Morgunblaðið - 15.06.1984, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1984
25
LISIAHÁrÍÐ í REYKJAVIK
lrI7. fÚNÍ 1984
10 gestir
Louisa Matthíasdóttir: Tómatar og eggaldin, 1980.
Myndlist
Valtýr Pétursson
Ég verð að játa, að þegar ég
fyrst heyrði, að í uppsiglingu
væri sýning á verkum íslenskra
listamanna, sem væru búsettir
erlendis, leist mér ekki nema
mátulega á hugmyndina. Nú er
slík sýning orðin að veruleika, og
menn geta séð, hvernig til hefur
tekist með því að líta inn á Kjar-
valsstöðum.
Þarna er gríðarlega mislitur
hópur á ferð, og því er líkast sem
um margar einstæðar sýningar
sé að ræða. Hér syngur hver með
sínu nefi eins og við segjum, og
óneitanlega er þetta ósamstæður
hópur, þótt þeir sem verið hafa
búandi í Hollandi myndi að vísu
hóp, sem hefur hugmyndafræð-
ina af sama uppruna. Einn lista-
mannanna, Tryggvi ólafsson,
hefur verið i Danmörku og Erró
á heima í París eins og allir vita,
hinir hafa verið langdvölum í
Bandaríkjunum, en eiga fátt
sameiginlegt í myndgerð sinni.
Af þessu má sjá að þarna er að
finna ýmislegt og líklegast
ógerningur að fá samstæðu út úr
dæminu.
Erró og Lovísa Matthíasdóttir
eru þeir listamenn, sem einna
sterkast koma þarna fram. Lov-
ísa er lítt þekkt hér heima, en því
þekktari þarna fyrir vestan.
Samt hafa sést eftir hana mynd-
ir hér heima við og við, en þarna
fáum við að sjá 50 málverk og
líklegast flestar hliðar þessarar
listakonu. Hún er mjög persónu-
leg í list sinni og hæverskan er
áberandi í þessum verkum.
Teikning hennar finnst mér mun
sterkari en litameðferðin, en
þetta eru ákaflega fáguð og yfir-
veguð málverk, sem eiga uppruna
sinn i íslensku umhverfi. Erró
hefur ekki áður komið jafn sterk-
ur fram hér á landi, og þarna er
hann raunverulega í essinu sínu.
Hann er ádeilumaður, og það er
ekki erfitt að lesa úr táknmáli
hans. Hvert verk hefur ákveðinn
litatón, sem er gegnumfærður í
hverju verki fyrir sig, og ég bendi
sérlega á málverkið Pólland, sem
talar skýrt sínu máli. Jóhann
Eyfells er sjálfum sér líkur, og
myndir hans hafa ekki mikið
breyst frá fyrri tíð. Sérstæður
listamaður, bæði hér heima og
erlendis. Kona hans, Kristín,
sýnir myndröð af portrettum,
sem á stundum verka nokkuð
sterkt. Minna mann á fallvalt-
leika tilverunnar og kerlingu elli.
Steinunn Bjarnadóttir er með al-
gera nýjung í vídeó-verkum sínu
og þori ég ekki að leggja þar orð í
belg, þekki ekki nægilega til
þeirrar listgreinar. Tryggvi
ólafsson vinnur enn á sama sviði
og þegar hann hélt sína seinustu
sýningu í Listmunahúsinu. Sig-
urður Guðmundsson er hress og
fyndinn í concept-verkum sínum
og útskýrir verk sín á skemmti-
legan hátt í sýningarskrá. Bróðir
hans, Kristján, er með sömu verk
og hann sýndi í vetur sem leið og
viðbæti. Er mér minnisstæðast
„Eyjólfur hét maður“, upphaf
Eyrbyggju. Hreinn Friðfinnsson
vinnur hreint og látlaust. Það
verk er mest komst að mér heitir
„A Folded Star", vel lukkað í alla
staði.
Mjög vönduð sýningarskrá er
með þessari sýningu, og þar eru
myndir af listamönnunum ásamt
verkum þeirra. Ég man vart eftir
eins vönduðu riti, og er það
Listahátíð ’84 til hins mesta
sóma. Það er auðvitað mikill
viðburður, þegar slík sýning er á
boðstólum hér. Þarna eru landar
okkar komnir heim úr umróti
veraldar. Þeir hafa sannarlega
nokkuð með í farangrinum og nú
er það okkar að meta verk þeirra
og að notfæra okkur það, sem
þeir hafa að bjóða. Það var fróð-
legt og skemmtilegt að kynnast
þessum verkum, og það er óhætt
að mæla með þessari sýningu.
Þarna er sannarlega eitthvað
fyrir alla.
