Morgunblaðið - 07.09.1984, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 07.09.1984, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1984 AF INNLENDUM VETTVANGI AGNES BRAGADÓTTIR Electran, sem Arnarflug keypti af Iscargo, reyndist Arnarflugi fjárhagslega þung í skauti. Eru Flugleiðir að sölsa undir sig Arnarflug? í dag, fóstudaginn 7. september, rennur út frestur hluthafa í Arnarflugi hf. til þess að tilkynna hvort þeir hyggist nota sér forkaupsrétt að hlutabréfum þeim sem enn eru óseld, eftir að hlutafjáraukning samtals 40 milljónir króna, var ákveðin í stjórn Arnarfhigs, fyrr í sumar. Stærsti hluthafinn, Flugleiðir hf., sem þegar í ágústmánuði nýtti sér forkaupsrétt að 40% bréfa hlutabréfaaukningarinnar, fyrir samtals um 16 milljónir króna, hefur ákveðið að neyta cinnig forkaupsréttar síns að 40% þeirra tæpu 10% sem óseld voru. Það jafngildir því að Flugleiðir þurfa að leggja út tæp 400 þúsund að auki. Hefur þessi ákvörðun Flugleiða mælst afskaplega misjafnlega fyrir, að ekki sé meira sagt. Má ætla að hún hljóti lítinn hljóm- grunn meðal almennings í land- inu, þar sem þeirri skoðun vex stöðugt fiskur um hrygg, að félög- in tvö eigi að vera algjörlega að- skilin — þau eigi að stunda heil- brigða samkeppni, þar sem það á við og heilbrigða samvinnu, þar sem því verður viðkomið, sem tveir ótengdir flugrekstraraðilar. Síðast í ágústmánuði sagði for- sætisráðherra landsins, Stein- grímur Hermannsson meira að segja að hann teldi nú að Flugleið- ir ættu með öllu að hverfa úr Arn- arflugi. Hann hefði haft aðra skoðun á málinu áður fyrr, en nú væri hann kominn að þeirri niður- stöðu að ekki væri grundvöllur fyrir heilbrigðri samkeppni, á meðan að Flugleiðir hefðu jafn mikil ítök í Arnarflugi og þær hafa í dag. Forsætisráðherra sagðist telja að Flugleiðir gætu með setu sinna manna í stjórn Arnarflugs fylgst með öllum ákvarðanatökum félagsins, og haft áhrif þar á að vild, en það sagði hann ekki vera eðlilegt, þeg- ar um samkeppni tveggja aðila í samskonar rekstri væri að ræða. Þar að auki hafa menn bent á, að það skjóti nokkuð skökku við að Flugleiðir vilji nú fjárfesta á nýj- an leik í Arnarflugi, og auka eign- araðild sína, eftir að hafa afskrif- að allan hlut sinn í félaginu um síðustu áramót. Þetta segja menn vera beina vísbendingu um að Flugleiðir vilji fjárfesta í Arnar- flugi, með það eitt fyrir augum að halda áhrifum sínum í stjórn fé- lags sem er eini keppinautur Flugleiða hér á landi. Sömu menn segja að með því að auka enn við eign sína í Arnarflugi, með kaup- um á þeim 3,7% sem þær hafa nú ákveðið að kaupa, opinberi Flug- leiðir það markmið sitt að þær vilji ná undirtökunum í Arnar- flugi, og stefni að meirihlutaeign í félaginu. Það sé að minnsta kosti augljóst að Flugleiðir hyggist í framtíðinni reyna að ráða yfir at- kvæðismagni virks meirihluta. Talsmenn Flugleiða hafa aftur á móti sagt að nú séu bjartari horf- ur framundan hjá Arnarflugi, og það sé því síður en svo óskynsam- leg fjárfesting fyrir Flugleiðir að fjárfesta í Arnarflugi á nýjan leik. Þeir sem hafa samúð með málstað Flugleiða í þessu máli benda á að það sé óréttmætt að skoða dæmið Flugleiðir-Arnarflug aðeins í Ijósi dagsins í dag. Til þess að geta séð keppinautana í réttu ljósi, verði að skoða sam- skipti félaganna frá upphafi — þ.e.a.s. frá 1978, þegar Flugleiðir gerðust hluthafi í Arnarflugi að ósk þáverandi framkvæmdastjóra og eigenda meirihluta Arnarflugs. Keyptu 57,5% hlutafjár í Arnardugi 1978 Arnarflug var stofnað vorið 1976 og var yfirlýst markmið fé- lagsins að stunda „óreglubundið atvinnuflug án landfræðilegra takmarkana". Félagið var stofnað af þeim sem verið höfðu starfs- menn Air Viking, sem þá var gjaldþrota fyrirtæki, og starfs- mennimir fengu Olíufélagið hf í lið með sér, en það var stór kröfu- hafi á Air