Morgunblaðið - 15.06.1984, Side 32

Morgunblaðið - 15.06.1984, Side 32
OPIÐ ALLA DAGA — ÖLL KVÖLD AUSTURSTRÆTI22 INNSTRÆTI, SIMI 11340 OPIÐALLA DAGA FRA KL. 11.45 - 23.30 AUSTURSTRÆTí 22 INNSTRÆTI, SIMI 11633 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. Verðkönnun á matsölustöðum: Verðmunur var allt að fjórfaldur GRÍÐARLEGUR mismunur er á verðlagi veitingahúsa á landinu. Er munurinn allt að fjórfaldur á sömu réttum. Mestur er verðmunur á drykkjarvörum og á það bæði við um staði, þar sem þjónað er til borðs og eins hina, þar sem er sjálfsaf- greiðslufyrirkomulag. Þá er og áber- andi, að fæstir matsölustaðir hafa verðlista á áberandi stað við inn- göngudyr eins og þeim ber að gera. Verðlagsstofnun mun á næstunni fylgja því eftir að slíkt verði gert. Þetta kom fram í verðkönnun á matsölustöðum, sem Verðlags- stofnun gerði á 89 veitingastöðum á höfuðborgarsvæðinu, ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum og Sauðár- króki um miðjan maí sl. Könnunin er birt í dag í heild á fjórum síðum í Morgunblaðinu og að auki í 6. tölublaði Verðkynningar Verð- lagsstofnunar. Nær birtingin til 57 staða, sem seldu a.m.k. helming þeirra rétta, er spurt var um. Birt er verð á 24 stöðum, þar sem þjón- Akurnesingar leggja togurum sínum 8. júlí Sjálfhætt hjá mörgum hér, segir for- maður Útvegsmannafélags Reykjavíkur ÚTGERÐARMENN á Akranesi ákváðu á fundi sínum í gærmorgun að leggja togaraflota Skagamanna 8. júlí næstkomandi hafi þá ekki verið sköp- uð viðunandi rekstrarskilyrði fyrir út- gerðina í landinu. Lýstu Skagamenn eindregnum stuðningi við ályktanir út- vegsmanna á Austfjörðum í þessu sam- bandi en þeir hafa sem kunnugt er ákveðið að sigla öllum flotanum í land 24. þessa mánaðar hafi rekstrargrund- völlur útgerðarinnar ekki verið tryggð- ur. Fjórir togarar eru gerðir út frá Akranesi. „Það er ekki um annað að ræða og í rauninni hefði átt að taka þessa ákvörðun miklu fyrr,“ sagði Finnur Sigurgeirsson, formaður Otvegs- mannafélags Akraness, í samtali við blaðamann Mbl. í gærkvöld. „Hér, eins og víðar, er allt rekið með bull- andi tapi og útgerðarkostnaðurinn heldur áfram að hækka. Síðan fisk- verð var seinast ákveðið hefur til dæmis orðið hækkun á launum og veiðarfærum og svo er olíuhækkun að koma inn á borðið. Skuldbreyt- ingin er ekki komin í gang og mun hvort eð er ekki leysa vandann enda er þar verið að skuldbreyta uppsöfn- uðum vanda." Útgerðarmenn í Reykjavík, sem einnig héldu fund í gær, komust að þeirri niðurstöðu að ekki væri grundvöllur fyrir samræmdar að- gerðir af þeirra hálfu að svo stöddu. Ýmsir þeirra lýstu þó þungum áhyggjum sínum vegna stöðu út- gerðarinnar og nokkrir sögðust ekki vita hvort þeir gætu haldið áfram mikið lengur, allt væri að sigla í strand, að því er dr. Jakob G. Sig- urðsson, formaður Útvegsmannafé- lags Reykjavíkur, sagði í samtali við blaðamann Mbl. Útvegsmenn á Suðurnesjum sátu á fundi í gærkvöld og ræddu ástand- ið. Þeim fundi var ekki lokið þegar blaðið fór í prentvinnslu. að er ti! borðs að fullu og 33 stöð- um, þar sem ekki er þjónað til borðs eða aðeins að hluta. „Vissir erfiðleikar eru fólgnir í að gera verðkönnun á matsölu- stöðum," segir í athugasemdum Verðlagsstofnunar. „Réttir með sama heiti eru mismunandi eftir veitingastöðum hvað snertir magn, samsetningu og gæði. Auk þess er þjónusta misgóð og inn- réttingar og umhverfi með ýmsum hætti. Öll geta þessi atriði haft áhrif á verðið en í könnuninni er ekki lagt mat á slíkt, heldur er eingöngu um að ræða kynningu