Morgunblaðið - 01.05.1985, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUD AGURl. MAf 1985
35
Samyinnan helguð
Jónasi frá Hriflu
Smii v in nan
íslandsmótið í skólaskák:
NÝJASTA hefti Samvinnunnar er
helgað aldarafmæli Jónasar Jóns-
sonar frá Hriflu, sem var ritstjóri
blaósins lengur en nokkur annar
eða í þrjá áratugi. Heftið er 82 blað-
síður að stærd og prýtt fjölmörgum
myndum úr lífi og starfi Jónasar, en
á kápu er mynd af málverki af hon-
um eftir Gunnlaug Blöndal listmál-
ara.
Erlendur Einarsson forstjóri
skrifar grein um Jónas frá Hriflu
og samvinnuhreyfinguna, Finnur
Kristjánsson fjallar um Jónas og
heimamenn og birtir brot úr áður
óprentuðum bréfum, sem Jónas
skrifaði kornungur frændum sín-
um og vinum, Auður Jónasdóttir
segir frá foreldrum sínum og
heimili þeirra og Albert Guð-
mundsson fjármálaráðherra
minnist vinar síns og velgjörðar-
manns. Þá ræðir Gylfi Gröndal,
núverandi ritstjóri Samvinnunn-
ar, við Þóri Baldvinsson, arkitekt,
um kynni hans af Jónasi frá
Hriflu og fjóra aldna samvinnu-
menn, sem allir eiga það sam-
eiginlegt að Jónas varð örlaga-
valdur í lífi þeirra.
Af öðru efni Samvinnunnar má
nefna minningarljóð um Guð-
mund Gíslason Hagalín eftir Guð-
mund Inga Kristjánsson, skáld á
Kirkjubóli, smásögu eftir Hein-
rich Böll, minningar Indiru
Gandhi, kvæði eftir Pálma Eyj-
ólfsson, fjórar bernskuminningar
eftir Jón frá Pálmholti, greinar
um stöðu kvenna innan samvinnu-
hreyfingarinnar eftir Dagbjörtu
World Press
Höskuldsdóttur og Valgerði
Sverrisdóttur og grein um fyrstu
söngför íslensks karlakórs út fyrir
landsteinana eftir Aðalgeir
Kristjánsson, skjalavörð.
(FrétUtilkynning)
Forsíða Samvinnunnar, sem helguð
er aldarafmæli Jónasar Jónssonar
frá Hriflu.
*
Tómas Björnsson Islandsmeistari
KUiurntmn'li Jinntsur Jonssonur trá Hritlu
TÓMAS Björnsson, Hvassaleitis-
skóla, varð íslandsmeistari í skóla-
skák, en mótið var haldið að Eiðum
dagana 25. til 28. apríl síðastliðinn.
Þröstur Arnason, Seljaskóla, sigraði
í yngri flokki.
Tíu keppendur víðs vegar af
landinu höfðu unnið sér rétt til
þátttöku í eldri flokki, 13—16 ára
og tólf í yngri flokki. Um 500 ung-
menni tóku þátt í undankeppninni
í eldri flokki og um 1200 í yngri
flokki.
Tómas Björnsson hlaut 8%
vinning af 9 mögulegum. Annar
varð Þröstur Þórhallsson, Hvassa-
leitisskóla, með 8 vinninga og
þriðji Magnús Pálmi örnólfsson,
Garðabæ, með 5‘A vinning.
Þröstur Árnason hlaut 11 vinn-
inga af 11 mögulegum — lagði alla
andstæðinga sína að velli í yngri
flokki. Hannes Hlífar Stefánsson,
Fellaskóla, hlaut 10 vinninga og
Birgir Örn Birgisson, Borgarnesi
hlaut 8*/4 vinning.
COROLLA1600
Það þarf hugrekki til að endurhanna bíl sem nýtur
jafn mikilla vinsælda ogToyota Corolla,
- bíl sem í mörg ár hefur verið mest selda'
bifreið í heimi.__ _
Toyota Corolla 1600 sannar
að enn má bæta það sem best
hefur verið talið. Viðhönnun
hennar hefur þess verið gætt, að
húnhafitilaðberaalla þá kosti sem öfluðu eldri gerðum vinsælda, en
aðaláherslan hefur verið lögð á að auka innanrými,draga úr eldsneytis-
eyðslu ogbæta aksturseiginleika. Til þess að ná þessum árangri hefur
Photo lýkur Corolla verið búin
w • X I • X * IC
ídag
Ljósmyndasýningunni,
World Press Photo, sem verið
hefur í Listasafni alþýðu, lýkur
í dag 1. maí og er hún opin til
klukkan 22. Sýningin fer síðan
norður til Akureyrar, þar sem
hún verður opin frá 3. til 6.
maí.
Kristinn Guðmundsson
kennari, Eskifirði:
Stjórnvöld
þurfa að leita
nýrra leiða
Kskifirði, 29. aprfl.
„LAUN kennara eni léleg aö mínu
mati og erfítt aó láta endana ná sam-
an,“ sagði Kristinn Guðmundsson
kennari í handmennt við grunnskól-
ann á Eskifirði.
„Kristinn sagði síðan: „Árangur
verkfallanna í vetur er lítill miðað
við það sem stofnað var til og úr-
skurður kjaradóms vonbrigði. Ég
var samt ekki sáttur við þær að-
ferðir sem beitt var I upphafi
kjarabaráttunnar og á ég þá við
það, er kennarar gengu frá
kennslu, þegar ákveðið var að gera
þá launalausa á meðan á verkfalli
stæði. Laun hefðu átt að greiðast á
réttum tíma, en næsti mánuður
hefði síðan átt að vera launalaus.
Mín skoðun er sú, að raunhæfar
skattalækkanir muni verða mun
betri kjarabætur fyrir flest launa-
fólk en þær verða þá að vera
raunhæfar og ekki má setja á aðra
skatta í staðinn. Menn virðast
aldrei hafa náð þvi upp sem tapast
í verkföllum þegar að næstu
kjaradeilu er komið. Stjórnvöld
þurfa að leita nýrra leiða til að
leysa þessi mál svo betur megi
fara fyrir alla aðila."
Ævar.
Dverstæðri vél og framhjóladrifi, hjólabil hefur
verið aukið, gólf ækkað, sætum breytt og dregið hefur verið úr loft-
mótstöðu (0.34 Cd á Corolla Liftback).
RÝMI!
TOYOTA
NybyiavegtB 200Kopavogi S 91-44144