Morgunblaðið - 15.06.1984, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1984
15
Bifreiða-
stjórinn fer
til Taiwan
(>sló, 14. júní. Frá Jan Krik Lauré,
fréttaritara Mbl.
ÞRJÁTlU og fimm ára gamall
bifreiðastjóri við kínverska
sendiráðið í Osló, sem gaf sig
fram við norsk yfirvöld fyrir
hálfum mánuði og óskaði eftir
landvist, hefur ákveðið að flytj-
ast til Taiwan. Hann hefur ekki
gefið upp neinar pólitiskar
ástæður fyrir ákvörðun sinni
að hætta störfum í sendiráði
lands síns.
Noregur hefur ekki stjórn-
málasamband við Taiwan og
því verður bifreiðastjórinn
fyrst að fara til annars lands
áður en hann kemst á áfanga-
stað. Norsk stjórnvöld hyggjast
hins vegar greiða götu hans.
Sprenging í
vopnaverksmiðju
Kmiró, U. júní. AP.
MIKIL sprenging varð árla í
morgun í verksmiðju, sem
framleiðir skotfæri, og er stað-
sett í norðausturhluta Kairó-
borgar í Egyptalandi. Vitað er
um tvo menn sem létu lífið og
að 87 særðust. Annar hinna
látnu var starfsmaður í verk-
smiðjunni og sama máli gegnir
um 50 hinna slösuðu.
Svo öflug var sprengingin,
sem rakin er til óheppilegs
efnasamruna í púðurtunnu, að
þak efnaverksmiðju í nágrenn-
inu hrundi niður og rúður
brotnuðu víða.
Þrátt fyrir sprenginguna
verður unnt að halda vopn-
agerð áfram í verksmiðjunni
eins og ekkert hafi í skorist,
þar sem skemmdir urðu minni í
henni sjálfri en nágrenninu.
Fleiri kolanám-
um lokað?
London, 14. júní. AP.
IAN MacGregor, formaður
stjórnar hinna ríkisreknu kola-
náma í Bretlandi, sagði i dag,
að ef námumenn, sem eru í
verkfalli, létu ekki af aðgerðum
sínum, kynni að koma til end-
anlegrar lokunar fleiri náma.
Verkfallið hefur nú staðið í
14 vikur og síðasta samninga-
fundi lauk án þess að nokkuð
miðaði í samkomuiagsátt.
MacGregor hvatti til þess, að
stéttarsamband kolanámu-
manna efndi til allsherjar at-
kvæðagreiðslu meðal félags-
manna sinna um þá ákvörðun
ríkisstjórnarinnar að loka 20
námum, sem ekki skila lengur
arði, og segja um 20 þúsund
námumönnum upp störfum.
Ágreiningur er meðal námu-
manna um afstöðu til þessarar
ákvörðunar og hefur leiðtogi
stéttarsambands þeirra, Arth-
ur Scargill, fram að þessu ekki
viljað leita álits féiagsmanna á
þennan hátt.
*
Utlendingum
rænt í Angóla
LLssabon, 14. júní. AP.
SKÆRULIÐAR UNITA, sem
berjast gegn ríkisstjórninni í
Angóla, rændu í gær 14 útlend-
ingum í bænum Quibala í
Kwanza-Sul-héraði og höfðu þá
á brott með sér til bækistöðva í
suðurhluta Angóla, sem eru í
hundruð kílómetra fjarlægð frá
ránsstaðnum.
Áður hafði komið til harðra
bardaga í nágrenni bæjarins
milli skæruliöa og stjórnar-
hersins, sem nýtur fulltingis
hermanna frá Kúbu. Talsmað-
ur UNITA sagði að 210 her-
menn stjórnarinnar og 30 Kúb-
umenn hefðu fallið. í liði
skæruliða hefðu 15 látið lífið og
32 hlotið sár.
Skæruliðar segja, að útlend-
ingar, sem kjósa að búa í Ang-
óia, verði sjálfir að axla ábyrgð
á þeirri ákvörðun.
(t.h.)
og Kurt Fugler fyrrum
forseta
AP/Símamynd.
og ráðherra. Páfi hitti
Jóhannes Páll páfi ræðir við Leon Schlumpf forseta
ríkisstjórn Sviss að máli í gær.
Sviss
Páfi víkur að banka-
málum Svisslendinga
Flueli, 14. júní. AP.
Jóhannes Páll páfi annar flutti
messu, sem 11 þúsund manns
hlýddu á í skjóli snævi þaktra Alpa-
tinda, og vék í ræðu að bankamálum
í SvLss, á þriðja degi heimsóknar
sinnar þangað.
