Morgunblaðið - 07.09.1984, Side 39
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1984
HVAB ER AÐ GERAST UM HELGINA?
TÓNLIST
Félagsstofnun:
Leo Smith
Bandarískl trompetleikarinn Leo
Smith heldur tónleika í Félags-
stofnun stúdenta viö Hringbraut á
morgun kl. 17.30. Leo Smith hóf
trompetnám áriö 1955 og hefur
samiö mörg tónverk. í Félags-
stofnun á morgun leikur hann
nokkur verka sinna, auk þess sem
hann ræöir um tónsmíöar sínar og
jazzmálefni.
MYNDUST
Ásmundarsalur:
, Ágústa
Ágústsson
Ágústa Ágústsson heldur nú
sýningu í Ásmundarsal viö Freyju-
götu. Sýning þessi nefnist Bréf til
Þríbúðir:
Helgi Vopni
Helgi Jósefsson Vopni heldur nú
myndlistarsýningu í Þríbúöum aö
Hverfisgötu 42. Á sýningunni eru
43 myndlistarverk, þar af 12 ætluð
blindu fólki. Helgi lauk námi viö
Myndlista- og handíöaskólann árió
1974 og er sýningin í Þríbúöum 10.
einkasýning hans. Hún er opin frá
kl. 16—22 í dag og frá kl. 14—22
um helgina, en henni lýkur á '
sunnudag.
Atelier 585:
Ófeigur Björnsson
Ófeigur Björnsson, gullsmiöur,
heldur nú sýningu á verkum sínum
í galleríinu Atelier 585 í Helsinki.
Sýningin er önnur einkasýning
Ófeigs og ber nafniö Instinkt.
Ófeigur hefur einnig tekiö þátt í
samsýningum og á nú m.a. verk á
farandsýningunni Form Island. Á
Listamiðstöðin:
Italia in Islanda
ITALIA in Islanda nefnist sýning, sem opnuö veröur á morgun i Lista-
miöstööinni viö Lækjartorg. Á sýningunni eru grafíkverk, vatnslita-
myndir, silkiþrykkmyndir og verk unnin meö upphleyptri aöferö, „re-
lievografia”, eftir 13 listamenn, sem starfa í Mílanó á Ítalíu. Flest
verkin á sýningunni eru eftir Giovanni Leombianchi, sem málaö hefur
margar myndir hér á landi. Giovanni hefur þróaó sitt eigiö myndræna
„stafróf, sem hann nefnir umhverfisstafrófiö. Eitt tákn er fyrir hvert af
frumefnum jaröarinnar og er þetta tema í öllum myndum hans. Þá er
og ein mynd eftir hvern hinna 12 listamanna og vinna þeir allir myndir
sínar í kringum tölustafinn sjö. Sýningin er opin daglega frá kl.
14—22, en henni lýkur sunnudaginn 16. september.
í minni sal Listamiöstöðvarinnar veröur opnuö á morgun myndleiga
og sala á grafíkmyndum og teikningum.
islands og eru á henni 20 pastel-
myndir af íslensku landslagi, auk
14 veggspjalda, sem Ágústa hefur
unniö fyrir fyrirtæki og stofnanir í
Bandaríkjunum, þar sem hún er
búsett. Sýning Ágústu í Ásmund-
arsal stendur til mánudags og er
opin frá kl. 16—22 virka daga og
frá kl. 14—22 um helgar.
Gallerí Borg:
Karen Agnete
Karen Agnete Þórarinsson, list-
málari, sýnir nú olíumálverk i Gall-
erí Borg viö Austurvöll. Þetta er
fyrsta einkasýning Karenar hér á
landi, en hún hefur tekiö þátt í
mörgum samsýningum hér, t.d.
meö manni sinum, Sveini Þórar-
inssyni, listmálara. Verk þau, er
Karen Agnete sýnir nú, eru máluö
á árunum 1980—1984.
sýningunni í Helsinki sýnir Ófeigur
verk sem hann nefnir myndklæöi,
sem er tilraun til aö samræma ým-
is sjónarmiö gullsmíöalistar og
myndlistar. Auk þess sýnir hann
litlar veggmyndir og frjálsa skúlpt-
úra.
