Morgunblaðið - 07.09.1984, Side 38

Morgunblaðið - 07.09.1984, Side 38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1984 37 unni í sambandi við afstööu karla — velta fyrir mér karlr- embuskoöunum þegar kynvilla er annars vegar. Merkilegt nokk, þeir sem virkilega eru haldnir karlrembu eru nefni- lega alls ekki fjarri því aö vera kynvilltir. Þvert á móti. Andrúmsloftið í búningsklefanum áöur en þeir stökkva út á völlinn til að vinna leikinn er þrungið spennu. Skrýtiö aö þetta skuli Ijúkast upp fyrir manni þegar litiö er um öxl eftir öll þessi ár. i Tough Guys þótti mér fyndnast þegar lögregl- uforinginn sýndi sögumanni bréfiö sem hann fann í fórum hins látna — kynvillingsbréfiö — og þeir eru báöir aö lesa þaö og báöum er fariö aö rísa hold án þess aö þeir kæri sig um þaö. Andrúmsloftiö á milli þeirra er svo ofbeldiskennt þegar þeir eru búnir að lesa bréfiö aö þaö liggur við sprengingu. Fyndiö — svo veröur ekki neitt úr neinu. Þeir springa ekki. CP: Eins og þeir héldu á snifsi af notuöum klósettpappír. NM: Já, þeir sögöu þaö. En þaö er eins og þeim standi út af notuöum klósettpappír og þaö er ennþá ferlegra. Svo er líka kynvillingur í Tough Guys og hann er ekki sem verstur þótt hann sé ferlegur. Hann er ekkert ferlegur af þvi aö hann er kynvillingur, hann er bara ferlegur. Hann er ótrú- lega dekraöur ríkur strákur en mér fannst hann samt aölaö- andi aö sumu leyti. Mér fór aö líka betur og betur viö hann. Hann var skemmtilega hreinskillnn eins og margir kynvill- ingar. Ég er ekki aö halda því fram aö ég bókstaflega dýrki kynvillinga. Ég held aö þaö sé hætta í því fólgin aö vera kynvillingur, m.a. af því aö sambönd þeirra veröa oft eins og hringur sem engan enda tekur. Ég sá Torch Song Tril- ogy um daginn og fyrsti þáttur var hreinasta snilld, frábær leiklist. En í öörum þætti hugsaöi ég: „Ef þessir fjórir menn veröa stundinni lengur í þessu risarúmi þá er ég sko búinn aö fá nóg. — Ekki af því aö þessi samskipti væru ógeðfelld heldur af því aö maöur læsist inni í hringnum og veröur þrúgaöur af leiöindum og þeirri tilfinningu aö sífellt sé veriö aö fara í sama hringinn þar sem er rifizt og sætzt og rifizt og sætzt. Maöur fær þaö á tilfinninguna aö maöur sé eins og padda inni í sigurverki og sé aö reyna aö losa sig út úr fjöörunum. Þannig er kynvilla í sinni verstu mynd. Mér skilst að þriöji þátturinn í Torch Song Trllogy þar sem leikurinn er aftur oröinn aöalatriöi sé mjög góöur. Ég gekk út áöur en þriöji þáttur hófst þrátt fyrir frammistööu Harvey Fiersteins. Ég á viö þaö aö kynvilla er hrtfandi þar til hún hættir aö vera þaö og hún hættir aö vera þaö um leiö og samböndin byrja aö fara í hring. Ég held aö viö sem lifum á 20. öldinni verðum sífellt meirl sjálfsdýrkendur. Ekkl þannig aö viö elskum okkur sjálf meira og meira. Ég skilgreini sjálfsdýrk- un sem sálarástand þar sem maður er i nánara sambandi viö sjálfan sig en umheiminn. Flest veröum viö á endanum sjálfsdýrkendur sem elska aöra sjálfsdýrkendur af því aö viö veröum aö lokum eins og tveir samhljóma kristallar. Ástarsambönd sjálfsdýrkenda geta oröiö mjög ástríöufull af því aö þau bjóöa upp á samhljómun. CP: Hvort sem kynvillingar eöa aðrir eiga í hlut? NM: Já, þeir sem ekki eru kynvilltir eru alveg eins miklir sjálfsdýrkendur og hommar. Þegar kynvillingar eignast börn veitir þaö lífi þeirra ekki nýjan grundvöll en þaö rýfur hringrás sambandsins. Barn er komið inn í myndina og sambandiö er ekki lengur þaö sem þaö var. Barniö vex og breytist. Ameríka og Rússland eru fullkomin kæmi um hringrásarsamband sjálfsdýrkenda á heimsmælikvaröa. í þrjátíu ár hefur ekkert nýtt gerzt í og hryllilega leiöinlegt og hatursfullt hjónaband þar sem fólkið er aö kæfa hvort annaö. Þaö endar meö því aö viö setjum okkur á hausinn til