Páfi hvatti Svisslendinga til að
standa vörð um viðskipta- og
bankakerfi sitt, sem hann kvað
þjónustu í þágu friðar, og varaði
þá við að það þróaðist þann veg að
það byði heim ófriði og óréttlæti.
Messustaðurinn er fæðingar-
borg heilags Nikulásar von Flue,
dulspekings, hvers sáttaumleitun
kom í veg fyrir sundrun sviss-
neska ríkjasambandsins á 15. öld.
Páfi kallaði hann „friðardýrling"
Svisslendinga, en hann var tekinn
í dýrlingatölu 1947.
Páfi hrósaði kröftuglega hlut-
leysi Sviss og aðstoð landsins við
flóttamenn. Auk messunnar í Flu-
eli hitti hann svissneska kirkju-
leiðtoga að máli og gekk einnig á
fund ríkisstjórnar landsins.
Víetnamar segjast hafa
fellt 70 Kínahermenn
Tókýó, 14. juni. AP.
UTVARPIÐ í Hanoi sagði víet-
namska hermenn hafa fellt 70 kín-
verska hermenn og tekið nokkra til
fanga í átökum meðfram landamær-
um ríkjanna síðustu þrjá daga.
Sagði útvarpsstöðin Kínverja hafa
gert árásir á Vixuyen í Ha Tuyen-
héraðinu á mánudag og þriðjudag og
hefði fjöldi íbúa fallið eða særst, en
tölur voru ekki gefnar.
Sagði stöðin víetnamska her-
menn hafa endurheimt hernaðar-
lega mikilvæga staði þrjá kíló-
metra innan eigin landamæra,
sem Kínverjar hefðu áður tekið.
Á miðvikudag gerðu Kínverjar
árás á þessar stöðvar að nýju en
henni hrundu víetnamskir her-
menn.
Ásakanir útvarpsins í Hanoi
koma í kjölfar ásakana frá Kína
þess efnis að Víetnamar hafi ný-
verið hafið vopnaðar ögranir með-
fram landamærunum, en mikil
spenna hefur ríkt við þau frá því
Kína og Víetnam laust saman í
landamærastríði 1979 er stóð yfir
í sex vikur.
Finnskir læknar í New England Journal of Medicine:
Ungabörn verði bólu-
sett við heilahimnubólgu
Boston, 14. júní. AP.
FINNSKIK læknar halda því fram í
grein í New England Journal of
Medicine að meðal bólusetningar ung-
barna ætti aö vera bólusetning gegn
sýkli, sem veldur heilahimnubólgu í
börnum.
Finnsku læknarnir komust að því
að mótefnið geti minnkað hættuna á
sýkingu, og þar með heilahimnu-
bólgu eða alvarlegum sjúkdómi um
60%. Þegar mótefnið var þróað fyrir
rúmum áratug töldu vísindamenn
það gagnslaust nema móttakandi
væri minnst hálfs annars árs, og
áhugi fyrir því dofnaði í ljósi þess
að það urðu helzt börn undir eins
árs aldri, sem urðu fyrir barðinu á
sýklinum, sem heilahimnubólgunni
veldur.
Hins vegar halda Finnarnir því
fram nú, að nógu mörg börn verði
fyrir barðinu á sýklinum eftir að
þau hafa náð 18 mánaða aldri til
þess að bólusetning sé réttlætanleg.
Læknarnir byggja niðurstöður
sínar á athugunum á 50 þúsund
finnskum börnum, sem bólusett
voru 1974. Athuganir þeirra, sem dr.
Heikki Peltola stýrði, leiddu í Ijós
að 60% sýkinga af völdum bakterí-
unnar (hemophilus), sem veldur
heilahimnubólgu í börnum, urðu á
aldrinum 1 Vfe —9 ára. Segja þeir að
mögulegt hefði verið að fyrirbyggja
þessa sýkingu með bóluefninu.
Heilahimnubólga af völdum um-
rædds sýkils dregur 5—10% sýktra
til dauða og 30% hljóta varanlegt
tjón. Bakterían getur einnig valdið
barkalokun, lungnabólgu, eyrna-
bólgu, liðagigt o.fl. sjúkdómum.
Kínverska fréttastofan Xinhua
skýrði frá því á þriðjudag að kín-
verskir landamæraverðir hefðu á
mánudag hrundið sex innrásum
Víetnama í Yunnan-héraðinu.
