Morgunblaðið - 01.05.1985, Page 50
50
MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1985
fclk í
fréttum
Frá vinstri: Magnús Ólafsson, forstöðumaóar Emmess-ísgeró-
arinnar, Guðlaugur Björgvinsson, forstjóri MS, og Erlendur
Magnússon, forstöóumadur Brauðgeróar MS.
COSPER
' *?■****.»
WL
CosrtR
— Hvers vegna seljum við ekki bílinn og kaupum
nýjan bíl fyrir andvirðið?
Stefanía:
Andlitió
karlmannlegt
og hörkulegt,
en línurnar
eru skýrar.
Ágúst Þorvaldsson, Brúnastöðum, stjórnarformaður Mjólkur-
samsölunnar og fyrrverandi alþingismaóur, ásamt Matthíasi
Bjarnasyni heilbrigðisráðherra.
Tímamót hjá
Mjólkursamsölunni
í tilefni af 25 ára afmæli Emmess-rjómaísgerðarinnar, 50
ára afmæli Mjólkursamsölunnar og 40 ára afmælis Sam-
sölubrauðgerðarinnar, bauð stjórn fyrirtækisins kaup-
mönnum og viðskiptaaðilum fyrirtækjanna í síðdegisboð
á Hótel Sögu fyrir skömmu. ólafur K. Magnússon var
mættur á staðinn og tók meðfylgjandi myndir.
Rainer:
Áhyggjufullur
Rainer
setur
beisli á
Stefaníu
dóttur
sína
Rainer Mónakófursti óttast nú mjög um andlega
heilsu Stefaníu prinsessu. Hann hefur áhyggj-
ur af þvi að hún þoli ekki þá spennu sem fylgir því
að vera eftirsótt ljósmyndafyrirsæta og tískusýn-
ingardama beggja vegna Atlantsála og hefur beðið
hana lengstra orða að taka sér frí frá starfi sínu
einhvern tíma og hugsa sitt mál vandlega. Blaða-
fulltrúi furstans hefur staðfest þetta og Stefanía ku
vera að velta fyrir sér beiðni föður síns. Raunar
segja margir að hann hafi ekki einungis beðið hana
að slaka á, heldur skipað henni það og nú sitji
vansæl prinsessa í furstahöllinni. Vogue, Harpers,
Cosmopolitan og öll hin tímaritin íhuga skaðabóta-
kröfu á hendur fyrirsætumiðlun Vilhelmínu.
Stefanía leið nokkuð fyrir það í æsku að vera
yngst og ekki álitin eins falleg og eldri systirin
Karólína. Þá var hún (og er segja sumir) fremur
stráksleg að ýmsu leyti. Þegar Grace móðir hennar
lést í bílslysi, var Stefanía í för með henni, brákaði
hryggjarliði og fékk taugaáfall. Eftir það hefur hún
ekki verið söm að því er fregnir herma og ekki hefur
bætt úr skák samband hennar við syni þeirra Jean
Paul Belmondo og Alain Delon. Þau voru storma-
söm, einkum það fyrrnefnda, en ögn uppbyggilegra
það síðara, en það leið undir lok er Stefanía skrifaði
undir samninginn við Vilhelmínu sýningarstúlku-
miðlara. Tók það einnig á Stefaníu. Nú er Rainer
handviss um að dóttir sín sé orðin taugaveikluð og
ráðvillt og viti í raun ekkert hvað hún vilji. Því beri
að gera sem mest á sem skemmstum tíma. Hann
vill hlífa henni og vinir og vandamenn deila um
hvort hann ætli sér ekki um of með því að kyrrsetja
dóttur sína heima fyrir ...