Morgunblaðið - 07.09.1984, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1984
49
að spila á vegum félagsstarfs aldr-
aðra á Hallveigarstöðum og að
Norðurbrún 1. Ýmislegt fleira
gerði Sigurður sér til dundurs, til
dæmis prjónaði hann listavel bæði
ullarsokka og vettlinga og gaf
hann mér eina slíka.
Ekki var skólaganga Sigurðar
löng, aðeins einn mánuður á vetri
í þrjá vetur eða þrír mánuðir alls
um ævina. Samt var hann mennt-
aður maður því að hann var vel
gefinn og bókhneigður mjög.
Hann var því vel lesinn og fylgdist
vel með öllu, sem fram fór. Þá
hafðí hann gaman af ættfræði og
var mjög fróður um ætt sína og
Djúpmanna. Ýmsir, sem á fund
hans gengu til að fræðast um ætt
sína, urðu þar margs vísari enda
þótti Sigurður afburða minnugur
maður. Ekki spillti það heldur að
hann hafði ákaflega sterkar taug-
ar til æskustöðvanna við innan-
vert ísafjarðardjúp. Honum þótti
alltaf mjög vænt um sveitina sína
og fylgdist alla tíð vel með öllu,
sem þar gerðist.
Einkar kært var með Sigurði og
systkinum hans öllum enda þótt
faðir minn, Guðmundur, væri al-
inn upp annars staðar. Eftir að
Benedikt og Þórunn, kona hans,
fluttu til Reykjavíkur var mikið og
gott samband milli þeirra og Sig-
urðar. Naut Sigurður þar jafnan
hlýju og velvilja, en Þórunn lifir
nú mann sinn í hárri elli.
Bréf til barns
sem aldrei
fæddist
— komin út hjá Bóka-
klúbbi AB
BÓKIN Bréf til barns sem aldrei
fæddist, eftir Oriana Fallaci er
komin út hjá Bókaklúbb Almenna
bókafélagsins í þýðingu Halldórs
Þorsteinssonar.
Oriana Fallaci varð fyrst
þekkt fyrir blaðamennsku sína,
en lýsingar hennar á Vietnam-
stríðinu þóttu mjög skarpar og
heiðarlegar. Auk þess varð Fall-
aci mjög þekkt fyrir viðtöl sín
við ýmsa ráðamenn heims, en
hún þótti oft sauma hraustlega
að viðmælendum sínum, með
framgöngu sinni og þekkingu.
Nægir í því sambandi að nefna
viðtal sem hún átti við Henry
Kissinger á sínum tíma, en það
varð þekkt um heim allan.
í frétt frá Bókaklúbbi AB um
þessa bók Fallaci segir m.a.:
„Bréf til barns sem aldrei fædd-
ist er samtal barnshafandi konu
við fóstrið, hugleiðingar sem
spegla þann mikla vanda sem
nútímakonan stendur andspæn-
is — þjóðfélagslegan, siðfræði-
legan." Halldór Þorsteinsson,
þýðandi bókarinnar segir m.a.
um hana: „Þessi stutta skáld-
saga sem er reist á eigin reynslu
höfundar, er ósvikið bók-
menntaverk, sem á jafnbrýnt
erindi við karla sem konur,
aldna sem unga, enda fjallar
höfundur um viðfangsefni sín af
fágætri víðsýni, hleypidóma-
leysi og þekkingu á mannlegu
eðli.“
Bréf til barns sem aldrei
fæddist er 160 bls. og unnin í
Prentsmiðjunni Odda.
Heyskap
að ljúka á
Barðaströnd
Barðaströnd, 5. september.
HÉR VAR mjög erfið heyskap-
artíð yfir júlí og ágúst, en með
Höfuðdegi brá til hins betra.
Flestir bændur hafa lokið hey-
skap og verða hér næg hey hjá
flestum í vetur.
Þá varð ég þess vel var hversu
innilegt og gott samband var á
milli Sigurðar og Guðmundar, föð-
ur míns, er þeir dvöldu báðir á
Hrafnistu. Á hverjum degi vitjaði
Sigurður bróður síns, en Guð-
mundur andaðist fyrir rúmu ári.
Þá var og ágætt samband milli
Sigurðar og dóttur hans, Þórdísar,
fjölskyldu hennar og barna dætra
hans allra.
Sigurður Halldórsson var í hópi
þess fólks, sem ruddi brautina til
þess velferðarþjóðfélags, sem við,
hin yngri, búum við í dag. Þetta
fólk gerði kröfur til sjálfs sín
fremur en annarra. Þrautseigja,
æðruleysi og nægjusemi var aðals-
merki manna eins og Sigurðar.
Hann hreykti sér ekki hátt, en
ræktaði garðinn sinn í kyrrþey,
rækti störf sín af alúð og
trúmennsku. Slíkan mann var gott
að þekkja.
Ég votta öllum ættingjum Sig-
urðar dýpstu samúð mína og fjöl-
skyldu minnar.
„Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.“
(V. Briem).
Guðmundur L Þ. Guðmundsson
J Ármúla 1A, Eiöistorgi 11
FARARSTJORIÞINN
í FRUMSKÓGIVAXTA
5FYRÐU HAHH INN Á HVAÐA REfKWMö ÞÚ EIGIR AÐ LECKUA.
RAÐöJAF/m 5ÉH FLJÓTT HWAÐ ÞÉfí Efí FYfílfí BE5TU.
HAHH BÆÐUB ÞÉB HEILT.
Inn á hvaða reiHnlng átt þú að leggja ? Lagðir þú inn á réttan reihning í gær7
tlvort hentar þér betur hjá oHHur sparireiHningur með 26% ársávöxtun
eða sparisHírteini með 26% ársávöxtun ?
Wið erum eHHi undrandi þótt þú standir ráðþrota í vaxtamálum.
5purningarnar um ávöxtun fjár hafa aldrei werið eins erfiðar og einmitt nú.
Með því að spyrja Ráðgjafann í ÚtvegsbanHanum
færðu svör sem sHýra hvað þér er fyrir bestu. Hann ræður þér heilt.
BÁÐÖJAFIHH EB TWÍM/ELALAU5T FABAB5TJÓBI ÞIHH
I VAXTAFBUM5KÓÖIMUM.
fíomdu á einhvern afgreiðslustað ÚtvegsbanHans
og spyrðu eftir Ráðgjafanum.
ÚTVEGSBANKINN
EINN BANKI • ÖLL MÓNUSTA
S.J.Þ.