Ekki er hægt að fá fullyrðingar
Kínverja og Víetnama staðfestar
af þriðja aðila, en sendifulltrúar í
Bangkok og Peking telja átökin
öllu umfangsminni og eigi jafn
áköf og af er látið í yfirlýsingum
deiluaðila.
Spassky teflir ekki
oftar fyrir Rússa
London, 14. júní. AP.
JÚGÓSLAVNESKA fréttastofan
Tanjug hafði í gær eftir sovéska
skákmeistaranum Boris Spassky,
að hann hefði ákveðið, að tefla ekki
oftar undir fána Sovétríkjanna og
mundi framvegis tefla á vegum
Frakka.
Spassky sagði, að ekki væri
pólitísk ástæða fyrir þessari
ákvörðun sinni og þótt hann
byggi utan Sovétríkjanna liti
hann ekki á sig sem útlægan and-
ófsmann.
Síðasta skiptið, sem Spassky
tefldi á vegum Sovétríkjanna, var
á skákmóti í Bugojno í Júgóslavíu
fyrir nokkrum dögum, en þar bar
hann sigur úr býtum.
Boris Spa.H.sk v.
Samkomulag
Spasskys og sov-
ésku íþrótta-
nefndarinnar
hefur verið stirt
allt frá því, að
Spassky glataði
heimsmeistara-
titli sínum í við-
ureign við Bobby
Fisher í Reykjavík árið 1972 og
sigrar hans á skákmótum á nú-
verandi heimsmeistara, landa
hans Anatoly Karpov, hafa verið
litnir óhýru augu í nefndinni.
Talið er, að nefndin ætlist til þess
að sovéskir stórmeistarar í skák
semji frekar um jafntefli við
landa sína á alþjóðlegum mótum,
heldur en að sigra þá.
AMERÍKA
PORTSMOUTH/NORFOLK
Bakkafoss 10. júlí
City of Perth 24. júlí
Bakkafoss 8. ágúst
City of Perth 22. ágúst
NEWYORK
Bakkafoss 9. júli
City of Perth 25. júli
Bakkafoss 7. ágúst
City of Perth 21. júli
HALIFAX
Bakkafoss 13. júli
Bakkafoss 11. ágúst
IMMINGH AM
Eyrarfoss 17. júní
Álafoss 24. júní
Eyrarfoss 1. júli
Alafoss 6. júlí
FELIXSTOWE
Eyrarfoss 18. júní
Álafoss 25. júní
Eyrarfoss 2. júli
Álafoss 9. júli
ANTWERPEN
Eyrarfoss 19. júní
Álafoss 26. júní
Eyrarfoss 3. júlí
Álafoss 10. júlí
ROTTERDAM
Eyrarfoss 20. júni
Álafoss 27. júní
Eyrarfoss 4. júli
Álafoss 11. júli
HAMBORG
Eyrarfoss 21. júní
Álafoss 28. júni
Eyrarfoss 5. júli
Álafoss 12. júlí
GARSTONE
Helgey 25. júni
LISSABON
Skip 21. júní
LEIXOES
Skip 22. júní
BILBAO
Skip 24. júní
NORÐURLÖND/ -
EYSTRASALT
BERGEN
Mánafoss 15. júni
Dettifoss 22. júní
Mánafoss 29. júní
Dettifoss 6. júli
KRISTIANSAND
Mánafoss 18. júni
Dettifoss 25. júní
Mánafoss 2. júlí
Dettifoss 9. júli
MOSS
Mánafoss 19. júni
Dettifoss 22. júní
Mánafoss 3. júli
Dettifoss 6. júli
HORSENS
Dettifoss 27. júní
Dettifoss 11. júli
GAUTABORG
Mánafoss 20. júni
Dettifoss 27. júní
Mánafoss 4. júli
Dettifoss 11. júli
KAUPMANNAHOFN
Mánafoss 21. júní
Dettifoss 28. júní
Mánafoss 5. júli
Dettifoss 12. júlí
HELSINGJ ABORG
Mánafoss 22. júni
Dettifoss 29. júni
Mánafoss 6. júli
Dettifoss 13. júti
HELSINKI
Elbström 27. júní
GDYNIA
Elbström 4. júlí
ÞÓRSHÖFN
sF Mánafoss 14. júli
Kj-aL-í ■ ■■ 1 ri \~« >! T —v ——
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
-framogtil baka
frá REYKJAVlK
alla mánudaga
frá ÍSAFIRÐI
alla þriöjudaga
frá AKUREYRI
alla fimmtudaga
EIMSKIP