Viking. Ekki fór rekst- Arnarflug þurfti mikið að endurbæta skúradraslið á Reykjavíkurflugvelli, sem var innifalið í Iscargo-pakkanum margumtalaða. Hér er innanlandsafgreiðsla Arnarflugs til húsa nú. urinn allt of blómlega af stað, því félagið keypti þrjár gamlar vélar af Air Viking, tvær voru ekki einu sinni í flughæfu ástandi. Verður rekstrarsaga félagsins ekki rakin hér í smáatriðum, en fyrstu tvö árin skiptust á skin og skúrir í rekstri félagsins. Þá var það fyrir tilhlutan framkvæmdastjóra Árn- arflugs, Magnúsar Gunnarssonar og meirihlutaeigenda félagsins, þriggja SÍS félaga, Olíufélagsins, Olíustöðvarinnar í Hvalfirði og Regins hf. sem áttu samtals 57,9% í Arnarflugi, að þess var farið á leit við Flugleiðir að þær „kæmu inn í myndina". Leiddu viðræður aðila sumarið 1978 til þess að Flugleiðir keyptu þá um haustið óseld hlutabréf í Arnarflugi fyrir 44 milljónir (gamlar krónur að sjálfsögðu) og auk þess keyptu Flugleiðir hlutabréf af SÍS fyrir- tækjunum fyrir sem svaraði 25 milljónum gömlum, og greiddu fyrir með hlutabréfum í Flugleið- um. Heildarhlutafé í Arnarflugi á þessum tíma var 120 milljónir gamalla króna, þannig að Flug- leiðir áttu eftir þessi kaup 57,5% hlut í félaginu. Einn viðmælenda minna, sem gjörþekkir sögu Arnarflugs og rekstur allan, sagði m.a. um til- komu Flugleiða í Arnarflugsrekst- urinn: „Menn voru ekkert að gef- ast upp, þrátt fyrir mjög erfiða stöðu á þessum tíma. Það var ein- faldlega talið að samvinna á ákveðnum sviðum væri betri en eitilhörð samkeppni. Æskilegt væri að félögin fengjust tii þess að vinna saman á ákveðnum sviðum. Menn töldu slíka samvinnu vera lykilinn að því að félögin gætu aukið markaðshlutdeild sína er- lendis. Því var markmiðið m.a. með þessu, að vinna saman að viðhaldmálum, afgreiðslumálum, markaðsöflun og samnýtingu flugvéla. Samstarfið gekk líka mjög vel framan af, þegar félögin sameinuðst í markaðssókn erlend- is, samnýttu flugvélakost og voru með sameiginlegt viðhald." Talsmaður Flugleiða segir eftir- farandi um upphaf þátttöku Flugleiða í Arnarflugi: „Þegar Flugleiðir komu inn í rekstur Arn- arflugs 1978, þá var það gert af fullum heilindum. Það voru aldrei neinar hugmyndir uppi um það að leggja niður félagið, eða nokkuð i þá veru. Við aðstoðuðum Arnar- flug við reksturinn á margan hátt, svo sem með viðhalds- og fjar- skiptaþjónustu og fleira, og það gekk m.a.s. svo langt, að mörgum starfsmönnum Flugleiða fannst sem verið væri að taka atvinnu- tækifæri frá sér og afhenda Arn- arflugi á silfurbakka." Hitna tekur í kolunum 1980 Flugleiðamenn segja að það sitji enn í fjölmörgum innan Flugleiða, að þeir telji að Arnarflugsmenn hafi komið aftan að sér, þegar þá síst varði. Þar eiga þeir við erfið- leikatímabil Flugleiða, 1979 og 1980, en þá áttu Flugleiðir í mikl- um erfiðleikum með reksturinn, Norður-Atlantshafsflugið, inn- anhússvandamál ýmiskonar voru varðandi starfsmannahald, og heldur stirt samband var á milli stjórnar Flugleiða og stjórnvalda. Segja Flugleiðamenn það hafa verið mjög ómaklega framkomu af Arnarflugsmönnum að krefjast þess þá að Flugleiðir seldu starfs- mönnum Arnarflugs sinn lilut í Arnarflugi, en ríkið setti það sem skilyrði við Flugleiðir, til þess að ríkisábyrgð væri veitt vegna erfið- leika við Norður-Atlantshafsflug- ið. Arnarflugsmenn segja aftur á móti, að væringar hafi byrjað á milli félaganna vegna erfiðleika hjá Flugleiðum. Sundurþykkja og afbrýðisemi hafi blossað upp á báða bóga, en einkum hafi borið á því að Flugleiðamenn hafi talað um að Arnarflugsmenn fengju stærri bita af flugkökunni en þeim bæri með réttu. Segja Arnar- flugsmenn að þúfan sem hafi velt hlassinu í þessu sundurþykkju- máli hafi raunar verið undirritun Flugleiðamanna á kjarasamningi við flugmenn Flugleiða eftir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.