Morgunblaðið - 17.02.1985, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 1985
63 -
Minning:
Oskar Hafsteinn
Halldórsson
Fæddur 19. júní 1924
Dáinn 8. febrúar 1985
Að kvöldi 8. febrúar lauk jarð-
vist mágs okkar, óskars Hall-
dórssonar, á Landspítalanum.
Hann var fæddur 19. júní 1924 í
Reykjavík og því rúmlega sextíu
ára, er hann lést.
Foreldrar Óskars voru þau Sig-
ríður Stefánsdóttir, sem dó fyrir
rúmum tuttugu árum, þann 16.
maí 1964, og Halldór Oddsson,
sem lést í hárri elli 9. október
1982. Þau hjónin slitu síðar sam-
vistir.
Óskar ólst upp í stórum systk-
inahópi, hann var þriðji elstur af
sjö systkinum, sem öll lifa hann,
nema einn bróðir, Ingimar, sem
fórst af slysförum um borð í bv.
Ingólfi Arnarsyni 25. febrúar
1980.
Einnig átti hann tvö hálfsystk-
ini, sem Halldór átti með seinni
konu sinni, Kristínu Magnúsdótt-
ur, sem látin er fyrir nokkrum ár-
um.
Óskar bjó með móður sinni, eft-
ir að þau hjón skildu, uns hann réð
sig á erlend skip og sigldi með
Eldsvoði á elliheimili:
Þrjár rosknar
konur létust
lceau, Belgíu, 15. rebrúar. AP.
ÞRJÁR rosknar konur létu lífið í
nótt, þegar eldur kom upp á elli-
heimili í borginni Iceau, sem er í um
25 km fjarlægð frá Brússel.
Tjónið af völdum eldsvoðans á
elliheimilinu, sem heitir Dvalar-
heimili Jean Renard, er metið á 8
milljónir franka. f húsinu bjuggu
60 manns. Ekkert er enn vitað um
upptök eldsins.
Viðskiptablað
í Gautaborg á
barmi gjaldþrots
Stokkhólmi, 14. febrúur. Krá fréturitara Mbl.
BLAÐIÐ Göteborgs Handels- og
sjöfartstidende rambar nú á barmi
gjaldþrots, en blaðið hóf göngu sína
að nýju á síðastliðnu hausti eftir
tímabundna erfiðleika.
f heilsíðuauglýsingu lýsir blaðið
eftir samskotum fyrirtækja til að
halda megi blaðinu gangandi. Þar
er nefnt sem dæmi að ef 20 fyrir-
tæki legðu fram eina milljón
sænskra króna hvert, þá fengist 20
milljóna pottur til að greiða úr
erfiðleikum blaðsins og tryggja
útkomu þess.
Blaðið segist þarfnast 15 millj-
óna króna þegar í stað til að kom-
ast út úr skuldum. Segir blaðið að
útgáfan stæði undir sér ef áskrif-
endur væru 20 þúsund talsins, en
ekki 13 þúsund eins og nú er.
þeim á stríðsárunum. Margt skeði
á þeim ferðum hans, sem ekki er
skráð, en fengur væri að, en óskar
var lítið fyrir það gefinn að tjá sig,
nema þá í vinahóp.
Óskar mun hafa komið aftur
heim úr siglingum kringum árið
1946. Þá fer hann, ásamt bræðrum
sínum Inga og Oddgeiri, suður
með sjó og stunda þeir þaðan sjó-
sókn á bátum um nokkurra ára
bil. Þeir bræður voru mjög sam-
rýndir á þeim árum.
Margar skemmtilegar sögur
fóru af þeim bræðrum frá þeim
tíma og margar þeirra spaugi-
legar. Þegar landlegur voru, komu
þeir bræður oft í heimsókn til
okkar, þá gat Óskar sagt okkur
margan brandarann, sem hlegið
var að, en Óskar var þeim gáfum
gæddur, að geta sagt skemmtilega
frá spaugilegum atvikum, sem
þeir bræður lentu oft í.
En svo kom sá tími, að Óskar
hætti á sjónum og fékk sér vinnu í
landi.
Hann starfaði lengi í Stáliðj-
unni. Árið 1969 kvæntist hann
Rögnu Þyrí Bjarnadóttur. Um
fimm ára skeið bjuggu þau í Skot-
SVAR
MITT
eftir Billy Graham
*
Ast og tilfinningar
Eiginkona sonar míns hefur farið frá honum. Hún segist nú orðið
hafa meiri áhuga á starfi sínu en fjölskyldunni. Er þetta réttur
hugsunarháttur?
Nei, alls ekki. Að sjálfsögðu þekki ég ekki öll málsat-
vik. Þó er svo að sjá sem hún sjálf og langanir hennar
eigi að sitja fyrir öllu öðru, og það er rangt.
