Morgunblaðið - 01.05.1985, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1985
21
Loftorka sf. Borgarnesi, simi 93-7113, kvöldsimi 93-7155 Reykjavik, sími 91-83522, kvöidsimi 91-667211.
Geodætisk Institut afhendir
Landmælingum íslands mæligögn
GEODÆTISK Institut í Danmörku afhenti Landmælingum íslands ýmis
gögn, sem tengjast kortagerð Dana hér á landi, við formlega athöfn föstudag-
inn 26. aprfl sl.
Samningur um afhendingu
þessara gagna tókst nýlega og var
hann undirritaður við þetta tæki-
faeri. Hér er um að ræða frumgerð
korta sem hafa m.a. að geyma ým-
is örnefni og staðanöfn, sem ekki
eru á prentuðum kortum. Einnig
voru afhentar ljósmyndir.
Um síðustu aldamót var hafist
handa um kortlagningu íslands og
var danska herforingjaráðinu fal-
ið að annast framkvæmd hennar.
Árið 1928 var danska landmæl-
ingastofnunin Geodætisk Institut
stofnuð og tók hún við mælingum
er þær hófust aftur 1930 eftir 10
ára hlé. Þeim var að mestu lokið
1939, en Ágúst Böðvarsson, síðar
forstjóri Landmælinga íslands,
lauk þeim árið 1940.
Eurovision-
söngvakeppnin:
Samtengd út-
sending rás-
ar 2 og
sjónvarpsins
ÁKVEÐIÐ hefur verið að sam-
tengja útsendingar á rás 2 og
sjónvarpinu meðan á útsendingu
á „söngvakeppni evrópskra sjén-
varpsstöðva stendur, þ.e. frá
klukkan 19.00 á laugardags-
kvöldið.
Þátturinn verður sýndur í
beinni útsendingu i sjónvarp-
inu og geta menn því jafnframt
hlustað á hann í hljómflutn-
ingstækjum sínum, sem hefur í
för með sér mun betri hljóm-
gæði. Samtenging rásar 2 og
sjónvarpsins hefur verið reynd
áður með góðum árangri og má
þar nefna svissnesku rokktón-
leikana „The Montreux Golden
Rose Festival“, sem sýndur var
í sjónvarpinu í fyrravor og
endurtekinn síðar um sumarið.
Við lok seinni heimsstyrjaldar-
innar hafði GI gefið út kort af öllu
íslandi í mælikvarðanum
1:100.000, Atlasbiöðin og ýmsa
minni mælikvarða.
Geodætisk Institute tók að sér
umfangsmiklar þríhyrningsmæl-
ingar hér á landi 1954 vegna aðild-
ar tslands að NATO. Einnig var
mælt svokallað höfuðnet, en
áhersla lögð á endurmælingar á
stöðvum frá gamla netinu, sem til
náðist. Verkinu lauk 1969 og af-
henti GI Landmælingum Íslands
allar hnittölur og útreikninga.
Að fengnu leyfi samgönguráðu-
neytisins og láni úr ríkissjóði var
leitað eftir kaupum á öllum korta-
birgðum GI árið 1966. Samið var
um kaup á þeim fyrir 50% af
nafnverði kortanna. Samningar
um prentun kortanna voru einnig
endurnýjaðir. Ekki samdist um
útgáfuréttinn fyrr en 1973 og
fékkst þá afhent töluvert magn af
ýmsum gögnum tengdum kortaút-
gáfunni.
Íslendingar hafa fengið stóran
hluta þessara gagna í sínar hend-
ur á sl. 25 árum. Þau gögn sem nú
voru afhent eru talin mjög dýr-
mæt og merkileg, sérstaklega frá
sögulegu sjónarmiði.
Frá undirritun samningsins. F.v. Birgir Guðjónsson settur forstjóri Land-
mælinga íslands, Flemming Wiinblad forstjóri Geodætisk Institut, Ólafúr
Steinar Valdimarsson ráöuneytisstjóri, Matthías Bjarnason samgöngumálar-
áðherra og Han Djurhus, sendiherra Dana.
a
sýnmgarsvædi LOFTORKU
7-Rmaí ílangaiyfefehnl
Atvinnumiðl-
un námsmanna
tekur til
starfa
ATVINNUMIÐLUN námsmanna
tekur til starfa á morgun, fimmtu-
dag, og verður hún til húsa í Félags-
stofnun stúdenta við Hringbraut.
Tveir starfsmenn munu starfa við
AN í sumar og verður hún opin alla
virka daga fra kl. 09—17. í fyrra
skráðu 500 námsmenn sig hjá AN og
má búast við verulegri aukningu í
ár. Atvinnurekendur eru hvattir til
að notfæra sér þjónustu AN.
Þau samtök sem að AN standa
eru: Stúdentaráð Háskóla íslands
(SHÍ), Bandalag islenskra sér-
skólanema (BlSN), Samband ís-
lenskra námsmanna erlendis (Sí-
NE) og Landssamband mennta- og
fjölbrautaskóla (LMF). Innan
þessara samtaka eru flestir þeir
nemendur landsins sem lokið hafa
grunnskóla.
Fréttatilkynning
VZterkurog
hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Sennilega
samloka sem þér býöst
ídag-úr sceinsteypu!
LOFTORKU húsin eru I stuttu máli eitt þaö besta sem
húsbyggjendum býðst!
LOFTORKU húsin eru íslensk framleiðsla úr íslensku
byggingarefni, framleidd við bestu hugsanlegu að-
stœður og henta vel fslensku veðurfari.
LOFTORKU húsin eru úr vönduðum steinsteyptum ein-
ingum, sem springa ekki. Einingarnar eru vel einang-
raðar, samlokur með innbyggðum raflögn-
um, falla þétt saman og eru með varanlegri
ytri og innri áferð. Einingarnar eru steyptar
og járnabundnar saman á byggingarstað.
Framleiðslutími er stuttur, samsetning
húsanna er traust og varanleg.
•RKA
Einingarnar frá LOFTORKU hafa engar fastar stærðir,
auðveldlega má aðlaga þær hváða húsateikningu sem
er.
LOFTORKA framleiðir húsin og setur þau upp á bygg-
ingarstað, steypir loftplötu og gengur frá þaki.
LOFFORKA skilar þér traustu og vönduðu einingahúsi
á þvf byggingarstigi sem þér hentar.
Ef þú ert f byggingarhugleiðingum kynntu
þér LOFTORKU húsin, nútfmalegan og
traustan byggingarmáta.
Hringið í sfma 91-84090 eða 93-7113 og fáið
sendar ftarlegar upplýsingar um húsin frá
LOFTORKU.