Listahátíð 1984
Að þessu sinni gegnir mynd-
listin miklu hlutverki í þeim há-
tíðahöldum, sem nú standa yfir
hér á landi. Ekki hef ég ábyggi-
lega tölu á öllum þeim sýning-
um, sem standa almenningi til
boða hér í borg þessa dagana.
Listasafn íslands er þar í broddi
fylkingar með mjög merka og
ágæta sýningu á myndlist hins
heimskunna listamanns Karel
Appels. Þessi sýning er mikill
viðburður í listalífi hér á landi,
og má telja víst, að öllu betri og
skemmtilegri sýning hafi ekki
áður verið hér á ferð eftir lista-
mann af þeim skóla, sem Appel
er af. Hann er djarfur og ákveð-
inn i safamiklum verkum sínum
og hann notar jöfnum höndum
olíu, akrýl, og önnur efni til að
koma persónuleika, sem er
óvenju frjór og hress, á fram-
færi. Þarna er maður á ferð, sem
á einkar brýnt erindi til okkar
eins og stendur, og þessi sýning
er verulegt innlegg til að skilja
og komast í snertingu við það,
sem nú er efst á baugi í hinu
svokallaða nýja málverki. Það er
þegar búið að kynna Appel hér á
síðum blaðsins, og er því óþarft
að fjölyrða um manninn og list
hans. Þessar línur eru aðeins til
að undirstrika það, sem þegar
hefur verið sagt, en auðvitað
fyrst og fremst til að benda fólki
á að láta slíkan viðburð ekki
framhjá sér fara. Listasafnið á
miklar þakkir skilið fyrir að fá
slíka sýningu, sem raunverulega
er einn af meginatburðum þess-
arar listahátíðar. Það verður
enginn svikinn af að kynnast við
verk Karel Appels.
I Norræna húsinu er einnig
frábær sýning eftir hinn unga og
þekkta finnska málara Juhani
Linnovaara. Hér er á ferð ágæt-
ur teiknari og litamaður. Hann
er ádeilulistamaður og vinnur
verk sín af mikilli tækni og
kunnáttu. Linnovaara er einkar
sérstæður og notar ríkt myndm-
ál, sem ég held, að flestir lesi
nokkuð ljóst úr verkum hans.
Þetta er óvenjuleg sýning og er
nýjung í listalífi hér í sveit.
Hann er óvæginn í skoðunum, en
notar allt að því akademísk ráð
til að koma skoðunum sínum
áleiðis til fólks. Ég hafði mikla
ánægju af að skoða þessi verk,
og satt að segja kom þessi sýn-
ing mér nokkuð á óvart. Ég efa,
að framlag Norræna hússins
hefði getað verið betra en raun
ber vitni.
Barna-
hljóð
á tón-
leikum
— eftir Ásdísi
Magnúsdóttur
Ég einhvern veginn get ekki
annað en sett nokkur orð á blað
vegna gagnrýni Sigurðar
Sverrissonar um tónleika
söngkonunnar Netanelu í Nor-
ræna húsinu þann 10. júní á
vegum Listahátíðar.
Jú, það er mikið rétt að hún
söng sig inn í hjörtu allra sem
til hennar heyrðu, líka í mitt
hjarta og sonar míns.
Sigurður kallar það undar-
lega áráttu fólks að koma með
ung börn á tónleika sem þessa,
ef ekki sem þessa, þá hvað?
Er ekki eðlilegt á hvíta-
sunnudegi klukkan 15 að for-
eldrar komi með börn sín á
þjóðlagatónleika, til að þau fái
einnig að njóta listarinnar, á
Listahátíð?
Hvergi var þess getið að
börnum væri óheimill aðgang-
ur. Því stöðvaði miðasölukonan
okkur ekki, en ég keypti miða
við innganginn?
Það var ánægjulegt að sjá
þarna fleiri börn sem líka
höfðu gaman af tónleikunum,
en heldur þykir mér leiðinlegt
að syni mínum sé kennt um öll
barnahljóð sem þarna heyrð-
ust. Til að forðast misskilning
vorum við ekki viðstödd auka-
tónleika Akerströms.
Og þetta með augnagoturn-
ar, slíku tek ég aldrei eftir.
Ásdís Magnúsdóttir er listdansari
og móöir.
Dagskrá
Listahátíð-
ar í dag
Kl. 20:30 Bústaðakirkja:
Tónleikar.
Músíkhópur-
inn undir
stjórn Einars
Jóhannesson-
ar, klarinettu-
leikara.
Kl. 20:30 Félagsstofnun
stúdenta:
Brúðuheimilið.
Gestaleikur
færeyska
Norræna
Hússins. Síð-
ari sýning.
Ódyrustu grillkolin í bænum
■ Ármúla 1a og Eiðistorgi 11,
s. 686111
Pressuð
kol — 3 kg á