Glervinir og
glerblástur
Fjórir glerlistamenn halda nú
sýningu í vesturgangi Kjarvals-
staöa og nefnist hún „Stefnumót
glervina“. Þaö eru íslendingarnir
Sören Larsen og Sigrún Ó. Ein-
arsdóttir og Danirnir Tchai Munch
og Finn Lynggaard, en dönsku
glerlistamennirnir reka saman
glerverkstæöi í Ebeltoft á Jótlandi.
Listamennirnir munu blása gler
fyrir opnum dyrum í glerverkstæö-
inu í Bergvík á Kjalarnesi á sunnu-
dag, 9. september, kl. 13.30—17,
en sýningunni lýkur 16. septem-
ber.
Þrastarlundur:
Árni frá Selfossi
j veitingaskálanum Þrastarlundi
viö Sog stendur nú yfir sýning á
verkum Árna Guömundssonar frá
Selfossi. Á sýningunni, sem er 2.
einkasýning Árna, eru vatnslita- og
olíumyndir. Sýningin stendur til 16.
september.
Listmunahúsið:
Karl Kvaran
Karl Kvaran, listmálari, heldur
nú sýningu í Listmunahúsinu,
Lækjargötu 2. Á sýningunni, sem
er fyrsta einkasýning Karls frá
1979, eru tuttugu olíumálverk. Hún
er opin virka daga, nema mánu-
daga, frá kl. 10—18 og um helgar
frá kl. 14—18. Sýningunni lýkur á
sunnudag.
Kjarvalsstaðir:
Septem ’84
í vestursal Kjarvalsstaöa stend-
ur nú yfir sýning Septem-hópsins
svonefnda, en þaö eru Valtýr Pét-
ursson, Kristján Davíösson, Jó-
hannes Jóhannesson, Guðmunda
Andrésdóttir og Þorvaldur Skúla-
son, sem öll sýna málverk. Guö-
mundur Benediktsson, mynd-
höggvari, er sérstakur gestur sýn-
ingarinnar. Septem-hópurinn hefur
undanfarin 12 ár haldiö sýningar á
Kjarvalsstööum aö hausti til.
Ásgrímssafn:
Sumarsýning
Árleg sumarsýning Ásgríms-
safns viö Bergstaöastræti stendur
til 15. september. Á sýningunni eru
olíu-og vatnslitamyndir, m.a. nokk-
ur stór málverk frá Húsafelli og
olíumálverk frá Vestmannaeyjum
frá árinu 1903, en þaö er eitt af
elstu verkum safnsins.
Sýningin er opin á sunnudögum,
þriöjudögum og fimmtudögum frá
kl. 13.30—16.
Listasafn Einars
Jónssonar:
Sýning í safna-
húsi og högg-
myndagarði
Listasafn Einars Jónssonar hef-
ur nú veriö opnaö eftir endurbæt-
ur. Safnahúsiö er opiö daglega,
nema á mánudögum, frá kl.
13.30—16 og höggmyndagaröur-
inn, sem í eru 24 eirafsteypur af
verkum listamannsins, er opinn frá
kl. 10—18.
Kjarvalsstaðir:
Árni, Daöi,
Kristján og Tumi
Listamennirnir Árni Ingólfsson,
Daöi Guöbjörnsson, Kristján
Steingrimur og Tumi Magnússon
opna á morgun sýningu í Kjarv-
alssal. Á sýningunni eru myndverk
af ýmsu tagi, olíumálverk, skúlpt-
úrar og grafík.
Norræna húsið:
Hjálmar Þorsteinsson
HJÁLMAR Þorsteinsson opnar á morgun málverkasýningu í Norræna
húsinu. Á sýningunni, sem er sjöunda einkasýning Hjálmars, eru
oliumálverk og vatnslitamyndir, málaöar í Danmörku og á Krít. Sýning
Hjálmars hefst á morgun kl. 14 og veröur opin daglega frá kl. 14—22.
Hún stendur til 23. september.
Gallerí Langbrók:
Ragna Ingimundar-
dóttir
RAGNA Ingimundardóttir opnar á morgun keramiksýningu í Gallerí
Langbrók. Ragna lauk prófi frá keramikdeild Myndlista- og handíöa-
skóla islands árió 1981 og stundaöi framhaldsnám vió Gerrit Rietveld
Academi í Hollandi árin 1982—1984. Sýning Rögnu í Gallerí Langbrók
er fyrsta einkasýning hennar, en hún hefur áöur tekiö þátt í samsýn-
ingum. Sýningin er opin frá kl. 12—18 virka daga og frá kl. 14—18
um helgar. Hún stendur til 23. september.