aö geta ráöiö viö Rússa og þeir sitja uppi meö sín van- þróuöu lífskjör um áratugi. Þessar þjóöir eru aö grafa hvor undan annarri. Setjum sem svo aö Kínverjum vegni vel næstu 50 ár og þeim takist aö koma á blómlegu efnahags- lífi sem færir þeim hagnaö. Rússland og Bandaríkin geta ekki boriö sitt barr ef Kínverjum tekst virkilega aö koma undir sig fótunum. Eins er þaö meö börn í persónulegum samböndum. Og furöulegt er það, en Kína er aö sínu leyti afkvæmi Rússlands og Bandaríkjanna. CM: Hvernig kanntu því aö hinn frægi Norman Mailer skuli stundum skyggja á rithöfundinn Norman Mailer? NM: Eitt er aö vera virkur í lífi sínu og annaö aö þvæla sér út í allan fjandann og drekka of mikiö og veröa sér of oft til skammar, sem gerir kannski ekki til af því aö maöur veröur margs vísari í leiöinni. En frægöarljóminn, sem ég hef reyndar ekki veriö í nema síöustu fimm eöa tíu árin, gerir þá kröfu að maður gæti sín. Þetta er dýru veröi keypt og maöur veröur aö vera varkár af því aö maöur lendir í alls konar tiigangslausum samböndum viö fólk og viöstöðu- lausum og helmskulegum samsklptum viö fjölmiðla þangaö til maöur veit hvers vegna fólk ræöst á Ijósmyndara meö kjafti og klóm. CP: Er Marlon Brando ennþá vinur þinn eöa kunningi? NM: Viö höfum aldrei veriö nánir vinir. Ég held aö hann hafi haft miklu meiri áhrif á leiklist en ég á ritlist. Ég hef alltaf fundiö tii einhvers undarlegs skyldleika viö hann. i návígi hegöum viö okkur einkenniiega og líöur beinlinis illa. Viö höfum aidrei átt samtal sem stóö lengur en eina eöa tvær mínútur. Ef viö erum spenntir á taugum nöldrum viö hvor í öörum. Viö erum eins og tveir áflogaseggir sem bíöa átekta meö nánar gætur hvor á öörum. Þetta er óttalega itt er að vera virk- ur í lífi sínu og annað að þvæla sér ari í leiðinni. asnalegt og mér leiöist þaö. Mig mundi virkilega langa til aö ræöa viö manninn. CP: Það gæti oröið fróölegt. NM: Þaö er of seint. Viö erum orönir forstokkaöir. CP: Hvaöa Mailer-grímu ertu ánægöastur meö? Grímu listamannsins, írsku fyllibyttunnar og óróaseggsins, mála- fylgjumannsins eöa grímu rithöfundarins? Á tímabili varstu stundum líkastur geöklofa. NM: Bara í augum annarra, ekki gagnvart sjálfum mér. Þetta er búiö aö vera svona í nokkur ár. Fjölmiðlarnir eru alltaf tíu eöa tuttugu árum á eftir manni sjálfum þannig aö þessi svokallaða goösögn manns situr þarna og starir á mann eins og risaeöla. CP: Bæöi Jimmy Breslin og Pete Hamill og jafnvel sjálfur Jack Henry Abbott hafa sagt aö afstaöa þín til glæpa, fangelsa og hlutverks lögreglu í þjóöfólaginu sé grundvölluö á barnslegu sakleysi. NM: Eftir reynslu síöustu ára er ég ekki eins bernskur og áöur. Ég segi ekki meira. ^^^^^mmmmmmmmm CP: Ertu enn á því aö Marilyn ---------------------— Monroe hafi veriö myrt? NM: Jafnvel Thomas Noguchi morðrannsóknaforingi í Los Angeles vildi ekki Ijúka málinu og lýsa því yfir í bók sinni aö þaö heföi veriö sjálfsmorð. Hann slær úr og í. Líkur benda til þess að hún hafi verið myrt en ég veit ekki hvort það er ein brennandi spurning. Ég held aö í samanburöi viö þá svakalegu ráö- , , lt gátu hver myrti Jack Kennedy þá sé Út 1 3.113.11 11311031111 þaö ekki endilega mál málanna á „ þessu stigi. En hafi hún veriö myrt Og CireKK3 Ol miKlð þá held ég að þaö hafi veriö pólitískt ° \ , r r morö. Kaldhæönin kemur fram í því og verös ser oi oit aö þetta var þaggaö niöur af frjáls- . lyndu fólki. Ef hún var myrt þá er þaö tll SK3mm3r, SeiTl æöislegt söguefnl en ég get ekki ... • . . . . . . Meö sjálfum mér veit ég raunveru- gerir K3IlllSKl eKKl lega ekki hvort hún var myrt eöa ,*i p , * x x ekki. Ég vildi aö sönnunargögnin Tll 31 pVl 3Ö mSÖUT væru útskýrö betur fyrir mér og ég x , yröi sáttur viö aö þaö hafi veriö VeTÖUT IT13rgS V1S“ sjálfsmorö. Enginn