Morgunblaðið - 01.05.1985, Qupperneq 28
28
MÖRGÚNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR1. MAl 1985
Þýskalandsheimsókn Bandaríkjaforseta:
Geimvarnaáætlun-
in aðalumræðuefni
Reagans og Kohls
Bonn o* Moskvu, 30. npríL AP.
BÚIST er við, að geimvarnaáætlun Bandaríkjanna verði aðalumræðuefni
þeirra Helmuts Kohls kanslara og Ronalds Reagans, í opinberri heimsókn
Bandaríkjaforseta í Vestur-Þýskalandi í ntestu viku, að því er embættismenn
í Bonn greindu frá í dag.
Kohl ætlar að skýra afstöðu
Vestur-Þýskalands til geimvarna-
rannsóknanna.
Mun hann greina Reagan frá
því, að Vestur-Þjóðverjar hafi
áhuga á að taka þátt í rannsókn-
unum, en aðeins með því skilyrði
að Bandaríkjamenn séu fáanlegir
til að tryggja, að ávinningi af
þeim á tæknisviðinu verði jafnt
skipt beggja vegna Atlantshafs-
ins.
Kohl hefur tekið af öll tvímæli
um það undanfarið, að hann styð-
ur rannsóknaráætlun Bandaríkja-
Viljum
frjálsari
heims-
verzlun
— segir Shuitz utanríkis-
ráöherra Bandaríkjanna
Waohinfrton, 30. april. AP.
BANDARÍKIN munu gera sína
eigin viðskiptasaminga við ein-
stök lönd sérstaklega, ef óskir
Reagans Bandaríkjaforseta
verða ekki teknar til greina um
nýjar viðræður um heimsverzl-
unina á fundi 7 helztu iðnríkja
heims, sem fram á að fara í
Bonn í þessari viku. Skýrði
George P. Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, frá þessu í
dag.
Shultz sagði ennfremur, að
Reagan færi til Bonn ekki aðeins í
þeim tilgangi að koma á nýjum
viðræðum um alþjóðaviðskipti,
heldur einnig í því skyni að fá ým-
is þeirra landa, sem þátt taka i
fundinum í Bonn, til að gera meira
til þess að efla efnahagslíf sitt en
þau hafa fengizt til að gera til
þessa.
Fyrr í þessum mánuði gerðu
ísrael og Bandaríkin með sér
samning um að afnema hvers kon-
ar tolla af vörum, sem þau seldu
hvort öðru. Sagði Shultz, að ef
ekki næðist samkomulag á fundin-
um í Bonn um nýjar viðræður um
aukið frelsi i alþjóðaviðskiptum,
þá myndu Bandaríkin fara eins að
gagnvart einstökum ríkium og
gert hefði verið gagnvart ísrael og
gera við þau viðskiptasamninga
ein sér. Sagði Shultz, að Banda-
ríkastjórn hygðist beita sér fyrir
„frjálsari verzlun" alls staðar í
heiminum.
manna, en hefur verið tvístígandi
um, hvort rétt væri að blanda
vestur-þýskum fyrirtækjum í mál-
ið.
Kohl hefur einnig hvatt til þess,
að löndin í Vestur-Evrópu taki
sameiginlega afstöðu til geim-
varnaáætlunarinnar.
í dag sakaði sovéska fréttastof-
an TASS Ronald Reagan forseta
um að hampa Þriðja ríkinu og
hvítþvo nasista með för sinni til
kirkjugarðsins í Bitburg.
Þá notaði TASS heimsókn
Reagans til að ráðast með hefð-
bundnum hætti á vestur-þýsk
stjórnvöld og saka þau um hefnd-
arstefnu, auk þess sem deilt var á
bandaríska utanríkisstefnu. Kvað
fréttastofan ónafngreinda ein-
staklinga á Vesturlöndum aðhyll-
ast sömu meginsjónarmið og
Adolf Hitler hefði gert.
Veður
víða um heim
Lægst Hæst
Akureyri 6 skýiað
Amsterdam 4 11 skýjaö
Aþena 11 22 skýjað
Barcelona 16 skýjaö
Berlin 2 10 rigning
Briissel 5 13 rigning
Chicago 3 21 rigning
Dublin 8 13 skýjað
Feneyiar 14 skýjaö
Frankturt 2 10 rígning
Gent 1 10 skýjað
Helainki 4 7 skýjað
Hong Kong 21 24 skýjað
Jerúsalem 12 24 skýjað
Kaupm.höfn 1 8 skýjað
Las Palmas 20 skýjað
Lissabon 11 24 heiöskirt
London 10 15 skýjað
Los Angeles 12 23 skýjað
Malaga 21 léttsk.
Maltorca 20 skýjað
Miami 22 34 skýjað
Montreal 3 20 heiðskirt
Moskva 8 9 skýjaö
New York 9 22 heiðskírt
Osló 1 10 heiðskírt
París 8 12 skýjað
Peking 14 28 heiöskírt
Reykjavik 6 skúr
Rio de Janeiro 19 35 skýjað
Rómaborg 11 21 heiðskírt
Stokkhólmur 2 5 skýjað
Sydney 16 21 skýjað
Tókýó 12 23 heiðskirt
Vinarborg 3 9 skýjaö
Þórshöfn 9 léttsk.
Inflúensufaraldur
á Norður-Englandi
SUfford, 30. april. AP.
