Morgunblaðið - 15.06.1984, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1984
23
Náttúruskoðunar- og
söguferð um Kópavogsland
NVSV, Náttúruverndarfélag Suð-
vesturlands, hefur sumarstarfið
með því að endurtaka kynnisferð
sem farin var um Kópavogsland
10. desember sl. vegna opnunar
Náttúrufræðistofu Kópavogs, en
fjölmargar óskir hafa borist um
að endurtaka þá ferð.
NVSV ítrekar þakkir sínar til
bæjarstjórnar Kópavogs fyrir
glæsilegt framlag til náttúru-
fræðlsu og um leið náttúruverndar
Ulfar I>ormóðsson
í Kópavogi með opnun Náttúru-
fræðistofu Kópavogs að Digranes-
vegi 12.
I samvinnu við Náttúrufræði-
stofuna förum við þessa fræðslu-
og kynnisferð um Kópavogsland á
morgun, laugardaginn 16. júní, kl.
13.45 frá Náttúrufræðistofunni að
Digranesvegi 12 (hægt verður að
fara í rútuna við Norræna húsið
kl. 13.30 og fara þangað að ferð-
inni lokinni).
Fyrst verður ekið meðfram
strönd Kársnessins og fjaliað um
fjörulífið í Kópavoginum. Síðan
ekið austur Fífuhvammsveg um
Suðurhlíðar að hinu gamla bæjar-
stæði Fífuhvamms og mýrar-
svæðið þar fyrir neðan skoðað.
Þaðan ekinn Vatnsendavegur, Ell-
iðavatnsvegur og yfir á Suður-
landsbraut, kynntur verður gróður
og fuglalíf við Elliðavatn í leið-
inni. Áfram verður haldið upp
undir Biáfjöll og jarðfræði svæðis-
ins og lífríki kynnt. Ef aðstæður
leyfa verður hægt að fara með
lyftu upp á fjallið og njóta hins
faliega útsýnis þaðan. Til baka
verður farið um Heiðmerkurveg,
Vífilstaðahlíð og niður í Kópavog.
Borgir verða skoðaðar og endað á
skoðunarferð um Náttúrufræði-
stofu Kópavogs, þar sem þeir Árni
Waag og Jón Bogason sýna hina
nýju stofnun.
Leiðsögumenn í ferðinni verða
Adolf Petersen, fræðimaður, um
sögu og örnefni í Kópavogslandi,
Agnar Ingólfsson, dýrafræðingur,
segir okkur frá fuglum og fjöru-
lífi, Árni Waag líffræðikennari og
forstöðumaður Náttúrufræði-
stofunnar, ræðir um gróðurfar
svæðisins og fleira viðvíkjandi
lífríki þess og Sigmundur Einars-
son, jarðfræðingur, skýrir jarð-
fræði þess svæðis sem við förum
um.
Áætlað er að ferðin taki 3—3%
klst. og skoðun Náttúrufræðistof-
unnar 1 klst. og því lokið um kl.
18.00.
Fargjald verður 200 kr., frítt
fyrir börn í fylgd fullorðinna.
Þetta er ferð fyrir alla og það mun
koma þátttakendum á óvart hve
fjölbreytni náttúrunnar er mikil í
bæjarlandinu en svo er áreiðan-
lega víðar í nágrenni þéttbýlis ef
grannt er skoðað.
(Frá NVSV)
Bréf til
Þórðar
frænda
ÚLFAR Þormóðsson hefur gefið út bók
sína, „Bréf til Þórðar frænda — með
vinsamlegum ábendingum til saksókn-
arana."
í formála segir höfundur bókina
skrifaða „í brotum og brotabrotum á
þeim tíma sem málavafstur vegna
Spegilsmálsins hefur staðið og í
henni er greint frá hinum breyti-
legustu vangaveltum hins ákærða
þann tíma“.
Bókin, sem er pappírskilja og 104
blaðsíður, er prentuð hjá Odda hf.
Kirkjur
á landsbyggðinni
Messur á
sunnudag
EGILSST AÐAKIRK JA: Hátíð-
armessa meö altarisgöngu á
sunnudaginn kl. 13.30. Minnst 10
ára afmælis Egilsstaöakirkju. Sr.
Sigmar Torfason, prófastur, þjón-
ar fyrir altari og ávarpar söfnuö-
inn. Afmælisávarp flytur Guö-
mundur Magnússon, sveitarstjóri.
Organisti Kristján Gissurarson.
Sóknarprestur.
VÍKURPRESTAKALL: Sameigin-
leg hátíöarguösþjónusta fyrir all-
ar sóknir prestakallsins í Vikur-
kirkju kl. 13.30. Sóknarprestur.
Vinabæjarráð-
stefna í Jönköb-
ing í Svíþjóð
DAGANA 15.—17. ágúst í sumar er
áformuð vinabæjaráðstefna á vegum
Sambands norrænu félaganna í Jön-
köbing í Svfþjóð. Setningardaginn
verður meðal annars fjallað um vina-
bæjahreynnguna og hvaða lærdóm
megi draga af fenginni reynslu. Þann
16. ágúst skila starfshópar áliti og vina-
bæjakeðjurnar halda sjálfstæða fundi.
Káðstefnunni lýkur svo með sameigin-
legu þinghaldi Töstudaginn 17. ágúst.
Norræna félagið álslandi, sem er
í Norræna húsinu, annast skipulagn-
ingu og þjónustu við þátttöku ís-
lendinga í ráðstefnunni.
BMW turbo-diesel
OPNAR ÞÉR NÝJAN HEIM
BMW 524 turbo-diesel sver sig í ætt BMW fjölskyldunnar og hefur þegar sýnt hvað í
honum býr. M.a. hlaut hann „Gullstýrið" eftirsótta þegar í upphafi en sú viðurkenning
er veitt fyrir tækniframfarir í bílaiðnaði og hefur enginn annar dieselbíll fengið þessa
viðurkenningu.
BMW 524 turbo-diesel er búinn 6 strokka 115 DIN hestafla vél sem er mun kraftmeiri
en almennt gerist, hljóðiát og einstaklega sparneytin. Bílinn má fá 5-gíra beinskiptan
eða 4-gíra sjalfskiptan.
í BMW turbo-diesel renna kostir bensín- og dieselbílsins saman í eitt, snerpa, lipurð
og sparneytni.
Við erum þeirrar skoðunar að vönduð vara sé besta fjárfestingin.
Hvað um þig?
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI 686633
Ánægja í akstri