Ég veit, að nú um stundir vilja ýmsir taka hjónaband-
ið léttum tökum. Allt of mörg ungmenni gifta sig með
það í huga, að þau geti bara skilið, ef illa gengur. En
Guð lítur ekki þannig á málin. Guð segir, að loforð
hjóna sé mjög alvarlegt. Við ættum að hafa sömu af-
stöðu.
Ein ástæðan til þess, að svona er komið, held ég Sé sú,
að við teljum ástina vera fyrst og fremst tilfinningar.
Þegar tilfinningarnar dvína (að því er okkur finnst), er
ástin á bak og burt.
Ástin er að sönnu tilfinningar — en hún er meira.
Hún er líka vilja-athöfn, þar sem karl og kona lofa
sameiginlega að efla hvort annars heill.
Skilgreining Biblíunnar á kærleikanum er sú bezta,
sem til er: „Kærleikurinn er langlyndur, hann er góð-
viljaður. Kærleikurinn öfundar ekki. Kærleikurinn er
ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp. Hann hegðar sér
ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin. Hann reiðist ekki,
tilreiknar ekki hið illa. Hann gleðst ekki yfir óréttvís-
inni, en samgleðst sannleikanum. Hann breiðir yfir allt,
trúir öllu, vonar allt, umber allt“ (1. Kor. 13,4—7).
Biðjið fyrir tengdadóttur yðar. Sá, sem lifir einungis
sjálfum sér, verður rótlaus og óhamingjusamur. Hún
heldur, að hún finni gæfuna á þennan hátt. En hún
verður fyrir vonbrigðum. Hún þarf að átta sig, en eink-
um þarf hún að kynnast Kristi.
Kristur sýnir okkur, hvað það er að elska í raun og
veru. Hann einn getur gefið okkur kraft til að elska af
öllu hjarta, þegar við göngum honum á hönd.
landi á vegum Stáliðjunnar.
Ragna átti þrjú börn af fyrra
hjónabandi, en öll tóku Óskari vel
og var mjög kært með þeim og
Óskari síðan.
Stuttu eftir að Óskar kom frá
Skotlandi fór hann að vinna í
Þórskaffi sem húsvörður og vann
þar allt til dauðadags. Hann var
vel látinn og samviskusamur
starfskraftur.
Konu sína missti Óskar í októ-
ber 1983, var söknuður hans sár,
en stjúpbörn hans reyndust hon-
um mjög vel og þökkum við þeim
fyrir þeirra ræktarsemi, sem þau
sýndu Óskari eftir að móðir þeirra
dó.
Að lokum viljum við þakka
óskari fyrir samfylgdina um þrjá-
tíu ára skeið og þakklæti fjöl-
skyldna okkar fyrir vináttu hans,
sem aldrei bar skugga á.
Útför hans fer fram frá Foss-
vogskirkju mánudaginn 18. febrú-
ar kl. 10.30 f.h.
Guð blessi heimför hans.
Guömundur og Þórir
Jarðarfarar-
skreytingar
Kistuskreytingar, krans-
ar, krossar.
Græna höndin
Gróðrarstöö viö Hagkaup,
simi 82895.
Legsteinar
Framleidum allar stærðir og gerðir af legsteinum
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
umgerð og val legsteina.
I
S.HELGASON HF
STEINSNIIÐJA
SKEMMUVEGI 48 SiMI 70677
Kransar; kistuskreytingar
BORGARBLÓMÍÐ
SKÍPHOLTÍ 35 SÍMÍ: 32213
+
Faöir okkar og tengdafaðir,
ÍVAR ÞÓRARINSSON,
hljóöfærasmiöur
öldugranda 3,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 19. febr. kl.
10.30.
Börn og tengdabörn.
t
Þökkum af alhug auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
jarðarför,
GUÐLAUGAR JÓNSDÓTTUR,
Hölabraut 6,
Keflavlk.
Guörföur Guömundadöttir, Jöhann Friórlkaaon,
Ráöhildur Guömundsdóttir, Hinrik Albertsaon,
Magnúsfna Guómundsdóttir, Jön Eyateinason,
barnabörn og barnabarnabörn.
þar sem bæði liðin og áhorfendur keppa um Arnarflugsverðlaun
Liðin berjast um efsta sætið í
undankeppni I. deildarinnar og
þar með um vegleg verðlaun
sem Arnarflug gefur.
Áhorfendur geta líka unnið til
verðlauna frá Arnarflugi með
því að svara rétt í getraun um:
Úrslit leiksins - Hversu mörg
mörk skorar Kristján Arason hjá
Einari Þorvarðarsyni - Hversu
mörg skot ver Einar frá Kristjáni.
Allir í Laugardalshöll kl. 20:15
á mánudagskvöld. Allir eiga
möguleika á verðlaunum.
ARNARFLUG
Lágmúla 7 Sími 84477