir almennu leiguflugi. Framkvsmdastjóri hins nýja félags er Leifur Hallgrímsson. Keypt hefur verið ein flugvél af gerðinni Cessna 172, og verður hún notuð til starfseminnar. Mýflug mun einnig starfrækja flugskóla, og hefur ráðið Tryggva Jónsson flugkennara til að annast kennsluna. Hann mun einnig ann- ast flug félagsins. Eins og áður er getið býður fé- lagið upp á útsýnisflug yfir Mý- vatn og nágrenni; en er þá einnig átt við Kröflu og Leirhnjúkssvæð- ið og víðar. Ennfremur verður boðið upp á flug suður yfir öræfi við Öskju og allt suður í Kverk- fjöll. f bakaleið verður flogið yfir Herðubreiðarlindir. Þá verður einnig boðið upp á flug yfir Detti- foss og Ásbyrgi. Vera kann að flogið verði einnig út í Grímsey, en um það hefur enn ekki verið tekin ákvörðun. Mýflug væntir þess að sú starfsemi sem hér er fyrirhug- uð, og er raunar alger nýlunda, heppnist vel, en bækistöð félags- ins er á flugvellinum hjá Reykja- hlíð. Kristján. verðlagningunni, „þar sem stað- reyndir um lækkað markaðsverð og hækkun framleiðslukostnaðar liggja fyrir. Hækkun rækjuverðs er með öllu rökleysa. Með þessari verðlagningu er vinnslan skilin eftir með meiri halla en áður hef- ur þekkst," segir í bókun sem full- trúar kaupenda létu gera við af- greiðslu verðlagningarinnar. Kristján Ragnarsson, formaður LfÚ, sagði í samtali við blm. Mbl. að með verðhækkuninni á rækj- unni hafi náðst að hluta til baka sú verðlækkun sem gekk í gildi 1. maí. Þá var rækjan lækkuð um 12% með atkvæðum oddamanns og kaupenda. Sagði hann að selj- endur teldu að ekki hefði orðið það verðfall á rækju sem verksmiðj- urnar spáðu, enda benti það ekki til slæmrar stöðu þeirra að þær hefðu tekið mikið af skipum á leigu til rækjuveiða. Safaríkar steikur * og glæsilegir grillpinnar tilbúið á Grillið. 1 Hamborgarar I m/brauði 'aðeins \ O -00 W pr.stk Grillolíur og krydd Grillbakkar Unghænur & AÐEINS Svínakótilettur kryddaðar og W" tilbúnar á grillið / M ^ Grillkol 3 kg AÐEINS Svínaragú^Q^ NÝTT ** S FRANSKAR iA í; KARTÖFLUR " 900 g AÐEINS Glæsilegur útimarkaður með fersku grænmeti og nýjum ávöxtum áSTÓR LÆKKUÐU VERÐI... Nýreykt-g Hangilæri 1Q5 Daglega úr ánni. Glænýr Lax Isl. Tómatar Ný fersk " Bláber Opið til kl. 7 í kvöld entilkl.1 Ný fersk Jarðaiber AUSTURSTRÆTI 17 STARMÝRI 2

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.