á verðlagi matsölustaðanna." Á veitingastöðum, þar sem ekki er þjónað til borðs, munaði mestu á verði á skinku með 2 eggjum og ristaðri brauðsneið. Lægsta verðið var í Uxanum í Glæsibæ í Reykja- vík, 50 krónur, en hæst í Vala- skjálf á Egilsstöðum, 210 krónur, eða rúmlega fjórfalt. Á veitinga- stöðum, þar sem þjónað er til borðs munaði mestu á drykkjar- vörum. Mjólk kostar t.d. 7 krónur á City Hotel í Reykjavík en 34 krónur í Sælkeranum í Reykjavík. Það er nærri fimmfalt hærra verð. Gosdrykkir kosta 21 krónu á City Hotel en rúmlega þrefalt meira á Hótel Loftleiðum og Hótel Sögu eða 66 krónur. Sjá nánar um verðkönnun Verð- lagsstofnunar á bls. 47—50 í blað- inu í dag. ÍHMMi *v >..».•„«111 «1» -3& t ii tfintfni sr Ljósm. Mbl./ Emilía. Lœknar á traustum kili Seglskútan Kirsten, sem læknar komu á til læknaþings, við síðu skips við Ægisgarð. Skútan er um 17 metrar á lengd og er mastur hennar 21,80 metrar. Mestur hraði skútunnar er 17—18 sjómflur á klukku- stund. Samstarfið í ísfílm var harmað á aðalfundi SÍS Afgreiðslu skipulagsmála frestað í eitt ár Bifröst, 14. júní. Frá Agnesi Bragadóttur, hlaðamanni Morgunblaðsins. ÞÁTTTAKA Sambandsins í ísfilm varð eitt aðalumræðu- efnið á aðalfundi SÍS í dag og var þátttakan gagnrýnd mjög af fjölmörgum full- trúum, einkum vegna sam- starfsaðilanna Árvakurs hf. og Frjálsrar fjölmiðlunar hf., sem fulltrúarnir sögðu höfuð- andstæðinga Samvinnuhreyf- ingarinnar. Umræður um þetta mál stóðu fram undir klukkan 20, en þá var sam- þykkt með 56 atkvæðum gegn 5 ályktun um að miður væri farið, að þetta samstarf var tekið upp og lagt til að leitað verði eftir samstarfi á þessu sviði við samtök launa- fólks og bænda. Rétt til atkvæðagreiðslu höfðu 117 fulltrúar. Fyrir hádegið lauk umræðum um landbúnaðarmál og í kvöld voru skipulagsmálin á dagskrá. Eftir mjög harðar umræður var samþykkt með 58 atkvæðum gegn 46, tveir seðlar voru auðir, að fresta afgreiðslu skipulagsmál- anna í eitt ár og stjórn Sambands- ins falið að endurskoða málið og ljúka þeirri endurskoðun fyrir 1. apríl nk. Að þessu loknu hófst stjórnar- kjör og átti að kjósa 3 aðalmenn og 2 varamenn. Laxastigi úr plasti í Glanna? VEIÐIFÉLAG Norðurár í Borgar- firði og leigutaki laxveiðinnar þar, Stangaveiðifélag Reykjavíkur, eru nú að athuga með kaup á sérstök- um laxastigum úr harðplasti með það fyrir augum að koma slíkum stiga fyrir í fossinum Glanna. Fossinn Glanni hefur löngum verið laxinum erfiður uppgöngu, en í venjulegu árferði kemst þó talsvert af fiski upp hann og gengur áfram, langt fram í dal. Sumarið 1983 voru vatnavextir hins vegar slíkir, að laxinn komst alls ekki fram eftir og veiddust þar aðeins 7 laxar, miðað við 200 til 300 að meðaltali undir venju- legum kringumstæðum. Félögin tvö hafa haft uppi fyrirspurnir hjá fyrirtæki í Tromsö, en laxastigar af því tagi sem um er að ræða eru færanleg- ir. Munu báðir aðilar hafa á því áhuga að geta tekið stigan upp úr að hausti og sett hann aftur niður að vori. Þá munu stigar af þessu tagi ekki breyta ásjónu fossins eins og hinir hefðbundnu laxastigar gera gjarnan. t Buslað á Varmalandi Morgunblaðið/ HBj. í sumar rekur Ungmennafélag Stafholtstungna sundlaugina að Varma landi í Borgarfirði eins og undanfarin sumur. Sundlaugin er mikið sótt af ferðafóiki og sérstaklega af fólki sem dvelur í hinum fjölmennu sumarbústaðabyggðum í nágrenninu. Myndin var teKÍn um Hvíta- sunnuhelgina og var þá mikið buslað í lauginni að vanda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.