Morgunblaðið - 15.06.1984, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1984
17
Farþegarnir stíga um borð í þotuna sem flutti þá vestur um haf, til fyrri áfangastaðar.
hefðu þátt í aðgerðunum ættu þakk-
ir skildar fyrir að hafa lagt sig mjög
fram við að gera það sem gera
þurfti á sem allra skemmstum tíma.
Þorgeir Þorsteinsson lögreglu-
stjóri sagði að þetta mál hefði kom-
ið til kasta íslenskra yfirvalda
vegna lendingar vélarinnar hér
vegna sprengjuhótunar, sem auðvit-
að væri afbrot. Það hefði fyrst og
fremst verið hlutverk sitt að bjarga
iífi fólksins svo og eignum. Það
hefði verið gert með því að losa
flugvélina og koma fólkinu undan.
Aðspurður hvað gert hefði verið til
að upplýsa brotið sagði Þorgeir að
hér hefði fyrst og fremst verið brot-
ið gegn breskum hagsmunum, þar
sem þetta hefði verið bresk flugvél á
alþjóðlegri flugleið. Viðkomandi
flugfélag bæri ábyrgð á og stjórnaði
leitinni í vélinni en lögreglan hefði
gert það sem hægt var til að vernda
fólk og eignir, meðal annars með því
að loka svæðinu. Þá hefði verið gerð
könnun á því hvort grunur beindist
að einhverjum sérstökum í vélinni,
en þar sem það hefði ekki verið væri
lítið hægt fyrir hann að gera í svona
Sveinn Eiríksson, slökkviliðsstjóri á Keflavíkurflugvelli, kveður foringja þess stuttri viðkomu vélarinnar En
hluta SAS-sérsveitar breska hersins sem hingað kom til sprengjuleitar i þotunni. skýrsla yrði gerð um atburðinn og
Til hægri á myndinni er öryggisfulltrúi British Airways sem sendur var hingað ^ún send viðkomandi aðilum.
strax og fréttist af sprengjuhótuninni. Til vinstri á myndinni sést framan á
tækjabfl þann sem SAS-sveitin kom með hingað til lands til sprengjuleitarinnar.
hótunin gabb
l til Bandaríkjanna — Ekki vitað hver kom hótuninni fyrir
Starfsfólk á Hótel Sögu að taka saman rúmfót í Kristalssal Sögu þar sem hluti
farþeganna gisti. Morgunbiaftið/ Júlíus.
ndi stóð enda dvöldu þeir mestan hluta
nd.
Talið frá vinstri: Martie Scott, Ted Davids og eiginmaður Martie, Whilliam,
en þau hjónin höfðu aldrei uppí flugvél komið fyrr en nú.
„Enginn vissi hvað
var að gerast“
Hjónin Martie og Whilliam
Scott frá Skotlandi og Ted Davi-
eds frá Kaliforníu voru meðal far-
þega í júmbóþotu British Airways.
Þau voru fús að ræða við blaðam-
ann Morgunblaðsins þar sem þau
biðu í flugstöðinni í Keflavík eftir
því að haldið yrði áfram vestur
um haf.
„Það vissi enginn farþeganna
hvað var að gerast. Það eina sem
okkur var sagt var að við þyrftum
að lenda á íslandi af öryggisást-
æðum. Það var því engin hræðsla
um borð en þegar við lentum var
okkur skipað að yfirgefa flugvél-
ina strax og enginn mætti taka
með sér neitt, við skildum allan
handfarangur eftir. Við þurftum
síðan að hlaupa tæplega fimmh-
undruð metra frá vélinni. “
- En hvenær fengu þið að vita
um sprengjuhótunina?
„Ekki fyrr en við vorum kominn
inn í flugstöðina en síðan vorum
við keyrð á hótel í Reykjavík þar
sem við gistum í nótt í svefnpok-
um.
Aðspurð sögðust þau hlakka til
að koma áfram og vera búin að sjá
nóg af íslandi. Þess má geta í lok-
in að Scott-hjónin höfðu aldrei
uppí flugvél stigið fyrr.
„Fegin að
komast heim“
ADELAIDE Dice frá Kaliforniu var
hin hressasta og sagðist vera að
koma úr ferðalagi um Evrópu ásamt
systur sinni. Aðspurð sagði hún að
engin fraþeganna hefði vitað hvað
raunverulega var að gerast:
„Það var tilkynnt að flugvélin
þyrfti að lenda af öryggisástæð-
um. Auðvitað fóru sumir af geta
sér til um hvers vegna og ein-
hverjir töluðu um að sprengja
væri um borð.“
— En allir héldu ró sinni?
„Já, það greip engin hræðsla um
sig og allt gekk vel. Að vísu meidd-
ust einhverjir þegar þeir fóru út
um neyðarútgangana. Ég er hins
vegar feginn að þessu er lokið og
Adelaide Dice, sagðist vera feginn
að geta loksins komist heim.
fékk farsælan endi. Nú bíð ég bara
eftir að komast heim," sagði
Adelaide að lokum.
„Allir mjög hjálpsamir“
„VIÐ vissum ekkert, aðeins sagt að
taka af okkur skóna áður en við fær-
um niður rennibrautirnar, en flestir
gerðu það ekki. Þá var okkur einnig
bannað að taka með okkur handfar-
angur.“ Þetta sagði Bellamy Clark í
stuttu spjalli við blaðamann Morg-
unblaðsins en hún er á leið heim
ásamt syni sínum.
„Auðvitað kom strax upp orð-
rómur hvað hefði staðið á miðan-
um eftir að við fengum að vita
hvað raunverulega gerðist. En það
er aðeins orðrómur sem lítið er að
marka.“
— En hvernig fór um ykkur í
nótt?
„Ágætlega, við vorum að visu í
flugstöðinni til rúmlega fjögur í
nótt en þá fórum við Reykjavíkur
á hótel þar sem við gistum. Það
hafa allir verið mjög hjálpsamir,
vilja allt fyrir mann gera, en það
verður gott að komast heim.“
Bellamy Clark ásamt syni sínum.