Morgunblaðið - 17.02.1985, Page 28
Nú eru liðin ríflega
fjögur ár síðan
NBC-sj ónvarpsstöð-
in í Bandaríkjunum
frumsýndi fram-
haldsmyndaflokkinn Shogun
(Herstjórinn), sem hóf göngu sína
í íslenska sjónvarpinu á miðviku-
daginn var. Shogun naut geysi-
mikilla vinsælda meðai Banda-
ríkjamanna en talið er að alls hafi
um 125 milljónir fylgst með
myndaflokknum og komst hann
því í hóp vinsælustu framhalds-
þátta, sem sýndir hafa verið þar
vestra, þátta eins og Roots (Ræt-
ur) o.fl. Shogun, sem kostaði um
22 milljónir dollara í framleiðslu
(um 880 milljónir ísl.), er gerður
eftir samnefndri metsölubók
breska rithöfundarins James
Clavell, en sjálfur var höfundur-
inn framkvæmdastjóri við gerð
myndaflokksins og það er hjarta-
brjóturinn úr Þyrnifuglunum,
Richard Chamberlain, sem fer
með aðalhlutverkið.
BLACKTHORNE
Hann leikur enskan stýrimann,
John Blackthorne að nafni.
Blackthorne er stýrimaður á
kaupfari sem ferst við strendur
Japans um aldamótin 1600 en
hann kemst lífs af ásamt öðrum
úr áhöfninni en á þá er litið sem
ræningja og þeir sæta illri með-
ferð í fyrstu. Þegar þetta gerist
ríkir lénsskipulag i Japan og inn-
anlandserjur eru tíðar. Pimm
höfðingjar deila völdum og ríkjum
og er Blackthorne handtekinn af
einum þeirra, Toranaga, sem er
valdagráðugur maður og hyggst
verða einvaldur herstjóri yfir öllu
ríkinu og nýta sér í því skyni
þekkingu Blackthornes á skipum
og siglingum.
Þannig er söguþráðurinn í
Shogun í örstuttu máli. Það var
ekki merkilegur atburður, sem
kveikti hugmyndina að sögunni í
huga Clavells. Hann sá skrifað í
sögukennslubók níu ára gamallar
dóttur sinnar þessi annars for-