Morgunblaðið - 15.06.1984, Page 18

Morgunblaðið - 15.06.1984, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1984 Leiklistarhátíð áhugamanna haldin í Finnlandi LEIKLISTARHÁTIÐ áhugamanna var haldin í borginni Lappenranta í Finnlandi, í byrjun júní sl. Leikhóp- ur úr leikfélaginu Grímni í Stykkis- hólmi tók þátt í hátíöinni og sýndi gamanleikinn Deleríum Búbónis eft- ir Jónas Árnason og Jón Múla Árna- son. Leikhópinn skipuðu 20 manns og leikstjóri var Jón Júlíusson. Alls tóku 15 leikhópar þátt í há- tíðinni, en auk sýningar íslenska leikhópsins, flutti hann söngatriði úr leiknum m.a. á götum úti, að því er segir í fréttatilkynningu leikfélagsins. Laxdalshús hefur veriö endurbyggt og er nú hið fegursta hús. Ljósm. G. Berg. Akureyri: Veitingastofa í Laxdalshúsi Akureyri, 9. júní. í DAG opnaði Örn Ingi, myndlistar- maður, veitingastofu í Laxdalshúsi við Hafnarstra'ti hér á Akureyri, en það er elsta hús bæjarins, upphaf- lega reist árið 1795. Hefur Húsfrið- unarsjóður Akureyrar undanfarin ár staðið fyrir uppbyggingu hússins og hefur Erni Inga nú verið leigt húsið til eins árs til að byrja með til veit- ingareksturs. Að sögn Arnar Inga er ætlunin að reka þarna kaffihús, sem einnig býður upp á alls konar smárétti, auk þess sem sótt hefur verið um leyfi til að hafa þar á boðstólum létt vín. Yfirkokkur og rekstrar- stjóri verður Guðlaugur Arason. Ýmislegt er á döfinni hjá þeim félögum til þess að lífga upp á reksturinn og þar með bæjarlífið og má m.a. nefna að leigðar verða út hestakerrur og hraðbátar, auk þess sem starfrækt verður úti- leikhús í sambandi við Laxdals- hús. Veitingasala í Laxdalshúsi verð- ur opin í sumar frá klukkan 11 á morgnana til klukkan 23.30. G. Berg. Leikhópurinn úr Leikfélaginu Grímni ásamt mökum. Mormónar með opið hús KIRKJA Jesú Krists hinna síðari daga hcilögu (mormónar) verður með opið hús að Skólavörðustíg 46, dagana 14. til 17. júní. Verður þar sagt frá sögu kirkj- unnar og kenningum, i máli og myndum. Gestir geta skoðað gestamiðstöðina og ættfræðisafn- ið og eru allir velkomnir, að því er segir í fréttatilkynningu morm- óna. Flóamarkaður umsjónarfélags einhverfra barna Umsjónarfélag einhverfra barna heldur flóamarkað aö Hallveigar- stöðum laugardaginn 16. júní frá kl. 13.30 til 18.00. Verður þar ýmislegt á boðstólum s.s. fatnaður, bækur, hljómplötur og blóm. Meginmarkmið umsjónarfélags einhverfra barna, er að vinna al- mennt að hagsmunamálefnum einhverfra barna, þ.á m. koma á fót fleiri stofnunum við hæfi barna með einhverf einkenni, að því er segir í fréttatilkynningu fé- lagsins. Nýtt 50 kr. frímerki NYTT 50 króna frímerki verður gefið út í tilefni 40 ára afmælis íslenska lýð- veldisins. Þröstur Magnússon hefur teiknað frímerkið, sem sýnir þjóðfána Is- lands. Útgáfudagur er 17. júní. Frí- merkið er sólprentað hjá Courvoisier SA í Sviss. Nauðgunarmálin á Hverflsgötu: Maðurinn laus úr gæsluvarðhaldinu * Akæra gefin út og málið þingfest í Sakadómi OPINBER ákæra hefur verið gefin út á hendur 36 ára gömlum Reykvík- ingi, sem aðfaranótt 13. maí sl. nauðgaði ungri konu við Hverfisgötu og hafði skömmu áður gert tilraun til að nauðga annarri konu. Málið gegn honum var þingfest í Sakadómi Reykjavíkur á miðvikudag og rann þá um leið út gæsluvarðhaldsúr- skurður