Morgunblaðið - 01.05.1985, Qupperneq 53
gæti frelsi og athafnir verkalýðs-
samtakanna.
Einn af æðstu draumum at-
vinnurekenda er að þeir nái með
einhverjum hætti að slíta þau
tengsl sem nauðsynleg eru á milli
svokallaðrar verkalýðsforustu og
hins almenna félaga í félögum. Að
draga okkur til aukins miðstjórn-
arvalds og að eyða þar með þeim
lýðræðislegu hefðum sem okkur
eru dýrmætastar.
Af mörgum tilburðum í þessa
átt er nærtækast að nefna tilkomu
sjöttu greinarinnar margræddu í
síðustu samningum.
Okkar lán var það að Alþýðu-
sambandsþing stóð fyrir dyrum og
kom saman nægilega snemma til
þess að fjalla um málið. Þar leit-
uðu menn skýringar á slysi þessu
og tókst að finna ráð til að draga
úr þessum fleyg sárasta broddinn.
Jú, fjandsamleg stjórnvöld og
árásir andstæðinga geta vissulega
stefnt frelsi verkalýðshreyfingar í
voða, en önnur hætta og ekki
minni stafar af ríkjandi áhuga-
leysi og jafnvel algjöru tómlæti
hins almenna félagsmanns fyrir
því sem er að gerast í kjaramálum
hans.
Á upphafsárum hreyfingarinn-
ar heyrðust raddir atvinnurek-
enda halda því fram að verkafólki
kæmi það hreint ekkert við hvað
því væri borgað í laun, því bæri að
vinna og vinna vel, en svo væri það
einkamál vinnuveitandans hve-
nær, hvernig og hve mikið hann
greiddi því fyrir vinnuna. En nú
lætur enginn vinnuveitandi slík
ummæli frá sér fara, þó margir
MORGUNBLAÐIS, MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1985
53
þeirra gætu eflaust hugsað sér
endurkomu þessara gömlu daga.
Heldur má nú heyra álíka athuga-
semdir hrjóta af munni starfs-
manna við vinnuborðin eða á
kaffistofum fyrirtækjanna, eins
og til dæmis þessar: Hvað varðar
mig um þessa kjarabaráttu, er
ekki búið að kjósa menn til að
redda þessu öllu? Hver borgar
þeim eiginlega kaup, er það ekki
ég? Ef þeir geta ekki staðið í
stykkinu þá skiptum við bara um
menn. Þetta gæti hann sagt ef
hann er þá einn af þeim fáu sem
drógust á síðasta aðalfund til að
skipta um menn.
Það er sorglegt hvað margir fé-
lagsmenn eru óvirkir með þessum
hætti, og virðast halda að þeir geti
beðið eins og ungar í hreiðri með
gapandi gin eftir því að formaður-
inn komi að sunnan frá samninga-
borðinu með bitastæðan mola og
stingi honum í kok þeirra.
Nei, með þeim hætti vinnast
engir sigrar hversu oft sem skipt
er um formenn og stjórnir. Gerum
okkur það ljóst að hin svokallaða
verkalýðsforusta er ekki ákvörð-
unaraðili nema í smámálum innan
þess ramma sem við höfum sett
henni með starfsreglum. Hún er
þjónustuaðili sem er kjörinn til að
vinna að þeim málum, og eftir
þeim stefnum sem hinir almennu
félagsmenn hafa ákveðið hverju
sinni á félags- og aðalfundum fé-
laga sinna.
Kæru félagar, þið hafið eflaust
búist við upptalningu á afrekum
síðasta árs, eða að gefinn yrði
tónninn um næstu baráttumál í
þessu ávarpi eins og svo oft hefur
verið gert, en svo verður ekki að
þessu sinni. Bæði er að afrek síð-
asta árs hafa ekki þyngt buddu
ykkar svo nokkru nemi, og heldur
er nú rislág útkoman á öðrum
sviðum kjaramálanna, og svo hitt
að það er ykkar verk að gefa tón-
inn um framtíðina.
Viljið þið ónothæfa miðstýrða
verkalýðsforustu, hangandi í
lausu lofti án þess grunns sem
byggður var í upphafi baráttunnar
eða ætlið þið að snúa aftur til
þeirrar nauðsynlegu þátttöku í
virkri verkalýðshreyfingu sem ein
getur skilað umtalsverðum
árangri.
