Morgunblaðið - 15.06.1984, Side 29

Morgunblaðið - 15.06.1984, Side 29
MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 15. JÚNl 1984 29 Unglingarnir sem unnu til verðlauna á hátíðinni. Myndin er tekin fyrir utan menningarmiðstöðina Gerðuberg. Ljósm. J. Long. Frá sýningu eins leiklistarhópsins. Ljósm. Mbl. KÖE. Frá myndbanda- og kvikmyndasamkeppninni. Ljósm. Mbl. KÖE. er best að setja með rótunum og helst vel undir í holuna, húsdýra- áburð sem staðið hefur í haug að minnsta kosti vetrarlangt eða lengur. Áburðurinn má ekki vera of nýr, þá getur hann valdið rót- arskaða. Blanda þarf áburðinum sem best saman við moldina. Fyrst og fremst má mæla með gömlu sauðataði, næst því gengur gömul mykja, síðan palladriti frá hænsum og að lokum hrossataði, sem hefur einna minnst áburðar- gildi, en gerir þó sitt gagn til að bæta jarðveginn og er nokkur vörn við holklaka. Hyggilegt er að forðast allan til- búinn áburð, einkum þar sem gróðursett hefur verið í lyngmóa. Hægt er að tefja fyrir grasinu með því að útbúa spjöld úr tjörupappa og setja með trjástofninum, einnig mætti nota svartan plastdúk. Byrgja þarf slikar yfirbreiðslur með steinvölum eða sandi, svo norðanvindurinn feyki þeim ekki yfir Snæfellsnesfjallgarðinn. Svar 2.: Hvorki blaðlús né trjá- maðkur ferðast af sjálfsdáðum milli plantna. Hugsanlegt er hinsvegar, ef tré og runnar standa þétt, að grinar sláist saman i golu, að þá geti óværan borist á milli. Svar 3.: Mest af þeim gróðri sem vaxið hefur upp á siðustu 30 árum í Öskjuhlíðinni hefur verið gróð- ursett þar af þeirri stærð sem við almennt gefum þá aðgreiningu að kalla skógarplöntur og eru sjaldn- ast stærri en eitt fet á hæð, en oft lágvaxnari. Ungmenni hafa alla jafna unnið að gróðursetningu og umhirðu. Nær eingöngu hafa hol- ur fyrir plönturnar verið gerðar með svonefndum plöntuhökum og ætíð settur lífrænn áburður með plöntunum við gróðursetningu. Mesta hættan fyrstu árin hefur verið sú, að holklaki losaði um plönturnar og jafnvel að þær lægju flatar með rótina upp úr jörð fyrstu vorin. Það hefur því verið fyrsta verkið á vorin, að stíga jarðveginn niður með plönt- unum og koma þeim plöntum fyrir á ný í moldinni, sem flatar hafa legið. Vörn er í því að bera grófan sand meðfram plöntunum þar sem holklakahættan er mest og siðan að setja hrossatað eða annan létt- an áburð yfir, bæði sem einangrun og jarðvegsbót. Fyrstu árin eftir útplöntun hefur húsdýraáburður verið settur með plöntunum, þó ekki að sömu plöntunum árlega. Látið nægja að bera á með þriggja eða fjögurra ára millibili og síðan hætt öllu' dekri, eftir að goður vöxtur er orðinn og sýnt að plönt- urnar muni spjara sig. Fyrstu árin hefur þess ennfrem- ur verið gætt, að gras nái ekki að kæfa ungplönturnar og hefur það verið reytt frá þeim, þar sem það hefur þurft. Nýgenginn Hvítárlax Hátíðarsteik

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.