Morgunblaðið - 01.05.1985, Page 36

Morgunblaðið - 01.05.1985, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 1. MAÍ 1985 Guðríður Símonar- dóttir á heimleið í höggmynd Nær 350 ár eru liðin síðan Guðríður Símonardóttir komst aftur heim til íslands eftir nærri 9 ára þrælkun í Alsír á Afríkuströnd þar sem hún var seld í þrældóm í kjölfar Tyrkjaránsins í Vestmannaeyjum 1627. Víst er að Guðríður Símonardóttir er í hópi kunnustu og merkustu kvenna íslands- sögunnar, en um fáar er vitað sem urðu að ganga í gegnum annan eins þráð örlaga. Henni var rænt frá fjölskyldu sinni og byggð og hneppt í þrældóm í fjarlægri heimsálfu, en hún stóð af sér storma og hríðarveður örlaganna, hélt trú og von og varð að ósk sinni eftir bratta leið. t stórum dráttum má skipta lífi Guðríðar Símonardóttur í þrjá þætti. Sá fyrsti á hefðbundinn hátt í Vestmannaeyjum unz hún móðir og eiginkona er rifin upp með rótum, annar þátturinn á sér staö á Afríkuströnd í tæpan ára- tug og sá þriðji sem eiginkona séra Hallgríms Péturssonar, sálmaskáldsins sem íslensk þjóð hefur elskað svo lengi. Fordómar hafa löngum fylgt Guðríði Sím- onardóttur í munnmælum lands- manna og víst hefur hún staðið í skugga ljómans af sálmaskáldinu í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd og fyrst og fremst lifir nafn hennar með þjóðinni vegna þeirra miklu örlaga sem hrifu hana með sér. En jafnvel þegar. hún hafði náð landi á ný var henni ekki sýnd meiri samúð en svo að hún var kölluð Tyrkja-Gudda af löndum sínum' og margt hefur kynlegt verið um hana sagt án þess að rök hafi legið að baki. í erindi, sem Sigurbjörn Ein- arsson biskup flutti í Landa- kirkju í Vestmannaeyjum á 350 ára afmæþ Hallgríms Pétursson- ar, segir hann m.a.: „En Vestmannaeyjar urðu á vegi hans síðar, eitt sker á reki, brotið af því bergi, sem ræningj- ar tróðu fótum einn válegan vor- dag árið 1627. Og aldrei er saga hans sögð án þess að getið sé Vestmannaeyja. Þegar vöggudísir kváðu honum örlagastef norður í Hjaltadal var rímað á móti undir Heimakletti og stefin hittust úti í Kaup- mannahöfn og féllu hvor að öðr- um. Vér rekjum ekki þau djúpu ráð, sem komu því rími saman. Það eitt vitum vér, að héðan kom sú koná, sem skyldi ganga með honum til þess Helgafells, sem fyrir honum lá. Það var bratt þangað upp fyrir hana og varla hafa aðrar konur þurft að fara örðugri krókaleiðir til móts við maka sinn en hún. Og í augum íslenzkrar alþýðu var henni lítt stætt uppi þar á hans Helgafelli við hliðina á honum. En ekki verður það út skafið að þau áttu sameiginleg lífsörlög, Guðríður Símonardóttir úr Vest- mannaeyjum og sr. Hallgrímur Pétursson. Sambúð þeirra hefur ímyndunarafl þjóðrinnar vafið þeim hégóma, að óvíða grillir í veruleikann, en enginn fótur er fyrir því, að hjúskapur þeirra hafi ekki verið eðlilegur. Það er sagt að hún hafi verið mislynd nokkuð, enda verið úti í misvindi og stórum veðrum, en glaðlyndi hans og jafnlyndi hafi sléttað úr þeim öldum og lægðum, sem hennar fari fylgdu, en það er al- kunna að andstæður í skapferli fara oft vel saman í hjónabandi. En hitt er óyggjandi að Guðríð- ur hefur verið fágæt atgerviskona á marga grein, ella hefði h ún ekki komizt fram úr þeim ófær- um, sem atvikin tefldu henni i.“ Eyjakonan Guðríður Símonar- dóttir hefur lengi staðið óbætt hjá garði minninganna í rás sög- unnar, en nú hefur Ragnhildur Stefánsdóttir myndhöggvari gert höggmynd um Guðríði að beiðni Eyjamanna og er ráðgert að setja höggmyndina upp á hennar gömlu lóð á Stakkagerðistúninu í Eyjum, í hjarta bæjarins þar sem hún átti sitt heimili og sína fjöl- skyldu er Hund-Tyrkir rændu nær helmingi af 500 íbúum Vest- mannaeyja og drápu tugi manna. Ragnhildur Stefánsdóttir byggir höggmynd sína um Guðríði á þeirri skoðun að þessi umdeilda kona hafi þrátt fyrir allt staðið eins og klettur, ekki aðeins' í gegnum sína eigin samtíð i sorg og gleði, heldur einnig í gegnum aldanna rás, svo einstæð sem saga hennar er. Þess vegna hefur listamaöurinn byggt konumynd Guðriðar út úr dröngum og klett- um Eyjanna, því formi sem hefur staðið af sér öldugang aldanna. í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd-er