Morgunblaðið - 01.05.1985, Side 59

Morgunblaðið - 01.05.1985, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 1. MAÍ 1986 59 n VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 14—15 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS {f UitMffiAtí'il If Ekki borin eins mikil virðing fyrir stjórn- málamönnum og áður Jóhann Þórólfsson skrifar: Feta ráðherrar og þingmenn í fótspor forfeðra sinna? Þessari spurningu munu víst flestir svara neitandi. Hugsum okkur t.d. menn eins og Jónas Jónsson, ölaf Thors, Bjarna Benediktsson, Hermann Jónasson o.fl. Að mínu mati eigum við því miður ekki eins snjalla stjórn- málamenn og þessar látnu kemp- ur. Mætti benda á margt máli mínu til stuðnings, sem yrði of langt upp að telja. Þó vil ég benda á eitt atriði í þessu sambandi og það er að ég held að þeir, sem nú eru fulltrúar þjóðarinnar séu ekki eins orðheldnir og ábyrgir stjórn- málamenn og fyrirrennarar þeirra, enda hef ég orðið var við það, að nú er ekki borin eins mikil virðing fyrir þingmönnum og áður var og stafar það kannski ekki hvað sízt af því, að margir af þess- um mönnum lofa og svíkja kjós- endur, þó á séu margar heiðarleg- ar undantekningar. Þeir eru hins vegar of margir með þessu marki brenndir. Orðheldni kostar enga peninga. Eins er það, að þeir karpa oft tím- unum saman um mál, sem litlu skipta fyrir þjóðina og eru það oft mál eins og t.d. bjórfrumvarpið hans Sólness og bókstafurinn Z og fleiri slík smámál. En skattamálin, já, og efna- hagsmál þjóðarinnar í heild virð- ast sitja á hakanum, að ég nú ekki tali um kaupgjaldsmálin. Þar vantar mikið á, að þessir menn geri sér far um að bæta hin- um lægstlaunuðu upp þau háðung- arlaun, sem þeir verða að draga fram lífið á. Þeir eru líka sjálfir vel launaðir og ráða sínu kaupi sjálfir, sem mér finnst mjög rang- látt. Þar ættu til að koma óvilhall- ir menn, sem skæru úr um það hvaða kaup ráðherrar og þing- menn hefðu. Það er öllum ljóst, að til þess að fólk almennt geti lifað mannsæm- andi lífi í þessu landi þarf að leggja nótt með degi. Það sýnir að við þurfum betri forystu. Þetta er harður dómur, en ég veit að ég er ekki einn um þessa skoðun. Ekki þar fyrir, að ég get nefnt nöfn eins og Ragnhildi Helgadóttur, Sverrir Hermannsson, Lúðvík Jósefsson, Helga Seljan og Guðrúnu Helga- dóttur, sem ég tel öll vera ágæta fulltrúa, burtséð frá allri pólitík. Hún er hvort sem er í dag óþjóð- holl og mannskemmandi að koma nálægt henni. Nú, Albert og Sverrir láta ekki ráðherra reka sig út i horn með sínar hugsjónir og ég lít upp til slíkra manna, hvar í flokki sem þeir standa. Eitt er það enn: Burt með bjór- frumvarpið úr sölum Alþingis. Drykkjuskapur íslendinga er orð- inn svo mikill að það er orðið eitthvert mesta vandamál þjóðar- innar. Þeir eiga þakkir skyldar, sem þar sporna á móti og þar yrði bjórinn hrein viðbót. Þar hefur vinur minn Helgi Seljan barizt bezt á móti og á hann lof skilið fyrir sitt framlag í þessum efnum. Eg sé ekki, hvað bjórinn á skylt við menningu og sízt mundi hann leysa unglingavandamálið. Ég vil svo að lokum segja það, að ég lít upp til kvennanna á þingi, þær eru góðir fulltrúar þjóðar sinnar, einkum þær Salome og Ragnhild- ur. Við þurfum að fá fleiri slíkar. Svo segi ég: Sæl að sinni, eins og þeir segja stundum í útvarpinu. Það er vandi að velja sér valdamenn sem stjórna. Almenning þeir ætla sér aðeins til að fórna. Peningum stolið af aldraðri konu F.K. skrifar: Velvakandi góður! Ég treysti þér til þess að koma þessum línum á framfæri sem fyrst. Ég þarf að segja stutta sögu: Síðasta vetrardag fór ég í heimsókn til konu á níræðis- aldri, en hún býr á einu vist- heimilinu fyrir aldraða hér í borg. Ég sá strax að það amaði eitthvað að henni og spurði því: „Er nokkuð sérstakt að frétta í dag?“ „Æ, það er sorgarsaga,” sagði hún. „Ég þurfti að bregða mér frá einn daginn f vikunni. Ég hef víst ekki lokað herberg- inu mínu — datt ekki í hug að neinn færi þar inn. Ég átti dá- litla peninga í veski í skápnum þarna — nokkur þúsund. Þegar ég kom inn aftur voru þeir horfnir — hver einasti eyrir. Hvernig á maður að láta sér detta í hug að til séu svona mikl- ir vesalingar að ræna frá sak- lausu fólki. Ég hefi verið að safna þessu saman svona smátt og smátt af því sem maður fær mánaðarlega. Þetta hefur eng- inn í húsinu gert, það veit ég með vissu. Það hefur einhver utan af götunni fylgst með því þegar ég fór út. Þessir aumingja menn nota hvert tækifæri til þess að bjarga sér. Það er ógæfu- fólk sem þarf á fyrirbæn að halda. Þetta var mikið áfall fyrir mig, en vonandi kemst ég yfir það.“ Þetta voru orð viðmælanda míns. Á leiðinni heim datt mér í hug að segja frá þessu ef ske kynni að einhverjar góðhjartað- ar manneskjur, sem hafa aura- ráð, vildu gleðja konuna með þvi að senda henni nokkrar krónur. Safnast þegar saman kemur. Hún heitir Sigurbjörg Péturs- dóttir, Droplaugarstöðum. Gleðilegt sumar. Merki Ella Magnússon hafði samband við Velvakanda. Hún á þessi tvö merki, sem birtast hér á síðunni, en hún vissi ekki deili á þeim. Ella vill því vita hvort einhver kannast við merkin, hvaða ár þau voru gefin út og af hvaða tilefni. Passamyndir Ljósmyndastofa Reykjavíkur er á horni Hverfisgötu og Snorrabrautar Öll almenn Ijósmyndaþjónusta Verið velkomin Hverfisgötu 105, 2. hæð. Sími 621166. BMW 635 CSI m/öllu Verð 880 þús. Benz190 E Árg. 1980. Verð 950 þús. M. Benz 1983 m/öllu Verð 1280 þús. Opið kl. 5-7. Uppl. í síma 81588 Chevrolet Blazer árg. ’77 með 6 cyl. Perkings dieselvél. Ekinn bíll og vél 77 þús. km. Ath. skipti á ódýrari eða dýrari. Range Rover 1984 M. rafmagnsrúöum og ýmsum aukahlutum. Verö 1450 þús. Benz 1973 Range Rover 1980 Sjálfsk., vökvastýri. Innfl. notaö- m/öllu. Verö 880 þús. ur 1982. vélapúöar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.