Morgunblaðið - 15.06.1984, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 15.06.1984, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1984 19 Sveitarstjórnamenn á Norðurlandi: Óttast breytingar á kostnaðarskiptingu skólakostnaðar Akureyri, 12. júní. Strjálbýlisncfnd Fjórðungssam- bands Norðlendinga efndi til fundar í félagsheimilinu Laugarborg á Hrafnagili í Eyjafirði sl. föstudag. Framsögumenn um stöðu smærri sveitarfélaga og atvinnumál sveita, einkum um fjárhagsmálefni, skóla- mál o.fl., höfðu Björn Guðmunds- son, oddviti Kelduneshrepps, Val- garður Hilmarsson, oddviti Engihlíð- arhrepps, og Stefán A. Jónsson, formaður Kræðsluráðs Norðurlands vestra. Gestir fundarins voru Björn Friðfinnsson, formaður Sambands ísl. sveitarfélaga, og Ölvir Karlsson, stjórnarformaður sambandsins. Jafnframt voru boðaðir til fundarins fræðsluráðsmenn beggja fræðsluráð- anna á Norðurlandi, fræðslustjórar og nefndarmenn í félags- og menn- ingarmálanefnd Fjórðungssam- bandsins. Fram kom í máli fundarmanna talsverður uggur um fyrirhugaðar breytingar á kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga varðandi skólakostnað, einkum með tilliti til smærri sveitarfélaga. Egilsstaðir: Á fundi með austfirskum skólastjórum EgilMstöðum, 28. maí. NÝLEGA boðaði fræðslustjórinn á Austurlandi og Félag skólastjóra og yf- irkennara á grunnskólastigi til fundar i Valaskjálf á Egilsstöðum með skóla- stjórum á Austurlandi til að ræða hin ýmsu mál skólanna með tilliti til laga og reglugerða og stöðu skólastjórn- enda almennt í íslensku skólakerfi. I upphafi fundar kynnti fræðslu- stjóri, Guömundur Magnússon, starfsáætlun skóla á komandi skóla- ári og nýja viðmiðunarstundaskrá. Það kom fram í máli hans að stjórn- völd hafa nú ákveðið 2,5% launa- sparnað í fræðsluumdæmunum auk 5% sparnaðar í rekstri — sem eink- um mun taka til aksturs skólanem- enda og álíkra rekstrarþátta. Skólastjórnendur virtust að von- um daufir yfir þessum fréttum en fögnuðu hins vegar nýrri viðmiðun- arstundaskrá svo og nýrri reglugerð um starfstíma grunnskóla. Starfs- timi skóla á Austurlandi er mjög misjafn — allt frá 7 til 9 mánaða. Virtust fundarmenn á einu máli um það að höfuðnauðsyn bæri til að jafna starfstíma skólanna í fræðslu- umdæminu, einkum i þéttbýli. Formaður Félags skólastjóra og yfirkennara, Viktor Guðlaugsson, skýrði frá störfum stjórnar félagsins — og gerði að sérstöku umtalsefni sérstaka búnaðarskrá er stjórnin hefur látið vinna. Margir skólar eru afskaplega illa búnir tækjum og búnaði og kvað Viktor það markmið stjórnar að fá þessa búnaðarskrá viðurkennda af stjómvöldum sem nokkurs konar reglugerð eða viðmið- un í þessum efnum. Það kom fram á fundinum að skólastjórnendur eru afskaplega óánægðir með launakjör sín um þessar mundir og raunar einnig stöðu sina innan skólakerfisins — og telja raunar endurskoðunar þörf á skólakerfinu öllu. Á fundinum flutti héraðslæknir Austurlands, Stefán Þórarinsson, erindi um heilsuvernd i skólum — sem vakti verðskuldaða athygli fundarmanna. Fundurinn var fjölsóttur og um- ræður fjörugar. 1 haust mun Félag skólastjóra og yfirkennara efna til haustþings i Munaðarnesi þar sem fjallað verður annars vegar um tölvubúnað grunn- skóla og hins vegar um vimuefna- notkun barna og ungmenna. - Ólafur. Vilja frjálsan innflutning á kartöflum ALMENNUR fundur í Félagi mat- vörukaupmanna, haldinn í húsa- kynnura Kaupmannasamtaka ís- lands, þriðjudaginn 5. júní 1984, ítrekar fyrri kröfur sínar um frjáls- ræði í innflutningi á kartöflum og grænmeti. Fundurinn telur eðlilegt að reynt sé eftir því sem kostur er, að veita íslenskri framleiðslu for- gang á markaði. Einnig er lögð rík áhersla á að öll dreifing á græn- meti og kartöflum til neytenda sé í samræmi við gildandi ákvæði í reglugerð um heilbrigðishætti. Fundurinn samþykkti að til- nefna fjóra menn, ásamt fræðslu- stjórum á Norðurlandi, til þess að gæta hagsmuna dreifbýlisins í þeirri umræðu, sem fram fer um að breyta kostnaðarskiptingu á rekstri grunnskóla í landinu, og einnig að kjósa þriggja manna nefnd til þess að kanna, hvort tímabært sé að stofna landssam- tök dreifbýlishreppa til að gæta hagsmuna þeirra. G. Berg. Forrest í Hollywood HINGAÐ til lands er kominn söngv- arinn bandaríski Forrest, sem kunn- ur er fyrir lög sín “Rock the boat“ og „Feel the need“. Tónlist Forrest er svokölluð „funk“-tónlist. Forrest mun koma fram í skemmtistaðnum Hollywood í kvöld og á laugar- og sunnudagskvöld kl. 11.15. MATREIÐSLUSNILLINGARNIR Úlíar Eysteinsson á Pottinum og pönnunni og Skúli Hansen á Arnarhóli haía stoltir boðið gestum sinum karía allt írá þvi þeir opnuðu sin írábœru veitingahús. Raunar er karíi otarlega á blaði hjá ílestum góðum veitingahúsum. Þeir Úlíar og Skúli haía íallist á að birtanokkrar uppskriftirsinar í bœklingum sem boðnir eru ókeypis hvar sem BÚRKARFI íœst. BÚRKARFI er íiskvóðvi tilbuinn til matreiðslu rétt eins og hver ónnur steik. nmm BURKARFI er: 1. Ferskt karíaílak 2. Roðlaust 3. Beinlaust 4. Unnið undir gœðaettirliti BUR Meðal uppskntta i bœklingunum má netna. • Rjómasoðin karfaílök • Kartapaté • Karíaflök tyllt Dalayrju • Smjörsteiktan karía með rjómapaprikusósu mnm mmTJ OKiYPIS BÆKUNGAR BÆJARÚTGiRB RÍYKJAVÍKUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.