Morgunblaðið - 15.06.1984, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNl 1984
Fyrirliggjandi í birgðastöð
PRÓFÍL-
PÍPUR
□ [
Stál 37. DIN 2394
□
][
: □ □□
Fjölmargir sverleikar. Lengd 6 m.
SINDRA
STALHF
Borgartúni 31 sími 27222
Evrópuþingið:
Dræm þátttaka
í kosningunum
Briissel, 14. júní. AP.
KJÓSENDUR í fimm aðildarríkjum
Efnahagsbandalags Evrópu, Bret-
landi, Danmörku, Grtenlandi, ír-
landi og Hollandi, kusu í dag full-
trúa á Evrópuþingið í Strassborg,
sem er ein af aeðstu valdastofnunum
bandalagsins.
Opinberar upplýsingar um kjör-
sókn hafa ekki fengist og úrslit
verða ekki kunngjörð fyrr en kosið
hefur verið til þingsins f hinum
sex aðildarríkjum EBE, en það
verður gert á sunnudag. Athugan-
ir fjölmiðla benda til þess, að
áhugi kjósenda á kosningunum sé
ekki mikil og kjörsókn heldur
dræm.
Þetta er í annað sinn, sem kosið
er beint til Evrópuþingsins. í
fyrra skiptið var það árið 1979 og
var þá þátttaka kjósenda ekki
mikil. í Bretlandi greiddu t.d. að-
eins 32 prósent þeirra, sem á kjör-
skrá voru, atkvæði.
Grænlendingar hafa sagt sig úr
Efnahagsbandalaginu, en úrsögn-
in tekur ekki gildi fyrr en um
næstu áramót og er það ástæðan
fyrir því að þeir velja nú fulltrúa á
Evrópuþingið.
Símamynd AP.
Ruud Lubbers, forsætisráðherra
Hollands, greiðir atkvæði í kosning-
unum til Evrópuþingsins, sem fram
fóru í gær. í fyrrinótt vann ríkis-
stjórn hans mikinn sigur er hol-
lenska þingið samþykkti, að styðja
ákvörðun hennar, að koma fyrir
meðaldrægum kjarnorkuflaugum í
landinu.
Samþykkt hollenska þingsins um kjarnorkuflaugar:
Ánægja í höfuð-
stöðvum NATO
Briissel, 14. júnl. AP.
RÁÐAMENN í höfuðstöðvum Atl-
antshafsbandalagsins í Briissel hafa
lýst yfir ánægju með þá ákvörðun hol-
lenska þingsins í gær, að styðja af-
stöðu ríkisstjórnar landsins í „eld-
flaugamálinu'* svonefnda.
Stuðningur þingsins birtist í því,
að felldar voru, með 79 atkvæðum
gegn 71, fjölmargar tillögur, sem
miðuðu að því að Hollendingar féllu
frá fyrri ákvörðun sinni á vettvangi
Atlantshafsbandalagsins, að koma
fyrir 48 meðaldrægum kjarnorku-
Verkfall málmiönaðar-
manna í V-Þýskalandi:
Vinnuveitend-
ur vilja nýja
sáttanefnd aðila
Stúttgftri, 14. júnl. AP.
SAMTÖK vinnuveitenda í vestur-
þýskum málmiðnaði hvöttu í dag til
þess, að komið yrði á fót nýrri sátta-
nefnd til að reyna að binda endi á
vinnudeiluna, sem lamað hefur bif-
reiðaiðnað landsins að undanförnu. í
tillögunni felst að hvor deiluaðili um
sig skipi einn sérstakan sáttasemjara.
Málmiðnaðarmenn hyggjast svara til-
lögunni á morgun, fóstudag.
í gær lauk samningaviðræðum
vinnuveitenda og verkfallsmanna
án þess að nokkur árangur næðist. 1
framhaldi af þvl tilkynntu bifreiða-
fyriræki um frekari lokanir verk-
smiðja sinna, sem leiða munu til
þess að 25 til 30 þúsund verkamenn,
til viðbótar við þá 370 þúsund sem
eru í verkfalli eða verkbanni, verða
atvinnulausir.
Deilan snýst einkum um kröfu
verkalýðsfélaganna um styttingu
vinnuvikunnar um fimm klukku-
stundir, úr 40 í 35, án launalækkun-
ar. Vinnuveitendur segja þá kröfu
allsendis óaðgengilega, því hún
muni leiða til þess að verðbólga í
Vestur-Þýskalandi hækki um 20 af
hundraði og framleiðsluvörur lands-
manna verði ekki samkeppnisfærar
á alþjóðamarkaði.
eldflaugum í landinu til mótvægis
við SS-20 kjarnaflaugar Sovét-
manna.
Veður
víða um heim
Akureyri 8 alskýjað
Amsterdam 17 rigning
Aþena 25 hetóskírt
Barcelona 23 hetóskfrt
Berlin 18 rigning
BrUssel 18 skýjað
Chicago 30 hetóskfrt
Dublin 13 rigning
Feneyjar 22 heiðskirt
Frankfurt 22 hetóskfrt
Gent 28 hetóskfrt
Helsinki 15 rigning
Hong Kong 30 ský|að
Jerúsalem vantar
Kaupmannahöfn 17 skýfað
Las Palmas 23 Mttskýiað
Lissabon 33 hetóskfrt
London 23 hetóskirt
Los Angeles 29 heiðskirt
Malaga 25 hetóskfrt
MaUorca 30 heiðskírt
Miami 29 skýjað
Montreal 21 skýjað
Moskva 14 heiðskfrt
New York 35 skýjað
Ostó 18 skýjað
Paris 25 heiðskírt
Peking 29 heiðskfrt
Reykjavik 9 tóttskýjað
Rtó de Janeiró 31 skýjað
Róm 28 heiðskírt
Stokkhótmur 18 alskýjað
Sydney 17 skýjað
Tókýó 26 hetóskfrt
Vínarborg 18 heiðskfrt
Þórshöfn 11 alskýjað