yfir honum. Geðrannsókn og læknisskoðanir hafa ekkert leitt í Ijós, sem óvenjulegt eða afbrigðilegt getur talist og var því ekki talin ástæða til að fara fram á framleng- ingu gæsluvarðhaldsúrskurðarins, sem Hæstiréttur kvað upp skömmu eftir atburðina. í ákæruskjalinu er atburðum næturinnar lýst. Kemur þar m.a. fram, að tæp klukkustund leið á milli þess, sem hann gerði tilraun til að nauðga stúlku ofarlega við Hverfisgötu og þess, sem hann kom fram vilja sínum við aðra stúlku neðar við götuna. í báðum tilfellum bar hann sig að á sama veg, hann kom aftan að stúlkun- um, tók þær hálstaki og greip fyrir vit þeirra og dró inn í bak- garða. Ógnaði hann þeim létu þær ekki að vilja hans og mun önnur hafa misst meðvitund um stund- arsakir af völdum hálstaksins. Af hálfu ákæruvaldsins er gerð krafa um að maðurinn verði dæmdur til refsingar. Báðar stúlk- urnar hafa áskilið sér rétt til að setja fram kröfu um skaðabætur á síðara stigi. 100 franskir blaða- menn til Islands ÞAÐ ER ekki á hverjum degi sem Concorde-þotur lenda á Keflavíkur- flugvelli. Ein slík mun þó staldra við 21. júní nk. Um borð verða 100 franskir blaðamenn, sem franska olíufyrirtækið Total býður hingað. Ferðaskrifstofa ríkisins sér um framkvæmd heimsóknar blaða- mannanna. Kjartan Lárusson, for- stjóri, sagði í samtali við Mbl., að tildrög heimsóknarinnar væru þau, að olíufyrirtækið Total væri að hefja framieiðslu á nýrri vöru, sem þeir nefndu „Plus“. Til að vekja athygli á framleiðslunni hefði fyrirtækið boðið 100 blaða- mönnum frá helstu blöðum Frakklands hingað og væri vonast til að þeir fengju „plus“, þ.e. eitthvað meira en venjulega ferð. Frá Keflavík verður blaða- mönnunum ekið til Reykjavíkur og farið um borð í Akraborgina, sem verður leigð sérstaklega til fararinnar. Siglt verður um sund- in blá og verður tízkusýning, þjóð- dansar og karlakór um borð. Franski sendiherrann og íslenskir embættismenn verða með í för- inni. Loks verður siglt til Kefla- víkur, þaðan sem flogið verður sex tímum eftir komuna. Kjartan Lárusson sagðist von- ast til að skrif blaðamannanna yrðu góð landkynning og hefði Ferðaskrifstofa ríkisins því tekið að sér skipulagningu heimsóknar- innar hér á landi. Þess skal getið, að Concorde- þotan verður ekki almenningi til sýnis á meðan hún staldrar við hér. Stúlkur úr íslenska dansflokknum sýna fót þriggja Langbróka í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Langbrækur: Föt og dans UNDANFARNAR tvær vikur hafa 24 konur sýnt verk sín í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Konur þessar, sem kenna sig viö Gallerí Langbrók, sýna verk unnin í gler, leir, dúk og postulín, auk grafík-mynda, mál- verka og vefnaðar, svo fátt eitt sé talið. Þrjár Langbrókanna, þær Eva Vilhelmsdóttir, Steinunn Berg- steinsdóttir og Sigrún Guðmunds- dóttir, hafa hannað fatnað, sem sex stúlkur úr íslenska dans- flokknum sýna kl. 15 á morgun, laugardag. Sýning dansflokksins er samspil tónlistar, dans og fatn- aðar. Fötin eru öll úr náttúru- legum efnum, leðri, rúskinni og baðmull, og er málað, þrykkt og saumað út í þau. Sýningu Langbróka í Bogasal lýkur á morgun. Verk þeirra, t.d. fötin, verður áfram unnt að fá 1 Gallerí Langbrók.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.