Morgunblaðið - 01.05.1985, Page 19

Morgunblaðið - 01.05.1985, Page 19
 Smfóníuhljómsveit íslands: Kammertónleik- ar annað kvöldL SlÐUSTU kammertónleikar Sinfón- íuhljómsveitar íslands á þessu starfsári verða í Bústaðakirkju á morgun, fimmtudag, og hefjast þeir kl. 20.30. Á efnisskránni eru eftirtalin verk: J.C. Bach: Sinfónía í Es-dúr, op. 18, nr. 1. J. Haydn: Sinfónía concertante fyrir fiðlu, selló, óbó, fagott og hljómsveit. F. Schubert: Sinfónía nr. 5 í B-dúr. Stjórnandi tónleikanna er Jean- Pierre Jacquillat. Hann hefur ver- ið aðalstjórnandi hljómsveitarinn- ar siðan 1980. Hann hefur stjórn- að ýmsum hljómsveitum í mörg- um stórborgum Evrópu, bæði austan „tjalds" og vestan, í Suð- ur-Ameríku, Ástralíu og Suður- Afríku, ennfremur óperusýning- um víða um lönd, m.a. i Metropol- itan-óperunni i New York. Einnig hefur hann stjórnað upptökum á verkum franskra tónskálda, m.a. með Orchestre de Paris og Lam- oureux-hljómsveitinni. Einleikarar í Sinfóniu concert- ante eftir J. Haydn eru úr röðum hljómsveitarmanna. Þeir eru: Szymon Kuran, fiðla, Pétur Þor- valdsson, selló, Kristján Þ. Steph- Hátíðahöld á Akureyri Á Akureyri verða hátíðahöld í tilefni dagsins sem hér segir: Messað verður í Akureyrar- kirkju kl. 11. Prestur verður séra Birgir Snæbjörnsson. KL 13.30. verður safnast saman við gamla verkalýðshúsið á Strandgötu 7 við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar. Með lúðrasveitina i fararbroddi verður siðan gengið suður Skipa- götu, upp Kaupvangsstræti, norð- ur Hafnarstræti, suður Geislagötu um Ráðhústorg og Skipagötu að hinu nýbyggða húsi verkalýðsfé- laganna, þar sem haldinn verður útifundur. Formaður 1. maí-nefndar setur fundinn og því næst flytur Jökull Guðmundsson, málmiðnaðarmað- ur, ávarp verkalýðsfélaganna. Þá flytur Jón Karlsson, formaður Verkamannafélagsins Fram á Sauðárkróki, ræðu. Hólmfríður Jónsdóttir, bókavörður, flytur þá ávarp Launa- og kjaramálanefnd- ar kvenna ’85 og Ásbjörn Dag- bjartsson, náttúrufræðingur, flyt- ur ávarp Áhugamanna um úrbæt- ur i húsnæðismálum. Sævar Fri- mannsson, varaformaður Eining- ar, heldur svo lokaræðu dagsins. Að loknum útifundi verður kaffi- sala á vegum 1. maf-nefndar á Hótel Varðborg og barnaskemmt- um verður f Húsi aldraðra kl. 16. Fréttatilkynning ensen óbó, og Sigurður Markússon fagott. Aðgöngumiðar að þessum tón- leikum fást við innganginn. (FrétUtilkynning) Frúnerki ’85: Frímerkjasýn- ing í tengslum við landsþing í TENGSLUM vió landsþing Lands- sambands íslenzkra frímerkjasafn- ara um næstu helgi verður haldin frímerkjasýning, Frímerki ’85, næst- komandi sunnudag kl. 10—22. Er þetu kynningarsýning, sem á eink- um að höfða til almennra safnara. Verður hún í 44 römmum með marg- víslegu efni, nær eingöngu íslenzku. Norðlenzkir safnarar eiga efni á 17 römmum, en aðalhlutinn verð- ur úr safni Hans Hals, svonefnd aurafrimerki frá 1876—1892. Er það Póst- og símamálastofnunin, sem lánar þetta efni. Er von Landssambandsins sú, að almenningur og frímerkjasafn- arar hafi bæði gagn og ánægju af að skoða þessa sýningu, en hún verður í Sfðumúla 17, efri hæð í vesturenda. Félag frímerkjasafnara verður með skiptimarkað sama dag og á sama stað i húsakynnum sinum kL 13.00-15.30. (FréUatilkyuÍBg) Samtök kvenna á vinnumarkaðnum: Útifundur á Hallærisplani SAMTÖK kvenna á vinnumarkaðn- um efna til sérstaks útifundar á Hallærisplaninu í dag, strax að lok- inni göngu. Samtök kvenna á vinnumarkað- inum taka undir ákveðnar kröfur i ávarpi fulltrúaráðs verkalýðsfé- laganna, s.s. varðandi dagvistar- mál, húsnæðismál, atvinnuöryggi fiskvinnslufólks, friðarmál og andóf gegn herstöðvum og aðild íslands að NATO. Tvö mikilsverð atriði réðu úrslitum um það að Samtök kvenna á vinnumarkaðn- um ákváðu að efna til sérstaks úti- fundar. Annars vegar sú stefna fulltrúaráðsins að hunsa konur við val á ræöumönnum á útifundinum á Lækjartorgi. Hins vegar vantar alla baráttuhvatningu og nauð- synlegar kröfur inn i ávarpið. Fréttatilkynning með jjölda stórravinninga Búum öldmðnm áhygg julaust ævikvöld Hagnaði afhappdrætti DAS er varið til velferð- armála aldraðra um allt land. Meðal annars stuðnings við byggingar dvalarheimila aldr- aðra á sem flestum stöðum víðsvegar um landið. Hér sést yfír framkvæmdasvæði Sjómanna- dagsráðs og Happdrættis DAS í Hafnarfírði og Garðabæ. Helstu framkvæmdir er nú standa yfír eru að Ijúka að fullu við hjúkrunardeildina, þ.e. endurhæfíngardeild, meðferðarsundlaug og að laga lóð. Síðar taka svo við framkvæmdir við næsta smáhýsahverfí. HAPPDKÆTTI Dvalarheimilis aldraöra sjómanna BORGARNESDAGAR í LAUGARDALSHÖLL 2.-5. MAÍ VÖRUSÝNING MYNDUSTARSÝNING . TÍSKUSÝNINGAR TOLVUKNATTSPYRNA GOLFVÖLLUR OG LEIKIR SÖNGUR OG TÓNLIST SKEMMTUN OG FRÓÐLEIKUR FYRIR ALLA OPIÐ FIMMTUDAG KL. 19-22 FÖSTUDAG LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 13-22

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.