NÍTJÁN manns hafa dáið úr inn-
núensufaraldri á Norður-Englandi
undanfarnar tvær vikur. „Við teljum
ekki, að ástæða sé til þess að grípa
til neyðarráðstafana, en vissulega
hafa mun fleiri veikzt en við gátum
með nokkru móti búizt við á þessum
tíma árs,“ var í dag haft eftir Roy
Trainor, aðstoðaryfirmanni heil-
brigðismálastofnunarinnar f Staf-
fordshire.
Flestir þeirra, sem látizt hafa,
veiktust af lungnabólgu í kjölfar
inflúensunnar. Yfir 70 manns eru
nú á sjúkrahúsum vegna inflúens-
unnar og þar af eru 8 manns I
gjörgæzlu.
Hátíðarhöld í Víetnam:
10 ár frá falli
Suður-Víetnams
Ho Chi Minb-borg, 30. iprfl.
Skriðdrekar fóru um götur og
torg og herþotur þutu um himin-
inn, þegar Víetnamar fögnuðu því í
dag, að 10 ár eru liðin frá falli
Suður-Víetnams og sigri kommún-
ismans.
Þúsundir borgarbúa voru á
götum úti. Herfyikingar voru
samfellt í 2 'k klukkustund að
ganga fram hjá heiðurspalli, þar
sem stóðu aldraðir byltingarfor-
ingjar, sem barist höfðu gegn
Japönum, Frökkum og Banda-
ríkjamönnum í 30 ár.
Nguyen Van Linh, formaður
kommúnistaflokks Ho Chi
Minh-borgar, sagði í 45 mínútna
langri ræðu við upphaf hátíðar-
haldanna, að sigurinn fyrir 10
árum hefði verið „mesta þrek-
virki 20. aldarinnar“. Hann
þakkaði Sovétríkjunum veitta
aðstoð og kvað stríðið hafa
reynst Bandaríkjunum endalaus
myrkraganga.
Fótgönguliðar úr vietnamska
hernum, sem er hinn fjórði
stærsti í heimi, skiptu þúsund-
um í göngunni og á eftir þeim
fóru herdeildir, sem báru banda-
ríska M-16 riffla, sem teknir
voru herfangi, er Saigon-
stjórnin féll.
Alls er talið, að um 50.000
manns hafi verið í göngunni.
Ferð geimferjunnar:
Margvísleg tækni-
vandamál steðja að
HouKton, 30. aprfl. AP.
Vísindamennirnir um borð í geimferjunni Challenger fengust í dag jöfnum
höndum við rannsóknir og viðgerðir. Hófust þar með dagleg störf þeirra í
rannsóknastofunni, sem þeir deila með öpum og rottum.
Brotinn loftþrýstiloki, bilað
pípulagnakerfi, tölvuraunir og
mistök í fjarskiptum ollu þvi, að
geimförunum gekk seinlega að
komast í gang með rannsókna-
störfin.
Geimferjunni var skotið á loft
frá Kennedy-geimferðastöðinni á
Florida í gær, en innan fárra
klukkustunda frá flugtaki lentu
geimfararnir sjö í margvíslegum
tæknilegum erfiðleikum og fóru
allar tímaáætlanir úr skorðum.
Unnt var að ráða fram úr flest-
um þessum vandamálum, m.a. í
sambandi við fjarskiptin, með að-
stoð sérfræðinga á jörðu niðri.
Önnur af vandamálunum eru enn
þá óleyst og geta valdið því að
hætta verði við um 15 af tilraun-
um þeim sem fyrirhugað var að
gera í þessari vikuferð úti í geimn-
um.
Flugstjóri í ferðinni er Robert
Overmayer, sem áður hefur farið í
geimferjuferð. Aðstoðarflugmað-
ur hans er Fred Gregory. í áhöfn-
inni eru tveir læknar, tveir eðlis-
Þessi mynd sýnir skemmdir þær sem urðu á hjólbörðum geimferjunnar
Discovery við lendingu 19. aprfl sl.
fræðingar og efnaverkfræðingur.
Challenger hefur meðferðis tvo
litla gervihnetti, sem komið verð-
ur á braut um jörðu.
Samkomulag
milli Spánar
og Portúgals
LÍKHabon, 30. april. AP.
SPÁNN og Portúgal komust að sam-
komulagi í dag um lausn á ýmsum
belztu deilumálum landanna, sem
óleyst voru með tilliti til 10 ára aðlög-
unartímabils landanna fyrir aðild að
Evrópubandalaginu. Samkomulag
þetta nær til fiskveiðiréttinda Spán-
verja í landhelgi Portúgala og tolla á
vörum, sem fluttar verða út frá öðru
landinu til hins.
Samkomulag þetta náðist að
loknum 17 klukkustunda samn-
ingafundi, sem utanríkisráðherrar
beggja landanna tóku þátt i. Sagði
Moran, að enn væri eftir að gera
nokkrar tæknilegar breytingar á
því samkomulagi, sem gert hefði
verið, en mestu máli skipti þó, að
eining hefði verið um aðalatriðin.
„Viðræður þessar voru erfiðar
fyrir báða aðila, en voru táknrænar
fyrir hina miklu viðleitni af hálfu
beggja landanna til að komast að
samkomulagi," sagði Jaime Gama,
utanríkisráðherra Portúgals, eftir
fundinn.