Kröfuganga og útifundur hinn
1. maí að þessu sinni er kjörinn
vettvangur til að sýna aukinn
samhug og baráttuhug okkar til
nýrrar sóknar. Elsta og besta
tjáningarform sem við þekkjum
til að sýna hvert öðru samhug og
samvinnuvilja er að safnast sam-
an, mynda breiða og langa fylk-
ingu, lyfta sameiginlega og sam-
tímis kröfum okkar og óskum um
betra mannlíf. Fyrir slíka tján-
ingu þarf enginn að skammast sín.
Einstöku glottandi Hannesar
við bankahornin eru hinar einu
aumkunarverðu persónur þessara
atburða.
Kæru félagar, okkur ber skylda
til að vinna af heilindum og krafti
að því að styrkja samtök okkar og
að skila næstu kynslóð
óskemmdri, öflugri og umfram
allt frjálsri verkalýðshreyfingu.
Til hamingju með daginn.
1. maí-nefnd verkalýðs-
félaganna á Akureyri."
Veitingahúsiö
býður upp á létta og gómsæta rétti í hádeginu,
kaffi og kökur eöa smurt brauð um miðjan dag-
inn auk glæsilegs sérréttaseðils sem er í boði
allan daginn frá kl. 11.30 til 23.30.
Njótið góðrar þjónustu og veitinga þar sem allir
reyna að gera sitt besta til að þér líði sem best.
Veriö velkomin í Alex.
Boröapantanir í síma 24631.
Sveinbjörn Þór sýnir í Eden
Sveinbjörn Þór myndlistarmaður opnar í dag, 1. maí, kl. 14 sýningu í
Eden í Hveragerði. Á sýningunni eru 77 smámyndir, unnar í olíu, akrýl
og vatnsliti. Sýningin stendur til sunnudagskvölds 12. maí.
Aðalfundur AÍ:
Jes Einar Þorsteins-
son kjörinn formaður
AÐALFUNDUR Arkitektafelags ís-
lands var haldinn 23. febrúar sl.
Stjórn félagsins skipa nú Jes Einar
Imrsteinsson formaður, Helga
Bragadóttir ritari, Stefán Thors
gjaldkeri og Guðlaugur Gauti Jóns-
son meðstjórnandi.
Starfsemi félagsins hefur verið
blómleg og margt á döfinni. Nýyf-
irstaðin er sýning um endurbætur
gamalla bæjarhluta frá Menning-
arstofnun Bandaríkjanna. Þá er í
bígerð að fá hingað erlenda fyrir-
lesara sem eru á leið yfir hafið.
Talsverð umræða hefur átt sér
stað um það hvort hefja skuli
kennslu hér á landi í arkitektúr.
Námsbraut í faginu myndi styrkja
verulega starfsgrundvöll arkitekta
og efla tengsl við aðrar stéttir, al-
menning og stjórnvöld í landinu.
Aðstaða til rannsókna myndi
skapast og efla mætti alla útgáfu-
og fræðslustarfsemi. Hugsanleg
kennsla í arkitektúr í grunnskól-
um landsins hefur einnig verið til
umfjöllunar og unnið hefur verið
að gerð tillagna um endurmennt-
unarnámskeið í tenglsum við Há-
skóla íslands.
Fréttatilkynning
Klassískt kvöld
í Arnarhóli
í kvöld
Marakvartettínn
leikur kammertónlist undir borðhaldi.
NÝR, STÓRKOSTLEGUR SÉRRÉTTASEÐILL
Friðrik S. Kristinsson
í Koníaksstofunni
syngur Friðrik S. Kristinsson tenor. Friðrik er í
kennaradeild Söngskólans í Reykjavík. Söng-
kennari hans er Magnús Jónsson óperusöngv-
ari. Friðrik hélt sína fyrstu sjálfstæðu tónleika
í mars sl. og hefur sungið við hin ýmsu tæki-
færi. Undirleikari er Lára S. Rafnsdóttir píanó-
leikari.
Vinsamlegast pantið borð tímanlega.
Með ósk uni a<) þið eigið ánœgjulega kvöldstund.
ARTÍARHÓLL
Á hoYni Hverfisgötu og Ingóífsstrœtis.
Bovdapcmtanirfsh na 18833.
Smiðjukaffi
Opið allar nætur