hefur getaö gefið skýringu á því aö allt þetta eitur skuli hafa veriö í blóðinu og ekkert í mag- anum á henni. CP: Eftir næstum fjögurra áratuga feril ertu talinn vera fremstur þeirra amerísku rithöfunda sem tengdir eru viö raunveruleika og skynsemi eftirstríösáranna. Þaö er sagt aö þjóöin fylgi Mailer eftir. Ertu sammála þeirri kenningu? Og sértu sammála, hvert mun þessi raunveruleiki beina skrifum sínum í framtíöinni? NM: Þetta kann aö hafa veriö rétt á sjöunda áratugnum. Ég hef ekki fundiö til nálægöar viö margt af því sem er aö gerast um þessar mundir. Attundi áratugurinn hófst meö frelsun kvenna og síöan hefur mér fundizt ég vera úr tengsl- um viö þaö sem um er aö vera. Ég held aö síöasta bókin sem ég skrifaöi í tengslum viö líöandi stund hafi veriö the Prisoner of Sex þar sem ég reyndi aö fjalla um frelsun kvenna. Meö þvi aö skrifa um Egyptaland til forna hef ég líklega veriö aö reyna aö fjarlægjast þetta tímabil. Ég hef ekki áhuga á þessu tímabili. Þaö er ekki víst aö þaö leiði til neins. Okkur gæti dagaö uppi. Eitt af því sem veldur mér áhyggjum er aö heimurinn er aö veröa Ijótari á aö sjá. CP: Af hverju helduröu aö þaö sé? Er Malthus að reynast sannspár? Er þaö vegna offjölgunar? NM: Fyrir 200 árum sagöi Adam Smith aö kapítalismi væri hin farsæla samkeppni um efnisgæöin. Síöan kom Max og sagöi aö þannig væri það sko ekki. Þaö er þannig aö það er verið aö aflótta striti. svo komu verkalýðsfélög til sögunnar og heimsvaldastefnan var komin áöur, þ.e.a.s. ef þú nærö því ekki af þínu eigin fólki þá skaltu ná því af öörum þjóöum. Svo gekk þaö ekki lengur af því aö þá reis þriöji heimurinn upp þannig aö nú erum vlö komin á þaö stig aö viö verðum aö ná aurunum út úr sjálfum efnisgæö- unum. Með öörum orðum, verömætin eru kreist út úr fram- leiöslunni og mannkynið í heild er arörænt af því aö enginn fær þaö sem hann áður fékk í raunverulegum fjármunum. Ein sönnunin felst í frelsun kvenna, sem gerir konum mögu- legt aö vinna sömu störf. Staöreyndin er bara sú aö nú þurfa bæöi hjónin aö leggja á sig mikla vinnu tii aö njóta nokkurn veginn sömu lífsgæöa og fyrir hundraö árum þegar þaö var einungis maöurinn sem var í vinnu. CP: Ertu semsé aö halda því fram aö frelsun kvenna sé svo gott sem nauösynleg til aö viöhalda lífskjörum? NM: Þaö hef ég alltaf sagt. Ég sagöi aö kvenfrelsunin væri kannski oröin handbendi illra afla í veröldinni. Þrá kvenna eftir frelsun kann aö eiga rétt á sér en hún þjónar líka gagnstæöum tilgangi sem felst í því aö eftir því sem dregur úr mismun kynjanna veröur auöveldara fyrir okkur öll aö ganga inn í tölvuna af því aö tölvan vill heldur kljást viö eitt kerfi en tvö. Þaö er hagkvæmara fyrir tölvuþjóöfélag aö meöhöndla konur og karla sem eitt og hiö sama. CÖ: Helduröu aö tölvan veröi þessu þjóöfélagi til fram- dráttar? NM: Ég held aö hún muni eiga þátt í aö eyðileggja þaö. CP: Þú afkastar mjög miklu. Ertu aö nálgast Faulkner, Hemingway og Fitzgerald? NM: Ég held aö meöfæddir hæfileikar mínir séu ekki eins miklir og þeirra. En þaö má gera sér mat úr því sem manni er gefið. Faulkner var mjög afkastamikill, en miðað viö Hemingway og Fitzgerald, þá hef ég kannski ávaxtaö mitt pund betur en þeir. En sá sem er síöri hæfileikum gæddur á auöveldara með aö nýta þaö sem hann hefur. Þeir sem leggja mest á sig í þessum heimi eru yfirleitt meöalmennirn- ir. Hafi ég haft einhverja meiriháttar hæfileika þá held ég að óg hafi fariö nokkuö vel meö þá. Ég hef gert mór far um aö aga sjálfan mig því aö ég er alls ekki agaöur aö upplagi. Ef ég er látinn í friöi þá hættir mér til aó gildna um mittið eins og sjá má. Því sem ég legg í vinnuna hleð ég ekki utan á mig. öllum er okkur ásköpuö slagsíöa, ef ekki vill verr til.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.