fátt sem minnir á hina nafn- kunnu húsfreyju nema örnefni, í Reykjavík er verið að byggja veglegustu kirkju landsins til heiðurs minningar bónda hennar, en höggmyndinni um Guðríði Símonardóttur er ætlaður skiki heima í Eyjum þaðan sem hún var slitin burt og þangað sem hún ætlaði á heimleið úr Barbaríinu þótt örlögin kipptu enn einu sinni svo afgerandi í líf hennar. - á.j. Morgunbladið/Frídþjófur Helgason Höggmyndin um Guðríói Símonardóttur á lokastigi í Járnblendi- verksmiðjunni á Grundartanga þar sem Ragnhiidur myndhöggv- ari hefur haft aðstöðu til að vinna verkið á lokástigi, en frum- drögin vann hún í húsnæði sem Vífilfell í Reykjavík lagði til. Höggmyndin er síbreytileg eftir því frá hvaða hlið er horft á hana en þessa mynd tók Friðþjófur Helgason Ijósmyndari af verkinu nær fullgerðu. Þórdís Eik heitir litla stúlkan sem hallar sér að einum klettinum sem er hluti af höggmyndinni um Guðríði Sím- onardóttur. Höggmyndin er tæpir 3 metrar á hæð. Samtök stofnuð um verndun Mývatns „SAMTÖK um verndun Mývatns" voru formlcga stofnuð í Mývatns- sveit þann 19. aprfl sl. Að stofnun- inni stóð hópur áhugafólks um nátt- úruvernd. Samtökin samþykktu eft- irfarandi yfirlýsingu um tilgang og markmið: (1) Samtökunum er skylt að standa vörð um lögin og verndun Laxár og Mývatns frá 1974, og gæta þess að þau séu haldin í hvi- vetna. (2) Ef rannsóknir á lífríki Mý- vatns eða aðrar augljósar stað- reyndir benda til þess að náma- gröftur úr botni þess, starfræksla efnaverksmiðju á bökkum þess, röng stjórnun á framrennsli Mý- vatns við Mývatnsósa, eða hver önnur starfsemi á svæðinu stofni lífríki Mývatns eða umhverfi þess i hættu, ber þegar í stað að stöðva slíka starfsemi, nema óyggjandi sannanir liggi fyrir um að breyt- ingar á þeim rekstri komi í veg fyrir alla áhættu. Samtökin eni þess fullviss, að lífríki Mývatns sé svo einstakt og dýrmætt, að óaf- sakanlegt sé að setja það í hugsan- lega hættu af mannavöldum. (3) Markmiðum sínum hyggjast samtökin ná meðal annars með að leita aðstoðar áhugamanna, stofn- ana og samtaka um náttúru- og umhverfisvernd, innlendra sem erlendra, svo og með kynningu á málstað okkar í ræðu og riti, enda teljum við okkur skylt að veita lið- sinni hverjum þeim aðilum, sem hafa náttúruvernd hvers konar að markmiði. Samtökin eru öllum opin. Hver sá sem undirritar' yfirlýsingu samtakanna er orðinn félagií þeim. Kjörin var fimm manna framkvæmdastjórn samtakanna. Hana skipa: Einar ísfeldsson, Kálfaströnd, Árni Halldórsson, Garði, Ásmundur Geirsson, Álfta- gerði, - Egill Freysteinsson, Vagnbrekku, og Stefanía Þor- grímsdóttir, Garði. (Úr rrétutilkrnníngu.) JNNLEN'T Sindrp E* ^MÍan iðjan hf. Inytjum um mánaöamótin Fífuhvamm í Kópavogi Sími641190. §n&3®sasK2a®,5Sí2i ílk. DHL Hraðflutnlngar hf.: Moskvuborg bætist við áfangastaði fyrirtækisins ALÞJÓÐLEGA fyrirtækid DHL, hér nefnt Hradflutningar hf., sem sérhæf- ir sig í hraðflutningum á verslunarskjölum og smápökkum heimshorna á millí, hefur nú bætt Moskvuborg í alheimsnet sitt af mikilvægum áfanga- stöðum. Nú er því mögulegt að senda verslunarskjöl og smápakka með DHL, Hraðflutningum hf., frá íslandi til Moskvuborgar. Á fundi sem haldinn var með fréttamönnum í fyrri viku kom m.a. fram í máli Patricks And- ersen, framkvæmdastjóra DHL á íslandi, að fyrirtækið hefur 600 viðskiptastöðvar I 140 löndum, al’t'frá fslandi til Nýju Gíneu. Undirritaður hefur verið samn- ingur við sovésku ríkisfraktþjón- ustuna SVT og væntir DHL þess að bæta 48 sovéskum borgum í alheimsnet sitt fyrir árslok 1985. Þá er í bígerð að bæta við Aust- ur-Evrópuíöndum s.s. Júgóslavíu, Rúmeníu, Búlgarfu, Ungverja- landi og Póllandi. Ennfremur var kynnt á fundin- um nýtt verðlagningarkerfi fyrir- tækisins, sem nefnist mánaðar- uppbót DHL. Samkvæmt því gefst viskiptavinum nú sjálfum kostur á að ákveða verð hverrar sendingar þar eð hin mánaðar- lega uppbót er reiknuð út frá heildarfjölda sendinga þeirra frá fyrra mánuði. Hið nýja uppbót-. arkerfi gildir jafnt um smápakka sem skjöl og gengur það í gildi frá og með 1. maí.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.